Alþýðublaðið - 22.04.1947, Page 8
Ákureyri raf-
magnslaus síð-
an á sunnudag.
Einkaskeyti frá AKUREyRI
í gær.
RAFMAGNSLAUST varð
á Akureyri síðast liðið sunnu
dagskvöld og er það enn.
Leiksýning stóð yfir í sam-
komuhúsinu þegar rafmagn-
ið bilaði og skemmtanir stóðu
yfir í öllum öðrum samkomu
húsum bæjarins, og stöðv-
aðist allt í miðjum klíðum.
Ókunnugt er um hvað bil-
að hefur.
Þriðjudagur 22. apríl 1947
Skákmóí Hafnar-
■ fjarðar
SKÁKMÓT HAFNAR-
FJARÐAR hófst síðastliðinn
mánudag. Þátttakendur eru
alls 22, og keppt er í þrem
flokkum, meistaraflokk, 1 og
2 flokk, og er annar flokkur
tvískiptur. í meistaraflokki
eru þrír þátttakendur, þrír í
1., og 16 í öðrum flokki.
í fyrstu um ferð - meistara-
flokks varð jafntefli milli
Kristjáns Andréssonar og
Jóhs Kristjánsson. í annarri
umferð vann Jón Kristjáns-
son Sigurð T. Sigurðsson, og
í þriðju umferð. vann Krist-
ján Sigurð.
í fyrsta flokki varð bið-
skák milli Sigurgeirs Gísla-
sonar og Guðmundar Þor-
lákssonar, síðan vann Jónas
Hallgrímsson Sigurgeir, og
loks vann Guðmundur Jónas.
í fyrsta og meistaraflokki
verða tvöfaldar umferðir.
Næst verður teflt á mánudag.
Síðasfa söngskemmf-
un borsfeins Hann-
essonar.
ÞORSTEINN HANNESON
tenórsöngvari heldur síðustu
söngskemmtun sina í Tripoli
1 kvöld klukkan 9.
Þorsteinn er búinn að
ihalda hér þrjár söngskemmt
anir við mjög góðar viðtök-
Hraunið úr Heklu er nú að>
eins fjóra km. frá Næfurholíi,
------
Mikil gos very yfir lielgina ©g virSist
SiraynfléSi® fara hratt.
12 vindstfg í Reykja
í gær.
SÍÐAN fyrir helgi hafa stcðugt verið mikil gos í
Heklu og virðist hraunflóðið fara hratt. Telur bónd-
inn í Næfurholti að ekki séu nema 4 kílómetrar frá
bænum. bar að hraunbrúninni.
' Samkvæmt viðtali við
Fellsmúla í gær, voru miklir
eldar í fjallimu um helgina,
og fylgdi því mikið grjót-
flug. Nokkur aska féll þar í
fyrradag. Telja menn á Fells-
múla að dynkimir hafi aldrei
verið jafn miklir og síðustu
daga; t. d. hafa bæjarhús
aldrei titrað þar fyrr en í
gær og í fyrradag. í gær
voru dynkirnir þó strjálli,
en afar miklir- þegar þeir
komu. Var þykkur reykjar-
mökkur upp úr gígnum í
toppi fjallsins, en líktist
meira gufu úr gígnum í suð-
vesturöxlinni.
IVIikll
Vestfjörðum.
NORVESTANVINDUR og
víða rok gekk yfir Norður-
og Vesturland í gær. Mest
varð veðurhæðin á Reykja-
víkurflugvellinum 12 vind-
stig síðdegis í gær. Annars
var veðurhæðin víðast vest-
an lands 7—9 vindstig, en
8—10 vindstig á Norður-
og Norðvesturlandi.
Samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofunni var kaldast
á Vestfjörðum. Þar var 3ja
stiga frost og mikil snjókoma,
en á Austurlandi og Suðaust-
urlandi var rigning og 6—7
stiga hiti. Veðurhæðin var
þar víðast ekki nema um 3
—5 vindstig.
Ekki er enn vitað um neitt
tjón, sem hlotizt hafi af
veðrinu. Samkvæmt viðtali,
sem blaðið átti við Slysa-
varnarfélagið í gær, munu
allflestir bátar hafa verið í
höfn, og ekki hafði þá bor-
izt fréttir um neitt tjón á
landi.
Eitthvað mun þó hafa ver
ið um símabilanir í gær. T.
d. var símasambandslaust
við Siglufjörð og Patreks-
f jörð.
I' kvöld syngur hann lög
'eftir Schumann,'- Puccini,
ur áheyrenda, enda er hannjVerdi og lög eftir innlenda
nú kominn í röð okkar beztu höfunda. Við hljóðfærið er
söngmanna. dr. Urbantschitsch.
Samkvæmt viðtali, er Fe'lls
múli átti við bóndann í Næf-
urholti, eru nú aðeins 4 kíló-
metrar þaðan frá-bænum að
hraunbrúninni og virðist
hraunflóðið fara hratt. .
Frá Ásólfsstöðum sást ekki
vel til fjallsins í gær, en
þaðan sáust eldarnir einnig
vel um helgina. Virtist fólki
þar, sem dynkirnir fara vax-
andi í gær, eftir því sem á
daginn leið.
Sfeingrímur Arason
og frú hans, fyrstu
heiðursféiagar
Sumargjafar.
Hörð keppni og góðir árangrar
' sundmeisfaramótinu í gær.
SUNDMEISTARAMÓT ÍSLANDS hófst í gærkvöldi
og var þá keppt í 7 greinum. Keppni var hörð í mörgum
greinum og árangrar góðir.
