Alþýðublaðið - 08.11.1944, Blaðsíða 3
IgDS'vninidagnr 8. nóv. 1944.
ALÞÝDUSLADID
Enn er langl í land
F
YRIR ALLLÖNGU var því
spáð af ýmsum þeim, sem
. oft hafa reynzt næsta sann-
páir um gang þesarar styrj-
aldar og annarra merkilelgra
atburða, að þessari styrjöld
myndi verða lokið einmitt nú
|>essa dagána, eða að minnsta
kosti yrði þá séð fyrir skjót-
an endi hennar. Áður höfðu
spádómar margra þessara
manna komið næsta vel heim,
eins og til dæmis, hvenær inn
rás yrði hafin á meginland Ev
rópu úr vestri.
AÐ ÞESSU SINNI verður ekki
annað sagt en, að ósennilegt
Bé, að styrjoldin sé að enda,
að minnsta kosti blandast
engum þenm, sem eitthvað
fylgist með fréttum, hugur
«m það, að engar horfur eru
á því að Þjóðverjar séu í
þann veginn að gefast upp og
ekkert bendir til þess, að stór
kostleg sókn inn í Þýzkaland
standi fyrir dyrum, er geti
pekið smiðshöggið á ósigur-
ínn.
S*EIR VORU ekki allfáir, sem
héldu, að með árás fallhlífa-
sveitanna við Arnhem væri
byrjað á lokasókninni á hend
ur Þjóðverjum, sem ætti jafn
vel að geta knúið þá til upp-
gjafar seint í október eða í
byrjun þessa mánaðar. Nú er
mönnum í fersku minni hvern
ig fór fýrir hinum vaska fall
hlífaher, hann beið mikinn ó-
isigur fyrir ofurefli hins
þýzka varnarliðs. Enda þótt
svo hafi farið, hefir Montgo-
mery hershöfðingi lýst yfir
"t'
því, að ósigurinn hafi á eng
an hátt getað raskað hinni
upphaflegu hernaðaráætlun
bandamanna, hér sé aðeins
um smáóhöpp að ræða, sem
jafnan verði að gera ráð fyrir
í svo stórfeldum og samræmd
um hernaðaraðgerðum.
.VÍGLÍNA bandamanna í ,Vest-
i ur-Evrópu hefir lítið sem ekk
, ert breytzt undangengin mán
uð, að minnsta kosti eru þeir
litlu nær Berlín, en þangað
hlýtur lokasóknin óhjákvæmi
lega að beinast. Undanfarna
daga hefir aðalorrustan verið
um siglingaleiðina til Ant-
werpen, en til þessa hafa
Þjóðverjar getað komið í veg
fyrir, að bandamenn gætu
hagnýtt sér hafnarmannvirki
borgarinnar, þar eð þeir hafa
haft á valdi sínu eyjarnar í
mynni Schelde og Maas. Nú
er þeirri viðureign að mestu
lokið með fullum sigri banda
manna og er talið, að nú
muni greiðast úr erfiðleikum
þeim um aðdrætti, sem til
þessa hafa mjög torveldað
sókn bandamanna norður á
bóginn í Hollandi.
k AUSTURVÍGSTÖÐVUNUM
hefir lítið gerzt að undan-
förnu. Aðstaðan er óbreytt á
landamærum Austur-Prúss-
lands og við Varsjá og enn
er álitlegur herafli ý*j óðverj a,
að vísu að mestu innikróaður,
í Eystrasaltslöndunum. En í
Ungverjalandi virðist það
Mófspyrnu Þjéðverja í S.-Hollandi
er lokið með sigri bandamanna
Bandamensi ganga á Eand á eyjunni Schouw-
en9 segir í BerSínarfréttum
MiddeSburg og Willemstad í höndum Breia
sem m m
MÓTSPYRNU Þjóðverja í Suður-Hollalndi er nú Iokið. Á
Walcheren hafa brezkar sveitir tekið borgirnar Middelburg
og Veere, en amerískar og pólskar sveitir berjast á götunum í
Moerdijk. í þýzkiun fregniun segir, að Bretar hafi gengið á land
á Schouwen, sem er nyrst Scheldeeyja, en það hefir ekki verið
staðfest í London. Borgin Willemstad, við Maasósa er nú á valdi
bandamanna.
Er þar með opin siglingaleið •
in til Antwerpen, sem Þjóðverj
ar hafa haft á valdi sínu og var
ið af miklu harðfengi. Vinna
bandamenn nú að því að eyða
þýzkum herflökkum, sem enn
hafast við úti við sjóinn. Þjóð-
verjar hafa sjálfir yiðurkennt,
að hersveitir þeirra hafi orðið
að hörfa norður fyrir Maas.
Fyrsta ameríska hernum hef-
ir orðið ndkkuð ágengt suð-
aústur af Aachen og tekið þar
smábæ eftir harða bardaga við
þýzka varnarliðið. Loftárás hef
ir verið gerð á Dortmund-Ems
skurðinn, mesta skipaskurð
ÞýZkalands. Voru það hinar
stóru Lancasterflugvélar Breta,
sem árásina gerðu.
Frá vígstöðvurium í Norð-
austur-Erakklandi er fátt tíð-
inda. 7. her Bandaríkjamanna
hefir . orðið nokkuð ágengt og
náð nokkrum varnarstöðvum
Þjóðverja,,! sem enn verjast af
mikilli heift
Bylfingarafmæli Rússa:
Mörg heiilaáskaskeyfi
bárusl
AFMÆLIS rússnesku
■ * býltingarinnar var
minnzt með mikilli viðhöfn i
Rússlandi og víða um heim. Mik
ill fjöldi skeyta barst til Moskva
í tilefni hátíðahaldanna.
