Alþýðublaðið - 01.09.1944, Blaðsíða 2
ALÞT0UBLAÐÍ©
Fpstudagur 1. sept. 1944.
Börnin að leik við vatnsiþróna á leiikveMinum við Njálsgötu, en
vatnsþrær og sand/þrær eru auk ýmissa annara leiktækja á öll-
'Uim barnaieikvöllum bæjarins.
Aukning og
valla
fegrun barnaleik-
Um 800 reykviksk börn hehnsóttu harnaieik-
veliina daglega í sumar
Slysavarnafélag íslands:
Aukið kennsluslarf. Ymsar merk-
ar framkvæmdir í undirbúningi
----------------—.......
WleðaS annars að byggð verði hjörgunarstöð
í Vatnagörðism.
C KEMMTIGARÐAR og
^ leikvellir Reykjavíkur-
bæjar hafa tekið miklum
framförum undanfarið og
enn er iþó ökki nema hálf-
unnið verk, því að ráðamenn
bæjarins hafa ýmsar áætlan-
ir með 'höndum bæði hvað
snertir bætt útlit þeirra
skemmtigarða og barnaleik-
valla sem fyrir eru og aukn
ingu þeirra að miklum mun.
Sigurður Sveinsson garðyrkju
ráðunautur bæjarins fór með
blaðamenn í för um skemmti-
garðana og leikvellina í gær.
Sýndi hann þeim meðal annars
fjögur svæði, þar sem talað er
um að koma upp skemmtigörð-
um eða leikvollum, við Héðins
höfða, en þar er nú vinna hafin,
svæðið milli Sólvallagötu og
Hringbrautar, þar sem ætlað er
að komi barnaleikvöllur og æf-
ingarsvæði í íþróttum fyrir ung
linga — svæði við nýju bæjar-
húsin á Melnnum og loks við
hina nýju verkamannabústaði í
Rauðarárholti.
Þá fór hann einnig með þá
um alla barnaleikvellina, fimm
að tölu og í skemmtigarðana.
Yar gaman að sjá börnin glöð
og kát að leikjum og maður fann
þann mikla mun frá því er eng-
inn barnaleikvöllur var til hér
í Reykjavík nema Grettisgötu
völlurinn og 'börnin áttu ‘hvergi
athvarf nema á götunni.
Sigurður Sveinsson sagði með
a'l annars við blaðamennina um
það sem gert hefir verið undan
farið:
Á Austurvelli voru gróður-
sett birki í öll horn grasflat-
anna. Trén voru gróðursett í
þeim tilgangi að síður væri geng
ið inn á grasið, og enn fremur
til prýðis. (Betri tré voru ekki
fáanleg). Steinhæðin kringum
líkneski Jóns Sigurssonar for-
seta var byggð upp að nýju.
Bekkirnir voru færðir frá lík-
neskinu, svo að nú snýr fólk
ekki baki að forsetanum þegar
það situr á bekkjunum, heldur
horíir upp til hans.
Á Arnarhóli hefir verið unnið
að endurbótum, jarðvegurinn
djúpunninn allt að 1 meter nið-
ur, þar hefir og verið sléttað
og gert beð meðfram Hverfis-
götu. Er meiningin að þar verði
gróðursettar þrjár raðir af
trjám strax og nothæfar plönt
ur eru fáanlegar.
Barnaleikvöllurinn við Grett
isgötu. Qras'flötinn þar hefir ver
ið stækkuð og gerð blómabeð'
meðfram vegg, leiktækjum fjölg
að um helming frá því sem áður
var. Varðhúsið og hreinlætis-
klefar hafa verið máluð utan og
innan.
NjálsgötUvöllurinn. Leiktækj
um hefir verið fjölgað þar mik
ið frá því sem áður var. Bætt
var við hellum kringum sand-
kassana og þær lagfærðar sem
fyrir voru. Gróðursett voru
fleiri tré í beðin umhverfis völl
inn. Varðhúsið var málað utan
og innan og ennfremur bekkirn
ir.
Freyjugötuvöllur og Hring-
brautarvöllur í Vesturbænum
eru hvort tveggja nýir barna-
leikvellir er tóku til starfa 15.
maí þetta ár. Var það eitt af
mínum fyrstu verkefnum er ég
tók við þessu starfi síðastliðið
vor, að ganga frá endanlegri
skipulagningu þessara valla og
láta setja niður leiktæki fyrir
börnin.
Barnaleikvöllurinn við Lækj-
argötu, en hann er hvorttveggja
í senn, leikvöllur og skemmt-
garður. Bætt var við töluverðu
af trjám og fjölgað blómabeð-
um, varðstofan máluð utan og
innan og bekkirnir málaðir.
