Alþýðublaðið - 06.09.1944, Síða 2
2
Á myndinni sjást garðarnir á Tungutúni. Fram með Laugarness-
veginum. hefir verið plantað trjáplontum, aðallega víði, og eiga
þæ'r að mynda skjólgarð fyrir norðannæðinginum.
Vaxandi matjurtarækt;
1500 leigugarðar á 90 ha. bæjarlandi.
Enn þarf að auka garðlöndin til að fulínægja
eftirspurn.
ALÞYÐUBUÐtö Miðvikudagur S. sept. 1944
Samstarfy sem getur haft mikla þýðingu
fyrir framtlð íþréttasnálanna.
UM mánaðarmótin var haldinn framhaldsfundur til þess
að stofna íþróttabandalag Reykjavíkur. Frá því 1942
hefir 3ja manna nefnd starfað að þessari stofnun og undirbú-
ið lög fyrir það. íþróttanefnd ríkisins skipaði Steinþór Sig-
urðsson magister, Í.S.Í. skipaði Eriing Pálsson yfirlögreglu:
fþjón og U.M.F.Í. skipaði Pál S. Pálsson stúd juris.
TUTUTJURTAGARÐAR þeir
sem bæriim hefir úthlut-
að ahnenningi á undanförn-
mn árum, eru nú orðnir um
1500 að tölu, og eru nú um
90 ha. lands, og eru horfur
á þvi að þeim f jölgi til muna
á næstu árum, því eftirspurn
eftir þeim hefir ekki ennþá.
verið hægt að fullnægja. Á
síðastliðnu vori var þó 180
nýjum görðum úthlutað, aðal
lega á svo kölluðu Tungutúni
hér við bæinn, en það svæði
hafði bærinn látið ræsa fram
og plægja í þessu skyni, svo
þama eru nú komnir hinir
myndarlegustú matjurtagarð
ar.
í gærdag fór ræktuiiarráðxi-
nautur Reykjavíkurbæjar
Jóhann Jónasson, með
blaðamönnum um helztu garða-
svæðin, og sýndi þeim m. a.
garðana á Túngutúni, í Kringlu
mýri, garðana niðurundan
Gróðrastöðinni, og við Hring-
braut og Melagarðana. Ennfrem
ur skýrði rætkunarráðunautur-
inn frá ýmsu í samhandi við
ræktim og hirðingu garðanna
og fyrirhuguðum framkvæmd-
um í sambandi við þá. Fe.ra hér
á eftir ummæli hans um þessi
efni. *
— Leigugarðar bæjarins llggja,
sem kunnugt er, í hálfhring um
bæinn, frá Sundlaugum að norð
an um Kringlumýri og Fossvog
vestur á Mela.
Fyrstu leigugörðunum var út
hlutað árið 1933 en það eru
elztu garðarnir á Melunum rúm
lega 80 að tölu og Gróðurstöðv
argarðarnir um 70 ásamt 100
görðum í Krinviumýri. Árið
eftir tekur svo bærinn við Alda
mótagörðunum 67 alls, sem eins
og nafnið bendir til, höfðu ver-
ið nytjaðir frá því um aldamót,
en til ársins 1934 höfðu þeir
verið á vegurn scrstaks félags
garðyrkjumanna. Næst éru svo
látnir á árunum 1937—39 rúrnl.
260 garðar í Kringlumýri og svo
á árunum 1940 -41 garðarnir
í Sunnuhvolstúni, Kaupmanns
tún, Melunum o. v. alls um
330 stk. Áríð 1942 var úthl.
görðum við Seljaland, Austur-
hlíð, Vatnsmýri og á Melunum
samtals um 360 stk. í fyrra voru
svo látnir g'arðar í Fossvogi og
við Grímsstaðaholt.
