Alþýðublaðið - 27.09.1944, Qupperneq 7
Mlðvikudur 27. sepb lHíML
ALÞYÐUBLAÐtö
.7
Bœrinn i dag.
Næturla'knir er í Uifkmivarð-
Stofunni. sími 5030.
Næturvörður cr í Lyfjabúðinni
iíðunn.
Næturakstur annast B. S. R.,
Ífími 1720.
ÚTVARPIÐ:
8.30 Morgunfréttir.
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Þingíréttir.
:20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Sýkiar og sníkjudýr,
IV. (Ófeigur Ófeigsson
læknir).
30.55 Hljómplötur: íslenzkir ein-
siöngvarEur og kórar.
.21,15 Upplestur: „Suður um höf“,
bókarkafli eftir Sigurgeir
Einarsson (Gils Guðmunds
son rithöf.).
21.35 Hljómplötur: Lancidr —
gamall dans.
21.50 Fréttir.
Dagskrárlo'k.
Ingveldur Jónsdóttir
’ úangeyrarvegi 3 í Hafnarfirði er
sjötug í dag.
OngbarnaverndarstöSin Líkn
. Templarasundi 3 er opin á þriðj u
dögum, fimmtudögum og föstudög
uin frá kl. 3.15 til kl. 4 fyrir börn
á aldrinum allt að tveggja ára.
Fyrir barnshafandi konur á mámi-■
dögum og miðvikudögum kl. 1 til
2 sd.
(afalinaflugbáturinn
Frh. a£ 2. síðu.
iira flugvélakaupum og ýms-
um fyrirætlunum félagsins.
Flugfélaginu hefir borizt
skeyti um, að Örn Johnson
framkvæmdarstjóri félagsins,
sem dValið hefir vestra um nokk
urra mánaðaskeið á vegum
þess, hafi átt að taka við Cata
línaflugbáttmum í gær. Smári
Karlsson, einn af yngri flug-
mönnum félagsins, er kominn
vestur og mun hann aðstoða
Örn við að fljúga vélinúi heim,
en auk þeirra verða með í för-
inni islenzkur vélamaður og
tveir útlendir sérfræðingar. Er
flugþáturinn væntanlegur til
Reykjavíkur í byrjun næsta
mánaðar.
kaup
Bergur G. Gislason, formaður
Flugfélagsins sagði, að ekki væri
unnt að segja með vissu, hvað
vélin myndi kosta, þegar hún
væri hingað kornin og nauðsyn
legar breytingar hefðu verið
gerðar á henni, en hann kvaðst
mega fullyrða, að hér væri um
óvenjulega hagstæð kaup að
ræða, og væri vafamál, hvort
hægt hefið verið að komast að
betri kjörum eftir stríð.
Catalínaflugbátar þykja mjög
öx-ugg farartæki og geta þeir
haldið áfram fluginu, þótt ann
ar hreyfillinn bili. Vængjáhaf
flugbátsins er um 32 metrar og
hann getur verið á lofti i allt
að sólarhring og tekur 7000
lítra af benzini.
*
tltbúnaður allur í vélinni
verður eins og beztur tíðkast
erlendis, bæði radio-sendi- og
móttökutæki, sjálfvirk miðun-
artæki og gert er ráð fyrir
sjálfvirkum stýrisútbúnaði.
Yfirmenn flugherja .Banda-
ríkjamanna og Breta hér, svo
og sendisveitir þessara þjóða
hafa greitt fyrir Flugfélaginu í
þessu máli og yfirleitt sýnt
mikinn skilning og áhuga um
flugmál íslendinga. — Flugfé-'
lag íslands á nú álls fjórar flug
vélar, allar tveggja hreyfla. Fr
þar með talinn flugbáturinn.
225a@00 km. flognir á
þessu ári
Skáli á Tindafjallajöldi
Frh. af 2. síðu.
víðast hvar mjög brattar, en
eftir að komið er upp á brún- '
irnar er leiðin greiðfær, og er
hægt að komast með hesta alla
leið upp á næst hæsta tind jök-
ulsins.
