Alþýðublaðið - 21.09.1944, Page 5
]Fimmtudagur 21. sept. 1944.
ALÞYÐUBLAÐgÐ
Glæsilegt tilboð í Gullfoss — Svar dóttur bóndans: „Þú
lætur ekki fossinn, pabbi — Umræður um hús og fagr-
an stað — Hvað er hæft í þeirri sögu? — Gullið seyðir
— Til eru gæði, sem ekki er hægt að meta til fiár —
Bóndakona ber fram
EGAR MEST var rætt um foss
ana og „Titain“-félagiö var
starfandi, bar það við að enskur
auðmaður bauð bóndanum í Bratt
Jbolti í Biskupstungum, en Gull-
foss var í landareign hans, 50 þus-
undir króna í fossinn. Það var
geysilega mikið fé í gamla daga,
og þó að bóndinn væri þjóðrækinn
maður og góður íslendingur tók
hann sér að minnsta kosti umhugs-
unarfrest áður en hann svaraði til-
boðinu.
ÞETTA VÁR freistandi boð. Foss
inn var gagnslaus afkomu bóndans
«g afkomenda hans. Dóttur átti
bóndinn og mun hún hafa séð að
einhverjar vomur voru í pabban-
um, en hún var ekki í nokkrum
vafa. Hún gekk til föður síns, horfði
í andlit honum og sagði: „Þú læt-
ur ekki fossinn, pabbi.“ Meira var
ekki talað um þetta mál og enski
auðmaðurinn fékk afsvar. Fyrir
þetta var svar varð dóttirin lands-
kunn og var á þeim árum oft vitn-
að til urnmæla hennar.
ÞAÐ ER MARGT hægt að selja
og gullið seyðir menn til sín. Það
liefir löngum gert það. En til eru
gæði, sem ekki er hægt að meta til
ijár. Undanfarið hafa blöð verið að
minnast á glæsilega húseign og
glæsilegan stað hér í Reykjavík,
sem erlend þjóð hefir boðist til að
kaupa að því er sagt er fyrir geysi
rnikið fé. Það fylgir sögum blað-
anna að .nokkrar vomur séu í eig-
endunum um svarið við tilboðinu
— og þei-r eru hvattir til að néita
boðinu. Hvort þeir eiga vini, sem
segja ,,Þú lætur kki eignina“, skal
ósagt látið. Vel má og vera að sög-
ur um þetta1 séu ýktar.
AÐ MINNSTA KOSTI fékk ég
eftirfarandi bréf í gær um þetta
efni. Bréfið. „Einkennilegt má það
teljast hvernig skrifað er um Bind-
indishöllina og templara. Ég hitti
nýlega að máli kunningja minn í
templarareglunni og spurði hann
um hvað satt væri í þessum orð-
rómi, um vætanlega sölu á Frí-
kirkjuvegi 11, og fékk ég að vita,
að satt inyndi það vera að eignin
hefði nýlega verið föluð til kaups,
og templarinn bætti við: ,,en líkt
mun nú vera um allan þennan sögu
burð og litlu fjöðrina, sem varð
að sex hænum, því ekki er mér
kunnugt að nokkur áhugi sé meðal
templara um að farga eigninni,
enda er svo til nýbúið að bægja
ríkisstjórninni frá kaupum, er hún
vildi fá eignina handa ríkisstjóran
athyglisverða tillögu.
um, eins og forsetinn okkar hét
þá.“
ÞAÐ ER AÐ VÍSU ólíku sam-
an að jafná Gullfossi eða Fríkirkju
vegi 11, en þó er málið nokkuð
skylt og ég veit að aíinenningur
myndi ekki óska eftir því að þessi
staður kæipist úr höndum íslend-
inga enda hljóta erlendir menn sem
hér þurfa að dvelja að geta feng-
ið ágæt hús á góðum stöðum. —
Það hefir lengi sviðið í Reykvíking
um, að bærinn skuli ekki sjálfur
eiga Landakotstún.
