Alþýðublaðið - 20.09.1944, Page 7
> Mlf Mí íií-sftfe&íWvsSitlS
Mlðvikudagur 20. sept. 1944
*U>YOUBLAÐIÐ
Bœrijm í dag.
Næturlæknir er í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
Næturakstur annast Hreyfill,
sími 1633.
) ÚTVARPIÐ:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
20.30 Útvarpssagan: Úr „Borgum“
eftir Jón Trausta, V. (Helgi
Hjörvar).
21.00 Hljómplötur: íslenzkir ein-
söngvarar og kórar.
21.10 Erindi: Selveiði á íslandi
fyrrum og nú, síðara erindi
(Björn Guðmundsson, Lóni,
(Björn Guðmundsson, Lóni
— Lúðvík Kristjánsson rit-
stjóri flytur).
21.35 Hljómplötur': Cello-konsert
eftir Tartani.
Frá Alþýðusambandi íslands
Alþýðublaðið fengið eftirfarandi
til birtingar:
„Að gefnu tilefni vill Alþýðu-
samband íslands taka fram eftir-
farandi:
Á fundi kjötverðlagsnefndar 14.
þ. m. þar sem tillaga sú var sam-
þykkt um verðlag á kjöti, er blöð-
in hafa birt, var fulltrúi Alþýðu-
sambandsins í nefndinni, Hermann
Guðmundsson, eigi viðstaddur þar
sem hann var á sama tíma á samn-
ingafundum vegna vinnudeilu Hlíf
ar við atvinnurekendur. En á fundi
kjötverðlagsnefndar, sem haldinn
var 18. þ. m. mótmælti fulltrúi Al-
þýðusambandsins tillögu þeirri um
verð á kjöti, er samþykkt var á
fundinum 14. sept. og mótmælti
þá einnig að nefndin vísaði frá
sér þeirri skyldu sinni að ákveða
verð á kjöti, og er þetta í fullu
samræmi við fynri afstöðu fulltrúa
Alþýðusabandsins í kjötverðlags-
nefnd. Alþýðusamband íslands.
Vinnan.
Frh. af 6. sí&u.
Af efni ritsins má nefna Tvö
Ijóð, eftir Jón úr Yör, Alþýðan
krefst reikningsskila, grein
eftir Stefán Ögmundsson, Þætt
ir úr baráttu ellefu alda, eftir
Björn Sigfússon, Krossanesverk
fallið árið 1930, eftir Aðalbjörn
Pétursson, Örlög skáldanna
(kvæði) eftir Herman Wilden-
wey, Hvíld, fegurð, menning,
eftir Dagsbrúnarfélaga nr. 2295.
Tveir brautryðjendur, eftir Guð
geir Jónsson, Fallegi, hvlti hest
urinn (Smásaga) eftir William
Saroyan, Síldin, efir Óskar Jóns
son, Sparnaður almennings og
innra frelsi, eftir Halldór Péturs
son, framhaldssaga, bókafréttir,
frá sambandsskrifstofunni o. fl.
VESTURVÍGSTÖÐVARNAR.
Frh. af 3. síöu.
og fögnuðu ákaft hermönnum
bandamanna.
íbúar í Eindhoven eru um
110.000 að tölu. Þar er mikill
iðnaður og ein frægasta verk-
smiðja þar í borg er viðtækja
smiðja Phillips, en viðtæki
frá þeirri verksmiðju eru kunn
um allan heim.
í Norður-Frakklandi halda
bandamenn áfram að kreppa að
Þjóðverjum í hafnarborgunum
við Ermarsund. Kanadískax
sveitir eiga í hörðum götubar-
dögum í Boulogne. Varnir Þjóð
verja í Calais og Dunkerque
eru einnig sagðar á þrotum.
Um það mil 1400 amerískar
flugvélar af ýrnsmn gerðum réð
ust í gær á þýzku iðnaðarborg
irnar Hamm og Soest og loft-,
varnabyssustæði Þjóðverja viða
í Hollandi.
2 söiigvarar á ferð um landið.
Davína Sigurðsson og Einar Sfuriuson,
sem bæöi fara innan skamms uian.
]VT ÝLEGA eru frú Davína
* ™ Sigurðsson og Einar Sturlu-
son söngvarar komin úr söng-
för um Norður- og Austur-
land. Fengu þau alls staðar
hinar beztu viðtökur, og hús-
fyllir var á flestum þeim stöð-
um, sem þau sungu á.
Á næstunni munu þau fara
í söngferð um ýmsa staði hér
Sunnanlands, m. a. til Akra-
ness, Keflavíkur og ef til vill
Selfoss og víðar.
