Alþýðublaðið - 10.09.1944, Side 4
4LÞYÐUBLAÐBB
Sunnudagur 10. sept. 1944,
Útgefandi: Alþýðuflokkurlnn.
Ritstjóri: Stefán Pétursson.
Ritstjórn og afgreiðsla í Al-
pýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Símar ritstjórnar: 4°C1 og 4902.
Símar afgr~iðslu: 4900 og 4906.
Verð í lausasölu 40 aura.
Alþýðu nrentsmiðjan h.f.
Nföurlag á erindi Sigurðar ÍÞorsteinssonar:
var
Hia nfja Eaínar-
fjarðarieila.
ÞAÐ HEFIR oft og réttilega
verið á það bent, hve mik-
ill og óeðlilegur munur er á
kaupgjaldi á hinum ýmsu stöð
um á laridinu, þótt um mjög
svipað eða sama verðlag sé að
ræða á lífsnauðsynjum; það er
ekki nema eðlilegt, að slíkt
misræmi skapi óánægju og á-
rekstra, enda er það mjög al-
mennt viðurkennt, að brýna
nauðsyn beri til að samræma
kaupgjaldið; með því mælir
ekki aðeins allt réttlæti; það
ætti einnig að verða til þess að
draga mjög rir þeim deilum,
sem upp á siðkastið hafa ver-
ið svo tíðar á vinnumarkaðin-
um. Eða svo skyldu menn að
minnsta kosti ætla.
*
En einmitt af því, að sam-
ræming kaupgjaldsins hefir í
flestum tilfellum verið yfirlýst
ur tilgangur þeirra verkalýðs-
félaga, sem undanfarið hafa
sagt upp samningum, og kunn-
ugt er, að stjórn Alþýðusam-
bandsins hefir nýlega lýst sig
meðmælta þeirri hugmynd, að
núverandi kaupgjald í landinu
verði fest fyrst um sinn, að
fenginni nokkurri samræmingu
fer ekki hjá því, að hin
nýja Hafnarfjarðardeila veki
stórkostlega furðu.
Verkamannafélagið Hlíf í
Hafnarfirði sagði upp samning-
um með það fyrir augum, að
því er formaður þess hefir sjálf
ur sagt, að fá kaupgjald þar á
staðnum samræmt kaupgjald-
inu í Reykjavík, en það myndi
þýða allverulegar kjarahætur
fyrir hafnfirzka verkamenn. At
vinnurekendur í Hafnarfirði
tjáðu sig reiðubúna til slikrar
samræmingar og 'buðu Verka-
mannafélaginu Hlíf upp á ná-
kvæmlega sömu launakjör og
Verkamannafélagið Dagsbrún í
Reykjavík nýtur fyrir meðlimi
sína.
Menn skyldu nú ætla, að
undir slíkum kringumstæðum
hefði ekki átt að vera erfitt að
koma sér saman. En hvað kem-
ur í Ijós?
Formaður Verkamannafélags-
ins Hlífar, Hermann Guðmunds
son, og kommúnistasprautur
þær, sem á bak við hann standa,
venda, þegar hér er komið
kvæði sínu í kross og véla fé-
lagsfund til þess að hafna til-
boði atvinnurekenda! Það er
krafizt meira en Dagsbrúnar-
kaups í Reykjavík; og fyrir það
er nú hafið verkfall í Hafnar-
firði, sem enginn veit, hve lengi
kann að standa og bve ndkið
að kosta verkalýðinn þar á
staðnum!
*
Það leynir sér ekki, að hér
eru annarra hagsmunir að verki,
en verkalýðsins sjálfs. Hér er
Hermann Guðmundsson og
kommúnistar, sem að baki hon
um standa, vitandi vits að ota
hafnfirzkum verkamönnum út
í ástæðulaust og ábyrgðarlaust
Þ EGAR ibúi'ð var að draga
Þann ifyrsta af uppihalds-
strengjunum yfir voru á honum
allmargir j'árnkrókar og annar
úthúnaður, sem hefðu orð-
ið til hindrunar drætti
Iþess næsta o. s. frv.