Meðal þeirra, sem sendu
fcveðjur sínar og árnaðaróskir
við þetta tækifæri var Churc-
hill forsætisráðherra, sem sendi
Stalin skeyti. Hákon Noregs-
fconungur sendi einnig skeyti,
er stílað var til Kalinin. Ny-
gaardsvold forsætisráðherra
Norðmanna sendi Stalin einn-
ig skeyti.
Sambúð Rússlands og Sviss:
Svisslendingar vísa á
bug ásökunum lússa
ITILEFNI af því, að Rússar
hafa tilkynnt, að þeir vilji
e!kki taka upp stjórnmálasam-
band við Svisslendinga, hafa
svissnesk stjómarvöld lýst yfir
því, að þau geti efcki viður-
kennt þær aðdróttanir Rússa,
að Svisslendingar hafi rekið
stj órnmálastefnu fj andsamlega
Rússum. Segja Svisslendingar,
að leiðin til samkomulags sé
enn sem fyrr opin og ekke.rt
henni til fyrixstöðu af hálfu
Svisslendingá.
Norskfr ráðherrar
til Moskva
TERJE WOLD dómsmálaráð
herra og Tryggve Lie utanrífc-
ismálaráð'herra Norðmanna, er
dvalið hafa í Svíþjóð að undan-
förnu, eru famir þaðan áleið-
is til Moskva.
Er talið, að norsku ráðherr-
arnir muni eiga tal við rúss-
neska áhrifamenn í tillefni af
því að Rússar hafa tekið Kirke-
nes í Norður-Noregi og búizt er
við áframhaldandi sókn þeirra
suður eftir landinu. Samkvæmt
sáttmála Rússa og Norðmanna,
skulu norskir embættismenn og
foringjar vera í ráðum með Rúss
um, er þeir hrekja Þjóðverja úr
landií en talið er, að ráðherr-
arnir norsku muni nú ræða um
þessi mál í Moskva.
Á efri myndinni sjást þeir Franklin D. Roosevelt, fforsetaefni
demokrata og varaforsetaefnið, Harry S. Truman. Þarna eru þeir
að snæða árdegisverð á grasflötinni fyrir utan Hvíta húsið £
Washington og ræða um kosningabaráttuna. Á neðri myndinni
naá sjá amdisfiæðing Rooseveits 1 kosninguinum, Thoma's E. Devey
ríkisstjóra, þar sem hann ásamt konu sinni, er að stíga upp í
flugvél sem mun flytja þau til Chicago til skrafs og ráðagerða
um kosninguna.
JARLINN af Strathmöre,
faðir Elísahetar Englands-
drottningar, lézt í gærmorgun í
kastala s'ínum í Skotlandi. Hann
varð 89 ára að aldri.
vera að gerast, sém einna
helzt bendir til þess, að brátt
hefjist meiriháttar hernaðar-
aðgerðir í innvirkjum „Fest-
ung Europa“, þar sem Rúss-
ar eru komnif að borgarhlið-
um Buda Pest, eða því sem
næst. Þaðan ætti sóknin að
vera auðveldari til Austurrík
is og Suður-Þýzkalands, að
minnsta kosti hefir ekki frétzt
um nein öflug virkjakerfi þar
í líkingu við Vesturvegginn,
sem Bretar og Bandaríkja-
menn verða að rjúfa álitleg
skörð í áður en þeir geta sótt
fram af fullum krafti.
. ÞESSU stigi málsins virðist
ekki úr vegi að minnast
þeirra orða Churchhills er
hann mælti ekki alls fyrir
löngu, að menn gætu búizt
við, að styrjöldin stæði enn
í 5—6 mánuði eða lengur.
Þátttaka var gífurleg í forsetkosn
ingunum í Bandaríkjunum í gær
Í New York kaass
tveimur klukkustundum
’C1 NGAR fregnir höfðu borizt um atfcvæðatölur í forseta-
^ kosningunum í Bandaríkjunum seint í gærkveldi, en
vitað var, að 'þátttaka hefir verið geysialmenn. Er jafnvel
talið, að um 50 milljónir manna hefðu neytt atkvæðisréttar
síns. í New York borg hafði fjórðungur kjósenda neytt at-
kvæðisréttar síns tveim stundum eftir að kosning hófst. Þátt
taka var einnig með ódæmum mikil í Pennsylvaniafylki,
þar sem j'afnvel var búizt við, að kosning yrði enn a'lmenn-
ari en árið 1940,
Roosevelt forseti, sem dvald-
ist í gær á landsetri sínu í Hyde
Park, kaus snemma. Hið sama
gerði Thomas E. Devey, en hann
hélt í gær kyrru fyrir á gisti-
húsi í New York og fylgdist
með kosningunum. í fréttum 1
gærkveldi var einkum getið um
afar mikla þáttöku í kosningun
um í borgunum Chicago og De-
troit, aufc New Yofk, svo og í
Pennsylvaniaríki. Ekki var bú-
izt við að neinar tölur af kosn-
ingunum gætu borizt fyrr en
snemma í dag og var tilkynnt í
Lundúnaútvarpinu, að útvarp-
að yrði fyrstu tölunum til ame
rískra hermanna í Evrópu eins
fliótt og þær bærust. Um allan
heim er beðið með mikilli eftir-
væntingu úrslitanna af þessum
kosningum, sem þykja vera
prófsteinn á það, hvort stefna
Roosevelts í uianríkismálum
jafnt sem atvinnumálum, hafi
verið í samræm i viö vilja
meirihluta Bandaríkjaþjóðar-
innar. ,