Alþýðublaðið - 14.09.1944, Síða 7
Fmimtudagur 14. sept. 1944
ALi* Y0UBLAÐ liÐ
Bœrinn í dag.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugarvegs-
apóteki.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 1633.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 'Þingfréttir.
19.40 Lesin dagskrá næstu viku.
20.00 Fréttir.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stjórn-
ar):
a) Norrænn lagaflokkur eft
ir Kjerulf.
b) „Þúsund og ein nótt“,
vals eftir Strauss.
c) Mars eftir Herzer.
.20.50 Frá útlöndum (Jón Magnús
son).
2,1.10 Hljómplötur: Lög leikin á
c-ello.
2115 Upplestur: „Myndin af
kónginum“, smásaga eftir
Gunnar M. Magnúss (Höf-
undur lés).
21.35 Hljómplötur: Amerískir
ættjarðarsöngvar.
£inar Sigurfinnsson
bóndi í Iðu í Biskupstungum er
S^xtugur í dag.
Tónlistarmenn
Frh. af 2. síðu.
Tónlistarfélagið !haldið uppi
fcennslu á ýms strengjahljóð-
feeri,, svo sem fiðlu og selló og
ennfremur á píanó og hefir Tón
listarskólinn haft ágæta kennslu
krafta í þeim greinum. ÍEn aftur
á móti hefir verið skortur á
iblástursleikurum, en til jþess að
nálða ibót á þiví hefir félagið ráð-
íst í að senda þessa tvo hljóm-
listarmenn til framhaldsnóms í
flautu og oiboeleik.
. 'Munu iþeir stunda nám í
Manóhester og er námstíminn
ásetlaður 1—2 ár og munu þeir
félagar taka að sér kennslu við
Tónlistarskólann á þessi hljóð-
færi, jafniframt, sem þeir leika
í hljómsveit Tónlistarfélagsins.
(Þá hefir Tónlistarfélagið í
Shyggju að senda á næstunni
1—2 menn til n'áms erlendis til
,að læra á fagott og clarnett, í
því augnamiði að þeir tækju að
sér kennslu við Tónlistarskól-
ann Iþegar þeir koma frá námi.
Tónlistarfélagið vinnur nú að
jþví að kioma hér upp lítilld sym-
fóniskri hljómsveit, og sem und
irbúndng að þvlí er stofn-un
strenigj akvartetts Tónlistarfé-
lagsins er stofniaður var síðast-
ÍLiðið vor. Jafnframt þessu er
hafinn undirlbúningur að stofn-
un 14 manna strengjahljómsiveit
ar, sem ráðgert er að taki til
starfa upp úr miðjum þessum
mánuðí.*
Félagslff.
Ármenningar!
Hlutavelta félagsins verður í
ÍR-húsinu, sunnudaginn 17.
sept. Við treystum hverjum ein-
asta félagsmanni, að vinna ötul
lega að söfnun góðra muna til
hlutaveltunnar. Tekið verður
á móti gjöfum í ÍR-húsinu frá
'kl. 1—8 e. h. n. k. laugardag.
Stjórn Ármanns.
Óður Bemadettu
á kvikmynd.
Fáum við hana um
jólin?
St. FREYJA nr. 218.
Fundur í kvöld kl. 8,30. Jón
Árnason: Erindi. Upplestur?
Æðstitemplar.
Jennifer Jones.
FT er staðhæft, að tími
kraftáverkanna heyri for-
tíðinni til. Og þó . . .
Lítiþ frönsk bóndastúlka fær
því áorkað, vegna barnslegs
traust á guðslegri forsjóh og
einfaldleika trúar sinnar, að
vatn í brunni einum, nálægt
borginni Lourdes í Frakklandi,
veitir þeim, er þess neyta, bata
af þjáningum og líkamskvill-
um. Síðan er hún tekin í heil-
agra manna tölu af páfanum í
Rómaborg.