Hljómskálagarðurinn. Byrjað
var á því í vor að ræsa fram
nokkurn hluta garðsins, sem var
allt of blautur, svo að trén sem
höfðu verið gróðursett þar,
sennilega fyrir mörgum árum,
voru bókstaflega í bleytueðju,
og hafði holklaki í vetur rifið
sum þeirra að mestu upp með
rótum. Útbúið beð meðfram
girðingunni allt frá Sóleyjar-
götu meðfram Hringbraut og
Bjarkargötu að Birkilundi. Jarð
vegurinn I þessu beði var djúp-
unninn og á að gróðursetja þar
skjólbelti af trjám. Er hugmynd
in að slíkt gróðurbelti verði
kringum allan garðinn í fram-
tíðinni. .'Skjr ', 'ltið veröur tví-
skipt og stígui á milli. Veita
trjáraðirnar, ef hæfilega þétt er
gróðursett, æði mikið skjól í
garðinum, þegar trén fara að
vaxa. Nauðsynlegt verður að
koma upp þéttum trjáröðum
dimgirðingum) í garðinum á
fleiri stöðum, því næðingurinn
þarna á þessu svæði er hið
mesta böl öllum gróðri, en trén
Frh. á 7. s®*.
SLYSAVARNAFÉLAG
ÍSLANDS hefir nú á
prjónunum ýmsar merkileg-
ar framkvæmdir til eflingar
hinni háleitu köllun sinni að
varna slysum og veita aðstoð
þar sem eitthvað bregður út-
af í öryggismálum.
Margt hefir þegar áunnist
í þessum efnum á undan-
gengnum árurn vegna ötullr-
ar baráttu forystumanna og
fyrir góðan stuð'ning almenn-
ings.
En verkefnin eru mörg og
betur má ef duga skal. Stjórn
Slysavarnafélags íslands hef
ir fullkommn áhuga á að
gera allt sem á hennar valdi
stendur til að bæta úr því
sem enn er ógert, eftir því
sem fjárhagur leyfir.
ÚTBREIÐSLU OG KENNZLU
STARFSEMI
í sumar hefir Jón E. Berg-
sveinsson erindreki verið á
ferðalagi um landið til að líta
eftir björgunarstöðvum og und
irbúa smíði nýrra skipbrots-
mannaskýla. Þá hefir Jón Odd-
geir Jónsson fulltrúi ferðast
um og haldið námskeið i hjálp
í viðlögum við mjög góða að-
sókn, og er óhætt að segja að
mjög mikill á'hugi ríkir fyrir
öllum þessum málefnum Slysa
varnafélagsins. Þessari leiðbein
Þá hefir forseti flutt tvö stutt
ávörp í útvarpi, annað á dönsku
til Norðurlanda, og hefir það
þegar verið birt í blöðum hér,
en hitt .á ensku.
í síðdegisboði aðalræðis-
mannsins og konu hans að.Wal
dorf Astoria hótelinu voru hátt
á þriðja hundrað manns. Aðal-
ræðismaðurinn fagnaði forseta
með ræðu, enn hann svaraði og
sagði meðal annars:
/ i
„Það var vorhugur í ís-
lenzku þjóðinni, það fann ég
bezt á ferðum mínum um
landið, þar sem margir sögðu,
að ferðalag mitt hefði verið
áframhald af 17. jviní. Nú
finn ég enn hversu 17. júní
á djúp ítök með þjóðinni, ég
finn líka hve stórt Island er,
þegar ég sé yður öll hér, og
mér er ljóst, að för mín hafði
ingar og útbreiðslustarfsemi
verður haldið áfram.
SKl PBROTSM ANN ASKÝLIN
Það eru hinar ýmsu kvenna-
deildir Slysavarnafélags íslands
sem hafa sett sér það markmið
að byggja skipbrotsmannaskýli
á hinum afskekktustu stöðum
meðfram ströndinni, svo sjó-
hraktir menn 'þýrftu ekki að
•láta lífið af vosbúð og hörm-
ungum, eftir að þeir hafa getað
bjargað sér á land af eigin ram
leik, eins og þvi miður oft
hefir átt sér stað. Þá er og í
skýlum þessum fullkomin ’björg
unartæki fyrir utan nauðsynleg
ar vistir og föt. í fyrra lét
kvennadeildin í, Hafnarfirði
reisa eitt slíkt skýli vð Hjör-
leifáhöfða, og nú er kvennadeild
in i Reykjavík að láta reisa
nýtt skýli á Skeiðarársandi í
Öræfum og er það annað skýlið
sem reykvíska kvennadeildin
lætur reisa austur með söndum.
Þannig mun haldið s áfram
eftir^efnum og ástæðum þar til
ekki verður lengur talið að sú
hætta vofi yfir skipbrotsmönn-
um að þeir verði úti þótt þeir
lendi fjarri mannabyggðum.
