Alþýðublaðið - 27.09.1944, Page 6
Mið'víkudur 27. sept. 1944.
Draumurinn búinn
Þessi mynd sýnir Framz. Miiller, þýzkan herahöfðingja (til
hœgri) um borð í amerísku herskipi á leið til Englands frá
Normandie í Frakklandi, þar sem hann var tekinn tii fanga.
Hann hafðd fjórum sinnum hlotið heiðursmerki frá Hitler
fyrir vasklega framgöngu í trunni á þriðja ríkið. En nú ed
sá draumur búinn. Á myndinni sést hann á tali við amejísk- 1
an liðsforingja.
i _____ ____________________________ ____________
Frmarp urn kasrp á eiptiii
ssÍtiEiÍslns
SamlpfféSa braöafelrgSaiögurai, sem gefin
.•;' vóru.-,$t "s8|SastiI®ié vor
Eókafregn:
ÍKÍSSTJÖENÍN hefir.Jagt
fyrir alþingi frumvárp til
laga um heimild fyrir rífeis-
sjóð til að kauna eigúir setu-
liðsins á íslandi, cn þeíta frum-
varp er samhljóða bráðabirðga-
lögum sem gefin voru út s. I.
vor, en frá þeim hefir ekki ver-
ið skýrt fyrr:
Frumvarpið er svohljóðandi:
„1. gr. Ríkisstjórninni heirnil
ast að ka.upa fvrir ríkissjóðs
hönd eignir setuliðsins á íslandi.
2. gr. Ráðstöfun og sala þeirra
eigna, sem yfirteknar verða skv.
heimild í 1. gr., skal framkvæmd
af 5 manha nefnd, sem ríkis-
stjórnin skipar. B’jórir nefndar-
manna séu tilnefndir af stjórn-
málaflokkunum, ein af hverj-
um, en ríkisstjórnin skipar for-
mann, og sé hann jafnfranjí
íramkvæmdastjóri.
Forkaupsrétt til kaups á fast-
eignum eiga, að öðru jöfnu, bæj
arfélög og sveitarfélög, þar sam
fasteignin er.
3. gr. Ríkisstjórninni veitist
heimild til að fela hæstarétti að
nefna þriggja manna matsnefnd
til að ákveða bætur handa land
eigendurn hér á landi vegna
landspjalla, er þeir hafa orðið
fyrir af völcktm setuliðsins.
Hæstiréttur ákveður. hver
matsmanna fer með formennsku
í nefndinni, og skal hann vera
lögfræðingur.
4. gr. Úrskurðir nefndarinnar
eru fullnaðarákvarðanir um
bætur.
5. gr. Nú tekur ríkisstjórnin
til umráða eða eignar mann-
vírki, sem setuliðdð á hér á
landi, og er þá ríkisstjórninni
heimilt að fengnu samþykki
hlutaðeigandi bæjar- eða sveit
arstjórnar að láta þau vera á-
fram þar, sem þau eru, gegn
bóturn, sem nefnd sú, er um
getur í 1. gr. ákveður.
6. gr. Ríkisstjórninni er heim-
illt að setja nánari fyrirmæli
um allt, er lýtur að framkvæmd
laga þessara, og getur hún ákveo
ið í þeim, að bótanefndin geti
stefnt fyrir sig með opinberri
innköllun i Lögbirtingablaðdnu,
innan tiltekins tíma, kröfuhöf-
um að viðlögðum kröfumissi
ípreclucion);
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Athugasemdir við lagafrum-
varp þetta eru svohljóðandi:
„Frumvarp þetta er samhljóða
bráðabirgðalögum frá 26. apríl
1944. Greinargerð fyrir bráða-
brigðalögunurn er svohljóðandi:
„Fjármálaráðherra hefir tjáð
mér, að til þess að greiða fyrir
burtrýmingu hernaðarmann-
virkja hér á landi, þegar að þvi
kemur, og með það fyrir aug-
um, að verðmæti þau, sem í
þessum mannvirkjum eru, komi
að <sem beztum notum fyrir
landsmenn, telji hann nauðsyn-
legt, að ríkisstjórninni f. h. ríkis
sjóðs sé veitt heimild til að
festa kaup á éignum setuliðsins.
