Alþýðublaðið - 04.03.1947, Síða 7
ÞrlSjudagur, 4. marz 1947.
ALÞYÐUBLADID
7
rnrr
WTTT.
Bærinn í dag.
Ííæturlæknir er í Læknavarð-
jstofunni, ;SÍmi 5030.
Næturakstur annast B.S.R.,
sími 1720.
Næturvörður er í Reykjavík-
urapóteki.
Háskólafyrirlesfrar
tim þrjú sænsk skáld.
i ^ —
Á NÆSTUNNI mun Peter
Hallberg flytja fimm fyrir-
lestra um sænsku skáldin
Verbef von Heidenstam,
Gustaf Fröding og Erik
Axel Karlfeldt.
Fyrsti fyrirlesturinn verð-
Mr fluttur í dag í fyrstu
kennslustofu háskólans og
hefst kl. 6.16 síðd.
Orðsending frá Karla-
kór Reykjavíkur
VEGNA óviðráðanlegra or-
gaka félil samsöngur kórsins
niður i gærkveldi. Miðar frá
þeim samsöng gilda miðviku
daginn 5. marz kl. 3, miðar
frá þriðjudeginum, 4. marz
g'ilda fimmtudaginn- 6. marz
1:1. 7,15, miðar frá miðviku-
deginum 5. marz gi'lda föstu-
daginn 7. marz kl, 7,15 og
miðar frá fimmtudeginum 6.
marz gilda sunnudaginn 9.
marz kl. 1,15. Allir sam-
söngvarnir verða í, Gamla
Bíó.
Þegar Rofferdam var lögð í rúsfir
F. IJ« J,
* LESHRINGURINN um
jafnaðarstefnuna í ís-
lenzkum bókmenntum
verður á miðvikudags-
kvöld kl. 9 í skrifstofu fé-
lagsins á annarri hæð Al-
þýðuhússins. Þeir, sem
vilja vera þátttakendur í
hringnum mæti stundvís-
lega.
, f, ’JFrh. af 5. síðu. j
á eftir komu 2. og 3. véla-
maður niður.
Er vdð höfðum Nerið þarna
um stund hættum við ökkur
upp á þilfar. Yfir okkur í
myrkrinu drundi fjöldi flug-
véla, er sendu hóp af fall-
hlífarhersveitum til jarðar
oig y.fir Wa'ldhafen flugvell-
inum voru Ijómandi rákir
ljóssprengna. Það stóð yfir
loftárás á flugvöllinn, og þvi
næst var hann tekinn af fall-
hlífarhersveitum. í dögun
flugu brezkar flugvélar inn
yfir Rotterdam og gerðu á-
rás á flugvöllinn, sem Hol-
lendingar náðu aftur. en
héldu ekki lengi. í fjóra
daga stóð orrustan þarna, og
við vorum mitt í eldlinunni.
Skot sprungu yfir höfðum
okkar, og Hollendingar skutu
yfir skipið, svo að kúlurnar
hvinu við eyrun.
Hinn 14. maí var yndis-
legt sumraveður. Sólin sendi
geisla sina á hin fornfrægu
patricierhús og hinar gylltu
turnspírur kirknanna og tré,
runnar og akrar’ voru sem
eitt Ijóm'andi geislahaf. Um
borð í ,,Annam“ gekk vinn-
an sinn vana gang. Við nut-
um kyrrðarinnar eftir allt
það, sem gengið hafði á und-
anfarna daga, án þess að
gefa okkur á vald neinni ó-
þarfa bjartsýni. — Þvert á
móti höfðum við grun um,
að kyrrðin væri fyrirboði
einhvers enn venra. Sú varð
lika naunin á og það, sem
okkur hafði ekki órað fyrir.
Klukkan 11 komu þrir hóp-
ar flugvéla inn yfir borgina.
Það var ekki skotið á þær,
og ekkert loftvarnamerki
gefið. Rotterdam hafði ver-
ið lýst óvíggirt boirg. Er við
komum upp á þilfar 'til að
sjá þessa tilkomumiklu sjón,
svo stóran hóp flugvéla, urð-
um við vægast sagt dauð-
hræddir, þegar sprengjurnar
féllu yfir Schiedamschediik,
miðbæinn. — Þjóðverjarnir
höfðu misst þolinmæðina, og
vildu vekja skelfingu með
því að eyðileggja Rotterdam.
Aðeins ein sprengja féll ná-
lægt ,Annam“. Nei, það var
gamlii, fallegi miðbærinn,
með. öllum sínum reisulegu
byggingum, sem varð fyrir
þvi að vera jafnaður við
jörðu.
Eftir 3 vikur var þetta að
mestu um garð gengið, en
fyrstu þrjá dagana var sem
að horfa inn í eld, sem skíð-
logaði — risastórt, snarlc-
andi bál, sem var 1 km. á
breidd og 3 km. á dýpt.
Einkum á næturnar var
þessi sjón tilkomumikil, en
skelfileg.
