Alþýðublaðið - 15.05.1947, Síða 7
Fimmtudaginn 15. maí 1947
ALÞÝÐUBLAÐ8Ð
7
Bærinn í dag.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs-
Apóteki.
Næturakstur annazt BSR,
'sími 1720.
Helgidagslæknir er Jóhannes
Björnsson, Hverfisgötu 117, sími
6489.
Á MORGUN.
Næturakstur annazt Hreyfill,
sími 6633.
20.30 Útvarpssagan: „Örlaga-
brúin“ eftir Thornton
Wildér, V. (Kristmann
Guðmundsson skáld.)
21.00 Strokkvartett útvarpsins:
Stef með tilbrigðum eft-
ir Beethoven.
21.45 Frá útlöndum (A. Th.).
21.35 Tónleikar (pl.).
21.40 Ljóðaþáttur — (Andrés
Björnsson).
22.00 Fréttir.
22.05 Symfóníutónleikar (pl.)
a) Píanókonsert eftir Beet-
, hoven.
b) Orustusymfnían eftir
sama.
23.00 Dagskrárlok.
Sú misprentun
varð í blaðinu í gær, að
sagt var, að garðurinn við
Kennaraskólann yrði opnaður
fyrir almenning. Það átti að
verða garðurinn við Kvenna-
skólann.
SKIPAÚTCeRf)
RIKISIWS
M.s. Grótta
TekiS á móti flutningi til
Patreksfjarðar, og Bíldudals,
Þingeyrar, Flateyrar og ísa-
fjarðar fram til hádegis á
morgun.
Kross úr Hekluhrauni
á leiði Jónasar.
Sigurjón gæðir
bíaðamönnum á
skyri með rúsín-
um íc
SIGURJÓN Á ÁLAFÖSSI
hefur uppgötvað þá stór-
merkilegu staðreynd, að
Hekla gaus hálfu ár*i eftir
dauða Jónasar Hallgrímsson
ar, og svo ekki aftur fyrr en
hálfu ári eftir hehnkomu
hans. Hefur Sigurjón því á-
kveðið að reisa Jónasi eld-
minnisvarða úr hrauni
Heklu, sem hann hefur mót-
að í kross, þrýst peningum í
og stungið í hnífum.
Frá þessu skýrði Sigurjón
við kvöldmáltíð, er hann
hélt köppum sínum og blaða-
mönnum í Oddfellow-höll-
inni (uppi ) í gær. Á borði í
salnum hafði Sigurjón hlað
ið hraunmolum í kringum
rauða peru, sem á var klínt
lakki, svo reyk lagði upp af
’henni á dularfullan hátt.
Þarna voru hraunmolar, sem
lýðveldismynt hafði verið
þrýst í, innpakkaðir í gagn-
sæjan pappír, og þarna voru
hraunmolar, sem hnífum
hafði verið stungið í gegn-
um. „Svona storknuðu þeir“,
sagðd Sigurjón. „Sumir
svona, þessir hinsegin, storkn
uð.u í höndunum á okkur“.
Undir borðum hélt Sigur-
jón fyrst kraftaræðu um rúg-
brauð og geng hveitibrauði,
í og síðan kvatti hann þjóð-
ina til að éta meira skyr. Eft
ir þennan formála skýrði
hann frá því, að hann hefði
farið marga leiðangra til
Heklu, með Víkingum síni-
um, og hefðu þeir aðeins
borðað skyr og rúgbrauð —
nema einn, sem borðaði
hveitibrauð og var sýnu ó-
nýtastur.
Það var 11. maí, að Sigur-
jóni og víkingum hans tókst
að móta hraunið með mikilli
töng, sem þeir höfðu að
vopni, og þurftu þeir að nota
asbestosföt til hlífðar. Sést
marka fyrir krossinum í stór
um hraunmola, en áletrun
krossins vildi ekki festast í
hraunið. Sigurður jarðfræð-
ingur Þórarinsson var að
sögn Sigurjóns viðstaddur,
er þetta átti sér stað, og taldi
hann viðburðinn hinn merki-
legasta.
Auk minnisvarðans yfir
Jónas ætlar Sigurjón að
senda annan Heklukross til
London til brezka álarrann-
sóknafélagsins, en þau vís-
indi eiga innan skamms ald-
ar afmæli.