Með því að ég tel það brýna
nauðsyn, að ríkisstjórninni f. h.
ríkissjóðs sé veitt ofannefnd
heimild, gef ég út bráðabirgða-
lög samkvæmt 23. gr. stjórnar-
skrárinnar á þessa leið:“ “
BÆKUR, sem fjalla um
ferðalög, landafundi og
könnunarleiðangra, virðast
vera mjög vinsælar hjá ís-
lendingum, enda hÖfum við
eignazt margt slíkra bóka,- —
eigi sízt hin síðustu ár. Er
það vissulega vel farið, því að
bækur þessar eru margar
hverjar í senn fróðlegar ,, og
skemmtilegar. Þær lýsa frám-
andi slóðum og stórbrotnurh
brautryðjendum, auk marg-
þættra lýsinga á óvenjulegum
háttum landlags og þjóðlífs,
svo og mannraunum og hetju-
dáðum. Sá, er línur þessar
skrifar minnist þess að hafa
lesið sér til mikillar ánægju
þýddar bækur þessa efnis, sem
komið hafa út- hin síðari ár,
svo sem ferðabækur Vilhjálms
Stefánssonar, sem Ársæll
Árnason gaf út af miklum
myndarskap. Sókn mína til
heimskauíanna eftir Hróald ’
Ámundsen í þýðingu Jóns Ey-
þórssonar, Friðþjóðfs sögu Nan
sens eftir Jón Sörensen í býð-
ingu Kristíinar Ólafsdóttur,
ferðalýsingar Sven Hedins, sem
Sigurður Róbertsson og Her-
steinn Pálsson hafa þýtt, Um
ókunna stigu í þýðingu
þeirra Pálma Hannessonar
og Jóns Eeyþórssonar og nú
síðast Fjallið Everest í þýð-
ingu Skúla Skúlasonar, sem
hér mun gerð að umræðuefni,-
Viðtökur þær. sem bækur þess-
ar hafa hlotið, sýna það, að
þær eiga erindi til íslenzkra
lesenda, enda hihar merkustu,
hver á sínu sviði.
Það má merkilegt heita, að
ekki skuli vera meira til á ís-,
lenzku um Everest, þennan
konung fjallanna, en raun ber
vitni. Veldur því þó ekki það,
að skort hafi rit um þessa
hæstu gnípu jarðarinnar og
baráttu þá, sem við hana og
um haná hefur verið háð.’En
ekki hvað sízt vegna þessa, er
það vel farið, að íslenzkir les-
endur skuli nú eiga völ á á-
gætri bók um þetta efni, sem
er í senn girnileg til skemmt-
unar og fróðleiks. Val bókarinn
ar þýðing og búnaður allur
hefir tekizt með ágætum. Sir
Francis Younghusband hefur
ritað margar bækur, sem eink-
um fjalla um ferðir hans um
lendur Miðasíu, en þessi bók
hans er talin eitt bezta yfir-
litið um ferðir í Himalayu, er
ritað hefur verið. Skúli Skúla-
son ritstjóri hefur, annazt
þýðinguna, og er hún gerð af
kostgæfni, en Snælandsútgáf-
an gefur bókina út. Er þar um
að ræða nýtt útgáfufyrirtæki,
sem fer af stað með miklum
myndarskap, vandar val cig
búnað bóká sinna jafnframt
því, sem þar kennir stórhugs
og . íramtakssemi, og mun á-
stæða til þess að gera sér góð-
ar vonir um störf þess í fram-
tíðinni.
Bók þessi um Everest grein-
ir á skilmerkilegan hátt frá
þeirri baráttu, sem háð hefm
verið við þessa hæstu gnápu
jarðarinnar af fræknum full-
hugum, sem allir hafa þó
borið lægra hlut í viðureign-
inni við fjallið, sumir týnt líf-
inu, aðrir komizt við illan
leik aftur úr leiðöngrum sín-
um á þennan 8840 metra háa
bergrisa. En jafnframt er
greint frá baráttu frækinna
fjallagarpa við ýmsa aðra hrika
tinda Himalayufjalla og lýst
landsháttum og þjóðarhögum a
þessum slóðum. Þarna er
greint frá mönnum, sem hugðu
djprft og brá hvergi við hætt-
ur né bana. Lýsing hinna ein-
stöku fjallagarpa og leiðangra
orkar mjög á hug lesandans.
En höfundurinn leggur eigi
síður áherzlu á að lýsa fegurð
ýmissa staða en hæð þeirra og
hnattstöðú. Þetta eykur mjög
á gildi bókarinnar, og ef til
vill verða tveir síðustu kaflar
hennar athugulum og fróðleiks
fúsum lesanda . ríkastir í
minni, þótt sumir aðrir séu
raunar æsilegri og viðburða-
ríkari.
