Alþýðublaðið - 21.02.1947, Side 6
4
r*r-
TJARNARBÍO 8
Mr. Emmanuel
Áhrifamikil ensk mynd
um ævintýri Englendings
í Þýzkalandi fyrir ófrið-
inn.
Felix Aylmer
Greta Gynt
Walter Rilla
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innan 14 ára.
5W9T1
ALÞÝÐUBLAOIÐ
8 BÆJARBÍÓ 8
Hafnarfirði
Myndin af
Dorian Gray
(The Picture of Dorian
Gray).
Aðalhlutverk:
George Sanders
Hurd Hatfield
Donna Reed
Angela Lansbury
Sýnd kl. 7 og 9.
Börn innan 14 ára fá ekki
aðgang.
í. R. Skíðaferðir að Kolvið
arhól á morgun (laugardag)
kl. 2 og 8. og kl. 9 á sunnu-
dagsmorgun. Farmiðar og
gisting verða seld í Í.R.-hús-
inu í kvöld frá 8—9.
Farið verður frá Varðar-
húsinu.
Þeir í .R.-ingar, sem enn
ekki hafa gert upp Ýta-happa
drættið eru vinsamlega beðn
ir að gera það í kvöld kl. 6—
7 og 8—9 á skrifstofunni í í.
R.-húsinu.
Stjórnin.
eiiiííii
AibýöublaðiS.
iiitiiiiiiiiiiiiiiiiRiiinmniininniiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiinniiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiifnmiinim
fyrir þessi sömu þúsund gyllini hefur Pétur keypt ínu;
það er í rauninni broslegt, þegar maður hugsar rétt um
það. Hennie hefur eiginlega selt systur sína til þess að
ná sé í mann.
Lies van Leeuwen er farin frá „Heiðaró“ með litla
barnið sitt. Einn góðan veður dag kemur hún veikgeðja,
ósjálfstæð og hágrátandi til ínu. Foreldrar hennar hafa
samþykkt að hún komi heim aftur, en þá varð hún að
sleppa öllu tilkalli til barnsins. Foreldrar hennar ætluðu að
koma því fyrir á góðu heimili.
„Systir ína, ína, hvað á ég að gera? Ég hef ekkert lært
nema að dansa, leika tennis og spila bridge og ég á hér um
bil enga peninga sjálf. En ef ég á að missa Vic litla, dey ég.
Það lifi ég ekki af.“
„Maður getur þolað meir en þú heldur,“ segir ína
rólega.
„E, Liesje, hvers vegna snýrðu þér ekki til foreldra
Victors? Vilja þeir alls ekki hjálpa þér?“
Lies horfir undrandi, næstum skelkuð á hana. „En ég
var búin að segja þér, að þau eru kaþólsk, og þess vegna
get ég ekki beðið þau um hjálp.“
Það kostar mikið erfiði að vinna bug á bjargfastri trú
Lies um að Kalvinstrúarmaður getur ekki beðið kaþólskan
mann hjálpar.
„Þú talar eins o gþetta væri fjarskyldur þjóðflokkur.
Þú virðist alveg gleyma því, að Vic litli er sonarsonur
þeirra.“
Hin ráðþrota Liesje fylgir, eins og alltaf, síðasta ráð-
inu, sem hún fær: Hún leitar til foreldra Victors og allt sitt
iíf er hún þakklát ínu af því að hún fékk hana til að gera
þetta. Það kemur nefnilega í ljós, að foreldrar Liesje hafa
verið heldur um of áköf að leyna vanvirðu dóttur þeirra.
Foreldrar Vice hafa ekki einu sinni haft hugmynd um að
Liesje ætti von á barni; en þegar þau fengu bréf hennar,
svara þau strax, að bæði Lies og drengurinn séu velkomin
til þeirra.
Brátt er kominn tími til að Pétur kynni konu sína mest
virta fólkinu í bænum, og fyrst heimsækja þau borgar-
stjórann. Hin feita borgarstjórafrú er fyrst hálf kuldaleg
við ínu, en ína, sem frá Annechen veit, að hin tilbeðna
dóttir þeirra, málar fallegar myndir, „hreinustu furðu-
verk“ eins og Annechen orðar það, spyr af mesta áhuga
um vinnu dótturinnar og talar svo hlýlega um hana, að
borgarstjórafrúin bráðnar alveg og býður ínu að koma í
frúar-tesamkvæmin sín, sem hún heldur á hverjum fimmtu
degi. Þar koma venjulega kona fræðslumálastjórans, full-
)trúafrúin, kona Dolders fyrrverandi ofursta og stundum
van Wolde-frúrnar. Það er svo einstaklega notalegt hjá
þeim, og borgarstjórafrúnni væri það sönn ánægja að sjá
frú Reynolds svo oft, sem hún má vera að eða hefur löngun
til að koma.