Leigugarðar bæjarins eru nú
rúmir 1500 að tölu og taka yfir
tæpa 90 ha. lands. Á síðastliðn
um vetri og i vor var úthlutað
um 180 nýjum görðum, en um
40 gamlir garðar voru teknir
undir hús á Melunum. Auk þess
va í vor úthlutað rúml. 50 göml-
um görðum, sem ýmist höfðu
verið teknir af fyrri leigjend-
um vegna vanhirðu eða þeir
höfðu losnað á árinu.
Á hverju vori er farið um
alla garáana og athuguð nýting
þeirra og gefnar einkunnir fyr
ir hirðingu og umgengi, með
þessu fæst gott yfirlit yfír rækt
unarástand garðana frá ári til
árs, og er fróðlegt að fylgjast
með þeim umskiptum til bóta,
er oft verða á garðinum við það
að nýr leigjandi tekur við hon-
um. Ert stundum erum við líka
óheppnir með þá, sem við taka
og garðurinn verður sízt betri
hjá þeim en fyrirrennurum
þeirra.
Nokkuð bar á útsæðisskorti i
vor, þrátt fyrir innfluting á er-
lendu útsæði, en innlendar út
sæðiskartöflur vor uófáanlegar.
Erlenda útsæðið reyndist yfir-
leitt illa, enda margt af því
sýkt og væri vonandi, að við
þyrftum ekki oftar á erlendum
útsæði að halda. Margir. garð-
leigjendur, sem sjálfir hafa
ræktað sitt útsæði undanfarin
ár og geymt það í geymslum,
sem þeir hafa ýmist í görðun-
um eða i heimahúsum, urðu fyr
ir því óhappi í vetur, að útsæðið
fraus og stóðu þeir uppi útsæðis
lausir í vor, vegna þess að er-
lenda útsæðið þurfti að panta á
miðjum vetri. Það eru þvi nokk
ur tilfelli, þar sem garðar
s.tanda lítið eða ekki notaðir af
þessum ástæðum.
Undanfarin'sumur hófir bær
inn látið framkvæma allsherj-
ar úðun á öllum leigugörðunum
og hafa verið farnar tvær um-
ferðir um allt svæðið. Eins og
kunnugt er hefir veðrið í sum
ar verið þannig, að búast mátti
við skæðu myglu ári, samanher
sumar-ið 1939, enda hefir mygl-
an gert vart við sig hér í bæj-
arlandinu og víðar um Suður-
og Vesturland, þar sem ekki hef
ir veri.ð úðað. En ég hefi hvergi
orðið var við myglu í leígugörð
um bæjarins enn þá í sumar, og
má það teljast góður árangur
þar sem vitað. er, að margt af
útsæðinu, sem sett var niður í
vor,. var meira og minna sýkt
af myglu.
Frh. af 2. síðu.
Nefndin beið nokkuð vegná
samnings hinna nýju laga Í.S.Í.
en eftir áramótóini vetur skil-
aði hún lagauppkasti sínu. Þetta
lagauppkast hefir síðan verið
athugað af íþróttanefnd ríkis-
ins, stjórn Í.S.Í. og stjórn U.M.
F.í. og þann 13. ágúst komu
saman fulltrúar frá stjórnum
félaganna í Reykjavík 04T at-
huguðu lögin og athugasemdir,
sem láguTyrir um þau. 3 dögum
síðar voru ákvæði uppkastsins
og framkomnar athugasemdir
samræmdar og það lagauppkast
lagt fyrir stofnfund héraðssam-
taka íþróttaaðila í Reykjavík,
sem haldinn var þann 24. ágúst
s. 1.
íþróttalögin frá 1940 gera ráð
fyrir skiptingu landsins í íþrótta
héruð og að allir aðilar um í-
þróttamál innan héraðsins bind
ist samtökum. Reykjavík er eitt
íþróttahérað. Kin nýju lög Í.S.Í.
voru mjög sniðin eftir þessum
ákvæðum og þar gert ráð fyrir
að félög innan hvers íþróttahér
aðs mynduðu héraðssamband.