Meistari í 100 m. skrið-*--------------------
sundi karla varð Ari Guð-
mundsson, Ægi á 1:03,5 mín.;
í 200 m. bringusúndi karla
Sigurður Jónsson, K.R., á
3:01,4 mín.; í 100 m. bak-
sundi karla Clafur Guð-
mundsson, Í.R., á 1:21,4 mín.;
4x50 m. boðsundi karla sveit
Ægis a 1:57,8 mxn. MÁLVERKASÝNINGU
Motið heldur áfram annað Félags íslenzkra frístnda-
kvöld. [ málana lauk í gærkveldi og
A 5. þúsund manns
sáu sýningu frí-
stundamálara.
Hér sjást hinir frægu lifverðir Danakonungs fyrir framan
Amalienborg í Kaupmannahöfn. Það v.ar i þessari höll,
sem Kristján X. lézí.
Sumargjöf hefur 19 skemmfanir í
13 húsum á sumardaginn fyrsta.
.- -----
53 þúsund dvalargestir á héimilum fé-
lagsins síðast íiðið ár.
STEINGRÍMUR ARASON
og kona hans, Sína- Arason,
voru kjöriri heiðursfélagar
Barnavinaféfagsins Sumar-
gjafar á aðalfundi félagsins
síðast liðinn föstudag, og
eru þau fyrstö heiðursfélagar
Sumargjafar.
Steingrímur Arason var
einn af stofnendum Sumar-
gjafar og var formaður fé-
lagsins í 16 ár. Hefur hann
méð stuðningi konu sinnar
unnið ómetanlegt brautryðj-
andastarf í þágu félagsins og
uppeldismála í landinu.
höfðu þá sótt sýninguna
nokkuð á fimmta þúsund
manns og á milli 20 og 30
málverk seldust.
Á sunnudaginn sóttu sýn-
inguna um 1200 manns þrátt
fyrir slæmt veður, og var
henni því framlengt þar <t*il
i gærkvöldi, en þá höfðu
sótt hana um 4500 manns.
EINS OG AÐ UNDANFÖRNU gengst Barna-
vinaféla'gið Sumargjöf fyrir fjölbreyttum hátíða-
höldum á sumardaginn fyrsta og hefjast þau með'
skrúðgöngu barna frá Melaskólanum og Austurbæj-
arskólanum kl! 12,45. Þá verða inniskemmtanir fyrir
börnin um daginn og dansleikir um kvöldið í sam-
komuhúsum bæjarins. Alls verða skemmtanir Sumar
gjafar þenn'an dag 19 og fara þær fram í 13 húsum.
Þetta er í 24. sinn, sem
Sumargjöf efnir til hátíðar-
halda fyrir börn höfuðstað-
arins á sumardaginn fyrsta,
en tilgangur félagsins er sá,
— auk þess að skemmta
börnunum þennan dag, — að
afla fjár til þeirra mann-
bótastarfa, er Sumargjöf
vinnur með dagheimilum
sínum. Á þeim árum, sem fé-
lagið hefur starfað, hafa um
5000 börn dvalið á heimilum
þess, og á síðastliðnu ári
sóttu 488 börn heimilin.
Dvalardagar barnanna á hin-
um 7 stofnunum félagsins
voru á síðasta ári nálega 53
þúsund.
Á miðvikudaginn verður
Barnablaðið selt á götum
bæjarins, en í því er birt dag-
skrá hátíðarhaldanna, auk
ýmissa greina. Tímaritið Sól-
skin kemur nú út í átjánda
sinn og er fjölbreytt að efni.
Eins og áður segir, hefjast
hátíðarhöldin með skrúð-
göngu barna frá Austurbæj-
arskólanum og Melaskólan-
um. Lúðrasveitir leika fyrir
skrúðgöngunum, en kennar-
ar skólanna ganga með börn-
unum. Skólastjóri Melaskól-
ans hefur beðið blaðið að
minna á í þessu sambandi,
að börnin eru beðin, að safn-
ast saman á leikvangi skólans
kl. 12.40, og er skólabörnum
heimilt að taka með -sér syst-
kini sín á aldrinum 5—7 ára.
Þegar fylkingarnar „hafa
mætzt við Austurvöll, leikur
þar lúðrasveit og borgar-
stjóri flytur oræðu af svölum
Alþingishússins, og verður
henni útvarpað. Klukkan
1.45 hefjast inniskemmtan-
irnar, >og er dagskrá þeirra
birt í Barnablaðinu eins og
áður segir. Alls eru það
nokkuð á þriðja hundrað
manns, sem skemmta á veg-
um Sumargjafar þennan dag.
Einn liðurinn í skemmtunum
dagsins er sýning á barna-
ileikritinu ,,ÁlfafeIl,“ sem
Leikfélagið er byrjað að
sýna, og hefur það boðizt til
að sýna það fyrir Sumargjöf
þennan dag.
Loks má geta þess, að
merki Barnadagsins verða
seld á götunum allan daginn,
og verða þau afhent í barna-
skólunum. Verð merkjanna
er 3 og 5 krónur.
Samúðarkveðjur
íslenzkra stjórn-
arvalda.
FORSETI ÍSLANDS hef-
ur sent Alexandrine ekkju-
drottningu og Fiðriki kon-
ungi samúðarskeyti út ai£
fráfalli Kristjáns ko.nungs.
Þá ihefur forsætisráðherra
Stefán Jóhann Stefánsson
sent Knud Kristensen, for-
sætisráðherra Dana, skeyti
og vottað Ihonum og hinni
dönsku þjóð samúð sína.
Loks gekk Bjarni Bene-
diktsson utanrikisráðherra í
gær á fund sendiherra Dana
til þess að votta honum sam
úð vegna andláts konungs.