Alþýðublaðið - 04.03.1947, Blaðsíða 8
Veðurhorfur
í ReykjavíK í dag: Norð
austan kaldi létt skýj-
að.
I»riðjnd.agur, 4. rnarz 1947.
m
20.45 Erindi: Meðyitund
jurtanna og sálarlíf.
21.15 Smásaga vikunn-
ar. t * • - _
21.40 S|t»rnifigar og
svör>
riffilskoí við herbúðir.
Það er algengt - og stórhættulgt - að
börn finni skotfæri við gamlar herbúðir.
-------y-------
TVEIR UNGIR SKÓLADRENGIR, 10 og 13 ára, fundu
'' nýlega poka með 380 ameriskum riffilskotum og þótti
- merkilegur fundur. Gáfu þeir félögum, sínum eitthvað af
skotunum, emgrófu hitt niður í garði, sennilega með það
fyrir augum að leika’sér að því seinna. Skólastjóri barna-
skólans, sem þeir eru í, komst á snoðir um skot þessi, sem
gengu miEi nemenda hans, og gerði hann þau upptæk. Við
rannsókn kom i ljós, að piltarnir munu hafa fundið skotin
i námunda við Kamn Knox.
Bókbindarafélagið
kaupir stofniánabréf
fyrir 10 þús. kr.
Guðgeir Jónsson.
AÐALFUNDUR Bókbind-
arafélags Reykjavíkur var
haldinn á f östudaginn var og
-var Guðgeir Jónsson sendur
kosinn formaður félagsins.
Fundurinn samþykkti að
leggja 10 þúsund krónur í
Styrktarsjóð félagsins og enn
fremur 10 þúsund krónur í
' Vinnudeilusjóðinn. Loks sam
þykkti fundurinn að félagið
káupi hlutabréf. fyrir 10 þús
und krónur í stofnlánadeild
, sjávarútvegsins.
Félagið gekkst í nóvember
, síðastlðnum fyirir samsæti í
tilefni af því að þá voru lið-
in 40 ár frá stofnun fyrsta
bókbandssveinafélagsins í
Reykjavík. Á árinu 1946
luku átta nemendur sveins-
prófi í bókbandi í Reykjavík.
Stjórn bókbindarafélags
Reykjavíkur skipa. nú: Guð-
geSr Jónsson formaður,
Bjarni Gestsson varaformað
ur ÓÍEifur Tryggvason fjár-
málaritari, Guðmundur
Gíslason gjaldkeri og S.
Fougner Johansen ritari.
HINN NÝI aðstoðarprestur
á Akureyri, Pétur Sigurgeirs
son, flutti fyrstu guðsþjón-
ustu sína á sunnudag. Margt
manna var í kirkju og virtist
fólkið mjög ánægt með hinn
nnga mann.
Það hefur verið mjög al-
gengt, síðan herl'iðin fluttu
héðan á brott, að börn fyndu
skot af ýmsum gerðum, aðal-
lega riffilskot, sem hermenn
hafa glatað eða skilið eftir.
Sigurður Magnússon, lög-
gæzlumaður, sem fer með
mál barna, hefur skýrt blað-
inu svo frá, að þetta geti ver
ið stórhættulegt, því að alltaf
getur komið fyrir, að skotin
springi í höndum barnanna,
þó ekkert slys hafi orðið af
þessu enn. Skýrði Sigurður
svo frá, að allmikið væri um
það, að hörn fyndu skot í
námunda við herbúðir.
SUM SKOTIN ÞÝZK.
Skólastjórinn, sem gerði
380 skotin upptæk, fór með
piltana, sem í hlut áttu, til
rannsóknarlögreglunnar, til
þess að ganga úr skugga um
að allt væri með féldu um
skotfærafund þennan, því að
skotin voru ýkja mörg.
Reyndist saga drengjanna
um að þeir hefðu fundið skot
in sönn og varð því ekki
meira úr því. En það þótti
heldur einkennilegt, að tvö
eða þrjú af riffilskotum þess-
um reyndust vera þýzk, fram
leidd í Þýzkalandi á stríðsár-
unum. Er talið líklegast, að
einhverjir hermenn hefðu
komizt yfiir þessi þýzku skot
sem minjagripi og svo týnt
þeim.
Sigurður Magnússon
skýrði blaðinu svo frá, að
leikur bama með skotfæri
hefði á stríðsárunum verið
hættulegri en þessir riffil-
skotafundir. Hefðu þá verið
hér brezkiir skotfærabraggar,
sem stóðu óvarðir, og komust
börn inn í þá og vom að leika
sér innan um djúpsprengjur
og önnur meiri háttar skot-
færi, áður en vörður fékkst
um braggana.
Sigurður sagði að lokum,
að sjálfsagt væri fyrir for-
eldra að taka öU skot af börn
um og gæta fyllstu varúðar,
ef þeir verða varir við, að
börn hafa fundið riffilskot
eða önnur skotfæri. -
Ingólfur íer út
á morgim
INGÓLFUR .\RNARSON
fer á morgun í fyrstu ferð
sina, Er nú lokið uppsetn-
ingu lýsisbr æ ðslutækjanna,
og voru þau reynd í fyirra-
dag og reyndust aUsæmiJega.
