Alþýðublaðið - 01.09.1944, Page 5
Föstudagur 1. sept. 1944.
A LÞYÐUBLAQIO
5
Siðspillandi — heilsuspillandi og ólöglegir íbúðarskúr-
ar — Anatole France og frelsið — Hvað á að gera —
Bréf um nýbyggingar við Tryggvaslcála.
Cherbourg fagnar frelsinu.
Hafnarborgin Cherbourg í Normandie var fyrsta borgin í Frakklandi, sem innrásarher
bandamanna frelsaði. Mikill var fögnuður borgarbúa og kom hann fram á margvíslegan hátt.
Á myndinni sést þegar fyrstu hljómleikarnir voru haldnir undir beru lofti í borginni við
gífurlegan fjölda áheyrenda, en borgin er skreytt fánum bandamanna.
A að iáta Þjóðverja greiða
pungar stríðsskaðabætur?
G1 E I N S Ú , sem hér fer á eftir, birtist upphaflega í
brezka blaðinu “The Economist.” Hún fjallar um það,
hvort skynsamlegt muni vera aað leggja á herðar Þjóðverja
þungar stríðsskaðabætur, brjóta niður hagkerfi þeirra, eyði-
leggja verksniiðjurnar og flytja þýzka karlmenn í nauðung-
arvinnu hjá þjóðum bandamanna. Kemst höfundur að
gagnstæðri niðurstöðu, enda þótt það sé fjarri honum að
vilja, að tekið verði á Þjóðverjum með neinum silkihönzk-
um, eftir að þeir hafa beðið ósigur fyrir vopnum banda-
manna.
NÝLEGA VAR í blaði minnst
á það, hversu mikil hætta
stafaði af því, að hér í Reykja-
vík væru að rísa upp nokkurs
konar íatækrahverfi. Bygginga-
fulltrúi talaði mjög um þá ósvinnu,
að eínstakir menn væru í úthverf
um bæjarins að koma sér upp í-
búðarskúrum, sem væru óleyfileg
ir, heilsuspillandi og siðspillandi.
Síðan var spunninn lopinn um það
hversu óþolandi þetta væri allt
saman.
ÉG EFAST EKKI um að þessir
•skúrar eða kofar eru heilsuspill-
andi, að þeir eru ólöglegir og að
3>eir eru jafn vel siðspillandi. En
ég spyr: Hvað á fólkið að gera?
Eru. . ekki . . húsnæðisvandræðin
heilsuspillandi, ólögleg og siðspill
andi? Það munu flestir vera sam-
málá mér um það að svo sé. Ég
hef nú í tuttugu ár tekið þátt í
baráttunni fyrir því að hið opin-
bera byggði heilsusamlegar íbúðir,
ekki til þess að gefa neinum þær
heldur til þess að leigja þær fyrir
sannvirði eða selja þær. Allir vita
hvernig þessi barátta hefir gengið
og hvað manni hefir orðið ágengt.
Við höfum séð það hvað illar og ó-
hæfar íbúðir hlytu. að hafa í för
með sér og þó að það sé einhver
ný uppgötvun fyrir suma, þá er
það engin ný uppgötvun fyrir okk
ur.
EN HVAÐ ÞÝÐIR að segja við
hungrandi mann: Það er siðspill-
andi fyrir íþig og þína að leggja þér
þetta og hitt til munns? Hvað þýðir
líka að segja við þá, sem nú þjást
:í hinu ægilega húnæðisböli: Það
er siðspillandi og heilsupillandi
fyrir þig að búa í þessum skúr-
ræfli? Það er fræg setning, sem
Anatole France sagði einu sinni.
Hann var að sanna það að til væti
jafnrétti í Frakklandi og sagði eitt
hvað' á þá leið, að engum væri
bannað að sofa undir brúnum á
Sigii'u — og það sannaði því að ríkj
andi væri fullt frelsi í Frakklandi.