og þurfti að ná því í burtu, en
brúarsmiðirnir virtust vera í
hálfgerðu ráðaleysi með hvern
ig það yrði framkvæmt. Tóku
þeir það til bragðs, að smíða
sterkan trékláf, sem var látinn
renna á hjóli eftir strengnum,
og í hann var settur sá yngsti
hinna ensku verkamanna, pilt
ur 15—16 ára, og skyldi svo
kláfur þessi dreginn á taug norð
uryfir ána, og pilturinn hreina
jafnóðum af aðalstrengnum allt
það er til baga gat orðið við yfir
drátt hinna strengjanna. Þetta
gekk vel fyrsta kastið, meðan
hallinn var frá suðurlandinu,
á miðjuna á strengnum, en þeg
ar átti að fara að draga hann
upp í móti norðuryfir frá miðju,
stóð hann fastur, og gekk svo
um hríð, voru víst flestir orðnir
all-áhyggjufullir um hvernig
þetta ævintýri myndi enda því
ómögulegt sýndist að gjöra neitt
er að gagni mætti verða, frá
hvorugri hliðinni. Pilturinn,
sem í kláfnum var mun víst
hafa álitið svo um stund, að tví
sýnt væri um endalokin, en allt
í einu fékk hann í sig þá hug-
mynd, að nú væri annað hvort
að „duga eða drepast", og tók
til að róla sér áfram, með mesta
krafti, og við það komst hann
á stað upp á við á strengnum
og á endanum komst hann yfir
og var honum tekið með mikl-
um fögnuði. Mr. Vaughan rétti
honum 1 sterlingspund í gulli,
og sagði að bann skyldi hafa
það' til minningar um að hann
væri fyrsti maður, sem færi yfir
Ölfusárbrúna, en ég er hræddur
um að hann hafi ekki lengi haft
ánægju af þessum minnjapen-
ingi, því næsta dag voru 3 sam-
verkamenn hans og hann sjálf-
ur ■ talsvert ölvaður, og mun
peningi þessum hafa verið varið
til áfengiskaupa.
Fleira gerðist ekki sögulegt
við brúarsmíðina, sem ég man
eftir, annað en, að verkið gekk
samkvæmt áætlun þeirra, sem
bjartsýnastir voru, og brúin var
vígð og opnuð til almennrar um
ferðar 8. september eins og sagt
er í upphafi þessa erindis. Þeir
sem á lífi eru ennþá, af þeim,
sem við brúarbygginguna unnu,
eða voru því máli kunnugir,
munu að ég hygg, mest undrast
það, að þetta stórvirki, sem þá
var framkvæmt, með þeim tækj
um, sem þá voru fyrir hendi,
skyldi verða framkvæmt jafn
slysalítið og raun varð á, ef bor
ið er saman við þau mörgu slys,
sem nú eiga sér stað, með þeirri
tækni sem menn nú ráða yfir.
Brúin er 120 álnir yfir ánni,
áin sjálf er 112 álnir milli
bakka, en aðalstöplarnir eru 8
álnir frá ánni samtals beggja
megin. Að lýsa brúnni er óþarft
því að hún er orðin mörgum-
landsbúum kunn bæði af eigin
sjón, og af myndum, sem af
henni hafa verið birtar. Aðeins
skal þess getið um styrkleika
hennar að talið var að hún ætti
ag geta borið járnbrautarlest,
eða 50 pund á hvert ferfet, sem
talið var jafngilda því, að um
1000 menn ca. 144 pund hver að
þyngd gætu staðið á brúnni í
einu. Ekki man ég fyrir víst
hvað margir i íslenzkir verka-
menn unnu þarna um sumarið,
en nærri vegi mun það vera,
að þeir hafi verið um 30.
Það, lá nærri að til tafar verk
inu yrði missi 'hinna 3—4
stykkja, sem sukku með pramm
anum fyrsta daginn, en svo varð
ekki, þau voru strax pöntuð frá
Englandi, og komu í tæka tíð
til Eyrarbakka og voru flutt að
brúarstæðinu á kviktrjám, því
þau voru langt frá því að vera
kliftæk.
Brúarvígslan var ákveðin 8.
september og kom þar múgur
og margmenni, meira en nokji-
urntíma hafði áður sést um þess
ar slóðir, og hefði það vafalaust
orðið fleira ef veður hefði verið
gott, en um morgunin var strax
nokkur rigning og stormur og
versnaði meir er á daginn leið.
en eigi að síður hófst athöfnin
kl. 2 og byrjaði með því að lúðra
sveit úr Reykjavík spilaði, und
ir stjórn Helga Helgasonar kaup
manns, og þar á eftir var sungin
hin snjalla ,,Brúardrápa“, eftir
Hannes Hafstein þáverandi
landritari.
Á brúarsporðinum að sunnan
var settur timburpallur með
flöggum til beggja hliða, (enda
var brúin flöggum skreytt) á
handriðið fyrir framan pallinn
var breitt rautt klæði og af pall
inum flutti Magnús Stephensen
landshöfðingi, vígsluræðuna.