Stundum langaði mann til að
gráta af sorg og trega yfir
þessum hamförum.
Sagt er, að yfir 20 000 hús
hafi brunnið, þar af 13 kirkj
ur, 21 skóli og 17 sjúkrahús.
Um 28—30 000 manns létu
lífiið. En meira að segja 17
dögum eftir loftárásina fund
Ust lifandi menn í rústun-
um —■ vitskertir og niður-
brotnir.
Ég hef reynt margt og
miikið í lifi mínu, einnig eft-
ir 10. mai 1940, en. ekkert
sem hefur að geyma jafn
farlega skélfingu eins og þá,
er hin gam'la menningarborg
varð að greiða dvru verði
þátt sinn í baráttunni fyrir
sjálfstæði landsins með því
að vera ,,sena“ f.yrir svo
hræðilegan sorgarleik.
HANNES Á HORNINU:
' Frh. af 4. síðu.
kem út aftur sé ég að 10-hjóla
vörubíll hefur stanzað beint’ á
móti mínum bíl, og var þó nóg
rúm alls staðar annars staðar á
götunni. Nú var svo mjótt á
milli bílanna, að naumast var
hægt að smjúga þar með bíl.
Vörubíll hafði samt farið þar, á
þann hátt, að afturhlífin á mín-
um bíl var illa beygluð. Ekki
varð séð að hann hefði snert
stóra „trukkinn“ enda mun
hannhafa verið ónotalegri við-
komu. — „Sjálfsagt að tilkynna
stráx.“ — Á sama tíma og allt
þetta hefur gerzt, veit ég ekki
til að ég hafi svo mikið sem
kitlað aðra bíla með mínum. —
Þetta má þó enginn skiija sem
Isjálfshól né neina sérstaka
dyggð, því að auðvitað hef ég
allan tímann verið að hugsa
fyrst og fremst um minn eigin
- Skemmtanir dagsins -
Kvikmyndir:
GAMLA BÍÓ: „Hringstiginn“.
Kl. 9. „Dick Tracy leyni-
lögreglumaður". ■— Morgan
Conway, Anne Jeffreys, Mike
Mazurki. Kl. 5 og 7.
NÝJA BÍÓ: „Drag'onwyck“. ■—
Gene T-ierney og Vincent
Price. — Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TJARNARBÍÓ: „í'stuttu máli“.
Sýnd kl. 9. „Sonur Hráa hatt
ar“. — Cornel Wilde ,Anita
Louies. Sýnd kl. 5 og 7.
BÆJARBÍÓ: Engin sýning í
dag.
HAFNARFJ.BÍÓ: „Klukkan"
—- Judy Gai-land, Robert
Walker og Keenan Wynn. —
Kl. 7 og 9.
Leikhúsin:
LEIKFÉL. HAFN.FJ.: „Húrra
krakki“. Sýning' kl. 8.30.
LEIKFÉL. RVÍKUR: „Ég man
þá tíð“. 25 sýning annað
kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar
frá kl. 2 í dag.
Söfn og sýningar:
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ
Opið kl. 14-—15.
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ: Opið kl.
13—15.
Samkomuhúsin:
BREIÐFIRÐINGABÚÐ: Afmæl
ishóf Matsveina- og veitinga-
þjónafélags Íslands.
HÓTEL BORG: Dansað frá kl.
9—11.30. Illjómsveit Þóris
Jónssonar.
INGÓLFSCAFÉ: Opið frá kl. 9
árd.
RÖÐULL: Bifreiðastjórafélagið
„Hreyfill" Fundur.
S JÁLFSTÆÐISHÚSIÐ:
Skemmtifundur Ferðafélags
íslands kl. 8.30.
HASKOLAFYRIRLESTUR í I.
kennslustofu Háskólans kl.
8,15, Peter Hallberg'.
Skák:
YANOFSKY-MÓTIÐ Sjötta um
ferð í Mjólkurstöðinni kl. 8.
í kvöld.
Bróðir minn, I1
SigurSur Jóhannesson * f
skrifstofumiaður,
andaðist 3. þ. m. •— Fyrir hönd eiginkonu, dóttur og:
fjarstaddra ættingja.
Jón Jóhannessom
Jarðarför föður okkar,
Guðmundar Gísla Guðmundssonar
v frá Súðavík,
fer fram frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 6. marz og
hefst með 'húskveðju frá Klapparstíg 9 kl. 2 e. h.
’ ’ . .......... ,:j '
Ágústa Guðmundsdóttir. Margrét Guðmundsdóttir.
Guðrún Guðmundsdóttir. Valborg Guðmundsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við and-
lát og iarðarför
GuÓmundar Bjarna Kristjánssonar,
kennara við Stýrimannaskólann.
Sérstaklega þökkum við skólastjóra, kennurum
og nemendum Stýrimannaskólans fyrir þá virðingu,
er þeir sýndu minningu hins látna.
Geirlaug Stefánsdóttiy. dætur, fóstur-
dóttir, tengdasynir og barnabörn.
