Alþýðublaðið - 08.11.1944, Blaðsíða 5
Miðyikudagur 8. nóv. 1944.
ALPYÐÖB.LAÐ1®
S
Um manntalsskrifsiuiiLL
Nauðsyn á upplýsingastöð fyrir almenning.
Höbður skrifar mér á
þessa leið: „í flestum eða öll-
um borgum Norður- og Vestur-
Evrópu á stærð við Reykjavík og
jafnvel á langtum smærri stöðum
líka er löngu búið að koma upp
spjaldskrá yfir íbúana og flutning
jieirra milli staða. Eru breytingar
á heimilisfangi manna færðar inn
á þær daglega og þungum refsing
um beitt, ef nokkur bregst undan
að tilkynna breytingar á heimilis-
fangi.“
„SPJALDSKRÁ ÞESSI er, að
því ég bezt veit, hvergi nema ein
í hverri borg og hefir allur al-
menningur, lögregla og embættis-
stofnanir landsins alfrjálsan að-
gang að upplýsingum úr henni.
Með sérstökum myndabrag er
þetta spjaldskrárhald í Kaup-
mannahöfn þar sem Keld Johan-
sen veitir henni forstöðu. Það mun
því nær aldrei bregðast, að menn
fái fullnægjandi svar frá þessari
spjaldskrá í Kaupmannahöfn."
„HÉR í REYKJAVÍK hefir þetta
verið apað þannig eftir, að komið
hefir verið upp tveimur spjald-
skrám, — og þá liklega með tvö-
földum kostnaði — annarri hjá lög
reglunni í Pósthússtræti, hinni í
bæjarskrifstofunni á götuhorninu
rétt á móti. Allir eru skyldaðir til
að við lögðum sektum, að tilkynna
brejrtt heimilisfang til spjaldskrár
bæjarskrifstofunnar. Sagt er að
þessum sektarákvæðum sé ekki
stranglega beitt í framkvæmd, og
því kunni að vera nokkur undan-
brögð frá því, að allir tilkynni
breytingar á heimilisfangi, en slíkt
má ekki eiga sér stað, þar sem
miklu er til þessa starfs kostað af
opinberu fé. — En svo kem ég að
því, „sem tekur út yfir allan þjófa
bálk“. Úr þessari spjaldskrá bæj-
arskrifstofunnar getur almenning-
ur alls enga upplýsingu fengið!
Heyrst hefir meira að segja, að slík
um beiðnum þar væri synjað.“
„ÚR SPJALDSKRÁNNI í mann
talsskrifstofu lögreglunnar er al-
menningi þar á móti veittar upp-
lýsingar með greiðvikni og kurt-
eysi. En sá galli er á þessari gjöf
Njarðar þar, að manntalsskrifstofa
lögreglunnar fær enga tilkynningu
um það, er fólk breytir heimils-
fagi sínu. Það er því langoftast að
menn fara þagnað erindisleysu ef
þeir spyrjast fyrir um heimilis-
fang aðfluttra manna eða breytt
heimilisfang bæjarmanna.
„EN MANNTALSSKRIFSTOFA
bæjarstjórnar á að hafa þessar upp
lýsingar og hefir þær ef hún van-
rækir ekki að ganga eftir þeim lög
um samkvæmt, en hún liggur á
þeim og synjar að láta almenn-
ingi, er nauðsynlega þarf á þeim
að halda þær í té. Mér er sagt að
manntalsskrifstofa lögreglunnar
fái ekki upplýsingar um heimilis-
fang nema einu sinni á ári, þ. e.