Lítil, amerísk stúlka, sem
áður streittist við að halda í
sér lífinu með því að leika smá
hlutverk í leikhúsum New
York borgar, er allt í einu orð-
in frægasta „stjarna“ í þöfuð-
borg kvikmyndanna, Holly-
wood og það fyrir leik sinn í
kvikmynd, þar sem hún á að
sýna litlu, frönsku stúlkuna.
Ög svo segja menn, að tími
kiaftaverkanna heyri fortíð-
inni til.
Franska stúlkan hét Berna-
detta, en sú ameríska héitir
Jennifer Jones, en hét áður
Phylis Isley og er, mann fram
af manni komin af leikurum
í báðar ættir. Fyrir leik sinn í
kvikmyndinni „Óður Berna-
dettu“ fékk hún viðurkenningu
The Acedemy of Motion Pic-
ture Arts and Sciences, sem sú
leikkona, sem á síðastliðnu ári
hafði leyst hlutverk sitt betur
af hendi en nokkur önnur. Svo
sjálfsögð þótti Jennifer Jones í
hlutverk frönsku stúlkunnar, að
henni var ekki einu sinni leyft
að bera snefil af fegrunarmeð-
ulum, „sminki“ eða þess háttar
framan f sig, meðan á töku
myndarinnar stóð, en það mun
vera algjört einsdæmi um leik-
konu.
Þegar nú tekið er tillit til
þess, að höfundur sögunnar um
Bernadettu, Tékkinn Franz
Werfel, segir, að barátta Berna-
dettu við hundshátt og vantrú
samtíðar sinnar sé aðeins hlið-
stæða, dregin upp, til þess að
skýra tilgang þeirrar styrjaldar,
sem nú er háð gegn nazisman-
uip: „Það, sem barizt er um,“
segir hann, „er, hvort mann-
kyhinu. á að vera búið andlegt
líf eða andlegur dauði,“ þá er
þao svei mér ekki svo lítið, sem
Jennifer litlu ^jefur verið feng-
ið í hendur, og sem hún þá hef-
ur skilað með þeim ágætum,
sem raun ber vitni.
Láti að líkum, þá fáum við
að sjá þessa ágætu kvikmynd ó
ruestkomandi jólum. Sem stend
ur fer fram sýning hennar á
hinum svokölluðu „frumsýn-
ingabíóum,“ þ. e. kvikmynida-
húsum stórborganna í Amer-
íku, sem 'hafa um lengri eða
skemmri tíma einkarétt frá
kvikmyndatökufélögunum á
því, að sýna myndir þeirra, en
núna 11. sept. verður hún laus
úr þeirri prísund og má úr því
Leiðimar auslur
Frh. af 2. siðu.
inn, svo þetta bitnar tilfinnan-
lenga á öllum almenningi í sveit
um sunnanlands.
En það er ekki nóg, þótt
takast kunni að koma Olfusár-
brúnni upp, þannig að hægt
verðí að koma flutningi yfir
hana, það verður að koma sam
göngunum almennt í öruggt
horf til hinna blómlegu byggða
Suðurlandsundirlendisins.
Lítil bót virðist ætla að verða
að veginum um Brúarhlöð, og
hafa bifreiðar setið fastar á
þeirri leið í hópum undanfarna
daga, og er svo komið að vegur
inn er ófær með öllu nú sem
stendyr, og þó svo kunni að
reynast, að eithvað verði hægt
að lappa upp á hann, verður
hann aldrei akfær til frambúðar
Sagt er að unnið sé að viðgerð
um á Hreppaveginum, og að
reynt verði að hraða þeirri við-
gerð eftir föngum, en sjálfsagt'
verður það ekki unnið á skömm
um tíma.
Undanfarna daga hafa geysi
legir vatnavextir verið ,í ám
sunnan lands, svo að hlaup hef
ir komið í jökulsár. Þannig hef
ir t. d. Hafursá i Mýrdal graf-
ið undan vestari stöpul brúar-
innar þar, svo að brúin laskaðist
allmikið, og er nú ófær bifreið-
um. Óvíst er talið hvort takast
muni að gera við brúna, svo
ennþá bætist þarna tálmi á veg
um austursveitanna.
