Alþýðublaðið - 19.09.1944, Síða 2
2
AUÞYPUBL/»*?5£,
Þriðjudagur 13. sept. l&M
Stldveiðum lokið:
Bræðslusíldaraflinn varð meiri
heldur en í fyrrasumar
Minna saltað ennþá, vegna tunnuskorts
SÍLDVEIÐUM EiR LOKEÐ að þessu sinni og eru nær öll
sfcip á heimleið eftir ágætt síldveiðisumar. — Það fór
betur en áhorfist með síldveiðarnar og munu fá dæmi
þess, að önnur eins ósköp af síld hafi veiðzt á jafnskömmum
tíma og raunin varð á að þessu sinni.
Sfldveiðin varð meiri en í fyrrasumar. Nú fengust
1.530.000 mál í bræðslu, en í fyrra 1.263.000 mál, Hins veg-
ar varð saltsíldin heldur minni nú en í fyrra og olli því aðal-
lega skortur á tunnum. Voru nú saltaðar 33.347 timnur, en í
fyrra 44.850. Afkoma sjómanna og útgerðarmanna verður að
teljast góð eftir þessa ágætu útkomu.
• V
Olfusárbrúin var að nokkru leyti
reisf við á sunnudaginn var
Haldið áfram vi9 aS rétta hatia vtð alian
mánudaginn.
Búizt við, að alimikið af járni í brúnni þurfi
gagngerðrar viðgerðar við.
ASUNNUDAGINN var lok- ♦
ið að fullu undirbúningi
að því að hefja Ölfusárbrúna
— og voru gerðar tilráunir til
þess þann dag, en aðstæður
voru slæmar vegna roks og
rigningar. Það tókst þó að
hefja hrúna nokkuð upp, en
því starfi er nú haldið áfram
eins og auðið er.
Þegar lokið hefur verið við
að reisa brúna, mun verða haf-
izt handa um viðgerð á henni,
en enn er ekki vitað, hvergu
mikið þarf að gera við hana.
Vitað er, að járn í brúnni hafa
beyglast mikið óg sum jafnvel
sprungið — og þar á meðal
nokkuð af uppihöldunum, sem
sett voru ný í brúna í sumar.
f>að mun taka nokkurn tíma að
gera við þetta, íí'tir að búið er
að rétta brúna við.
Alþýðublaðið hefur spurzt
fyrir um það, hvort nokkur
líkindi séu til þess, að hægt
verði að styrkja brúna svo vel
og örugglega, að hún verði
fær fyrir bifreiðar og þunga-
flutninga, en um það atriði
mun ekki vera hægt að segja
með neinni vissu en sem komið
er. .
Alitsgerð verkfræðinganna
Gústafs Pálssonar og Bolla
Thoroddsens, sem falið var að
rannsaka orsakirnar til hruns
brúarinnar og ástand hennar
áður en hún hrundi, hefur enn
ekki borlzt sýslumanni Árnes-
inga, en verkfræðingarnir
munu þó hafa lokið við rann-
sókn sína.
Á sunnudag var ófært nær
allan daginn að ferja yfir Ölf-
usá. Mun þó hafa verið brotizt
Ífir hana með dálítið af mjólk.
gærmorgun var komið betra
veður og var þá ferjað yfir
fólk, farangur og mjólk.
Búnaðarþing kemur
saman á {immludag-
inn iil aukafundar.
STJÓRN Búnaðarfélags ís-
lands hefur boðað fulltrúa
á búnaðarþing saman til auka-
fundar, sem hefjast á nk.
fimmtudag klukkan 9 fyrir
hádegi.
Er boðað til þessa aukaþings
út af umræðum þeim, sem
fram hafa farið á alþingi und-
anfarna daga og samningaum- •'
leitunum þingflokkanna. —
Mun þing þetta standa yfir að-
eins í nokkra daga eða fram um
næstu helgi.
Haustfermingarbörnin
í Laugamesprestakalli, eru beð-
in að koma til viðtals í Laugnar-
neskirkju n. k. föstudag kl. 5 e. h.
Úrslií Walters-
keppninnar:
Valur sigrar KR. 5:1.
URSLITALEIKUR Walters-
keppninnar fór fram á í-
þróttavellinum á sunnudaginn
var í ofsaroki. Áttust þar við
KR og Valur og fóru leikar
svo, að Valur vann með 5 gegn
1 marki.
Forseti íslands var viðstadd-
ur þennan leik, sem var síð-
asti kappleikur í meistara-
flokki á þessu sumri.
í fyrri hálfleik kusu KR-
ingar að leika undan vindi, og
settu þeir mark sitt í þeim hálfi
leik, en Valsmenn lögðu allt
kapp á vörnina.
