Alþýðublaðið - 22.04.1947, Qupperneq 4
|U|)()ðttblaMð
Útgefandi: Alþýðuflokknrinn.
Kitstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfrétíir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Fr.kv.síj.: Þorvarður Ólafsson.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Framkvæmdastjórasími: 6467.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Bréf frá K. K. um að vera >og að sýnast. — Eldri
og yngri kynslóðin og viðhorf þeirra hvorrar til
annarrar.
í DAG fáið þið að lesa bréf,
sem mér barst á sunnudaginn
frá K. K. J>að er á þessa leið:
„Merkur maður hefur sagt, að
ef á brjóstum mannanna væru
gluggar, svo að allar þeirra hugs
anir og áform og hvatir sæust
í gegnum hann, þá myndu marg
ir bera kinnroða og fyrirverða
sig í fjölmenninu. Það er stund-
um sagt, að menn fari að sýna
sig og sjá aðra á mannamótum,
og þá eru það oftast fellegu
fötin, hrukkulausu andlitin og
sléttu og hvííu hendurnar, sem
þar eru sýnd.
HJARTAÐ SÉST ÞAIl EKKÍ,
það er að segja, hugrenningar
og hvatir eru byrgðar. En þó
má oft af ýmsu ráða hvernig
hjartað er, — orð og verk mann
anna lýsa oft mjög náið sálar-
lífi þeirra. Þó geta sumir dulið
sinn innra mann að mestu leyti,
aðrir geta það ekki. Það vill
svo oft brjótast út, sém inni
fvrir býr. Það er éins og ástríð-
ur og illar hvatir fylki liði sínu
til bardaga gegn því betra í okk
ur, og sigur eða ósigur er und-
ir því kominn, hvort hjartað er
hreint.
VÍST, ER, að margt væri öðru
vísi en það er, ef við værum
fær um að lesa hver í annars
huga, því þá mundi nú fyrst gefa
á að líta. Ég efast ekki um að
handtökin breyttust, yrðu ann-
aðhvort innilegri, eða kulda-
legri. Hve augnatillitin myndu
verða ólík því, sem er! Þá hyrfu
flærðarbrosin og uppgerðarláta
lætið, vinarbrosin auðþekktari.
Þá væri hægt að greina rétt frá
röngu, falsið frá því sanna,
sannleika frá lýgi. í einu orði
sagt, þ'á væri hver nauðbeygð-
ur að koma til dyranna, eins og
hann er klæddur.
„BÚAST MÁ VIÐ, að langt
verði þangað til mennirnir geta
séð hvor í annars huga, en trú-
legt er, að það geti verið mögu-
legt, og verði einhverntíma stað
reynd. En þá verða menn líka
orðnir betri, hjörtun hreinni,
og menn því ekki nauðbeygðir
til að loka huga sínum hver fyr-
ir öðrum með því að sýnast aðr-
ir en beir eru. Þegar kærleik-
urinn fær yfirhöndina og við
förum að lifa og starfa í kær-
leika, þá þurfum við ekki að
nota yfirhylmingarduluna, sem
því miður virðist vera of al-
menn ílík.