Að Kirkjubæjarklaustri bíð-
ur nú fiöldi fólks að komast
hingað. Það á þess engan kost
að komast suður fyrr en minnk
ar í Klifandisá svo að hægt
verði að fara um hana á vaði.
Nýjar aóvarasiir
j Alúðar þakkir vottum við Öllum þeim, er sýndu okkur samúð
við andlát og jarðarför föður okkar og tengdaföður,’
Jóns Sigurðssonar,
áður Rauðarárstíg 1. Böm og tengdaböra.
vaniar okkur nú þegar fil að
biaðtS um
Grettlsgötu,
Laugarnesveg,
og
Vesturgötu.
HÁTT KAUP.
Talið við afgreiðsiuna.
AlþýSublaðsð. — Sími 4900,
Vegamálastjóri hefir því að
mörgu að hyggja þessa daggna,
og veitti ekki af að hann láti
hendur standa fram úr ermum,
enda virðist líka svo að hann
hafi ofurlítið rumskað, eftir
hrun Ölfusárbrúarinriar, því nú
hefir hann gefið út fyrirmæli
til biireiðastjóra um að aka gæti
lega yfir allar hengjbrýr á land
inu. Sérstaklpga hvetur hann
bifreiðarstjóra til að fara með
varúð yfir brúna á Jökulsá í
Axarfirði. Yfir hana má ekki
fara með meiri þunga en 5
smálestir og er þungi bifreið-
anna innifalinn í því. Enn frem
ur hvetur hann langferðabif-
reiðastjóra til þess að láta far-
þega fara út úr bifreiðum og
ganga yfir brúna.
Á landinu mun nú vera um
fimm hengibrýr og eru þær all
ar smíðaðar um aldamót, og eru
því farnar að gefa sig, sem eðli-
legt er, og ef til vill fá þær
sömu.endalok og brúin á Ölfusá,
ef ekki verður haft vakandi eftir
lit með þeim og umferðarregl-
um um þær framfylgt, og þar
höfðu meiri aðgæzla en var við
Olfusárbrú.
Handknattleiksflokkur
kvenna fró Vestmannaeyjum,
sem nú dvelur í Hafnarfirði,
keppti við stúlkur úr knattsp^
félaginu Haukar í fyrrakvöld og.
fóru . leikar þannig að Haukar
unnu með 5 mörkum gegn 3.
sýna hana, með leyfi að sjálf-
sögðu, í hvaða kvikmyndahúsi,
sem er, og er vitað til þess, að
eitt bíóanna hér í bænum hef-
ur mjög eindregið óskað eftir
að fá myndina til sýninga og
þá aðallega sem iólamynd. —
Allir þeir, sem lesið hafa sög-
una „Óður Bernadettu,“ en
þeir eru orðnir nokkuð margir,
því upplag bókarinnar er al-
veg á þrotum, ef ekki þegar
þrotið, munu bíða með eftir-
væntingu komu kvikmyndar-
innar.
Suðurlandsför forseta
Frh. af 2. síöu.
Hafnarfjarðar tók Hallsteinn
Hinriksson á móti forseta með
stuttri ræðu og afhenti honura
fallegan blómvönd.
Þá heimsóttu forsetahióíú-'
bæjarfógeta og dvöldu þar um
stund. Um kvöldið sátu forseta
hjónin kvöldverðarboð bæjar-
stjórnar og sýslunefndar. Und-
ir borðum héldu þessir menn
ræður, Bergur Jónsson bæjar-
fógeti, Björn Jóhannesson for-
seti bæja'rstjórnar, forseti ís-
lands, séra Garðar Þorsteinsj-
son, Emil Jónsson alþm. og
Bjarni Snæbjörnsson læknir.
Að kvöldverðinum loknum
bæjarstjórnin forsetahjónv"--
til Bessastaða.
í gær heimsótti forseti ýmsa
staði í Kjósarsýslu og er þar
með lokið ferðalagi hans um
Suðurland.
Kjallaraíbúðir.