Tæki þessi voru sett i skipið
af vélsmiðjunni Héðni eftir
fyrirsögn Ásgeirs Þorsteins-
sonar, formarms lýsissamlags
íslenzkra botnvörpunga, og
mun að sjálfsögðu ekki fást
fullnaðar'reynsla á þeim fyrr
en út á miðin kemur.
Þessi mynd vai tekin skömmu áður en orrustuskipið ,,Van-
guard“ lagði úr höfn í Pc-rtsmouth á Suður-Englandi, með
konungsfjölskylduna brezku innanborðs. í tilefni aí þess-
ari fpr kpnungsb.jónanhu til Snður-Afríku, sem getið hefur
verið um í fréttum, eru sjóliðamir á mvndinni í stórhrein-
gemingu á þilfari hins mikla orrustuskips.
SÍLDVEIÐIBÁTARNIR.
hafa allix legið í höfn um
helgina vegna hvassviðris og
kulda, enda hefur síldin venju
lega haft þann hátt að hv.erfa
í kuldaköstunum.
í gærdag fór. fyrsti bátur-.
inn út aftur að leita síldar-
innar og fleiri munu haía
farið í gærkvöldi, en engar
fréttir hafa borizt af þ.ví,
hvort þeix hafi aflað.
Búizt er við að síldin.hafi
ekki farið langt nú fremur
venju og komi aftur á fyrri
slóðir, þegar hlýnar tekur.
Bátarnir sem síldveiðina
stunda hafa nú allir losað
afla sinn, og voru þeir síðustu
að lesta í „Ólaf Bjarnason‘-‘ í
gær, en hann mun hafa Iagt
af stað norður í gærkveldi. Á
leið norður með síldarfarm
eru nú þessi skip: Sæfell,
Hrímfaxi og Snæfell. Þegar
þessi skip eru komin norður
með afla sinn mun vera búið
a ðflytja um 70 þúsund mál
af síld.
BÆJARSTJÓRN AKRA-
NES ákvað á fundi sínum 16.
febrúpr s. 1. að gera þá séra
Friðrik Friðriksson, og Ólaf
Finnsen fyrrvecandi héraðs-
læknir að heiðursborgunum
Akraneskaupstaðar. Jafn-
framtivar þá.ákveðið að heið
ursborgara kjörið skildi far-a
frarn í Akraneskirkju 1.
marz.
Á s.unnudaginn var fór
he.iðursborgarak j örið fram
með hátíðlegri viðhöfn og af
henti forseti bæjarstjórninn-
ar heiðurborgarabréfin. Um
kvöldið hélt bæjarstjórnin
samsæti fyrir heiðursborg-
anna.
RANNSÓKNARLÖG-
REGLAN hefur nii hand-
tekið mann, sem hefur jál
að á sig árásina á konu á
Hafnarfjarðarvegmum við
Nýbýlaveg fyrra sunnu-
dag. Mun hairn liafa verið
tekinn fastur fyrir helgina
og situr nú í gæzluvarð-
' haldi.
Nokkrar líkur munu hafa
verið taldar á því, að sami
maðurinn hefði framið bæðí
fyrr nefnda árás og árásina
við Vesturgötu 7 á fimmtu-
dagskvöldið, því að lýsingar
kvennanna á árásarmannin-
um virðtust benda tdl þess, að
sami maðurinn hefði getað
verið að verki. Hinn hand-
tekni maður mun þó ekki!
hafa játað á sig árásina á
Vesturgötuna.
SJ0
sinnum á 10 dögum
SKÁLHOLT heíur nú ver-
ið sýnt sjö sinnum á tíu dög-
um við mlkla aðsókn og hina
ágætustu blaðadóma. Á laug
ardag komu yfir 100 manns
j£pá Siglufirði með Esju og
munu flestir hafa ætlað að sjá
leikinn á sunnudag. Margir
urðu frá að hverfa.
1 Hafr.
Skemmfifundur fé-
lags Vestur-lslend-
inga.
FÉLAG VESTUR-
ÍSLENDINGA í Reykjavík
heldur skemmtifund. í Odd-
fellow-húsinu uppi næstkom
andi miðvikudag og hefst
hann klukkan 8.30.
Til skemmtunar verður
meðal annars kvikmvnda-
sýning, myndir að vestan,
firpm stúlkur syngja með
guitarundirleik og Ioks verð-
ur stiginn dans. Allir, sem
dvalið hafa vestan hafs geta
gerzt félagar, enn frernur er
félögum heimilt að taka með
sér gesti.
Ekki líkur á
meira frosti
NORÐAN og norðaustan-
átt er nú um allt land og 2—
12 stiga frost með ströndum
og sennilega 15—20 stig í
innsveitum. Er ekki útilit
fyrir að iþað kólni mikið á
næstunni, að því er veður-
stofan hefm’ sagt blaðinu, þar
eð frostið er svipað norður
af landinu, allt norður með
austurströnd Grænlands. Há-
þrýstisvæði er yfir öllu Norð-
ur-At'lian.tshafinu, íslandi,
Grænlandi og Kanada.
Snjóþyngsli eru mikil
norðanlands, að því er frétta-
ritari blaðsins á Aikureyri
símar, og hamlar það bíla-
flutningum í flestum sveit-
um norðanlpnds. Fólksflutn-
ingar munu hafa fallið niður
í nágrenni Akureyrar alla
síðustu viku, og útivinna ö»ll
hefur lagzt niður í bænum.
Jafnframt snjókomunni
noxðanlands hefur verið
heiðríkt um allt suðurland.