BRIMLENDIN G ARBÁT AR
Slysavarnafélag íslands hefir
nú í smíðum nokkra brimlend-
ingarbáta, sem beðið hefir ver-
ið um á ýmsum stöðum úti á
landi og mikil þörf er fyrir. Sá
fyrsti er þegar hlaupinn af
Frh. á 7. síðu
verið ófullkomin, ef ég hefði
eigi séð yður.“
Aðalræðismaðurinn ávarp1-
aði siðan utanríkismálaráðherr
an, en hann svaraði meðal ann
ars á þessa leið:
„Góðir landar, mér eigi síð-
ur en forseta er ánægja að því
að vera hér í þer.sum stórá hópi
íslendinga. Þegar ég átti heima
hér í borg, mátti telja ísiend-
inga á fingrum sér. Áður slitn-
uðu böndin við þetta land, en
þegar þér komið heim aftur,
vona ég að yður. muni takast
að varðveita þau-, efla þau og
styrkja.'1
Um hádegið á þriðjudag var
forseta, utanríkismálará 5'Uerra
og föruneyti ekið til ráðliúss-
ins í New York, þar sem fjöldi
fólks var saman kominn í boði
La Guardia borgarstjóra til að
fagna gestunum. Þegar komið
var til rað'hússins var leikinn
m. ít.hu
Brezkur flugmaður
verður fyrir ís-
lenzkri bifreið
BifreiSarstlórimi
ók áfram af siys-
staónum
IFYRRADAG ók íslenzk bif-
reið á brezkan flugmann, og
hélt áfram án þess að gætt væri
að meiðslum mannsins. Flug-
maðurinn særðist nokkuð, en
þó ekki hættulega að talið er.
Vildi slysið til skammt fyrir
norðan Fálkagötu, en þar voru
tveir flugmenn á gangi er bif-
reiðin R 410 kom eftir vegin-
um og ók á mann þann, sem
innar gekk á veginum og féll
hann í götuna.og slasaðist ail-
verulega eins og áður er sagt,
en bifreiðin hélt áfram, enda
er talið að bifreiðastjórinn hafi
verð ölvaður.
Flugmaðurinn var fluttur
meðvitundarlaus í sjúkrahús,
en í gærmorgun var hann tal-
inn úr lífshættu.
Enskur knaffspyrnu-
frömuður ræðir við
ísl. knaffspyrnu menn~
Knattspyrnudóm-
ARAFÉLAG Reykja-
víkur hélt fund s. 1. þriðju-
dagskvöld. Tilefni fundarins
var að gefa Knattspyrnu-
dómurum hér í bæ og ýmsum
öðrum tækifæri til að hlýða
á erindi ,um störf knattspyrnu
dóma á línuvarða, sem Mr.
V. Rae íþróttaforingi í enska
sjóhernum hér flutti.
Mr. Rae er mjög þekktur
knattspyrnudómari, og hefir
gengt slíkum störfum um tvo
t'ugi ára, hefir meðal annars
dæmt í landsleikjum. England
—Skotland, en slíka leiki er
ekki öðrum trúað til að dæma,
en meistaraflokksdómurum.
Hann er ritari Knattspyrnudóm
arafélagsins í London.
Erindi Mr. Rae var skýrt og
greinagott yfirli't um skipulag
þessara málefna með Bretum,
forgönguþjóð knattspyrnunnar i
heiminum, og þarna fengu á-
'heyrendur góða hugmynd um
það mikla starf og þjálfun sem
liggja verður til grundvallar
því að hljóta slíka viðurkenn-
ingu, sem hlutgengur dómari
í millilandaleikjum. Þá drap
Mr. Rae á nauðsyn þess að ísl.
knattspyrnudómarar tækju upp
samstarf á alþjóðlegum vett-
vangi um þessi mál, að stríðinu
loknu. Hann lét og nokkúr orð
falla um ísl. knattspyrnu, sem
hann hvað standa jafnfætis
brezkri áhugamannaknatt-
spyrnu. Hann hvaðst hafa séð
ýrnsa leiki hér í sumar, sér til
mikillar ánægju.
Að erindinu loknu svaraði
Mr. Rae ýmsum fyrirspurnum
sem til hans var beint.
Létu fundarmenn vel yfir
svörum hans og skýringum.
Að lokum þakkaði formaður
K. D. F. R. Gunnar Aksel'sson,
Mr. Rae fyrir þá vinsemd sem
hann hefði sýnt með því að
mæta á fundinum og fyrir hið
fróölega erindi sem 'hann 'hefði
flutt.
Sextugur
er í dag Ólafur Lárússon ihér-
aðslækir í Vestmannaeyjum.
Forsefa Islands fagnað i New York
La Gsiardia borgarstjóri ffutti siokkum hluta
áyarps sins á ísleuzkri tuugu
A MÁNUDAG sat forseti íslands hádegisverð hjá Inter-
national Chamber of Commerco og voru viðstaddir um
nítíu menn, sem framarlega standa hver á sínu sviði. Voru
þar margar ræður fluttar fyrir minni íslands og forseta,
og þakkaði hann með glæsilégri ræðu, sem hefir verið víða
getið í blöðum og útvarpi. Lagði hann 'meðal annars áherzlu
á, að vér værum norræn þjóð og myndum halda áfram sam-
bandi voru við hin Norðurlöndin strax og stríði^ hefði verið
unnið.