FRÁ BÓNDAKONU fékk ég
þetta bréf í gær — og hefir hún
skrifað mér áður. „Það er ekki rétt
að alls ekki sé hlustað á útvarp á
sumrum. Að vísu mun vera hlust-
að minna á það á sumrum en vetr-
um, en mikill fjöldi manna hlust-
ar þó. Það er því ekki sama hvern-
ig dagskrá útvarpsins er skipulögð
á sumrum. Það var þó ekki aðal-
lega um þetta, sem ég ætlaði að
tala, heldur ætlaði ég svolítið að
minnast á þáttinn ,,Um daginn og
veginn“. Mér hefir dottið í hug
hvort útvarpsráð vildi ekki efna
til samkeppni meðal almennings
um sérstök alþýðleg erindi um dag
leg störf fólksins og deglegt líf
þess.“
„MÉR HEFUR DOTTIÐ f HUG
að þessari samkeppni yrði hagað
þannig, að fólk verði látið semja
stutt erindi um störf sín og viðhorf
til þeirra. Saumakonan segir frá
sínum daglega starfi, sjómaðurinn
kennarinn, kaupmaðurinn, bónd-
inn, verkamaðurinn, blaðamaður-
inn, tónlistarmaðurinn, rithöfund-
urinn o. s. frv. o. s. frv. Sérstök
verðlaun ætti að veita fyrir beztu
erindin og svo ætti viðkomandi,
eða einhver annar, ef sá hinn sami
hefir ekki góða lestrarrödd, að lesa
erindið í útvarpið í þættinum .„Um
daginn og veginn."
„ÉG VIDI GJARNAN að þú
kæmir þessu á framfæri við út-
varpsráð og þó að það sé rétt að
erfitt sé að gera öllum útvarps-
hlustendum til hæfis og ■ að varla
sé mögulegt fyrir útvarpsráð að
gera' anriað en fara að mestu eftir
sínu eigin hyggjuviti, þá spillir
það ekki, að við, sem njótum út-
varpsins komum með okkar bend-
ingar, svo getur þá útvarpsráð moð
að úr því, sem það fær.“
ÞETTA ER RÉTT og hugmynd
bréfritarans er góð. En ég vil segja
það, að þetta þyrfti ekki endilega
Framh. á 6. síðu.
Óska eftir að gförasf áskrifandi aö
Heímskringlu
í skinnbandi — — óbundinni.
(nafn)
(heimili)
Sendist tils
Helgaíellsútgáfan.
Box 263.
Sfjórnar í Kína
Á mynd þessari sést Josept Stillwell, sem stjórnar amerískum her- og flugmönunm í Kína.
Þeir hafa m. a. getið sér góðan orðstír í bardögum í Norður-Burma. Hér sést Stillwell ræða
við ameriska hermenn einhversstaðar í Kína.
Ivan Maisky um æsku sína
EGAR ÉG minnist barn-
æsku minnar, sé ég fyrir
hugarsjónum mínum eldhús
með ofn, eldurnaráhöld, tré-
borð, potta og diska. Baðker
stóð á tveim stólum í miðju
eldhúsinu. Ég sit í baðkerinu
og andspænis mér er lítil stúlka,
dökkeyg og frið sýnum. Ung
kona er að þvo okkur. Hún er
dökkhærð og hárprúð. Henni er
heitt, og það bregður fyrir
glettnisglampa í hinum blíðu og
skæru augum hennar, enda
þótt hún látist verða reið öðru
hverju. Við börnin í baðkerinu
bregðum á leik og skvettum
vatninu yfir hvert annað. Vatn
ið skvettist lika á ungu kon-
una. Við erum að reyna að
verja okkur gegn því, að hún
þvoi okkur.
„Hættið þessum látum!“
hrópar hún til mín, reynir að
látast vera reið og slær á hönd
mína.
En ég trúi því sýnilega ekki,
að 'hún sé reið í raun og veru.
Ég hlæ dátt og skvetti vatninu
með hendinni. Litla stúlkan
gerir slíkt hið sama. Unga kon-
an snýr sér þ.á að henni, brystir
sig og segir:
„Hvað eiga þessi læti í þér
að íþýða? Langar þig til þess,
að ég iberji ilíka á höndina á
þór?“
En stúlkan svarar með því
einu að hlæja. Hún veit, að það
er engin hætta á því, að hún
verði barin.
Við leikum okkur þarna í
baðkerinu enn um stund, en þá
tekúr konan ökkur upp úr því,
þurrkalr ókkur vandlega með
handklæði og klæðir okkur að
því búnu. Skömmu síðar sitjum
við litla stúlkan svo hlið við
hiiið við borðið og borðum og
drekkum.