U.M.F.I. hefir alltaf skipt land-
inu í héruð og haft héraðasam-
bönd.
Á fundinum 24. ágúst var
vandlega farið í lögin og þau
samþykkt grein fyrir grein með
nokkrum breytingum. Nafnið
var samþykkt að skyldi vera
íþróttahandalag Reykjavíkur
(Í.B.R.). Stjórnin skyldi vera
skipuð fulltrúum frá öllum þeim
félögum í Reykjavík, sem leggja
WT YLEGA hafa rafvirkja-
meistarar hér í bænum
og í Hafnarfirði stofn-
að með sér félagsskap,
sem nefnist Innkaupssam-
band rafvirkja h.f. og er til-
gangur þess að beita sér fyr-
ir innflutningi rafmagnsvara
og gera auðveldara með all-
ar framkvæmdir á sviði raf-
magnsmálanna, með því að
taka að sér að öllu leyti
stærri og smærri rafmagn-
virkjanir. Hefir sambandið í
þessu skyni ráðið til sín hinn
unga og efnilega rafmagns-
verkfræðing, Þorvald Hlíðdal
sem nýlega er kominn heim
frá Ameríku, eftir 7 ára nám
í rafmagnsverkfræði bæði í
Englandi og Ameríku og starf
að í þjónustu þekktra raf-
magnsfyrirtækja þar ytra um
tveggja ára Skeið.
í Innkaupssambandi þessu
eru nálega allar rafmagns-
meistarar bæjarins, og vinnu
afl það, sem stendur að baki
stund á íþróttir og formaður kos
inn af árSþingi.
Ársþing ska.l halda í apríl.
Dómsvaldið skal vera í höndum
3ja manna. Sérmál hverrar í-
þróttagreinar verður í höndum
sérráða. Frestað var að kjósa
formann og samþykja lögin í
einni heild og skyldi það geymt
þar til félögin hefðu tilnefijt
fulltrúa í stjóórn. S.l. fimmtu-
dag 31. ágúst var svo gengið frá
stofnuninni. Lögin samþykkt í
einni heild og undirrituð af öll
um viðstöddum. Formaður kos
inn og hlaut kosningu Gunn-
ar Þorsteinsson hæstaréttarlög-
maður, þá voru þrír menn kosn
ir í héraðsdóm og hlutu kosn-
ingu Pétur Sigursson, háskólóa-
ritari, Helgi Hjörvar, skrif-
stofustjóri og Sigurjón Péturs
son, forstjóri. Til vára: Gísli
Sigurbjörnsson, forstióri, Þór-
arinn Magnússon, skósmiður og
Guðmundur Ólafsson, skósmið-
ur.
14 íþróttafélög og 7 íþrótta-
ráð voru aðilar að stofnun þessa
handalags. íþróttafélagi kvenna
og Golfklúbbi íslands var gef-
inn frestur til 30. sept. að gerast
stofnendur bandalagsins, jiví að
stjórnendur íþróttafél. kvenna
voru ekkí í bænum og stjórn
Golfklúbbs íslands vildi áthuga
lögin nánar.
íþróttafélögin tilnefndu eftir
talda fulltrúa í stjórn:
Glímufél. Ármann: Baldur
Möller, knattspyrnufél. Valur,'
Framh. á 6. síðu.'
þessum félagsskáp er um
80% allra rafvirkja í bæn-
um. Hefir sambandið tryggt
sér s'ambönd erlendis um
kaup á rafmagnsvörum og
annast það innkaup á þeim
vörum fyrir meðlimi sína,
þeirra er þess óska.