í apríl—maí, er manntalsskrifstofa
bæjarstjórnar hefir unnið úr mann
tölunum árið óður.“
„REVKJAVÍK ER ORÐIN það
stór borg, og slíkur órói og flutn-
ingar í bænum og til og frá bæn-
um, að það er hreint og beint orð
ið óþolandi fyrir hina margvíslegu
starfsmenn í bænum og allan al-
menning, að hvergi er staður, þar
sem hægt er að fá viðunandi upp-
lýsingar um heimilisfang manna.“
„REYKJAVÍK HEFIR EKKI
þörf á tveimur manntalsskrifstof-
um með tvöföldum kostnaði og
tveimur spjaldskrám yfir íbúa bæj
arins, þar sem önnur kemur al-
menningi að allsengu, en hin að
litlu eða ekki hálfu gagni, heldur
þarf Reykjavík aðeins eina mann-
manntalsskrifstofu og eina spjald-
skrá, sem gefur almenningi full-
nægjandi upplýsingar um fluttn-
inga og heimilisföng manna. Á-
standið í þessum efnum er gersam
lega óþolandi ástand eins og er.
Hér er skjótra umbóta brýn þörf.“
MÉR KEMUR ÞAÐ á óvart að
manntalsskrifstofa bæjarins' neiti
um upplýsingar, er menn leita til
hennar, því að allt af fæ ég upp-
lýsingar þar, er ég bið um þær.
Hins vegar mun það vera rétt, að
umbóta sé þörf á þessum málum.
Hannes á horninu.
vantar okkur nú þegar til þess að bera blaðið
til áskrifenda í
Sogamýrá
KleppsSiolt ©g
Laugareiesveg
óskast nú þegar. — Upplýslngar í afgreiðslunni. —
Alþýðublaftðr sími 4900.
'Óhugnanlegt beitiland.
Mynd jþessi, sean.er frá Normandi, virðisit í fljótu bragði næsta ihárkaleg, þar sem kýrnar og
stúlkan, sean gætir þeinra eru nan um sprengjur, sem bjóða ekki af sér. góða þokka. En
þetta er ekki eins íhætfulegt og virðiJst, þar sem sprengjurnar haía varið gerðar óvirkar.
M Ú, ÞEGAR PÉTAIN, ríkis-
stjórnin, landvarnaherinn
og Gestapo eru á brott frá
Vichy, má segja, að borg þessi
sé orðin það, sem húr fyrrum
var um þetta leyti árs — hress-
ingarstaður að útlíðandi hausti.
En þó getur þar að líta margar
minjar Pétains O'g Þjóðverja.
Daginn, s-em við komum til
Vichy, voru borgarbúar að
kveðja svissneska sendiherrann,
herra Stucki, er var á förum
þaðan samkvæmt þeirri hefð-
bundnu venju Svisslendinga að
hafa ekki fulltrúa njá bráða-
birgðastjórnum. Það var sízt að
undra, þótt hann væri kært
kvaddur af borgarbúum, því að
hann hafði á liðnum árum átt
mikinn þátt og góðan í vionám-
inu gegn Þjóðverjum — og í
því stárfi hafði hann notið ör-
uggs og drengilegs fulltingis
Nuncios sendimanns páfa, er
bjó í klaustri í Vichy.
Sagan um síðxtstu daga
Vichystjórnarinnar, frá því að
banóamenn gengu á land í
Frakklandi og þar til Þjóðverj-
ar voru hraktir þaðan brott,
var jafnframt saga um dyggi-
■ lega viðleitni herra Stuckis til
þess að firra óþörfum blóðsút-
hellingum og hryðjuverkum.
Heimaherinn á þessum slóðum
naut forustu Henry Ingrands
um tveggja og hálfs árs skeið.
