Alþýðublaðið - 03.09.1944, Síða 2
2
At,ÞVf>UBLÁf>I0
Sumuidagur 3. septemfcer 1944.
Franklin D. Roosevelt og Sveinn Björnsson ræðast við í Hvíta húsinu. Myndin var tekin
24. ágúst, daginn sem forsetinn kom til Washington.
Fjölmennur fundur í Lisiamannaskálanum:
i Vilja elnnig fá verfefallsrélf eins og allar aðrar
sfétfir launþega
Laun þeirra Eiafa ekki hækkaS nema um 25-
30fo en annarra Saunþega 42—12%%
UNDUR opinberra starfsmanna í Listamannaskálanum
í fyrrakvöld var geysifjölmennur. Ræðumenn voru
margir og kröfðust allir sem einn bráðra breytinga til batn-
aðar á launakjörum opinberra starfsmanna.
Þetta er fyrsti opinberi fundurinn, sem Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja boða til, en þing sambandsins kemur saman
16. b. m. í bandalaginu eru nú 20 félög.
Tiilögur rafmagnsstjóra:
Hæfekun á verði raf-
magns um 50—60
af hundraði!
RAFMAGNSSTJÓRI hef-
ir lagt tii að hækkað
verði verð á rafmagni um
50—60% á flestum gjald-
skrárliðum.. Lá .frumvarp
rafmagnsstjóra um þetta efni
fyrir bæjarráðsfundi í fyrra-
dag og verður það til fyrri
umræðu á næsta bæjarstjórn
arfundi.
Lokun brauða- og
mjólkursölubúða
SSÍÐASTA FUNDI bæjar-
stjórnar voru m. a. gerð-
ar þær breytingar á samþykkt-
inni um lokunartíma sölubúða
í Reykjavík, að brauða- og
mjólkursölubúðum skuli lokað
fyrr en gert hefur verið til
þessa. Skal loka þessum búð-
um, er breytingin gengur í
gild, kl. 6 e. h. á virkum dögum
(í stað kl. 7) og kl. 12 á hádegi
á sunnudögum (í stað kl. 1 e. h.
Jóladag, nýjársdag og páska-
dag skal lokað allan daginn.
Laugardagslokun ýfir sumar
mánuðina, kl. 4 e. h., verður ó-
breytt og föstudaga á þvi tíma-
bili má hafa opið til kl. 7 e. h.
Á bæjarráðsfundi í gær voru
lögð fram mótmæli gegn þess-
Fafc. á 7. afök
Stjórn bandalagsins hefir nú
ákveðið að senda stjórnmála-
flokkunum, frumvarpið um
breytingar á launalögunum svo
og aðrar tii'lögur snertandi þessi
mál. í vor var snixið sér bréf-
lega til flokkanna og leitað
stuðnings þeirra við baráttu op-
inberra starfsmanna, bárust
greið svör frá Alþýðuflokkn-
um og Socialistaflokknum, en
gngin svör rnunu hafa borist frá
hinum flio'kkunuim.
Á fundinum í fyrrakvöld var
forseti BSRB, Sigurður Thorla
cius málshefjandi en auk hans
töluðu: Kristján Arinbjarnar
héraðslæknir í Hafnarfirði,
Kristmundur .Þorleifsson for-
maður Stafrsmannafélags Rík-
isútvarpsins, Rannveig Þor-
steinsdóttir, gjaldkeri Starfs-
mannafélags ríkifestofnana, Har
aldur S. Norðdal, formaður Toll
varðafélags íslands, Ingimar Jó
hannesson formaður Sambands
íslenzkra barnakennara, Sigríð
ur Eiríkisdóttir, formaður Fé-
lags íslenzkra hjúkrunarkvenna
Lárus Sigurbjörnsson, formað-
ur Starfsmannafélags Revkja-
víkurbæjar, Ágúst Sæmunds-
son, formaður Félags íslcnzkra
símamanna og séra Jakob Jóns
son, sem á sæti í stjórn Presta
félags íslands.
Á fundinum voru eftirfarandi
ályktanir samþykktar:
„Almennur fundur haldinn
að tilhlutun B S. R. B. í Lista-
miannaskálanum í Reykjavík
föstudaginn 1. septemiber 1944
gerir svofellda ályktun um
launamál starfsmanna ríkis og
bæja:
Gildandi launalög í landinu
eru úrelt og ófullnægjandi
og ósamræmi og óréttlæti í
laungreiðslum langt úr hófi.
Laun opinberra starfs-
manna hafa verið uppbætt
með 30% og 25% á sama
tíma og grunnkaup verka-
fólks og iðnaðarmanna x
Reykjavík hefir hækkað um
42% til 120%.
Ríkisstarfsmenn hafa dreg
ist langt aftur úr, vegna þess
einkum að setið er á rétti
þeirra í skjóli rnaglátrar laga
Frh. á 7. eSSBa.