Eins væri það, ef öllum væri jáfnt
bannað að búa í siðspillandi og
heilsuspillandi íbúðum hér í
Reykjavík á þessum tíma.“
ÞAÐ ER EKKI HÆGT að út-
rýma húsnæðisvandræðum og öll-
um þeim ægilegu plágum fyrir
unga og gamla, -sem þeim fýlgja
nema með því að byggja og byggja
viðstöðulaust lódýrar hentugar og
litlar íbúðir, ekki til að gefa fólki
heldur til að leigja því þær eða
selja þær. Vitanlega eru hér að
myndast fátækrahverfi án þess að
hér sé til fátækt á borð við það
sem þekktist erlendis fyirr stríð
hvað þá nú. Þetta eru því miklu
frekar húsnæðisvandræðahverfi
en fátækrahverfi, því að margir
húsnæðislausir menn hafa fjáráð
og sumir jafn vel miklu meiri en
margir hinna sem þó hafa- þak vfir
höfuðið.
FERÐAMAÐUR skrifar mér og
seg'ir: Fyrir nokkru kom ég að
Tryg'gvaskála og vil ég að þess sé
getið opinberlega hversu myndar-
leg snyrtiherbergi þau eru er þar
hafa verið reist fyrir ferðafólk.
Eins og kunnugt er hefir einmitt
þessu verið ákaflega ábótavant til
skamms tíma næstum alls staðar
á landinu. Þess vegna ber að geta
þess þegar einhver tekur sér fram
um að bæta um.“
„ÞESSI HÚS eru hin snyrtileg-
ustu og hefir gestgjafinn i Tryggva
skála byggt þau með stuðning'i
póst- og símamálastjórnarinnar og
Selfossþorps og hefir hann um-
sjón með þeim. Slík hús þuri'a
að rísa upp víðar, þar sem fjöl-
menni kemur og vona ég að for-
dæmi gestgjafans í Tryggvaskála
verði fylgt af fleirum."
AÐ er erfitt' i'yrir þær
þjóðir, sem hafa komizt
hjá innrás, að gera sér í hugar-
lund þá eyðileggingu og efna-
hagslega hrun, sem þýzka
hernaðarvélin hefur valdið í
þeim löndum, sem hún hefur
brotið á bak aftur. En það er
engin furða, þó að hugmyndir
þeirra varðandi skipun mála
eftir stríð. sé einkum tengd
tvennu: endurreisn hins eyði-
lagða hagkerfis þeirra og refs-
ingu til handa Þjóðverjum.
Þjóðverjar eru ábyrgir fyrir
tjóninu og þeir verða að bæta
það. Þannig eru þessar kröfur
rökstuddar. Það hafa verið
uppi tiliögur um að brjóta niður
hagkqrfi Þýzkalands, eyði-
leggja verksmiðjur þeiira, en
taka vélarnar og nota þær til
endurreisnarinnar í iðnaði
bandamanna. Rússar hafa op-
inberlega hreyft því, að þýzkir
karlmenn yrðu teknir til
þvingunarvinnu á þeim land-
svæðum, sem orðið hafa íyrir
evðileggingu af völdum þýzku
hernaðarvélarinnar.
En við skulum hugsa okkur,
að beitt yrði fjárhagslegum
refsingum í ríkum mæli. Þjóð-
verjar sendir í nauðungar-
vinnu til Frakklands, Noregs.