Þetta var árið 1888. Ég er þá
fjögurra ára gamall. Faðir
minn hefur nýlokið námi við
herlæknaskólann og er á leið
til Síberíu til þess að taka þar
við störfum. Við erum á leið-
inni til Omsk, en höfum nokk-
uúra daga viðdvöl í Moskvu til
þess að heimsækja ættingja
okkar, Tsjemodanoffana. Unga
konan, er þvoði okkur, var
frænka min, systir móður minn
ar, enJ yngri en 'hún, og litla
stúlkan, sem sat hjá mér í bað-
O REIN ÞESSI, sem hér er
þýdd iir tímaritinu
World Digest, er kafli úr
sjálfsævisögu I. M. Maiskys,
fyrrverandi sendiherra Rússí
í London og lýsir bernsku
hans og æsku.
Maisky.
kerinu er ,,Birdie“ frænka mín,
er kemur síðar svo imjiög við
sögu bernsku minnar og æsku.
OMSK, þar sem ég dvaldist
lengstum í bernsku minni,
var vissulega ömiuriegur stað-
ur fyrir hálfri öld. íbúatgla
borgarinnar nam þá þrjátíu til
þrjátíu og fimm þúsundum.
Húsin voru byggð úr timbri og
voru aðeins ein hæð. Gluggarn
ir voru litlir og þakið úr fjöl-
um. Strætin voru leirug og ó-
steinlögð og forarvilpa vor og
haust. Á markaðstorginu var
forin svo mikil, að hestar
sukku þar í kvið. Götuljós voru
engin, og niðamyrkur rikti í
borginni um nætur. Þar var
hvorki skólpræsi né vatnsveita.
Úrgangi og skarni var ekið brott
á náttarþeli, og vatnsberar báru
vatn í hús. Fólk varð að not-
ast við olíulampa, og lampi, sem
nefndist „eldingin" naut mjög
mikilla vinsælda. Hann kostaði
þrjár rúblur, svo að það var
ekki talið á annarra færi en
þeixra, er voru i góðum efnum,
að eignast hann. Tvær hrorleg-
ar brýr lágu yfir Om og tengdu
saman borgarhlutana beggja
megin árinnar. En auk timbur-
húsanna gat þarna að líta nokkr
ar byggingar, sem veglegri gátu
talizt, svo sem herforingjasetr-
ið, herskólann, hermannaskál-
ana, menntaskólana fyrir
drengi og stúlkur, lögreglustöð
ina, varðturna slökkvisveitar-
innar, dómkirjuna og að sjálf-
sögðu fangelsið, sem stóð við
veginn út úr þorpinu. Allar
voru byggingar þessar tákn yf-
irvalda borgarinnar.
Þegar ég minnist bernsku
minnar, sé ég mig fyrir hugar-
sjónum'mínum, þar sem ég sit
í herberginu mínu og smíða
skip, sem voru þau leikföng, er
ég dáði mest. Mér er ókunnugt
um það, hvað olli þessum áhuga
míinum fyrir skipum upþhaf-
lega. Ég skoðaði vandlega all-
ar skipamyndir í bókum mín-
um og reyndi að smíða mér
skip eftir þeim. Stundum tókst
mér vel, stundum miður. En
ég lét aldrei mistökin á mig fá
heldur hélt ótrauður áfram. Ég
skýrði Birdie frænku minni frá
öllum afrekum mínum og var
það mikil huggun að eiga hana
að trúnaðarvini.
*
HINN FYRSTA DAG ágúst-
mánaðar árið 1892 hóf ég
nám við undirbúningsdeild
direngjamenntaskólans í Omsk.
Dagur sá miun ávalt verða mér
ríkur :í minni. Mér ivar mjög
mikið niðri fyrir daginn áður
en ég hóf nám mitt þar. Mér
var ómögulegt að taka mér
nokkuð fyrir hendur. Ég tók
til kennsíúbækurnar og stíla-
bækurnar, sem ég áitti að hafa
með mér í skólann daginn eft-
ir og fór mörgum sinnum í og
úr skólaeinkennisbúningnum
mínum, sem mér þótti mikið
til um. Mér varð lítt svefnsamt
um nóttina og var kominn á
fætur fyrir dagmál. Móðir mín
fór með mér í skólann fyrsta
daginn. Skólinn var stórt
tveggja hæða steinhús. Þegar
Framh. á 6. síðu.