ína er sæmilega ánægð með árangurinn af heimsókn-
inni, því að hún veit það frá Annechen, að það var fjand-
skapar að vænta úr þeirri átt, af því að borgarstjórafrúin
hefur orðið fyrir vonbrigðum vegna dóttur sinnar. Fyrir
lækni getur það verið mjög skaðlegt að fólk sé ekki vin-
veitt konu hans og jafnvel kostað hann sjúklinga. Þvert
Föstudagur, 21. febr. 1947.
æ nvja bio ææ gamla bio æ
Innan fangelsis-
múranna.
(Within these Walls)
Spennandi og vel leikin
mynd.
Bönnuð börnum yngri en
16 ára.
Sýnd kl. 9.
LEYNDARFÖRIN
TIL ALGIER
Spennandi leynilögreglu-
mynd.
BASIL RATHBONE
NIEGEL BRUCE
Aukamynd:
Mexico vorra daga.
(March of Time)
Sýnd kl. 5 og 7.
Klukkan
(The Clock)
Amerísk kvikmynd frá
Metro Goldwyn Mayer.
Judy Garland
Robert Walker
Keenan Wynn
Sýnd kl. 7 og 9.
,í sjöunda himni'
(Med Fuld Musik)
Fjörug söngva- og gaman-
mynd með
Litla og Stóra
Sýnd kl. 5.
T e i k n a r i
Aðstoðarmann vantar á teiknistofu
vora. Þyrfti að hafa nokkra tækni-
menntun.
Vita- og hafnarmálaskrifstofan,
Seljaveg 32—34.
á móti hefur hún einsett sér að dr. Pétur skuli vera ánægð-
ur með viðskipti þeirra, og að hún verði vel liðin sem
lækniskona. Pétur er mjög elskulegur og þægilegur vinnu-
veitandi og alltaf að gera aðstoðarmanni sínum eitthvað
til þægðar, svo að hún hefur yfir engu að kvarta frá hans
hendi þegar dálítill tími er liðinn og hið slæma sár, sem
hinn fjarlægi, ókunni skuggi í Indlandi hefur veitt henni,
er gróið, mun hún áreiðanlega geta uppfyllt allar sínar
skyldur.
í marzmánuði, þegar Pétur og ína hafa verið gift í tvo
mánuði, byrjar þetta námskeið í Groningen, sem ína svo
gjarnan vill fara á, og þrisvar sinnum í viku kemur Pétur
að húsinu tómu og öllu köldu. En eftir nokkrar vikui’ er
ína þegar orðin fær um að binda um minni háttar sár. Og
það líður ekki á löngu áður en hún getur aðstoðað við að
gefa sprautur, háfjallasól og önnur svipuð hjúkrunar-
konuverk. *
Hennie skrifar ekki eins oft eða nákvæmlega eins og í
byrjun. Hin mikla ást virðist vera farin að hjaðna svolítið.
Og ennþá hefur hún ekki borgað eyri af þúsund gyllinun-
um, og ína er hálf bitur í huga gagnvart hinni elskuðu
yngri systur sinni. Gréta, sem þó er henni alveg óskyld, er
miklu ræktarsarnari við hana en systir hennar, hún sendi
henni blóm þegar hún heyrði um brúðkaupið. Það fannst
- Myndasaga Alþýðublaðsins: Örn elding -
THE eUARPS/MA.KE
FOR 7WE BOAT// v'
PRiA'ie PELTS/ AJJ. OF 'EM/
WE'LL BE Ai !L UONAIRES //
THE 9IONAL/ HERE'S WHERE WE CUT
THE FOO FOR THE PEETEES..AND SMITW
BETTER BE REAPy WITH A LANTERN
mw for 4'?_____cp, elseí
Eyou TAKE
WOT'S LEFT/
- ,4N' "2LACK,
'Ctff CAN WRY m AT
SEA AFTER TVÍ' FUR-RAIP/
LEM/VIE AT TH'
SCURVy SWAB^
LEFTY: Láttu mig komast að
svininu.
SJÓMAÐUR: Þú mátt eiga það,
sem eftr verður, og Svarta
Chyntia getur grafið hann eftir
ránsferðina.
SKIPVERJAR: Fínustu skinn; við
verðum allir milljónamæringar.
En nú kemur strandvarnaliðið til
skjalanna.
Flugmenn strandvarnaliðsins sjá
- ákveðið Ijósmerki og ákveða að
hefjast handa.