Ungmf. „Þórsmörk“ í Fljóts-
hlíð veitti fjallamönnum aðstoð
við flutninga efnisins með því
að útvega þeim hesta víðsvegar
að úr sveitinni og voru 40 héstar
fengnir til flutninganna.
Skáli |þeSsi er 4X5 m. að
stærð, með svefnlofti, litlu eld
„búsi og forstofu, og er áætlað
að hann taki 25 manns. Er hann
svipaður að fyrirkomulagi og
skáli Ferðafélags íslands við
Hagavatn.
Fjallamenn hafa í huga að
fara.ferð austur á Tindafjalla-
jökJl eftir mánaðamótin, með
það fýrir augum að' athuga flug.
vallarstæði, sem virðist ákjós-
anlegt í nágrenni við hinn ný-
byggða skála.
tmsssssmsaaisqfa
Otbreiðið AlbÝðablaSS.
CBaamttöjanöiaia
Dýrlíðarlagafrum-
varpið
F-h. af 2. síðu,
til síðari umræðu. Umræður
urðu engar og var gengið til at-
kvæða um tillöguna. Var hún
samíþykkt með 31 atkvæði gegn
1 og afgreidd til rkissti
innar sem ályktun alþino'i.s.
MS® nýfa dýrtáSar-
Sagafmmvarp
Hjartans þakklæti til alira þeirra. sem auðsýndu samúð
og hjálp við andlát og jarðarför konunnar minnar, móður okk-
ar, tengdamóður og ömmu,
Þ>érsjn-tiar Jóhönnu ÓSafsdótt ur.
Fyrir mina hönd, barna og tengdabarna.
Jón Ingvar Jónssou.
Það, sem af er þessu ári, hafa
flugvélar félagsins flogið sam-
tals 225.000 km. eða í um 1000
klukkustundir. Alls hafa verið
fluttir 3877 farþegar. Til Ak-
ureyrar hafa verið farnar 245
ferðir, til Egilsstaða 46 ferðir,
til Borgarfjarðar 28 ferðir og til
Hornafjarðar 35 ferðir. Auk
þess hafa verið farnar margar
skemmri ferðir í sjúkrflutning
um og ýmsum öðrum erinda-
gerðum.
Starfslið Flugfélags íslands
er nú 20 manns, þar af fjórir
flugmenn og 16 starfsmenn
aðrir.
Blaðamönnum var i gær boð
ið í, stutta flugferð yfir bæinn
og nágrenni og að skoða við-
gerðar- og eftirlitsstöð félagsins
á flugvell inum í Reykjavík.
Hefir félagið nú góð tæki til al-
gengustu viðgerða og ágætum
viðgerðarmönmim á að skipa.
Iljónaefni.
Nýlega hafa opinberað trúlofim
sína ungfrú Ingibjörg Bryngeirs-
dóttir Vestmannaeyjum og Sigfús
Ingimundarson, Reynimel 43.
Tenniskeppni
fer fram í kvöld (miðvikudag)
kl. 8 í íþróttahúsi ameríska hers-
ins við Hálogaland. Tveir kunnir
amerískir tennisleikarar keppa. ís
lendingum er heimill ókeypis að-
gangur.
Hið nýja dýrtíðarlagafrum-
varp er frumvarp til laga um
breytingu á lögum nr. 42 frá
14. april 1943 um dýrtíðarráð-
stafanir og hefir inni að halda
eftirfarandi bráðabirgðaákvæði,
sem eiga að bætast við 1. grein
þeirra:
1. Hækkun sú á verði landbún-
aðarafurða eftir verðlagsvísi-
tölu samkvæmt lögum um
dýrtíðarráðstafanir frá 14.
apríl 1943, sem ganga átti í
gildi 15. sept, 1944, skal falla
niður og verð landbúnaðaraf-
urða á tímabilinu 15. sept. ’44
til jafnlengdar 1945 reiknast
eftir vísitölu næsta tímabils
á undan, sbr. þó 2. lið.