A laugard. boðaði stjórn Inn-
kaupasambands rafvirkja
blaðamenn á sinn fund og
skýrði þeim frá fyrirætlnu-
um sínum í þessu sambandi
og fer hér á eftir frásögn for
manns sambandsins Holgers
Gíslasonar:
,,Það hefur lengi staðið öll-
um framkvæmdum í rafmagns
málum okkar íslendinga fyrir
þrifum, að við höfum þurft að
sækja allt íilheyrandi stærri
virkjupum undir erlend fyrir-
tæki. Þó það hafi að vísu í
mörgum tilfellum lánast vel, þá
hefur það þó oft orsakað óyfir-
stíganlega örðugleika, sérstak-
lega þegar um smærri virkjanir
hefur verið að ræða.
Okkur rafvirkjum hefur lengi
Frh. á 7. sí8u.
Skatffrjálst fé, sem
gefið er li! líknar-
slarfsemi og menn-
ingarmála.
Frumvarp frá ríkls-
stjérninni.
RÍKISSTJÓRNIN hefir lagt
fram frv. til laga um
breytingu á lögunum um tekju
skatt og eignaskatt þess efnis,
að imdianþiggja undan skátti fé,
sem gefið er til líknastarfsemi
og menningarmála, allt að 10%
af nettótekjum skattgreiðenda.
Frumvarpsgreinin er svo-
hljóðandi:
„Aftan við g-lið í 1. málsgr.
10. gr. laganna bætist:
h. Fé, sem gefið er til líkn-
arstarfsemi og menningarmála,
allt að 10% af nettótekjum
skattgreiðenda, þó ekki hærri
fjárhæð en kr. 10000.00. Fjár-
málaráðherra setur reglur um
það, hvað skuli teljast gjafir til
líknarstarfsemi og menningar-
mála.“
■ í athugasemdum við frurn-
varpið segir á þessa leið:
„Það virðist sanngjarnt og
eðlilegt, að skattgreiðendur
megi ráðstafa nokkru af tekj-
um sínum til líknar- og menn-
ingarmála, án þess að þeim séu
reiknaðar þær fjárhæðir til
skatts. Nú er svo, að hver fjár-
hæð, sem í þessu skyni er gef-
in, telst til skattskyldra tekna.
Af þessum ástæðum láta marg-
ir minna úr hendi rakna én ella
mundi, og opinberar líknar- og
menningarstofnanir fara þvl á
mis við margar gjafir vegna
þess, að menn verða að telja
þær til skattskyldra tekna. En
slík framlög einstaklinga eðh
félaga til viðurkenndrar starf-
semi eða stofnana mega teljast
í þágu hins opinbera og því ekki
eðlilegt að unnið sé beinlínis
á móti gjöfunum með ákvæð-
um skattalaganna.
Hins vegar verður að sj álf-
sögðu að takmarka það, hversu
miklu af tekjum 'sínum skatt-
greiðendur megi verja á þehna
hátt.
Enn fremur verður að setja
reglur um það, hvaða starfsemi
eða stofnanir komi til greina í
þvi skyni, er að ofan greinir.
Slík undanþága, sem'hér um
ræðir, er í skattalögum flestra
menningarlanda.“ •
Dagsbrún boðar sam-
úðarverkfall hjá
biikksmiðjueigendum
VERKAMANNAÉLAGIÐ
Dagsbrún hefir boðað sam
úðarverkfall frá og með 12. þ.
m. hjá meðlimum félags hlikk-
smiðjueigenda ef samningar
hafa ekki tekizt fyrir þann tíma
milli þessara atvinnurekenda
og félags blikksmiða.
Walterskeppnin.
í kvöld kl. 7 keppa Valur og
Fram aftur. Milli hálfleika verður
keppt í 400 metra hlaupi.
55 ára
er í dag Daníel Benediktsson út
vegsbóridi frá Önundarfirði. Hann
dvelur nú á Ásvallargötu 61 hér í
bænum.
Hallgrímskirkja í Saurbæ:
Áheit frá Ónefndri, afhent af
I. S. kr. 30.00.
Besztu þakkir, Ásm. Gestsson.
slofna
samband á rafmagnsvörum
Geta annast allar meiriháttar innlendar raf-
magnsvirkjanir
innkupa
Rafvirkjameisfar