Bókin um Everest er líkleg
til mikilla vinsælda, enda
fjallar hún um æsilegt efni. En
hún er líka lesendum sínum
sjóður aukinnar þekkingar og
fróðleiks, sem hverjum manni
er hollt að kunna skil á. Hún
er sér í lagi líkleg til þess að-
verða kærkomin æsku landsins
og vísa henni nýjar leiðir. Þar
með á ég ekki við það, að ís-
lenzkir æskumenn muni leggja
upp með nesti og nýja skó og
heita för sinni upp á tind
hæstu gnípu jarðarinnar. En
hún er líkleg til þess að vekja
ungum mönnum hvöt þess að
kynnast ættlandi sínu, sem er
fagurt og tígulegt og hefur
upp á margan brattan, torkleif-
an tind að bjóða. Og ef til vill
verður bókin um Everest til
þess, að einhver íslenzkur
ferðalarigur leggi leið sína til
Rongbukklaustursins og upp
jökuldalinn að rótum Everests.
Jón Eyþórsson hefur ritað
stutta lýsingu á Himalayufjöll-
um, sem eykur mjög á fróð- /
leiksgildi bókarinnar, og þýð-
andinn, Skúli Skúlason, rekur
helztu æviatriði Sir Francis
Younghusbands, höfundar bók-
arinnar. Auk þessa er bókin
svo prýdd tuttugu og tveim
myhdum.
Helgi Sæmundsson.
Þýzkur strokumaður
i«|ir fré.
Framh. af 5. síðu.
mennirnir, sem verið höfðu í
æskulýðsfylkingunni eða
stormsveitunum, gengu margir
hverjir af trúnni.
En þegar hinar vopnuðu SS-
sveitir komu á vettvang, sáum
við brátt hvert stefndi, og þær
voru almennt hataðar af her-
mönmmum. Enginn okkar
trúði lengur á þýzkan sigur.
Hinir bjartsýnustu gerðu sér
vonir um það, að Hitler mynai
takast að semja sérfrið annað
hvort við Rússland eða Eng-
land. Margir félaga minna
gerðu slíkt hið sama og ég —
þeir struku undan merkjum.
En áróður nazista um ellefu
ára skeið hefur þó valdið því,,
að það er fráleitt að gera sér
von um það, að þýzki herinn
rísi upp sem heild og neiti því
að halda hinni vonlausu bar-
áttu áfram.
Félagiiíf.
MYNDAKVÖLD
vegna vesturferðarinnar verður
í V.R.-húsinu í kvöld kl. 8,30.
Söngmærin
Þessi mynd er af amerísku
söngkonunni Georgia Carroll,
sem fræg varð af söng sínum
með danshljómsveit Kay Kys-
ers. Nú eru þau sögð gift.
Nngi Iðnnemaiam-
SEINNNI þingf andur Iðn-
nema sambands íslands^
var haldnn í Góðtemplara hús-
nu í Re3rkjavík 24. þ. m_
kl. 2 e. h.
Umræður urðu um lausn þess
ara mála:
Skólamálið, Iðnámslögin,
Launakjör iðnnema og samræm
ngu kaupgjalds. Samstarf við
sveinafélögin, Stofnun nýrrá
■ iðnnemafélaga og önnur mál.
Ályktanir voru gerðar um
þessi mál og fleiri. Ríkti al-
mennur áhugi meðal fulltrúa.
í lok þrngsins flutti formaður
samþandsstjórnár stutt ávarp
til fulltrúa og sleit síðán þing-
inu.
Rukr-hérað
Frh. af 3. síðu.
heimsstyrjöld og mikill hlutí
skriðdrekanna, er æddu yfir
Frakkland á sínum tíma og
síðar inn á gresjur Rússlands,
var smíðaöur þar.
N ÞÚSUNDIR hinna hrað-
gengu skriðdreka og eldspú-
andi fallbyssna liggja nú sc-.ra
verðlaust brotajárn á vígvöll
unum í Rússlandi, á Ítalíu og
í Frakklandi og sprengjuregn
ið úr flugvélum bandamanna
dynur nú svo að segja dag-
lega á verksmiðjum Ruhr-
héraðs. En liandan landamær
anna bíðtir mesti her, sem
veraldarsagan kann frá áð
greina. Ef trúa má spádóm-
um þeirra, sem mestu ráða
um málefni Evrópu í svipinn,
er hætt við því, að vopna-
framleiðslu gæti minna í
Ruhrhéruðunum í framtíð-
inni en verið hefir að undan-
förnu.