í síðari hálfleik lék Valur
undan vindi og skoruðu þá Öll
sín mörk, enda var vörn KR
opin, þar sem þeir lögðu of
mikið í sóknina ,en gættu ekki
að sama skapi varnarinnar.
Mikill mannfjöldi horfði á
leikinn, sem var mjög fjörugur
og allvel leikinn á köflum.
Hvað verður kjötverðið eflir 23. þessa mán.!
Úlsöluverðið verður ca. kr. 11,07
kg„ef það verður ekki greitf niður!
Og þó því aðeins, að úifluit kjöf verði verð-
bæft, annars kr. 18,87 kg.i
- m/ ....
Upplýsingar gefnar af atvinnumálaráðherra
á alþingi f gær.
A ÐUR en gengið var til dagskrár á fundi sameinaðs þings
í gær, kvaddi atvinnuxnálaráðherra, Vilíhjálmur Þór, sér
hljóðs og skýrði frá bréfaskiptum milli ráðuneytisins og
kjötverðlagsnefndar varðandi verðlagningu nýs dilkakjöts.
Ráðherrann kvaðst hafa skrifað kjötverðlagsnefnd 15. þ. m.
og hent nefndimni á mauðsyn þess, að kjötið yrði verðlagt nú
þegar. I svarií nefndarinnar væri það talið miklum vandkvæðum
bundið að ákveða kjötverðið eins og sakir stæðu. Ef greiddar
verða úr ríkissjóði uppbætur á útflutt kjöt, þannig að bændur
beri úr býtum fyrir það eins og sex manna nefndin gerði ráð fyrir,
þyrfti verðið innanlands að vera ca. kr. 11,07, samkvæmt áætl-
un nefndarinnar, til þess að bændur fengi það verð, sem sex
manna nefndin áætlaði. Er í þeirri áætlun ekki gert ráð fyrir,
að ríkissjóður greiðii niður verðið á innanlandsmarkaði.
Ef útflutta kjötið yrði ekki
verðbætt úr ríkissjóði, heldur
færi fram verðjöfnun milli þess
og kjötsins, seni selt yrð? á
innanlandsmarkaði, til þess að
hændur bæri úr býtum verð
sex manna nefndarinnar fyrir
allt kjöt, hvort sem það væri
flutt út eða selt innanlands, þá
yrði útsöluverð kjötsins að vera
ca. kr. 18,87, samkvæmt áætl-
un kjötverðlagsnefndar.
Atvinnumálaráðherra kvað
’almennt byrjað í dag að slátra
norðanlands, og kvaðst hann
ætla, að sama væri raunin aust
anlands og vestan. Taldi ráð-
herrann mikla nauðsyn til þess,
að hafin yrði sala kjötsins hið
bráðasta. Hvort tveggja væri,
að mikil þörf væri orðin fyrir
kjötið og að húsrúm þryti mjög
skjótt fyrir kjötið í írystihús-
unum, ef sala þess hæfist ekki
þegar í stað.
Að l'okum lýsti ráðherrann
því yfir, að hann sæi sér ekki
annað fært en láta boð út ganga
um að selja kjötið sama verði
og verið hefir, kr. 6.50, ef ekk-
ert yrði aðgert í þessum efnum
af hálfu þingsins, enda þótt svo
kynni að fara, að það verð yrði
rúmum tólf krónum lægra, en
það, sem bændum yrði úrskurð
að.
Samkvæmt þessari ákvörðun
ráðherrans gaf kiötverðlags-
nefnd svo út auglýsingu um
það í gær, að kjötverðið skyldi
vera óbreytt, kr. 6.50 kg. til
23. þ. m. Verður mismuuurinn
greid'dur með framlögum úr
ríkissjóði þann tíma, samkvæmt
þingsályktuninni frá 14. þ. m.
Alþýðuþlaðið sneri sér í gær
til Tómasar Jónssonar kjötkaup
manns og spurðist fýrir um það,
hvenær von væri á nýju.kjöti
í búðirnar. Kvað hann það vera
uþp úr miðri vikunni. Slátrun
væri hafin norðanlands en sök-
um flutningsörðugleika myndi
kjötið ekkí koma á markað hér
í bænum fyrr en seinni part vik
unnar.
Merkiieg bókasýn-
ing í Landsbéka-
safninu.
Elzfa békin er
árinu 1540.
frá
AÞESSU SUMRI eru liðin
• 100 ár frá því, að fyrst var
prentuð bók í Reykjavík. Árið
1844 var aðeins ein prentsmiðja
í landinu, Viðeyjarprentsmiðja,
en hún var flutt til Reykjavík-
ur þá um sumarið.