en Ingrand he^ur verið fulltrúi
bráðabirgðastjórnarinnar að
Clermont-Ferrand frá því
j hinn 26. ágúst síðast liðinn. Það
gefur að skilja, að heimaher-
inn hafi átt örðugt uppclráttar
á þessum slóðum, því að hvergi
á gervöllu Fi-akklandi hefur
röð og regla verið meiri en
einmitt 1 Vidhy og grennd
hennár frá því að landið var
herpumið og leppstjórnin komst
til vajda. En eftir að banda-
menn höfðu stigið á land í
Suðúr-Frakklandi, gekk Mene-
trel, sem var læknir Pé-
tains, á fund herra Stuckis, til
þess að fara þess á leit við
hann, að hann hefði milli-
göngu um það með hvaða
skilyrðum heimaherinn rtiyndi
r|Ú:EIN ÞESSÍ, serti er |
þýdd úr fereslca blaðinu
“Th» Manchester Guardian”
og rituð af fréttaritara þess í
Vichy, Iýsir cíðustu dögnm
Vichystjórnarinnar og við-
horfunum í Fraldklandi efíir
afi bandamenn og heimaher-
iira frauski hc'fou náð yfir-
tökunum í bardögunum um
Frakkland.
fallast á uppgjöf mar-
skálksins. Ingrand skýrði höf-
undi þessarar greinar frá bví
að marskálkurinn myndi hafa
gefizt upp hinn 21. ágúst, ef
Þjóðverjar hefðu ekki gripið til
sinna ráða daginn áður.
Daginn eftir að, heimaherinn
náði Vichy á sitt vald, sem sé
PETAIN MARSKÁLKUR
hinn 25. ágúst, bárust fréttir
um það, að þýzk herdeild nálg-
aðist borgina úr suðurátt. Herra
Stucki ók út úr borginni til
móts við herdeildina, tók for-
ingja hennar, tali og benti
honum á það, að ef herdeildin
legði leið sína um borgina,
myndi lífi margra erlendra
sendimanna verða stofnað í
hættu og efnt til tilefnislauss
blóðbaðs, þar eð heimáherinn
væri til þess neyddur að veíta
viðnám. Hann lagði því til, að
herdeildin færi framhjá borg-
inni. Meðan þeir ræddu þetta,
opnaði einhver í herdeildinni
'fyriT viðtæki og lenti á frelsun
armessu, er verið var að
syngja í Vichy. Þetta virðist
hafa haft mikil áhrif á Þjóð-
verjann, því að hann féllst á
það, að herdeildin legði leið
sina um borgina Gannat.
Undanfari handtöku Pétains
var það, að Laval gerði hjákát-
lega tilraun til þess að finna
löglegan grundvöll fyrir Vichy
stjórnina, og hafði honum
meira að segja komið til hug-
ar, að unnt yrði að kveðja
saman þjóðfund. Hann lét
flytja Herriot frá fangelsinu að
Nancy til Parísar. með sam-
þykki Þjóðverja. En áður en
Herriot kom til Parísar, höfðu
Þjóðverjar ákveðið, að Vichy-
stjórnin skyldi flytjast búferl-
um til Belfort. Þeir báru þessa
ákvörðun sína undir Laval,
sem kvað sig mótfallinn henni
og mælti „annaðhvort París
eða Viehy.“ Þjóðverjar svör-
uðu með því að taka hann, til
fanga.
Þetta gerðist 18. ágúst og án
þess að Pétain væri um það
kunnugt. Sama dag flutti
býzki hershöfðinginn von
Neubronn marskálknum þá
fyrirskipun frá von Renthe-
Fink, sem var sérstakur
sendiherra Hitlers í Frakk-
landi, að hann ætti að flytjast
til borgar nokkurrar í Austur-
Frakklandi ásamt þeim Brid-
oux hershöfðingja og Bléhaut
flotaforingja. Marskálkurinn
neitaði að hlýðnast fyrirskip-
uninni. Morguninn eftir gekk
Neubronn aftur á fund mar-
skálksins og flutti honum úr-
slitaskilyrði, sem hann átti að
hafa svarað fyrir klukkan 6.45
um kvöldið en ella skyldi stór-
skotahríð hafin á borgina. Þeg-
ar umhugsunarafrestur Pé-
tains var liðinn, kvaddi hann
þá Nuncio og Stucki á fund
Framh. á 6. síðu.