Hann rakti fyrst sögu brúar-
málsins í stórum dráttum, lýsti
þörfinni fyrir þessar og aðrar
samgöngubætur á landi hér, og
kvað hann vel forsvaranlegt óg
jafnvel sjálfsagt, að byrjað
væri á þessu stórvirki hér og
komst að orði eitthvað á þessa
leið, að ef maður væri kominn
í góðu veðri upp á Ingólfsfjall,
sem væri hér í grenndinni, þá
væri fyrir sjónum eitt hið víð-
áttumesta og gróðurríkasta
sléttlendi á landi hér, tem
myndi geta fætt og klætt alla
landsmenn og meira til, ef það
kæmist í góða rækt. Hann flutti
þakkir öllum þeim, sem unnið
hefðu fyr eða síðar að framgangi
þessa stórvirkis. Þeim, sem
hefðu framkvæmt verkið, verka
mönnum, verkfræðingum og síð
ast en ekki sízt Tryggva Gunn-
arssyni, sem með ósérplægni,
og sínum alþekkta dugnaði og á
ræði hefði átt veigamesta þátt-
inn í framkvæmd verksins.
Iiann sagði ennfremur að í goða
fræðum væri getið um merki-
lega gersemi, hringinn
„Draupni“, er hefði þá -náttúru,
I að níundu hverja nótt drupu af
verkfall, sem engar líkur eru til
að þeir hafi nokkuð upp úr ann
að en skaðann, en kommúnist-
ar hins vegar vonast eftir að
verði til þess að auka glund-
roðann i landinu og auðvelda
valdabrölt þeirra. Fyrir það er
hafnfirzkum verkamönnum nú
fórnað.
Það má segja, að ólíkt hafi
verið á málum haldið á Akra-
nesi, þar sem verkalýðsfélagið
komst nýlega að samningum
um stórkostlegar (kjarabætur
fyrir meðlimi sína án þess, að
til nokkurrar vinnustöðvunar
kæmi. Er nú greitt þar nákvæm
lega sama kaup og i Reykjavík
og una verikamenn á Akranesi
velyið, enda engin skynsamleg
ástæða til að hærra kaupgjald
sé greitt þar en í sjálfum höf-
uðstaðnum, þar sem einna dýr-
ast mun vera að lifa. En á Akra
nesi voru það líka Alþýðuflokks
menn, sem á málum verkalýðs-
ins héldu, en ekki kommunist-
ar eins og í Hafnarfirði, þar sem
mjög verulegum kjarabótum og
nákvæmlega sömu kjörum og í
Reykjavík og á Akranesi hefir
nú verið hafnað og verkamönn-
um att út í fyrirhyggjulaust og
•ástæðulaust verkfall.
honum 8 hringar jafnhöfgir, og
mælti síðan: „Óskum þess að
sú náttúra fylgi þessari gersemi
vorri, að af henni drjúpi á
skömmum tíma viðlíka margar
brýr, jafngóðar, yfir vatnsföll
landsins er þess þarfnast mest.
Ég hafði nokkrum sinnum áð
ur séð Magnús landshöfðingja,
en aldrei talað við hann. Hann
var fremur lágur vexti, og ekki
mjög tilkomumikil í sjón. Að
þessu sinni stóð ég í mannþyrp
ingunni fyrir -neðan ræðupall-
ínn, og horfði á hann, meðan
hann flutti ræðuna af hrífandi
mælsku, og hann var alltaf að
stækka í augum mínum, en
stærstur varð hann, þegar hann
tók ofan höfuðfat sitt í ausandi
rignirigunni, og mælti með
hneigðu höfði:
Biðjum þá að lokum almáttug
an guð, að blessa brúna og alla
þá ávexti er hún getur borið,
ef vér kunnum til að gæta.. Biðj
um hann að gefa þjóðinni dug
og dáð, áræði og framtakssemi,
til að halda áfram, því sem vel
er byrjað með þessu fyrirtfeki,
svo að það marki nýtt tímabil
í viðburðum hennar til sam-
göngubóta, og öðrum samkynja
fyrirtækjum þjóðinni til hag-
sældar.“
Því næst lýsti hann brúna
opna til frjálsrar umferðar, og
gengu þeir, svo yfir hana sam-
hliða fremstir, hann, Tr. Gunn-
arsson og V. Ripperda verkfr.
og mannfjöldinn á eftir, 2—3
samhliða, og var alls talið full
Auglýsingar,
sem birtast eiga í
AlþýðuMaðÍKii,
verða að yer»
komr.ar til Auglýs-
iagaskrifstofunnar
í Alþýðuhúsim:,
(gengið rm, frá
Hverfisgötu)
fyrir kl. 1 a'B kvöidL
1600 sem yfir hana fóru þá, en
álitið var að 100—200 hefðu
verið inni í húsaskjóli sökum
veðursins; eða á víð og dreif ann
arsstaðar. Ensku verkamennirn
ir voru farnir heim til sín þeg-
ar vígslan fór fram, og einnig
brúarsmiðurinn Mr. Vaughan,
en hans var vinsamlega minnst
í samsæti í Tryggvaskála um
kvöldið, enda var það maklegt,
því hann var í orðsins beztu
merkingu, heiðursmaður.