Balkanlanda og Síberíu; iðnar-
kerfi Þjóðverja gersamlega
eyðilagt. Af þessu myndi leiða
það, að 70 milljónir manna í
hjarta Evrópu yrðu dæmdar til
slíkrar fátæktar, að þær gætu
engin viðskipti rekið, hvorki
sem kaupendur eða seljendur,
við aðrar Evrópuþjóðir. í hópi
þessara milljóna eru þjálfuð-
ustu og beztu verkamenn
heimsins. Ef sú mikla fram-
leiðslugetá, sem hér er um að
ræða, yrði eyðilögð, gæti ekkert
af því leitt annað en tjón fyrir
almenna hagsæld í nágranna-
löndunum. Og afleiðingarnar
myndu segja til sín um heim
allan. Þess vegna ieru þessar
hugleiðingar furðu heimsku-
legar, og er erfitt að gera sér
grein fyrir því, hvernig viti-
bornir menn láta sér detta í
hug að hreyfa þeim.
Það er engin ástæða til að
láta reynslu síðasta friðar af
skaðabótagreiðslum endurtaka
sig. Og ekki - þarf að vænta
betri árangurs af nauðungar-
vinnu. Slíkt er hin mes a só-
un á vinnuafli, því að afköst
verkatnanna, sem er haldið
nauðugum við vinnu., eru eins
lítil og framast er unnt að
hugsa sér. Eyðilegging á verk-
smiðjum getur heldu ■ ekki
með neinu móti bætt það tjón,
sem bandamenn hafa beðið. —
Auk þess /^erður að líta á hinar
pólitísku afleiðingar, sem lang
varandi skaðabótágreiðslur og
nauðungarvinna myndu hafa.
Sjötíu rnilljóna þjóð, sem hefur
verið rænd líf s mögu 1 eikum
sínum og dæmd til hinnar
bitrustu öybirgðar, er ekki
líkleg til að öðlast neina póli-
tíska staðfestu.
AÐ ér ekki verið að vekja
máls á skynsamlegum
kröfum . til Þjóðverja í því
skyni að traðka rétti þeirra
þjóða, sem þeir hafa kúgað, eða
til að halda hlífiskildi yfir þeim.
Það er gert ,í því skyni, að halda
endurreisninni og refsingunni
stranglega aðgreindum. Að
sjálfsögðu þarfnast þjóðirnar,
sem orðið hafa fyrir blóðtök-
um styrjaldarinnar, hjálpar til
að byggja upp hagkerfi sín,
en það verður að vera raun-
veruleg hjálp, ekki blekkingar
eins og nauðungarvinna eða
skaðabætur, sem greiddar yrðu
með lánum frá þeim þjóðum
bandamanna, sem meira mega
sín. Það mætti hugsa sér, að
þjóðunum, sem harðast hafa
orðið úti, yrðu veittir mjög
hagkvæmir verzlunarsamning-
ar um ákveðið árabil, t. d. fimm
til tíu ár.
$
AÐ er hægt að krefja
Þjóðverja um miklu meira
framlag til endurreisnarinnar í
Evrópu með því að láta þá
halda áfram framleiðslu. —
Bandamenn gætu t. d. gert á-
ætlun um það, að þýzka þjóð-
in byggi að öllu leyti við sömu
kjör. og hún gerir nú næstu 3,
4 eða 5 ár. Áfganginum af af-
rakstri hennar, sem nú er var-
ið til vopnabúnaðar, mætti
síðan skipta milli þjóðanna,
sem þess hafa mesta þörf, og
nota til framleiðslu í þágu
þeirra. Rússum yrði að miklu
meira gagni að fá vélar og á-
höld, sem væru framleidd í
verksmiðjum Þýzkalands eftir
styrj'öldina, heldur en flytja
Þjóðvei'ja til nauðungarvinnu í
Rússlandi.
Þýzka þjóðin ber þyngri,
sameiginlega sekt, en nokkur
Framhald á 6. síðu.
Hannes á liorninu.
Unglinaa
vantar okkur frá mánaðamótum til að bera
út blaðið í nokkur hverfi í bænum.
Talið við afgreiðsluna.
Alþýðublaðið. — Sími 4900.
Bezt al aagfýsa í iiþýðublalinu.
^YivrtfTvTirTYrrTriYTriYiYTvwr^í^^wfYTrivTYrjrTYrrrr