Úfvarpið:
20.45 Erindi: Meðvitund jurt-
anna og sálarlíf (dr. Ás-
kell Löve).
21.10 Tónleikar (plötur).
21.15 Smásaga vikúnnar: „Dýr“
eftir Þóri Bergsson (Lár-
us Pálsson).
21.45 Spurningar og svö.r um
íslenzkt mál (Bjarni Vil-
hjálmsson).
22.00 Fréttir.
22.15 Djassþáttur (Jón M.
Árnason).
22.45 Dagskrárlok.
bíl og um mitt litla eigið líf,
og þess hafa hinir notið.
— NÚ ER BYRJAÐ ÁRIÐ
1947. Ég er að velta því fyrir
mér hvort það muni verða
hægri eða vinstri hlíf næst. —
Getur þú áfellzt mig, Hannes
minn, þó mér finnist þetta ekki
vera allt í lagi? Bíllinn minn
hefur verið á verkstæði sam-
tals í 3 vikur til réttinga? Á
meðan hef ég orðið að leigja
mér bíl til sjúkravitjana. Allir,
sem þekkja. til liversu erfitt hef
ur verið að fá bíl á stríðsárun-
um, geta farið nærri um, hvort
það út af fyrir sig hefur ekki
reynt á þolinmæði, þegar 'tími
er naumur. Og hver borgar
brúsann? Ekki sá, sem tjóninu
veldur. Tryggingarnar munu
hafa greitt drjúgt fyrir rétt-
ingar og nýjar hlífar. Bíllinn
minn var einu sinni fínn bíll.
Nú hef ég ekið honum 45.000 t
km. og er hann því tiltölulega
lítið slitinn. En ef ég vildi
selja hann, myndu réttingarnar,
og af þehn leiðandi hurðar-
gjögt; minnka verðmæti hans,
væntanlega, um tug þúsunda.
ER ÞETTA ALLT í LAGI?
Ég leyfi mér að efast um að
þeir, sem aká bílum sínum yfir
annarra manna bíla upp á
trygginguna, fyndist þetta vera
allt í lagi, ef þeir ættu sjálfir
að taka þátt í kostnaði þeim og
verðmætisskerðingu, sem ég
hef minnzt á. Sérstaklega á ég
hér við vörubílstjóra. Með því
fyrirkomulagi, sem nú er á
tryggingum, hafa þeir bókstaf-
lega enga ábyrgð. Við, sem
stjórnum fólksbílum, erum alit-
af að hugs.a fyrst og fremst um
okkar eigin bíl, eins og ég
minntist á áðan, og' það er
nægilegt aðhald, enda þótt við
kynnum að kæra okkur koll-
ótta um skemmdir, sem aðrir
bílar yrðu fyrir við árekstur.
Vörubílstjórar hafa hins vegar
ekkert þess konar aðhald; þeir
þurfa aldrei að óttast um að
svo mikið sem sjái á þeirra bíl,
þótt þeir reki „stuðara“ hjól-
kopp eða vörupall í okkar bíla.
Fjárhagsleg áhætta er engin,
bara tilkynna tryggngunni.
HELDUR ÞÚ EKKI, að betra
væri að þeir bæru einhverja
fjárshagslega ábyrgð á gjörðum
sínum? Að vísu er það spor í
rétta átt, að gefa bílstjórum af-
slátt á iðgjaldi, ef þeir valda
litlu eða engu tjóiii með bíl sín-
um, en hér er þó aðeins um tak-
markaða upphæð að ræða, í
hæsta lagi tryggingaruppþæð-
ina. Ég hygg að hitt væri mup
meira aðhald, ef bílstjóri ætti
alltaf á hættu ófyrirsjáanleg út-
gjöld ef hann veldur tjóni með
bíl sínum. — Úr því að ég hef
hrist svona af mér slenið, lang-
ar mig til að minnast á „port-
lokurnar" og „rotturnar“.
ÉG HEF BÍLSKÚR í sund*
inu með fram húsinu mínu.
Þegar ég er heima, stendun
bíllinn annaðhvort inni í skúrn-
um, og blasir hurðin við göt-
unni, eða hann stendur í sund-
inu. Af því að ég er læknir,.
þarf ég oft að bregða fljótti
við út í bæ, en þau skipti eru.
ótalin, sem ég er lokaður innil
með bílinn af allskonar óvið-
komandi bílum, sem lagt hefur-
verið þvert fyrir sundinu. —-
VISS TEGUNB bíla (bíl-
stjóra) aka alltaf inn í aðalgötu.
á þann hátt, að þeir reka trýn-
ið út úr hliðargötunni, eins og: .
rotta út úr holu, alltaf tilbúnir
að taka „ehansann“ ef ég, sem.
ek aðalgötuna, sýni minnsta Iiik.
Ef ég samt þrjózkast við til aff
halda rétti mínum, verður hann,
að stanza á ská fyrir horni og.*
veldur oft ótrúlega miklurrL
umferðartruflunum, fyrir utan.
árdeksturshættuna.
Hannes á horninu.