Þessa merkilega afmælis er
minnzt í landsbókasafninu með
þeirn hætti, að komið hefur
verið fyrir í lestrarsal safnsíns
nokkrum sýningarkössum og er
þar sýnt meginið af því, sem
prentað var á íslenzku árið
1844 í Reykjavík, Viðey og í
Kaupmannahöfn.
Til samanburðar eru svo
sýndar Hólabækurnar frá 1744,
ennfremur eina íslenzka bókin,
sem til er frá árinu 1644, en
það er Þorláksbiblía, og loks
elzta prentuð bók á íslenzku,
Nýja testamenti Odds Gott-
skálkssonar frá 15^0. Þá er og
sýnt lítið sýnishorn af íslenzkri
bókagerð arið 1944, þar á með-
al nokkrar prentminjar frá
stofnun lýðveldisins. Sýningar-
kassar þessir verða látnir
standa í lestrarsal safnsins
nokkra daga, en hann er opinn
alla virka daga kl. 1—7 síðd.
Haustfermingarbörn
Dómkirkjuprestanna komi til við
tals í Dómkirkjuna í þessari viku
sem hér segir: séra Friðrik Hall-
grímsson fimmtudag kl. 5, séra
Bjarni Jónsson föstudag kl. 5.
70 ára afmælf Ísafoíd-
ar, blaðs Björns
I DAG eru 70 ár liðin síðan
Björn Jónsson stofnaði blað
ið 'Ísafold, en það mun lengi
verða talinn einn af merkustu
þáttunum í sögu í'slenzkar þlaða
mennsku.
Með stofnun ísafoldar 'hófst
nýtt tímabil í stjórnmálasögu
landsins. Gerðist ísafold mjög
16 ára telpa sví-
virt í Reykjavík
Erl. maður réðst á
hana, er hún var að
fara heim tii sín um
miðnætti í fyrra-
kvöld.
RLENDUR maður réð-
ist á 16 ára gamla telpw
Iiér í bæmun «m miðnættí
á simnudagskvöld og svívirti
hana.
Er þeíta emi eitt dæmið um
það hversu hættulegt það er
fyrir stúlkur að vera einar á
ferli á fáförmun götum í myrkri
Telpan hefir gefið rannsóknar-
lögreglunni skýrslu um þennaK
svívirðilega athurð og segir hú»
þannig frá:
Uim klukkan 22 á sunnudags-
kvöld fór telpan heimianað £rá
sér úr húsi vestur í bæ í heim-
sókn 'til kucnningja isinna í Aust
urbænuim. Er hún hafði dvalið
þar nokkra istund igekk hún
heim á leið og fór um Lauiga-
veg í Miðbæinn og Sem leið
liggur vestur í bæinn. Er hún.
var næstum komin heim veit
hún ekki af fyrr en ráðizt er
aftan að henni og tekið um
hendur hennar og þær færðar
aftur á bak. Er henni svo ýtt
inn í húsaport. Telpan braust
um til að reyna að losa sig en
það reyndist árangurslaust.
Æpti hún þá af öllum
kröftum, en um leið sló
maðurinn hana í höfuðið og
fek-k hún við það 'mikinn sviima
og missti meðvitund. Er hún
raknaði við var maðurinn að
svívirða hania. Maðurinn þaut
svo fburtu og telur telpan að
þetta hafi verið erlendur mað-
ur.
Telpan var svo aðframkomin
að hún komst varla heim, en
strax var lögreglunni, gert að-
vart og fór hún á staðinn. Sást
þar að eins iað mikið traðk var
á grasibletti í húsaportinu. Uim
ið er nú að rannsókn þessa ó-
þverramáls.
BHreið eiur á hús
!
IFYRRINÓTT ók fólksbif-
reið úr Reykjavík á húsið
nr. 53 við Strandgötu i Hafn-
arfirði og meiödist einn far-
þegi í ibifreiðinni svo að flytja
varð faann í sjúkrahús.
1 bifreiðinmi voru auk mianns
ins sem slasaðist tvær konur- og
bifreiðarstjórinn, og hlutu þau
nokkrar skrámur, en ekki al-
váríeg meiðsli.
Ókunnugt er um ástæðuna
Þ.-rir því hvernig árekstur þessi
atvikaðst.
....... ......
fljótlega áhrifarík í landsmiál-
um, ekki aðeins í isjálfstæðis-
haráttunni á' stjórnmiálasviðinu,
heldur og í atvinnumálum al-
mennt og menningarmálum.