Alþýðublaðið - 22.11.1944, Page 3
ðfiðvikudagnr 22. nóv. 1944.
ALfYDUBLAÐIÐ
apf^«r* » w» »:«-* wi»wv» m ^vrxjpyirnr*
KVaúMtn
Eisenhower býsf við úrslitaor-
usium fyrir vesfan Rín
Varnir Þjóðverja þar miklu sterkari en á
austurbakka árinnar
U ISENHOWER, yfirmaður alls hers bandamanna sagði
í ávarpi, sem hann flutti í Parísarútvarpið í gær, að
árslitaorrustumar á vesturvígstöðvunum myndu að öllum
líkmdum verða háðar vestan Rínar, með því að varnir Þjóð-
verja væru þar miklu sterkari en austan fljótsins.
I sambandi við þetta sagði
Eisenihower, að eftir að banda
mðnnum. hefði tekizt að ná á
sitt vald borgunum Belfort,
Metz og Aachen hefðu þeir stór {
bætt aðstöðu sína vestan við f
'Rín. En jafnframt hvatti hann j
allar þjóðir bandamanna táil }
þess að einbeita (kröftum sín-
«m til hergagnaframleiðslunn-
ar, svo að herinn á vígstöðvun
»ím skorti ekki neitt í orrustun
»im, sem nú fæiu í hönd.
Eisenhower lauk miklu lofs
orði á framgöngu hermann-
anna á vígstöðvunum, en sagði
þó, að engar fregnir hefðu glatt
aig éins mikið og fregnirnar af
hinná sigursælu sókn fyrsta
Sranska hersins austur af Rín.
fljúgandi virki ylir
Japan í gær
RéSust á fSugvéla-
yerksmiSjur á
Kyushu
REGN FRÁ LONDON
seint í gærkveldi segir, að
Mn. fljúgandi virkí Bandaríkja
manna hafi gert mikla loftárás
á fíúgvélasmiðjur i Omura á
Kytishu ,sem er syðst af hinum
fjórum stóru Japanseyjum.
Er þetta þriðja loftárásin, sem
Bandaríkjamenn gera á Kyushu
en þær hafa allar verið gerðar
frá flugvöllum í Kína.
Um 20 japanskar flugvélar
eru sagðar hafa verið eyðilagð
ar í árásinni í gær en 19 lask-
aðar meira eða minna. Á heim-
leiðinni vörpuðu amerísku flug
vélarnar niður sprengjum í
Shanghai og Nanking, sem báð-
ar eru á valdi Japana.
Kesselring særður
eða dauður!
ESSELRING marskálkur,
yfirmaður þýzka hersins'á
ftalíu er sagður hættulega særð
ur. Segir ein fregn jafnvel, að
hanu sé dauður.
Engar meiriháttar fregnir bár
«st af .bardögum á Ítalíu í gær,
©n sagt var í fréttum í gær-
kveldi, að 8. hernum miðaði
stöðugt áfram og ætti ekki nema
ÍIÆ km. ófarinn til Ravenna.
FRAKKAR hafa nú fengið
fulltrúa í Evrópuráði
bandamanna í London. Er það
Massigli, sendiherra Frakka
þar, sem mætir fyrir hönd
frönsku stjórnarinnar.
Fyrsli quislingurina
afbefllur norslum
sljérnarvöldum
Borgarstjórimn í
Kirkenes
’C1 REGN frá London til blaða
fulltrúa Norðmanna í
Reykjavík segir, að sá fyrsti af
embættismönnum Quislings
hafi nú verið afhentur hinum
norsku stjómarvöldum í þeim
hluta Norður-Noregs, sem leyst
ur hefir verið undan oki nazista.
Það er borgarstjórinn í Kirke-
nes, Rudolf Haugen.
Það er til dæmis um frétta-
burð Þjóðverja frá Norður-Nor-
egi, að sagt var í Oslóarútvarp-
inu 11. nóvember, að Rudolf
Haugen hefði verið skotinn af
bolsévikum.
Hinn löglegi borgarstjóri í
Kirkenes, sem Þjóðverjar
hröktu frá starfi árið 1940, hef-
ir nú tekið aftur við embætti
sínu.
Norskir sjállboðaliðar
sfreyma í norska her-
inn í Norður-Noregi
TVT ORSKIR sjálfboðaliðar
^ streyma nú til norsku her
sveitanna, sem komnar eru til
Norður-Noregs, segir í fregn til
norska hlaðafulltrúans í Reykja
vík. f Kirkenes voru þessir
sjálfboðaliðar orðnir 1500 tals-
ins eftir aðeins tvo daga.
Hinar norsku hersveitir í
Norður-Noregi, sem eru nú
þannig skipaðar bæði sérstak-
lega þjálfuðum norskum her-
mönnum frá Bretlandi og sjálf-
boðaliðum, sem hafa verið all-
an túnann á heimavígstöðvun-
um berjast nú með innrásarher
Rússa fyrir því að hrekja Þjóð
verja vestur og suður á bóginn.
