Alþýðublaðið - 07.11.1944, Qupperneq 6
6
Þriðjudagur 7. nóvember 1944
I
Geysis-spilin
eru komin, á markaðinn aitur
Mjög takmarkaðar birgðir
Heildverzlun
Árna Jénssonar
Hafnarstræti 5, Reykjavík
Sími 5805.
Samkvæmiskjófar
Fjölbreytt úrval
Rappr Þérðarsðn 4 (o.
Aðalstræti 9 — Sími 2315
Nálmsíeypusneiin
geta íengið atvinnu hjá oss nú þegar
JárBisteypan h.f.
Ánanaustum
Forsaga sfjórnarmyndunarinnar
Frh. af 4. síðu.
lag í samningsuppkasti Ólafs
Thors skilyrðislaust. Það var
allt samkomulagið við Sjálf-
stæðisfilokkinn um aðalatriðið,
sem Þjóðviljinn er að hrosa sér
af!
En Alþýðuflokkurinn var
hins vegar ekki á því, að láta
þetta atriði vera svo laust í
reipunum. Hann gerði það að
skilyrði, að þessi grein mál-
efnasamningsins yrði orðuð
þannig, sem og gert var sam-
kvæmt kröfu hans:
„Af erlendum gjaldeyri
bankanna í Bretlandi og
Bandaríkjunum sé jafnvirði
eigi minna en 300 millj. ís-
lenzkra króna sett á sér-
stakan reikning. Má eigi ráð-
stafa þeim gjaldeyri án sam-
þykkis ríkisstjórnarinnar og
eingöngu til kaupa á eftir-
töldum framleiðslutækjum:
1. Skip, vélar og efni til
skipabygginga o. fl. samtals
að minnsta kosti 200 milij-
króna.
2. Vélar og þess háttar til
aukningar og endurbóta á
síldarverksmiðjum, hrað-
frystihúsum, niðursuðu, svo
og til tunnugerðar, skipa-
smíði o. fl. um 50 milljonir
króna.
3. Vélar og þess háttar tii
áburðarverksmiðju, vinnslu
og hagnýtingu landbúnaðar-
afurða og jarðyrkjuvélar og
efni til rafvirkjana o. fl. um
50 milljónir króna.“
Þjóðviljanum finnst nú ma-
ske, að það hafi verið óþarfi af
Alþýðuflokknum, að gera svo
handföst ákvæði um nýsköpun
atvinnulífsins í málefnasamn-
ingi stjórnarinnar að skilyrði
fyrir þátttöku í henni, eftir að
kommúnistar voru búmr að
vinna það dæmalausa afrek, að
ná samkomulagi við Sjálfstæð-
isflokkinn um ekki neitt með
því að fallast skilyrðislaust ' á
samningsuppkast hans. En þeir,
sem ætlast til, að nýököpun at-
vinnulífsins verði eitthvað ann
að en orðin tóm, munu máske
lita eitthvað öðruvísi á það mál,
Hitt er svo annað mál, að fyrir
þá, sem umfram allt vildu kom
ast í stjórn, hvernig sem stefna
hennar væri og hvað lítið sem
hún gerði, var vafalaust miklú
vissara að vera ekki með nein
allt of ákveðin skilyröi.
#
Að endingu skal svo aðeins
sagt út-af því, sem Þjóðviljinn
segir í grein sinni um mót-
spyrnu í Alþýðuflokknum gegn
þátttöku í stjórnarmynduninni,
að bar er ekkert upplýst annað
en það, sem sagt var í Alþýðu-
blaðinu á laugardaginn, að Al-
þýðuflokkurinn hefði ekki ver-
ið neitt sérstaklega óðfús til
stjórnarmyndunar með Sósíal-
istaflokknum og Sjálfstæðis-
flokknum. Það var ekld vegna
þess, að hann sæi ékki fljótt, að
hægt var að fá fullboðlegan mál
efnasamning um stefnu stiórn-
arinnar og framkvæmdir, brátt
fvrir hið skilyrðislausa jáyrði
Sósíalistaflokksins, heldur af
hinu, að traustið á þessum
tveimur flokkum var takmark-
að.