New York Times segir:
eiga
Ummæli eins stærsta blaðs Bandaríkjamia
um Sieimsékn forsetans og orð utanrfkis-
málaráðherra
DAGINN sem borgarstjórinn*'
í New York tók á móti
forseta íslands og utanríkisráð
herra í ráðhúsi borgarinnar, 29.
ágúst s. 1. birti New York Tim-
es eitt stærsta og voldugasta
blað Bandaríkjanna þessa for-
ustugrein undir fyrirsögninni
„President Björnsson“:
„Tekið verður opinberlega á
móti herra Sveini Björnssyni
forseta íslands í ráðhúsinu í dag.
En móttökurnar í þessari borg
og þessu landi eru meir en fyrir
siðasakir og forms vegna. Hann
er þjóðhöfðingi hins nýja lýð-
veldis, sem hin þúsund ára
gamla þjóð hefir stofnað með
sér. ísland, sem áður fyrr átti
margt af hetjum og skáldum, er
á vorum dögum land bænda og
fiskimanna, svipað hinu forna
Nýja Englandi, og þar býr frjáls
og óháð þjóð. Danmörk réði ís-
landi í margar aldir, en landið
öðlaðist heimastjórn eftir langa
baráttu 1874. 1918 varð landið
sérstakt konungsríki, og myndi
sambandslagasamningurinn
hafa runnið út 1943, en 1941
samþykktu íslendingar einróma
skilnað.
Hið þýzka hernám Danmerk-
ur og gremjan út af því var að-
alástæða skilnaðarins. Herra
Björnsson hafði verið sendi-
herra í Kaupmannahöfn, hann
hafði tekið þátt í ráðstefnum
þeim, sem Norðurlönd og Finn-
land héldu í þeirri von að geta
varðveitt hlutleysi sitt. Hann
var kjörinn ríkisstjóri og endur
kosinn tvívegis. Forseti var
hann kjörinn í.júní.
Bretar komu í veg fyrir þýzkt
hernám með því að hernema ís
land. Amerískur her kom í kjöl
far þeirra með hervernd. íslend
ingar sem fyrir reynslu sakir
eru grunsami-r menn, höfðu í
fyrstu illar bifur á þessu, en vin
átta og skilningur uxu, þegar
þeir sannfærðust um að vér höf
um eigi landvinninga í huga. ]
Samt munu þeir efalaust fagna
því, er þeir fá aftur frjáls um
ráð yfir landi sínu. Er það eðli
legt og virðingarvert.
' íslendingar, sem setzt hafa að
í Bandaríkjunum eru þekktir ^ð
því aö vera skapfastir menn og
heiðarlegir. Vilhjálmur Þór, ut-
Forsefi íslands kotn
heim í gær
Varfagnað vel allsfað
ar þar sem hann kom
í Bandaríkjunum
O ORSETI ÍSLANDS, herra
Sveinn Björnsson, utanrík
isi-áðherra, Vlhjálmur Þór og
förunautar þerra kornu í gær-
morgun heim úr Vesturförinni.
Frú Georgía Björnsson, frú
Rannveig Þór og konur sam-
ferðamanna þeirra tóku á móti
þeim á flugvellinum. Björn Ol-
afsson f jármálaráðherra og Agn
ar Kl. Jónsson skrifstofustjóri
fögnuðu þeim af hálfu ríkis-
stjórnarinnar. Aulc þess vom
Louis Dreyfus sendiherra og frú,
Key hershöfðingi og aðrir yfir-
menn hers og flughers viðstadd
ir.
Alþýðublaðið átti í gær sam-
tal við Bjarna Guðimundsson,
blaðafulltrúa, ,sem var í förinni
—. og l'ét hann hið bezta yfir
henni. Kvað ihann hina glæsi-
■legu framkomu forseta hafa
hrifið alla — og að uimmæli hans
á fundum og samkvæmum hefðu
vakið geysimikla athygli. Var
forseta allstaðar fagnað með
kostum og kynjum. —. Um-
mæli Vilhjálms Þórs á bláða-
mamrafundinum, sem' íslenzk
blöð hafa þegar skýrt frá, vöktu
og mjög mikla athygli og voru
rædd í fjö.lda blaða.
anríkisráðherra, sem fylgir
Sveini forseta Björnssyni á
ferðalaginu, hefir sagt:
Vér höfum ríka sjálfstæðis-
kennd og vér stofnuðum ekki
lýðveldi vort í þeim tilgangi kð
verða ófrjálsari en áður. Vér
ætlum oss að eiga land vort allt
og án erlendrar íhlutunar“. ;
Þannig eiga lýðveldismenn
að tala. Eykur það virðingu
vora fyrir hinum merku og
virðulegu gestum.“
Sveinn Björnsson forseti og föruneyti ihans, Villhjálmúr Þór ut-
anríkisráðlherra og Pétur Eggerz forsetaritari, stíga út úr flug-
vélinni i Waslhington. Bjárni Guðmundsson blaðafulltrúi var
fjórði maðurinn í iörinni, en •sést ekki á myndinni.