Tíðindamaður Alþýðublaðsins
hitti Einar Sturluson að máli
í gær og spurði hann um ferða-
lag þeirra um Norðurland.
„Þetta var jafnframt skemmti
ferð hjá okkur,“ segir Einar,
„og notuðum við tækifærið til
þess að syngja á þeim stöðum,
sem við áttum helzt viðdvöl á
um leið.“
— Hve lengi voruð þið á
ferðalaginu?
„Við vorum í 12 daga, lögð-
um af stað laugardaginn 3.
sept. og komum aftur 14. þ.m.“
— Hvaða staði heimsóttuð
þið?
„Við fórum fyrsta daginn
alla leið til Akureyrar og vor-
um þar um kyrrt á sunnudag-
inn og skoðuðum okkur um
þar, m. a. hinn fagra listigarð
Akureyringa.
Á mánudagskvöldið kl. 7 héld
um við svo fyrstu söngskemmt-
un okkar, undirleik fyrir okkur
annaðist bæði þá og síðar í
ferðalaginu, Páll Kr. Pálsson.
Aðsókn að Jjessari skemmtun
var sæmileg, þó var ekki alveg
húsfyllir, en undirtektir áheyr-
enda virtust mér góðar.
Á þriðjudag fórum við til
Húsavíkur og sungum þar kl.
9 um kvöldið, og var aðsókn
þar sæmileg. Vorum við svo á
Húsavík um nóttina, en á mið-
vikudag fórum við til Eski-
fjarðar og komum við á Gríms
stöðum á Fjöllum. Á Eskifirði
sungum við á fimmtudags-
kvöld kl. 9 fyrir troðfullu húsi
áheyrenda.
Á föstudag fórum við að
Hallormsstað og skoðuðum þar
gróðrarstöðina, en héldum svo
til Seyðisfjarðar og sungum þar
kl. 9 um kvöldið og fengum
góðar viðtökur. Síðan fórum
við til Egilsstaða og gistum
þar.
Á laugardag héidum við svo
aftur til Akureyrar og komum
við í Ásbirgi. Sungum við á
Akureyri í bakaleiðinni, en þá
á vegum Tónlistarfélags Akur-
eyrar. Var þá húsfyllir og und-
irtektir ágætar.
Á sunnudaginn fórum við til
Kristnesshælis og sungum þar
fyrir sjúklingana, en á mánu-
'daginn sungum við í sjúkra-
húsinu á Akureyri.
Á þriðjudag kvöddum við svo
Akureyri og fórum með Ægi
til Siglufjarðar og sungum þar
kl. 11.30 um kvöldið. Þar tók
Þormóður Eyjólfsson söng-
stjóri karlakórsins Vísi á móti
okkur með mikilli rausn. Frá
Siglufirði fórum við svo á
miðvikudag með mótorbát til
Haganessvíkur og þaðan með
bifreið til Sauðárkróks og
sungum þar í kirkjunni kl. 9
um kvöldið, og var það síðasti
staðurinn, sem við sungum á í
þessum leiðangri. Þar tók á
móti okkur og sýndi okkur
hina mestu vinsemd Eyþór
Stefánsson tónskáld og organ-
leikari.
Á fimmtudag héldum við
svo til Reykjavíkur, þakklát í
huga fyrir hinar góðu viðtök-
ur og' gestrisni, sem við mætt-
um alls staðar þar, sem við
komum á ferðalaginu.“
— Hafið þíð í hyggju að
syngja fyrir okkur Sunnlend-
inga?
„Já, \ io hofum ráðgert að
fara eitbhvað. hér nrn ná-
grennið á ns?cí>,'mi. t. d. t l
Ákraness, Keflavíkur, og ef til
við Selfcs: c- víðcr. TJri' það
hvort viq. sy^sjrin h'** PvL'
höfum v'.ð f-Ik'áðið enr.“
segir Einar að lck- -n.
Sjálfsagt m.’u’du Re*-kvíV-
ingar fagna Y.ví s” rige kost á
að heyra þei-**a. en
Davína Siy’ruS-«on f°" a? landi
burt, en húr er nú bráa*’m. á
förum til E-xíiartrH Einnig
mun Einar háfa í hvggju' að
fara til Svíbjoð.ar til söngnáms,
þegar strícinu lýkur.
'm
Frh. af 2. siðú
sínu við tillöffu til þingsálvkt-
unar (þskj. 299) varðandi end-
urskoðun á lögum nr. 33, 3.
nóv. 1915, (vinnulöggjöfin). .
Að þessu hníga þungvæg
rök, einkum þau, að í lögum
nr. 33, 3. nóv. 1915 felst van-
traust á þegnskap og skyldu-
rækni opinberra stayfsmanna
og að í skjóli þessara laga hef-
ur verið þröngvað kosti þeirra
óhæfilega og hlutur þeirra ver-
ið fyrir borð borinn miðað við
aðra þegrta þjóðfélagsins.