Það hugarfar, sem lýsir sér
í árásargrein Þjóðviljans á Al-
þýðuflokkinn og Albvðublaðið
á sunnudaginn, strax á öðrum
degi, sem hann lcemur út síð-
an stjórnin var mynduð, bendir
líka -ótvírætt til bess. að það
hafi ekki verið ástæðulaust, að
því er Sósíalistaflokkinn snert-
ir. Eða var bar pðeins
um fótaskort að ræða á hin-
nýju linu?
Við sjáum, hvað setur.
Plötusmiðir og járnsmiðir
,
geta fengið atvinnu hjá oss nú þegar
StálsmiSfan Eí.f.
Gufupressan
er flutf í Langaveg 73
Tökum aftur ullarkjóla í hreinsun
Úrval af amerískum karlmannafötum og frökk-
um. Einnig drengjaföt á 9 ára og eldrí
ÞórhcSlur Friófinnsson
klæðskeri, Lækjargötu 6A. — Sími 5790
Hvor vsnriur, Kooseveii eud ueweyt
Frh af 5. si^n
fyrir áhrif þeirra og til að
friða þá, að Harry Truman var
kjörinn varaforsetaefni demo-
krata, því að þeim þótti V/all-
ace allt of frjálslyndur.
Republikflokkurinn er að
miklu leyti undir stjórn ' auð-
valdssinna, hinna vellríku verzl-
unar- og iðnaðarmanna, og er
Dewey þeirra fulltrúi. Leiðtogi
hinna frjálslyndu var Wendell
Willkie, og var hann felldur
vegna þess, að hann lét ekki
nógu vel að vilja auðvalds-
klíknanna. Enginn vissi hvort
Willkie hefði stutt Dewey eða
Roosevelt, og tóku blöðin að
rífast um það strax og hann
var látinn, hvoru megin hann
hefði verið. Sá, sem bezt hefur
haldið fram stefnu hans, sér-
staklega í utanríkismálum, er
senator Ball frá Minnesota, sem
er republikani og neitar að
styðja Dewey.
Hvað ber á milli?
Þeir Roosevelt og Dewey
hafa fundið margt til að rífast
um, síðan þeir byrjuðu að kepp-
ast um hylli fólksins fyrir rösk-
um mánuði síðan. Um 80%
allra blaða Bandankjanna eru
með Dewey, af því að eigendur
þeirra eru auðkýfingar, sem
hata Roosevelt, en báðir flokkar
hafa jafna aðstöðu til að kaupa
tíma í útvarpinu fyrir ræður.
Það kostar um 240 000 krónur
að fá hálftíma ræðu útvarpað,
svo að dýrt er drottíns orðið
hér vestra.
Þegar Dewey var boðinn
fram, þekkti þjóðin hann tiltölu-
lega lítið og vissi ekkert hver
stefna hans í hinum ýmsu
vandamálum þjóðarinnar var.
Hann hafði unnið sér frægð
fyrir að koma upp urrí glæpa-
menn á fyrri árum, hann var
ungur (42 ára), hann hafði
unnið sig upp í ríkisstjórasæti
New York og hann hafði fallega
rödd í útvarpi. Þetta vissi fólk-
ið, en ekki mikið meira. Svo
hóf hann ferðalög sín um landið
og hélt ræðu eftir ræðu. Smám
saman vann hann sig inn í hug
fólksins og honum jókst ber-
sýnilega fylgi, svo að nú síð-^
ustu vikurnar fyrir kjördag er
algerlega tvísýnt, hver vinnur.
En við skulum nú. líta laus-
lega á það, sem ber á in^lli í
kosrýngabaráttunni.