að minnsta kosti, leggjum mikla
áherzlu á að skreyta okkur hið
ytra. Það má segja, að það er
stórkostleg breyting orðin á út-
vortis búnaði í seinni tíð. Gamla
fólkið, sem við nefnum svo, þótt
við séum naumast frá þeirri
nafnbót vaxin sjálf, ólst upp
við miklu minna skart og prjál,
og eyddi færri krónum, en við
„unga fólkið“ til að skreyta ut-
anverðuna með. Og ég get alls
ekki láð því, þótt því blæði í
augum, þegar það sér æskuna
meta fatafegurðina, armbönd
og alla dýrð, svo mikils, að hún
hleypur sér í skuldir til að
svala hégómagirni sinni.“
„EKKI ER ÉG á móti því, í
sjálfu sér, að fólk skreyti sig-dá-
lítið, þeir sem það geta efn? ‘
anna vegna. En þó er spurning
hvort fjármununum sé ekki bet
ur varið til annars, við skulum
segja til að efla almenningsheill
ir. Og víst er um það, að við er-
um ekki vel ánægð með maura-
púkana, sem verja fé sínu til að
fita sig eina, ef þeir þá tíma
því, aða öðrum kosti liggja á
maurunum. —
FEGURÐ ARTILFINNIN GIN
er virðingarverð og góð, en
bak við hana verður að vera
hreint hjarta. Varla er hægt að
láta sér detta í hug, að nútíðar-
skrautið, hégómatildrið, sé
sprottið af sannri fegurðartil
finningu, heldur bara til að láta
aðra sjá sig og dást að sér. Eins
og Indíánar og aðrar villiþjóðir,
sem mála nakinn líkama sinn
með öllum mögulegum litum,
skreyta sig fuglafjöðrum og ýms'
um skrautgripum, til að sýnast
fallegir á mannamótum.
MINNA MÁ Á ÝMS mikil-
menni heimsins, er með breytni
sinni hafa vottað, að þeir hafi
borið hreint hjarta í brjósti
sínu, að þeir hafi allir undan-
tekningarlaust einskis metið hið
ytra fegurðarprjál og þar virðist
mér þeir hafi einn vott mikil-
mennsku sinnar. Ý?iti allir, að
ytri fegurð hefur ekkert gildi.
Það sem hefur gildi er innri
fegurð, hreint hjarta. Við höf-
um svo oft séð, bæði af sögunni
og eigin reynslu, að köldu og
kærleikslausu hjörtun, slá slög-
in sín stundum í fagurlega bún-
um brjóstum. Við sjáum stund-
um saurugu hendurnar með
glitrandi gullið á hverjum
fingri, fögur orð hrjóta af flá-
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
MEÐ KRISTJÁNI KON-
UNGI TÍUNDA, sem lézt
eftir langa vanheilsu síðast
liðið sunnudagskvöld, er fall
inn í valinn ástsælasti knn-
ungur, sem Danir ha'fa átt,
og einn • þeirra konunga á
Norðurlöndum, sem mesta
virðingu hafa áunnið sér uti
um heim.
Þá ást og þá virðingu á-
vann Kristján konungur sér
ekki með hermennsku og
landvinningum. sem fyrr á
öldum þotti nauðsynlegt til
þess, að verða frægur og vin
isæll þjóðhöfðingi. Hann vár
alla tíð friðarkonungur, sem
af fremsta megni reyndi að
halda landi sánu og þjóð ut--
an við valdabaráttu og styrj
aldir stórveldanna, þótt það
tækist ,að vísu ekki 1 hinni
nýafstöðnu styrjöld; og um-
fram allt var hann fólkstjórn
arkonungur á nútima vísu,
sem hélt sér stranglega á
grundvelli þingræðis og lýð-.
ræðis, tók einlægan þátt a fé-
lagslegum framförum þjóð-
ar sinnar, sem aldrei hafa
orðið neitt svipaðar og í
stjórnartíð hans, og um-
gekkst alþýðumenn eins og
jafningja sína.
En þó að Kristján tíundi
væri enginn herkonungur að
gömlum hætti, sýndi hanfi
það á ófriðarárunum, er
land hans hafði verið her-
numið, hvílik hetja og karl-
menni hann var. Með festu
sinni og virðuleik við hinn
erlenda innrásarher varð
hann þiað bjarg, sem danska
þjóðin byggði á trú sima og
von um betri tíma, tákn hinn
ar þjóðlegu baráttu fyrir
endurheimt frelsisins, sem
hann eftir fimm þungbær
hemámsár var svo hamingju
isamur að lifia. Þótt ekki
hefði hann ríkt nema þessi
fimm ár, myndu þau ein
hafa nægt til þess, að gera
hann dönsku þjóðinni ó-
gleymgnlegan og ávinna hon
um almenna virðingu úti um,
heim.