Fyrir því skorar þing B.S.RjB.
á hæstvirt alþingi að sam-
þykkja áðurnefnda þingsálykt-
unartillögu og væntir þess, að
endurskoðuninni verði hraðað,
svo sem kostur er.“
Réttindi og skyldur.
„4. þing B.S.R.B. skorar á
hæstvirt alþing að samþykkja
tillögu til þingsályktunar
(þskj. 325) um undirbúning lög-
gjafar um opinbera starfsmenn,
réttindi þeirra og skyldur, og
eigi B.S.R.B. fulltrúa í nefnd,
er fjalli um þetta mál.“
Dómnefnd um ágreiningsatriði.
„4. þing B.S.R.B. álítur nauð-
synlegt að setja í lög ákvæði til
bráðabirgða um skipun dóm-
nefndar ,er skeri úr um þau á-
greiningsatriði, er upp kunna að
koma út af lögum, samningum
og reglugerðum, er varða starfs
kjör starfsmanna ríkis og
bæia og ákvörðun einstakra
starfsmanna í launaflokka og
fleira þess háttar, sem ekki
næst samkomulag um milli að-
ila. Dómnefndin sé^ þannig
skipuð, að ríkisstjórnin eða
hlutaðeigandi bæjarstjórn til-
nefni einn mann í hana, stjórn
B.S.R.B. annan, en hæstiréttur
hinn þriðja, og sé hann formað-
ur dómnefndarinnar.11
Samstarf við önnur launþega-
samtök.
„Út af umræðum þeim um
samstarf, sem fram hafa farið
milli fulltrúa frá Alþýðusam-
bandi íslands og Farmanna- og
f iskima n nasambandi íslands
annars vegar og fulltrúa frá
B.S.R.B. hins vegar, vill alls-
herjarnefnd leggja eftirfarandi
tillögur fyrir þingið:
I. Fjórða þing B.S.R.B. á-
kveður að kjósa tvo fulltrúa, er
haldi áfram viðræðum. við Al-
þýðusamband íslands og Far-
manna- og fiskimannasamband
íslands um möguleika á au'knu
samstarfi við þessa aðila í fram-
tíðinni.
II. Fjórða þing B.S.R.B. sam-
þykkir að kjósa 5 manna milli-
og manntabbækv
Innilegt þakklæti vottum við öllum er sýndu samúð vj&
andlát og jarðarför
GySrúsiar lllugadéttur.
Aðstandendur.
þinganefnd í félagsmálum, sem
hafi það verkefni að gera til-
lögur um réttarstöðu bandalags-
ins innan þjóðfélagsins og jafn-
framt um afstöðu þess til ann-
arra launþegasamtaka í lahd-
inu.
Bæði nefndarmenn og full-
trúar starfi í samráði við
stjórn B.S.R.B.“
Fulltrúar til að ræða við
stjórn Alþýðusambandsins og
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins voru kjörnir: Lárus
Sigurbjörnsson og Guðjón B.
Baldvinsson.
í rnilliþinganefnd í félags-
málum voru kjörin: Rannveig
Þorsteinsdóttir, Sveinbjörn
Sigurjónsson, Hjálmar Blöndal,
Guðmundur Pétursson og Þor-
steinn Ö. Stephensen.
Eftirlaunasjóðirnir.
„4. þing B.S.R.B. felur
• stjórn bandalagsins að vinna að
því, að allir starfsmenn þess
opinbera fái full réttindi, hver
í sínum eftirlaunasjóði, niiðað
við þann tíma, sem þeir hafa
unnio í þjónustu þess opinbera,
þótt þeir hafi ekki greitt ið-
gjöld í lífeyrissjóð embættis-
manria eða lífeyrissjóð bama-
kennara fyrr en lög’nr. 101 og
102 1943 tóku gildi. Sami rétt-
ur verði tryggður öðrum opin-
berum starfsmönnum, sem ið-
gjöld greiða öðrum starfandi
iífeyrissjóðum lögum
kvæmt.“
sam-
Frh. af 2. síðu.
aukagrein (t. d. einhverju af
þeim erlendu málum, sem þegar
eru kennd í háskólanum, al-
mennri sögu eða almennri bók-
menntasögu). Þetta mundi
bæði auka atvinnuskil-
yrði kandídatannna og bæta úr
kennaraskorti, sem nú er mjög
tilfinnanlegur í skólum hér á
landi.
