Alþýðublaðið - 14.09.1944, Page 3
Mtniumdagui 14. sept. IS44
OTSUSUaB.
lappbiaupfS nttkla
EFTIR AÐ RÚSSAR höfðu
hrakið Þjóðverja úr landi
sínu, tekið um helming Pól-
lands og voru komnir að
landamærum Austur-Prúss-
lands, tóku menn að spá því,
að þeir yrðu á undan Bretum
og Bandaríkjamönnum til
BexJínar, en það virðist hafa
verið ákveðið, að taka höfuð-
borg Þýzkalands herskildi og
! lofa Berlínarbúum að sjá sig
urgöngu með nokkru öðru
sniði en þeir höfðu hugsað
ser, er Hitler hóf styrjöldina
fyrir fimm árum. Margt benti
til þess að Rússar myndu
, verða fyrri til, enda var sókn
þeirra með ódæmum hröð, en
bandamenn háðu harðar orr-
ustur við Caen og á Norman-
dieskaga og urðu að kaupa
hvert fótmál dýru verði.
SÍÐAN hefir margt bréytzt og
rás viðburðanna hefir orðið
með öðrum hætti en hinir
bjartsýnustu andstæðingar
nazistanna gátu gert sér von
ir um. Á fáum vikum hafa
sigursælir herir Bandaríkja-
manna og Breta brotið á bak
aftur mótspymu þýzku herj-
anna í Frakklandi, tekið meg
inhluta Belgíu, sótt inn í Hol
land og berjast nú á þýzkri
grund. Hins vegar hefir meg-
inþunga hinnar rússnesku
, sóknar verið beint suður og
austur á bóginn, á Balkan, en
litlar sem engar breytingar
orðið á vígstöðunni við Aust
ur-Prússland og við Varsjá.
Vitað er, að Þjóðverjar hafa
unnið að því baki bfotnu að
treysta varnir sínar í Austur-
Prússlandi og dregið að sér
varalið. Er svo að sjá, sem
Þjóðverjar hafi ekki lagt
fram ýtrustu krafta sína í
vörninni í Póllandi, en leggi
þeim mun meiri áherzlu á
að treysta varnirnar nær
heimalandinu. Þá er ekki ó-
sennilegt, að Rússar vilji
fyrst uppræta eða gersigra
þýzku herina, sem enn hafast
við í Eystrasaltslöndunum og
og bíði þess, sem verða vill
í Finnlandi, en úr því mun nú
fást skorið, er frestur sá, er
þýzka setuliðinu hafði verið
gefinn til þess að hverfa á
brott úr Finnlandi, er á enda
á morgun, 15. september.
VEL MÁ VERA, að þá hefjist
að nýju sókn Rússa í vestur,
til Berlínar, og þá væntan-
lega lokasóknin. Frá Varsjá
til Berlínar eru um 550 km.,
en Rússar eru, sem kunnugt
er, í grend við Varsjá, og svip
uð vegalengd. er frá landa-
mærum Belgíu, þar sem
bandamenn hafa ráðizt inn í
þýzkaland, til Berlínar.
Þetta ,,kapphlaup“ til Berlín
ar verður að líkindum hin
stórkostlegasta og afdrifarík-
asta keppni, sem sagan kann
frá að greina og allt á huldu
um úrslitin.
f Frh. af 6. sdðu.
Vopnabésshiimálarnir við Rúmena:
Rússar
Bukovínu, Bessarabiu m sfriðs
Svæðin sem Rússar fá
Kort þetta 'gefur nokkra hugmynd um svæði þau, er Rúss-
ar eiga að fá afftur frá Rúmenum, saónkvæmt vopnahlésskil-
málunum, sem nú fhaffa verið birtir. Á- tmiðju kortinu til
hægri eru Bessaratbia og Búkovina, en þar vestur af er
Transsylvanía, sem Ungverjar fengu frá Rúimenum árið 1940,
en Rúmenar fá nú afftur, samkvæmt skilmiálunum.
Vesturvígsiöðvarnar:
Bretar eiga 15 km. ófarna til Þýzka-
lands fyrir norðan Álbertsskurðinn
66® þús. íkveikjusprengjum varpa® á Frank-
furt og Stuttgart í hrikalegum loftárásum
BANDAMENN halda áfram sókninni í Belgíu og sækja
Kanadamenn og Pólverjar fram í áttina til Hollands
og verður vel ágengt, en Bretar hafa sótt fram norður af
Albertsskurðinum og voru er síðast fréttist um 15 km. frá
landamærum Þýzkalands. Bandaríkjamenn, sem sækja fram
frá Verviers, austur af Liége, eru rúma 20 km, frá Aachen,
en aðrar hersveitir hafa komið sér fyrir í hæðum umhverfis
borgina.
í fyrrinótt réðust fjölmargar brezkar Lancaster- og Hali-
faxflugvélar á jámbrautarstöðvamar í Frankfurt og Stuttgart
og vörpuðu niður samtals 600 þúsund íkveikjusprengjum. Vom
þar eyðilagðar margar jámbrautarlestir, hlaðnar mönnum og
hergögnum á leið til Siegfriedlímmnar.
Síðdegis í gær réðust um
1000 amerískar flugvélar á olíu
vinnslustöðvar í Leipzig og
Ludwigshafen og hinar frægu
Daimler-Benz verksmiðjur í
Stuttgart og iðnaðarstöðvar í
Ulm. 53 þýzkar flugvélar voru
skotnar niður í loftorrustum, en
Bandaríkjamenn misstu 36 flug
vélar.