2. Verði hækkun á kaupgjaldi
á tímabilinu 15. sept. 1944 til
15. sept. 1945, sem áhrif hef-
ir á. vísitölu landbúnaðaraf-
urða eða vinslu- og sölukostn-
að þeirra samkvæmt útreikn-
ingi hagstofunnar, skal verð-
lagið hækkað í samræmi við
það. Ereytingar þessar skal
hagstofan reikna út mánaðar-
lega, og koma þær til fram-
kvæmda næsta mánuð á eftir.
3. Ríkisstjórnin leggur fram fé
úr ríkisstjóði, eftir því sem
með þarf, til þess að halda
óbreyttu útsöluverði á land-
búnaðarafurðiun á « innlend-
um markaði til 15. sepí. 1945.
Fjárframlag ríkissjóðs í þessu
skyni greiðist mánaðarlega
og að öðru leyti á sama hátt
og verið hefir.
4. Ríkisstjórnin greiðir verð-
uppbætur á útfluttar landbún
aðarafurðir á tímabiíinu 15.
sept. 1944 til jafnlengdar árið
' 1945, eftir því sem með þarf,
til þess að framleiðendur fái
verð fyrir þær samkvæmt 1.
og 2. lið þessara laga. Verð-
Asbeslsementsptðlur
á þak og veggi
Á. Eitiarssssi & Fynk
Sfmi 3982
uppbætumar greiðist útflytj-
endum, um leið og kaupend- !
ur borga vörurnar.
5. Bráðabirgðaákvæði þessi
halda gildi sínu til 15. sept. J
1945 þrátt fyrir ákvæði 3.
málsgr. 4. gr. laganna.
í greinargerð fyrir frumvarp
inu segir:
„Frumvarp þetta er byggt á
ályktunum um verðlagsmál,
sem samþykktar voru á nýaf-
stöðnu búnaðarþingi. . . . Flutn
ingsmenn hafa óbundin atkvæði
um breytingartillögur, sem fram
kunna- að koma.“
Nýju bæjarbygging-
arnar
Frh. af 2. síðu.
hluti íbúðanna, eða 75 íbúðir
verða 2 herbérgi og eldhúsi,
steypibað, toilet, svalir og
geymsla í kjallara.
Enn hefir engin áætlun verið
gjörð um kostnað við bygging-
arnar, en bygging þeirra mun
verða boðin út undir eins og
fullnaðar teikningar liggja fyr-
ir, en það mun verða innan
skamms. Eins og menn sjá ai
íraman rituðu, virðist húsameist
arinn hafa , í aðalatriðum hugs
að sér íbúðirnar eins og þær
bæjaríbúðir, sem risið hafa upp
á Melunum, nema hvað þessar
íbúðir verða miklu minni en.
þær. Hefir og ekki armað heyrst
en að kaupendum íbúðanna í
stórbyggingunum á Melunum
líki mjög sæmilega fyrirkomu-
lag þeirra.
Almenningur hefir mjög mik
inn áhuga fyrir þessum bygg-
ingaráætlunum Reykjavíkur-
bæjar og er það ákaflega áríð-
andi að sem allra fyrst verði
byrjað á -byggingunum.
Það var Alþýðuflokkurinn,
sem upphaflega kom með til-
löguna um að þessi íbúðarhús
yrðu reist — og einmitt með
því fyrirkomulagi að þær yrðu
ekki stærri en hér er gert ráð
fyrir. Eru slíkar byggingar al-
gengar á Norðurlöndum og hafa
bæjarstjórnir byggt þær í þús-
undatali. Eru þær afar hentugar
fyrir fólk, sem er að byrja bú-
skap eða eldra fólk, sem ekki
hefir mi'kið umleikis.
Énn hefir engin ákvorðun
verið tekin um það hvort íbúð-
irnar verða seldar eða leigðar.
Algengast er erlendis að bæjar-
sjóðpr eigi íbúðirnar og leigi
þær. En vel má vera að heppi-
legast sé hér að þær verði seld-
ar..
Það ætti og að leggja áherzlu
á að hægt verði að taka íbúðir
þessar í notkun næsta haust.
Myndin sýnir stríðsfanga, sem bandamenn hafa tekið á Ítalíu, streyma inn í herflutningaskip, sem.
er opið að framan. Þeir fara ekki upp á þilfarið, heldur inn í skipið undir biljum.