1. Einstaklingsframtakið.
Dewey er að sjálfsögðu al-
gerlega á móti því, að stjórnin
láti sig iðnað eða verzlun
nokkru skipta og vill algerlega
frjálsar hendur fyrir einstak-
lingana. Roosevelt hefur síðast-
liðin 12 ár látið stjórnina
teygja sig æ lengra inn á þessi
svið, og hún hefir þar nú víða
hönd í bagga.
2. Tryggingar.
Roosevelt hefur fært amer-
ísku þjóðinni víðtækar trygg-
ingar. Nú lofar Dewey meiri og
betri tryggingum.
3. Verkalýðsmál.
Það er viðurkennt, að
Roosevelt er fyrsti forsetinn,
sem hefur verið vinsamlegur
verkalýðnum og eitthvað hefur
gert fyrir hann. Dewey hefir
ásakað stjórnina fyrir of mikla
skriffinnsku í þessum málum
og fyrir lélegan verkamálaráð-
herra (Madame Perkins), og-
hann lofar öllu fögru.
SkrifsiofuitÉlka,
helzt með kunnáttu í
hraðritun, óskast í utan-
ríkisráðuneytið 2ja
mánaða tíma.
Utanríkisráðuneytið.
til sölu í Austurgötu 38,
Hafnarfirði.
Olíuvélar og eldhúsáhöld, á
Hverfisg. 62, frá kl. 8—11 f.h. |
4. Stríðið.
Dewey hefur lofað, að allir
herforingjarnir skuli verða á-
fram, ef hann fái völd, og stríð-
inu lokið hið fyrsta. Hann seg-
ir, að Roosevelt hafi ekld búið
Bandaríkin undir stríðið. Þa5
er hins vegar staðreynd, að
þetta er eina stríðið, sem
Bandaríkin hafa verið búin
undir, og hergagnaframleiðslan
undir stjórn Rooseveltsstjórnar-
innar gengur kraftaverki næst.
5. Kommúnistar.
Dewey ásakar Roosevelt
um að hann leiti stuðnings
kommúnista og leiðtoga þeirra,
Earl Browders, sem er sak-
felldur afbrotamaður. Hann var
dæmdur fyrir að skorast undan
herþjónustu í fyrra stríðinu og
síðan hefur hann verið dæmd-
ur og fangelsaður fyrir vega-
bréfsfölsun. Roosevelt hefur í
ræðu algerlega afneitað kom-
múnistum og segist ekki kæra
sig um stuðning þeirra eða
annarra erlendra stefna.
6. Utanríkismál.
Dewey hefir ráðizít á stjórn-
ina fyrir að reka leynilega utan-
ríkisstefnu í mörgum málum„
Hann hefur þó fallizt á Bretton
Woods tillögurnar um þjóða-
bandalag og mun fjdgja þeina
fram, ef hann nær kosningu.
Það er þó merkilegt, að meðal
fylgismanna Deweys eru allir
helztu einangrunarsinnarnir,
eins og McCormick offursti., —
hinn illræmdi blaðakóngur í
Chicago. Margir efast um ein-
lægni Deweys í þessum málum,
þótt hann tali fallega.
Auk þessa hefur Dewey á-
sakað stjórnina um margt. Hún
er of gömul og of þreytt. Það
er talað um að Roosevelt kunni
að deyja áður en 4 ár eru liðin.
Þeir eiga að rífast of mikið í
stjórninni o. s. frv. Dewey á-
sakar Roosevelt um vöntun á
heiðarleik og báðir aðilar hafú
notað stór orð í kosningabar-
áttunni. Republikanar hafa
jafnvel dregið hund Roosevelts,
Fala, inn í áróður sinn.
Þótt Bandaríkjamenn rífist
nú um stjórnmál í nokkrar
vikur, og kjósi sér forseta, —
hafa þeir ekkert dregið úr her-
gagnaframleiðslu sinni og út á
við er þjóðin jafn einhuga og
nokkru sinni. Það er ógerning-
ur að spá nokkru um úrslit
kosninganna, en frjálslyndir
menn um heim allan hljóta að
vona fastlega, að Roosevelt
forseti verði endurkosinn.