*
íslenzka þjóðin tekur ein-
lægan þátt í þjóðarsorg
Dana við fráfall þessa mik-
állhæfa konungs. Hann var
þar til fyrir tæpum þremur
árum eimnig hennar konung
ur og sýndi henni, meðal
annárs með endurteknum
komum hingað, meiri vel-
vild og umhyggju en nokk-
ur annar konungur á undan
honum; enda ávann hann
sér miklar persónulegar vin-
sældir hér.
Það var og síður en svo
persóna konungs, sem olli
því, að konungssambandinu
við Danmörku var slitið og
VIÐ NÚTÍÐARBÖRNIN, sum
lýðveldi stofnað hér á landi.
Að því hafði verið stefnt á
yfirlýstan hátt og að því
hnigu öll söguleg rök fyrir
íslenzku þjóðina. En víst
myndu allir íslendingar hafa
óskað þess, ekki sízt vegna
þeirra vinsælda -og virðing-
ar, sem Kristján konumgur
naut hér, að skilnaðurinn og
Iýðveldisstoínunin hefði
mátt verða á öðrum tíma;
Framhald á 7. síðu.
við það varð þó ekki ráðið.
En því meiri hefur hróður
Kristjáns tíunda orðið hér á
landi af þeim drengilegu.
árnaðaróskum, er íhann sendi
íslenzku þjóðinni að skilnaði
á s-tofndegi lýðveldisins; því
að siðan hefur öllum íslend
ingum verið það Ijóst, að
þannig hefði enginn konun-g
ur breytt nema sá, sem var
sannkallaður höfðingi.
ÞriðjUdagur, 22: aprilbl847iU
Tek heimlJii mín
sængurkonur.
Uppl. á Framnesveg 38. Sími 7745.
Tunnur til upphölunar á steypublöndu
fyrirliggjandi.
Arinbjörn Jónsson Heildverzlun
Laugaveg 39. — Sími 6003.
NOKKUR SÍLDVEIÐISKIP geta komizt til
löndunar á Djúpavík og Dagverðareyri
næsta sumar. Hvor síldarverksmiðja hefur
tvö sjálfvirk löndunartæki og vinnsluaf-
köstin verða á sólarhring í sumar ca. 6000
mál á Djúpavík og 5000 mál á Dagverðar-
eyri. Þeir útgerðarmenn, er hafa hug á að
leggja síldarafla skipa sinna upp á þessum
stöðum á næstu síldarvertíð, semji góðfús-
lega um það fyrir 10. maí næstkomandi við
* verksmiðjustjórann á Djúpavík eða Dag-
verðareyri, eða við skrifstofu Alliance h/f
í Reykjavík.
fyrir spónlímingar 100x200 cm. 3 mm.
fyrirliggjandi.
Arinbjörn Jónsson Heildverlzun.
Laugaveg 39. — Sími 6003.
HÚS OG ÍBÚÐIR
hef ég til sölu við eftirtaldar götur: Hús við
Karlagötu, 2 þriggja herbergja íbúðir lausar. ,
Ibúð við Víðimel, ekki laus, sanngjarnt verð.
íbúð við Sörlaskjól, 3 herbergi á hæð og tvö í risi.
íbúð við Hjallaveg, þriggja herbergja efri hæð og
ris í tveimur húsum í smíðum í Hlfðunum. Loks
hef ég sænsk timburhús ásamt lóðarréttindum.
Baldvin Jónsson, hdl.
Vesturgötu 17. Sími 5545.
Birupilur
úr alúmíníum á þök og veggi. Allar stærð-
ir. Seldar gegn gjaldeyris- og innflutn-
ingsleyfum.
Arinbjörn Jónsson Heildverzlun.
Laugaveg 39. — Sími 6003.