Alþýðublaðið - 29.08.1944, Blaðsíða 3
á*ti8judaguj 29. ágúst 1944
A mynd þessari sjást þýzkir fangar bíða þess að fara um borð í skip, sem mun flytja þá
tii Bretlands. Meðal þessara fanga voru margir Austurríkismenn og Tékkar. Fangar þessir
voru teknir í orrustunni um St. Lo á Normandieskaga, en þar voru háðir harðir bardagar
. áður en Þjóðverjar gáfust upp.
Á leið til fangabúða
Á-
m. Dí@iðu s
Hafa tekið (haleau Thierry og Meaux og
sækja til Somme
SeiuSið iÞJéðverJa í SV8arseil3es gafst upp í
gær, esi SÞjóðverjar verjasf í TouSon
" - -*» ■ - •
ILKYNNT var í aðalbækistöð bandamanna í Frakklandi í
gær, að Vélahersveitir Pattons, sem lítið hefir frétzt af
að undanförnu, væru komnar að Marnefljóti á 80 km. breiðu
svæði. Hafa þær náð á sitt vald borgunmn Chateau Thierry og
Meaux og sækja fram í áttina til Sommefljóts. Bandaríkjamenn
hafa fellt um 16 þúsund Þjóðverja og tekið um 65 þúsund fanga.
Bretar og Kanadamenn þjarma mjög að þýzkum hersveitum. sem
verjast á þrem nesjum á suðurbakka Signu og halda uppi mikl-
um loftárásum á þær. Herlið bandamanna streymir nú yfir Signu
á mörgum stöðum. .......
Bandamenn hafa nú alla Marseilles á sínu valdi og gáf-
u'st leyfar setuliðs Þjóðverja upp i gær. Sveitir úr 19. hern-
um ameríska halda áfram sókninni upp Rhonedalinn og hafa
tekið borgina Montelimar, 60 km. norður af Avignon. Banda
menn eru einnig komnir að úthverfum Nizza, skammt frá
landamæmm Ítalíu. Þjóðverjar verjast enn á nokkmm stöð-
um í Toulon.
50 þýzkar orusluflug-
félar sprengdar í loft
upp í Oslo
T^T YLEGA varð óskapleg
sprengng um nótt í Bjöl-
seníhjverifi í norðurhluta Oslo-
borgar. Eyðilagðist þarna með
öllu geysistór ibygging, þar sem
voru sporvagna- og strætisvagna
geymslur, verkstæði og viðgerð
arstöðvar, sem Osloborg á. Allt
virtist ibenda til, að hér væri um
skemmdarstarfsemi að ræða og
nú hefir komið á daginn, að svo
var. Er talið að þarn.a hafi norsk
ir föðurlandsvinir valdið Þjóð-
verjum meira tjóni, en dæmi
eru til í Noregi til þessa.
Flestallir íbúar Oslo vöknuðu
við sprenginguna. Bifreiðg
geymslur þessar og verkstæði
voru notuð af Þjóðverjum sem
flugyéJ abyrgi, og þar voru einn
ig geymdir flugvélaihreytflar og
ýmisleg verðmæt verkfæri og
áíhöld. í sprengingunni eyði-
lögðust annars 50 orrusfuflug-
vélar, yfir 100 flugvélaihreyflar,
mikið af varalhlutum og verkfær
um, sem ómögulegt er að fá
aftur.
Fólk, sem býr þarna í grend-
inni, og vissi hvað það var, sem
Þjóðverjar geymdu .þarna, er
mjög ánægt yfir þessu áfalLi
Þjóðverja. — Annars hefir ver-
ið mikið um sprengingar í verk
smiðjum í Oslo og nágrennd að
undantförnu, meðal annars í efna
verksmiðju og geysistórri raf-
tækjasmiðju.
Borgin Ohateau Thierry sem
bandamenn hafa tekið við
Marne, er um 45 km. norðvest
ur af Reims og um 100 km frá
landamærum Belgíu. Þar börð
ust Bandaríkjamenn við Þjóð-
verja í fyrri heimsstyrjöldinni.
Sumar fregnir herma, að fram-
sveitir bandamanna hafi brot-
izt yfir Marne á nokkrum stöð
um. Bandamenn halda einnig
áfram sókn norðaustur af
Troyes.
Þjóðverjar eru enn á hröð-
um flótta við neðan verða
Signu. Hefur þeim tekizt að
koma allmikiu liði yfir fljótið,
en orðið að skilja eftir fall-
byssur sínar, skriðdreka og önn
ur þyngri hergögn. Eru þeir að
rhestu einangraðir á þrem nesj
um og láta bandamenn skothríð
ina dynja á þeim og gera sí-
felldar loftárásir á bifreiðar
þeirra og pramma á Signu. Tal
ið er, að Þjóðverjar hafi enn á
syðri foakka fljótsins 3 fótgöngu
liðsherfylki og 2 vélaherfylki.
Hersveitir Þjóðverja, sem kom
ust undan yfir fljótið, hörfa
undan i áttina til Afobeville og
Dieppi. Róuen má heita í rúst-
RÚMENÍA:
Rússar brjótast vesfur yfir Dóná
og hafa tekið Galafz og Braila
Þeir eru komnlr yfir landamæri Ungverjalands
samkvæmt óslaðfeslum frétfum
RÚSSAR halda áfram sókninni í Rúmeníu og tilkynna hvern
stórsigurinn af öðrum. í gær tilkynnti Stalin í dagskipan
að Rússar hefðu brotizt yestur yfir Dóná og tekið borgina Braila,
mikilyæga samgöngumiðstöð, en borgin Sulina við Svartahaf féll
í ihetajdur Iandgöngiuhei-s*vei ta úr Svartah ajf sf $>ta Rúsjsa, áður
höfðu þeir tekið borgina Galatz. Þá er borgin Tulcea, austur af
Braila, skammt frá Dónárósum, einnig á valdi Rússa. Sumar fregu
ir herma, að hersveitir Tolbukins og Malinovskys hafi brotizt inn
yfir landamæri Ungverjalands, gegnum skörð í Karpatafjöllum.