Heiptarlegar lofíárás-
ir á Þýikaland
GÆR réðust um 1200 ame-
ríiskar flugvélar á ýmsa
staði í Þýzkalandi. Aðalárás-
unum var beint gegn olíu-
vinnslustöðinni Leuna í Merse-
burg, skammt frá Leipzig.
Brezkar flugvélar réðust auk
þess á stöðvar í Hamburg og
Haimover. Mikið tjón er sagt
hafa orðið í árásum þessum.
... og hljóðlega rennur í hægðum sfraumiygn Rín
Myndin er tekin á austurbakka Rínar, Þýzkalandsmegin, beint á móti Strassburg (Strasbourg).
stærstu borginni í Elsass. Tveir þýzkir hermenn sjást á verði á austurbakkanum.
VesturvígstöÓvarBiar:
Frakkar sækja norður Elsass og
eru komnir inn í Hulhausen
Belforf nú alveg á valdi þeirra og Melz á*
valdi Bandaríkjamanna
XT ÉLAHERSVEITIRNAR ÚR FYRSTA HER FRAKKA,
* sem brutust fram hjá Belfort og alla leið austur að
Rín, hafa nú byrjað sókn norður Rínardalinn, og eru sum-
ar þeirra komnar inn í Miilhausen (Mulhouse), en aðrar hafa
sótt alllangt norður fyrir hana. Þetta var sagt í fregnum
frá London seint í gærkveldi, en áður hafði verið frá því
skýrt, að Frakkar væru byrjaðir að* skjóta af fallbyssum af
vesturhakka Rínar austur yfir fljótið.
Fyrri fregnir sögðu, að Belfort væri nú algerlega á
valdi Frakka og Metz að mestu leyti á valdi Bandaríkja-
manna. Verjast Þjóðverjar þar aðeins í nokkrum virkjum
enn.
Ný sókn Rússa á
eynni Ösel
Þjóöverjar aö hrökl-
ast burt þaöan
Fkveldi sagði, að Rússar
REGN frá London í gær-
hefðu nú haíið sókn á hendur
Þjóðverjum á eynni Ösel, úti
fyrir Rigaflóa. Hefðu þeir brot
izt í gegnum varnir þeirra þar
og héldu Þjóðverjar ekki nema
litlu svæði við ströndina. Inni
á Rigaflóa hefir tveimur þýzk-
um tundurspillum verið sökkt.
Suður í Ungverjalandi
þrengja Rússar stöðugt hring-
inn um Buda Pest og er nú mest
barizt fyrir norðaustan borgina.
JÓÐVERJAR hafa verið
hraktir úr Tirana og
Durazzo í Albaníu.
* Það hefir nú farið, eins og
búizt var við i gær, að hinar
frönsku vélahersveitir, sem-
brutust aústur að Rín, myndu
sækja norður Elsass, sumpart
til þess að loka undanhaldsleið
Þjóðverja frá Belfort, sem þær
fóru fram hjá, en Þjóðverjar
hafa nú verið hraktir úr, sum-
part til hinis, að komast að baki
þýzka hernum, sem verst-7. her
Bandaríkjamanna í vesturhlíð
um Vogesafjalla.
Norður í Lothringen heldur
3. her Bandaríkjamanna áfram
sókn sinni frá Metz inn í Saar-
héraðið í Þýzkalandi og hefir
tekið bæinn Saarburg. Metz má
nú heita alveg á valdi Banda-
ríkjamanna. Fámennar sveitir
Þjóðverja verjast þar enn á
nokkrum stöðum, samkvæmt
fregnum frá London seint í
gærkveldi, svo og í nokkrum
virkjum borgarinnar.
Á Aadhen-vfígstöðvunum var
Skæruliðaherinn í
Grikklandi verður
nú afvopnaður
Fyrir 10. des. n. k.
P APANDROU, forsætisráð-
■*■ herra Grikkja, hefir, sam
kvæmt fregn frá London í gær
kveldi, boðað að gríski skæru-
liðaherinn verði afvopnaður fyr
ir 10. desember n. k.
Skouby, hershöfðingja, sem
stjórnar blönduðum her Breta
og Grikkja í Grikklandi, hefir
varið falin yfirumsjón með af-
vopnun síkæruliðahersins.
Sagt er, að ýmsir af ráðherr-
um Papandrous hafi hótað að
segja af sér, ef frestað yrði að
afvopna skæruliðana, sem voru
mjög fjölmennir í Grikklandi,
og hafa farið sínu fram síðan
Þjóðverjar voru reknir úr land
inu, án tillits til stjórnarinnar.
Áhrif kommúnista á meðal
skæruliðanna hafa verið mjög
áberandi.
barizt af ógurlegri heipt í gær-
dag og tókst Bandaríkjamönn-
um að brjótast inn í Eschweil-
er. Stóðu þar yfir blóðugir bar
dagar er síðast fréttist.
Nánari fregnir eru nú komn
ar frá Geilenkirchen, sem Bret-
ar tóku á sunnudaginn. Er þar
allt sagt í rústum og engin lif-
andi vera sást i bænum er Bret
ar komu, en áður bjuggu þar
5—6000 manns.