Þegar leið á kvöldið efir
vígsluna, fóru menn að fara ríð
andi yfir brúna, sumir nokkuð
ógætilega, fóru jafnvel að láta
sjá hvað hestar sínir gætu hlaup
ið hart á sprettinum. Þótti því
sjálfsagt að setja von bráðar
reglur fyrir umferð um hana,
og hljóðuðu þær svo, að ekki
Framh. á 6. síðu.
TÍMINN gerir í aðalritstjórn
argrein sinni á föstudag-
inn kjör opinberra starfsmanna
að umtalsefni. Þar segir meðal
annars:
,,Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að opinberir starfsmenn eru
sú stétt þjóðfélagsins, sem hlotið
hefir minnstan skerf af kjarabót-
um styrjaldarástandsins. I kapp-
hlaupi því, sem átt hefir sér stað
milli kaupgjalds og afurðaverðs,
hafa þeir dregizt fullkomlega aftur
úr. Meðan margir láglaunamenn
hjávríkinu hafa fengið grunnkaup
sitt hækkað um 25%, hafa flestar
aðrar stéttir fengið grunnkaup sitt
hækkað um 50—100%. Þótt slíkar
hækkanir v-erði eigi að öllu leyti
teknar til fyrimyndar, virðist það
vera eðlilegt réttlætismél, að op-
inberir starfsmenn komist til sam-
ræmis við aðrar stéttir áður en haf
izt verður verulega handa um -að
klifra niður dýrtíðarstigann, svo
að ósamræmi og ranglæti, sem hef
ir skapazt milli stéttahópanna á
stríðsárunum, valöi ekki óþarfri úlf
úð og togstreitu við almenna nið-
urfærslu.
Setning nýrra laga um launa-
kjör opinberra starfsmanna er einn
ig þörf að fleiri ástæðum,. Það á
stand, sem nú ríkir í launamálun-
um, er með öllu óþolandi. Misræm-
ið í launagreiðslum er hið stór-
kostlegasta. Mörg störf eru upp-
bætt með ýmiskonar aukagreiðsl-
um og bitlingum. Vinnutími og
hlunnindi hjá hinum ýmsu stofn-
unum er mjög mismunandi. Þetta
og margt fleira þarfnast réttláts
samræmis og endúrbóta.“
í áframhaldi af þessum um-
mælum minntist Tíminn á hreif
ingu þá, sem nú er hafin meðal
opinberra starfsmanna fyrir
bættum kjörum, og á kröfur
þær, sem þeir gera. Segir þar:
„Opinberir starfsmenn hafa nú
hafizt handa um að fá hlut sinn
réttan til samræmis við aðrar stétt
ir. Um það er allt gott að segja og
sjálfsagt að taka þeim með velvilja
og skilningi. Opinberir starfsmenn,
sem er sæmilega búið að, hafa víð-
ast reynzt ein bezta kjölfesta þjóð
félagsins, ásamt bændum og öðrum
smærri framleiðendum, gegn nið-
urrifi og upplausn öfgastefna. Það
væri háskalegt, ef þannig væri
haldið á málum, að þeim væri
kippt úr þessum farvegi og látn-
ir verða vatn á myllu æsinga-
manna.
Seinustu mánuðina hefir einn
stjórnmálaflokkur landsins látizt
vera sérstakur merkisberi opin-
berra starfsmanna. Það er Komm-
únistaflokkurinn. Hann hefir samt
ekki þurft langan tímu til að af-
hjúpa það, að fyrir honum vakir
annað með þessum bægslagangi sín
um en að bæta fyrir málstað opin-
berra starfsmanna. Liðsmenn
þeirra innan samtaka opinberra
starfsmanna hafa unnið að því, að
krafan um verkfallsrétt yrði sett
á oddinn á undan kröfunni um
leiðréttingu launalaganna. Hefir
þeim tekizt að koma iþessari ár
sinni svo vel fyrir borð, að almennt
mun svo álitið, að verkfallsréttur-
inn sé orðinn aðalkrafa opinberra
starfsmanna. En þetta er mikill
misskilningur. Allur meginþorri
opinberra starfsmanna mun líta á
kröfuna um verkfallsrétt eins og
firru og upplausn þjóðfélagsins,
enda þekkist slíkur réttur hvergi
annars staðar. Þeim er ljóst, að
tá 6. e£§te.