MARGIR fjársjóðir eru dýr-
mætir mannkynlnu, en
engir eins og heilsan, einkan-
lega, þegar hún er á förum.
iMín reynsla af kjallaraíbúð
ætti að geta afhjúpað að nokkru
leyti leyndardóm þeirra sjúk-
dóma, er af kjallaraíbúðum
stafa.
Eg hef verið í kjallaraíbúð-
um hér um bil um 10 ára
skeið. Dvaldi í meira lagi inni
að vetrum. Önnur íbúðin blasti
móti suðri, hin sólarlaus. Voru
grafnar niður um meter, en þó
rakalitlar, vegna góðrar upp-
h-itunar. Fyrir hér um bil 11
árum veiktist ég álíka og svo
margir aðrir. Veikin var tauga
veiklun, sem lýsti sér þannig,
að ég var a/aFxóstyrkur í taug-
um, máttfarinn, kvíðinn, ekki
góður svefn, hjartsláttur,
hjartataugar í ólagi, kvala-
stingir í höfði, einkanlega á
morgnana. Einnig megraðist ég
mjög mikið, þrátt fyrir góða
matarlyst og alígott fæði.
iAf framangreiddu fór ég í
sjúkrah,ús til rannsóknar. Var
ég rannsakaður af lærðustu
læknum á fullkomnum spítala,
en bara án minnsta árangurs.
Þarna var ég spurður um margt
— sem máli skipti, en ekki
minnist ég þess, að ég væri að
spurður, hvers konar íbúð ég
býggi í. Á þessum tíma hafði ég
óljósan grun um, að sjúkleik-
inn stafaði af 5 ára kjallaraí-
búð. Næstu 4 ár lánaðist mér
að fá að vera í Jb.úðum ofar
kjöllurum. Jiafði ég þá frekar
góða heilsu.
Nú í hin 4 síðustu ár hef ég
verið í kjallaraíbúð, sólarlausri
að mestu. Einnig unnið í kjall-
ara á daginn, og er nú svipað-
ur sjúkdómur að heimsækja
mig og fyrir nálega 11 árum,
er ég gat um hér að framan.
Nú er hér ekki fæðinu um að
kenna, heldur er það kjallara-
loftið með sinni heilsuspillandí
uppgufun úr rakri jörð ásamt
koísýrunni, sem er að svipta
mig heilsu. Þetta er afar skilj-
anlegt. Sofi maðui’ í hreinu
lofti, safnar maður ' súrefna-
forða í blóðið í svefninum, en
hvernig fer, ef maður safnar
eiturútgufunarefnúm frá lung-
um og húðinni og þar við bæt-
ist hin óholla upþgufun frá
jörðinni?
Nú vilja kannske sumir
spyrja: Ertu viss um, að kjall-
araloftið hafi verið orsök til
sjúkdómsins? Já, ég hef athug-
að þetta allvel, og hef reynslu-
sannfæringu um, hvílíkt
heilsutjón af því leiðir, að vera
í kjöllurum. Veit ég vel. að
stundum er öðru um að kenna,
t. d. röngu mataræði, sætind-
um, of miklu hveitiáti og
krvddi, en hið banvæna kjall-
araloft má ekki gleymast.
Það er lífsnauðsyn, að þetta
verði tekið til gagngerðrar
rannsóknar af vísindamönnum
þessa lands, það er lífsnauðsyn
allra þeirra, sem í kjöllurum
verða að búa.
Hins vegar veit ég, að marg-
ir, sem búa í fyrsta flokks í-
búðum opna ekki glugga, sem
skyldi og syndgast þannig á
heilsu sinni, og er þá mjóst á
mununum og að vera í kjall-
ara. ,
Ríkir og fátækir, minnist
hiversu geysimikla þýðingu
hreint ofanjarðarloft hefur
fyrir heilsuna. Og minnist
minnar reynzlu, er þér líðið af
sams konar sjúkdómi og ég lýsti
hér að framan.
Þér læknar! Hvílík nauðsyn
er ekki að fá skorið úr því —
hvaða áhrif kjallaraloft hefur
á heilsu manna, er þér stríðið
við hin kynlegu tilfelli nútíma
taugaveiklunar.
Kjallarabúi.