Loks skal á það bent, að efl-
ing kennsludeildar háskólans í
íslenzkum fræðum mundi fram
vegis gera kleift að sinna bet-
ur erlendum stúdentum, sem
hingað munu leita, gera það
tvímælalausara, að hér v?eri höf
uðstöð íslenzkra og fornra nor
rænna fræða, og vera hin þung
vægasta röksemd fyrir því, að
íslendingar endurheimtu hand-
rit þau, er enn eru erlendis, en
væru hvergi betur komin er hér
á landi og því betur sem meir
væri hér unnið af vísindalegum
rannsóknum þessara fx*æða. . . .“
Frumvarp þetta var til fyrstu
umi’æðu í neðri deild í gær.
Framsögu hafði Gunnar Thor-
oddsen, og var málinu að því
búnu vísað til 2. umræðu.
veifna á fundi.
AÐALFUNDUR Sambands
• íslenzkra rafveitna var
haidinn á Akureyri dagana 8.
og 9. september.
Á fundinxim voru rædd ýms
mál, er varða rekstur rafveitna,
svo sem: Prófun gjaldmæla og
stofnun sameiginlegrar mæla-
prófunarstöðvar fyrir rafveitur.
Um skýrslusöfnun. Um sam-
ræmingu á gjaldskrám af reglu-
gerðum rafveitna. Um myndun
félagsskapar rafveitna til sam-
Ti! þess að tryggja tvírífun þeirra
ÓN SIGURÐSSON flytur í
neðri deild alþingis fnxm-
varp til laga um kirkju- og
manntalsbækur (sálmaregistxir).
Aðaltilgangur frumvárpsins er
að tryggja það, að allar kirkju-
bækur séu tvíritaðar. Segir um
þetta í greinargerð írumvarps-
ins m. a. á þessu leið:
„Reynslan hefir sýnt, að tví-
ritun kirkjubóka er nauðsynleg;
margsinnis hafa eld^voðar á
prestssetrum grandað' kirkju-
bókum og eyðilagt óbætanlega
miklar heimildir, af því að eng
in samrit voru til. Þetta eitt ætti
að nægja til þess, að tvíritun
kirkjubóka yrði lögboðin.“
Um varðveizlu kirkjubók-
anna segir svo í 3. gr. frum-
varpsins:
„Kirkju- og manntal/bækur
sóknarpresta skulu sendar þjóð
skjalasafninu til varðveizlu, er
þeir hafa þeirra ékki lengxxr
brýna þörf. Þó má aldrei halda
þeim lengur en 10 ár, frá því
að þær eru fullritaðar.
Kirkju- og manntalsbækur
sókna skulu afhentar hlutaðeig-
andi héraðs- eða kaupstaðar-
bókasafrxi til eignar og geymslu,
þegar þær eru fullskrifaðar. Nú
er ekki til héraðsbókasafn, og
skal þá afhenda bækurnar hlut-
aðeigandi prófasti, sem kemur
þeim í örugga geymslu innan
héraðs.“
eiginlegra innkaupa á efni til
viðhalds og reksturs. Ennfrem-
ur fluttu þessir menn erindi og
skýrslur:
Stengrímur Jónsson, um
stækkanir á raforkuvirkjunum
fyrir orkuveitusvæði Reykjavík
ur. Jakob Gíslason, um rafveitu
rannsóknir. Knut Otterstedt,
um húshitun á Akureyri rneð
raforkunotkun að nóttu til. Niku
lás Friðriksson, um skoðun á raf
lögnum, sem eru í notkxm. Ja-
kob Gíslason, um raffapgapróf
un.
Meðlimir sambandsins eru
nú 17 rafveitur til almennings
þarfa, en auk þess 6 aukameð-
, limir, rafmagnsverkfræðingar
’ og i*afvii*kjameistarar, er starfa
hjá opinberum stofnunum.
Síðari fundardaginn var far-
ið í boði Rafveitu Akureyrar
ásamt bæjarstiórn og rafveitu
nefnd sýndu þar gestum hina
nýja vélasamstæðu, sem tekin
verður í notkun innan skamms,
en við það mun virkjað afl fyr
ir Akureyrarbæ aukast frá 2400
hestöflum í 6400 hestöfl.
Stjórn sambandsins var öll
endurkosin og skipa hana:
Steingrímur Jónssoxi, formað
ur, Valgarð Thoroddsen, ritari,
Jakob Guðjohnsen, gjaldkeri,
Knut Otterstedt og Karl Guð-
jónsson meðstjórnendur.
Knattspyrnukeppni
fór fram í gær á íþróttavellinuxn
milli starfsfólks Alþýðuprentsmiðj
unnar og Víkingsprentsmiðju, leik
ar fóru svo að lokum að Víkkigs-
prent sigraði eftir harða keppni
m eð 3:1. i