í gær tóku Rússar 11 þúsund Þjóðverja höndum í Rúineníu.
Sókn Rússa er með ódæmum
hröð í Rúmeníu og sums
staðar hafa Donkósakkasveitir
farið 50 km. á dag í Mið-Rúm-
eníu. Rússar sækja hratt fram
frá Galatz í áttina til Búkarest
og olíuborganna í Ploestihér-
aði. I sókn þessari tóku þeir
borgina Braila, sem er þýðing-
armikil samgöngu- og iðnaðar-
borg með um 70 þúsund íbú-
um. Svartahafsflotinn rúss-
neski hefur haft sig mikið í
frammi. Gengu sjóliðar á land
við Sulina við Svartahaf og
tóku borgina með áhlaupi.
Fregnin um, að Rússar væru
komnir inn í Ungverjaland eru
næsta óljósar, en þykja senni-
legar, enda hafa Rússar mjög
hert sóknina í Karpatafjöllum
undanfama daga.
LEPPRÍKIN í AUKNUM
VANDA
Útvarpið í Moskva hefur birt
aðvaranir til Ungverja og segir
meðal annars, að allir hugsandi
menn í landinu hljóti að sjá,
að Þýzkaland muni gefast
upp í náinni framtíð. Ungverj-
um verði að vera það ljóst, að
hörmungarnar hljóti að verða
æ meiri eftir því, sem þeir
styðji Hitler lengur. Þess
vegna skuli þeir þegar í stað
láta sér segjast og hætta
heimskulegri andspyrnu og
baráttu með Þjóðverjum. Brezk
blöð ræða mikið um hlutleys-
isstefnu Búlgara og segja, að
það sé óhæfa, að Búlgarar,
sem farið hafi ránshendi um
lönd nágranna sinna, skuli nú
geta skotið sér á bak við hlut-
leysisyfirlýsingu, þegar sýnt
er, að Þjóðverjar tapi í styrj-
öldinni. Bandamenn verði að
fá öll afnot af samgöngukerfi
landsins og mannvirkjum í
baráttunni við Þjóðverja, ef
þeir telja sig þurfa þess. Talið
er, að bráðlega verði birtir
friðarskilmálar þeir, sem
bandamenn munu ætla að
setja Búlgörum.
í PÓLLANDI
Harðir bardagar geisa enn
víða í Varsjá, og hafa Þjóð-
verjar haldið uppi stórskota-
hríð á gamla borgarhlutann.
Þar hafa Pólverjar náð á sitt
vald tveimur varnarvirkjum
Þjóðverja. Austan borgrainnar
hafa Rússar hrundið öllum á-
rásum Þjóðverja og valdið
miklum spjöllum í liði þeirra.
Við Bialystok halda Rússar
áfram sókninni. í Lettlandi
hafa Rússar tekið bæinn Gul-
bene, sem talinn er hafa miklá
hernaðarþýðingu. í gær eyði-
lögðu Rússar 83 skriðdreka
Þjóðverja og skutu niður 41
flugvél.
um.
Flugmenn bandamanna hafa
gert grimmilegar árásir á járn
brautarlestir Þjóðverja að baki
víglínunni. í gær eyðilögðu
þeir 190 eimreiðir Þjóðverja og
1100 járnbrautarvagna. 36
þýzkar flugvélar voru eyðilagð
ar, ýmist i loftorrustum eða á
jörðu niðri. Auk þess voru gerð
ar loftárásir á járnbrautir allt
frá Nijmegen í Hollandi til
Frankfurt í Þýzkalandi. 200
eimreið’r voru eyðilagðar í
þeim árisum. svo og 1200 járn
brautarvagnar.
SUÐUR-FRAKKLAND
19. hernum ameríska gengur
greiðlega sóknin upp Rhonedal
inn og eru komnar til Monte-
limar, norður af Avignon. Þjóð
verjar játa, að þeir eigi mjög í
vök að verjast milli Valence
og Lyons, sem er enn norðar.
Setulið Þjóðverja í Marseilles
gafst upp í gær og er borgin
öll á valdi bandamanna. Mikl-
ar skemmdir hafa orðið þar í
borg og í Toulon, þar sem Þjóð
verjar verjast enn af mikilli
hörku. í Marseilles er ekki
nema þriðjungur borgarbúa,
hinir hafa flúið m’ borginni, eða
verið fluttir til Þýzkalands.
Loks er tilkymit, að banda-
menn séu komnir að úthverf-
um Nizza.
í PARÍS.
Lífið í París virðist nú vera
eð komast í samt lag. Banda-
r~snn eru byrjaðir að fivtia
þr.r<-pð matvælí. bæð- með bif
r°;ðum o'’ eins lcftleiðis. Eink-
er f]”tt mjólk, fiskur og
,ým:s könár hjúkrúiiargögn.
Lögð er áherzla á að útvega
börnum og konum með ung-
böm matvæli á undan öðrum.
De Gaulle hefir sent Bretakon-
ungi skeyti, þar sem hann þakk
ar konungi heillaóskirnar og
vinsemd og aðstoð undanfarin
fjögur ár. Chiang Kai Shek
hefir einnig sent de Gaulle
heillaóskir sínar í tilefni af
frelsun Parísar.