Þar sem Bretar sækja fram
fyrir norðan Albertsskurðinn
verður þess vart, að Þjóðverj-
ar tefla fram öhörðnuðum ung
lingum úr æskulýðsfélögum
Hitlers, Hitler-Jugend og fá þær
engan veginn staðizt sókn
Breta.
i Hersveitir Pattons halda á-
fram að streyma yfir árnar Mos
el og Metz, bæði á brúm, sem
vetrkfræðingasveitir . koma á
þær og með ferjum. Mótspyma
Þjóðverja fer harðnandi og
fagnar, sem teknir hafa verið,
segja, að Þjóðverjar leggi jafn-
skaðabæiur
auki
En Rúmenar fá aftur Transsylvaniu, sem
Hiiler gaf Unperjum
Þeir verða að leggja til tóif herfylki og
berjast undir stjórn ffiú&sa
T GÆR voru birtir vopnahlésskilmálar þeir, er Rússar
hafa sett fram og Rúmenar fallizt á. Malinovsky mar-
skálkur undirritaði samninginn fyrir hönd handamanna. Sam
kvæmt skilmálanum skulu Rúmenar berjast með handa-
mönnmn gegn Þjóðverjum og Ungverjum og leggja til þess
12 fótgönguliðsherfylki, er lúti yfirstjóm Rússa. Landa-
mæri Rússa og Rúmena skulu vera eins og þau voru í júní
1940, þ. e. a. s. Rússar fá Bukovinu og Bessarabíu, en hins
vegar fá Rúmenar aftur nokkum hluta Transsylvaníu, sem
Hitler gaf Ungverjum það ár.
Þá eiga Rúmenar að greiða Rússum stríðsskaðabætur
fyrir ýmis spjö'll, sem orðið hafa í Rússlandi af völdum ó-
friðarins, er nema um 300 milljónum dollara. Þá eru í skil-
málunum ýmisleg ákvæði um kyrrsetningu allra Þjóð-
verja og Ungverja í Rúmeníu, afhendingu þýzkra hergagna
og skipa, afnot af járnbrautum og öðruni samgöngutækjum,
útvarpi, sakaruppgjöf pólitískra fanga o. fl.
--------------------------* SKULDBINDINGAR RÚMENA
Samkvæmt fregnum, sem bor
izt hafa frá Rúmeníu, eru vopna
hlésskilmálar Rússa ekki taldir
ósanngjarnir eftir atvikum.
Rúmenar leggja til a. m. k. 12
fótgönguliðsherfylki, er taka
eiga þátt í sókninni á hendur
Þjóðverjum og Ungverjum und
ir stjórn Rússa. Allir Þjóðverj-
ar og Ungverjar, bæði hermenn
og óbreyttir borgarar í Rúm-
eníu skulu kyrrsettir. Fangar
úr öllum löndum ’bandamanna
verði þegar látnir lausir, svo
og pólitískir fangar. Öll þýzk
hergögn og skip í rúmenskum
höfnum skulu afhent Rússum,
svo og skip bandamanna, sem
kunna að’ vera í rúmenskum
höfnum og munu Rússar síðar
Iáta. hin síðastnefndu af hendi
við rétta eigendur. Rússar taka
í sínar hendur samgöngukerfi
landsins og mannvirki, sem
nauðsynleg teljast til styrjald-
arrekstrarins. Rúmenar verða
að leysa upp öll félög og sam-
tök, er teljast starfa á fasistísk-
um grundvelli og refsa stríðs-
glæpamönnum eða afhenda þá
bandamönnum.
Rússar taka Lomia
í Póiiandi
O '1ALIN birti í gær dag-
skipan, þar sem greint er
frá því, að borgin Lomza við
Narew, sem mikið hefir verið
barizt um að undanförnu, sé
nú á valdi Rússa. Var það 2.
'hvítrússneski herinn, sem tók
borgina. Miklir bardagar eru
sagðir geisá við Praga, útborg
Varsjár.
í Suður-Póllandi eru Rússar
komnir að landamærum Tékkó
sDóvakíu, eftir að þeir höfðu
brotizt þangað um skörð í
Norður-Karpatafjöllum.
mikið upp úr Mosel-varnarlín-
unni og Siegfriedlínunni sjálfri.
Hermenn úr franska heima-
hernum hafa náð hafnarborg-
inni La Rochelle á sitt vald.
Borgin, sem er við Biskayaflóa
milli Nantes og Bordeaux, var
notuð sem kafbátastöð.
EISENHOWER AÐVARAR
ERLENDA VERKAMENN I
ÞÝZKALANDI
Eisenhower hefir bixt áskor-
un til erlendra verkamanna í
Vestur- ög Suðui'-Þýzkalandi
um að hverfa nú þegar á brott
úr verksmiðjum þeim, er þeir
neyðast til að vinna í og leita
skjóls í skógum og annars stað
ar þar sem hentugt þykir. Seg-
ir í áskoruninni, að nánari *yr-
irmæli verði birt í útvarpi og
með flugmiðum. Jafnframt var
boðuð aukin loftsókn á hendur
Þjóðverjum.
STRIÐSSKAÐABÆTURNAR
Rúmenar verða að greiða
Rússum skaðabætur fyrir spjöll,
er þeir hafa valdið í Rúss-
landi eða á eignum Rússa,
er nema sem svarar 300 millj-
ónum dollara, en Rúmenar
tóku, sem kunnugt er, all-
mikinn þátt í bardögunum á
Krím og víðar á austurvígstöðv-
unum og ollu ásamt Þjóðverj-
um miklum spjöllum á undan-
haldinu. Um skaðcbætur til
Breta og Bandarkjamannía verð
ur rætt síðar. Geta Rúmenar
greitt skaðabæturnar með korn
vöru, skipum og' iðnaðarvörum
eftir nánara samkomulagi.