Þegar hér var komið, var
máltíðinni nær lokið, en hún
var skyr i(mjög gott skyr,
sögðu fréttamennirnir) með
rúsínum í og rjóma út á. En
nú hófst vandræðalegur
flótti frá borðinu og byrjuðu
blaðamenn að afsaka sig með
annríki, þvi að vatnsglös
voru enn á borðum, og mun
þá hafa grunað, að þau væru
ætluð fyrir ála. Sigurjón tók
þessu með þolinmæði og lék
krossfestingu hraunsins fyr-
ir ljósmyndara, en kvaddi
menn svo með virktum.
Samvinnan,
apríl hefti þessa árs er nýkom
ið út. Er það fjölþætt að efni
og myndum. Helzta efni ritsins
ér Heklugosið eftir Pálma
Hannesson. Frá starfsemi Kaup
félags Árnesinga. Frá starfsemi
samvinnunnar í Noregi. grein
eftir Jónas Baldursson. Ferð yf-
ir Atlantshaf, með Reykjavík,
grein eftir Hauk Snorrason. I-
þróttastarfsemi í samvinnufé-
lögum Svíþjóðar. Snjóþyngsli á
Norðurlandi. Grein um kjarn-
orkuvísindin eftir Waldemar
Kaempffert, grein um sam-
vinnusamtök á Norðurlöndum.
Ennfremur er grein um Rama-
dier, forsætisráðherra Frakka,
o. fl.
- Skemmtanir dagsim -
i---------------------------------------♦
Kvikmyndir:
GAMLA BÍÓ „Hnefaleikakapp
inn“. Danny Kaye, Virginia
Mayo, Vera Ellen. Kl. 3, 5, 7
og 9.
NÝJA BÍÓ: — „Móðir mín.“
Benjamíno Gigli. Kl. 7 og 9.
„Við elskum söng“ ■— Bob
Crosby. — Kl. 3 og 5.
TJARNARBÍÓ: „Ég heiti Júlía
Ross“ — Nína Foch, Dame
May Whitty. — Kl. 3, 5, 7 og
9.
BiEJARBÍÓ: „Hollywood Cant-
een“, kl. 7 og 9. — „Heldri
maður einn dag“. Kl. 3 og 5.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: „Le
Capitan“ — Frönsk stór-
mynd kl. 9. •— „Kvennaglett-
ur“ kl. 3,5 og 7.
Söfn og sýningar:
MÁLVERKASÝNING Waistels í
Listamannaskálanum. Opin
kl. 10—10.
MÁLVERKASÝNING Eggerts
Guðmundssonar, Hátúni 11,
opin kl. 1—10.
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ: Opið kl.
13—15.
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ: —
Opið kl. 14—15.
Leikhúsið:
LEIKFÉLAG, REYKJAVÍKUR.
„Ærsladraugurinn“. Sýning
klukkan 8.
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR:
„Álfafell", barnaleiksýning
kl. 4.
MONO-DR AMA: Steingerður
Guðmundsdóttir. Frumsýn-
ing kl. 8. annað kvöld.
HANDKNATTLEIKSMÓTIÐ á
íþróttavellinum kl. 2.
TiVOLI
SKEMMTISTAÐURINN
TIVOLI opinn kl. 2—11,30.
Samkomuhúsin:
BREIÐFIRÐING ABÚÐ:
Skemmtun fyrir gamla fólkið
x Breiðfirðingafélaginu kl. 2
til 6. Skemmtikvöld Hand-
knattleiksflokks kvenna úr
Ármanni kl. 9.
HÓTEL BORG: Dansað frá kl.
9—11,30. Hljómsveit Þóris
Jónssonar.
INGÓLFSCAFÉ: Opið frá kl. 9
árd. Hljómsveit frá kl. 10.
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ: Dans-
leikur kl. 10.
Hljómieikar:
NEMEND AHL J ÓMLEIKAR
Tónlistarskólans í Trípolí kl.
5 síðdegis.
LÚÐRASVEIT REYKJAVÍK-
UR leikur á Austurvelli kl.
3,30.
Úfvarpið:
20.20 Útvarpshljómsveitin (Al-
bert Klahn stjói'nar):
a) Forleikur að óperunni
„Der Freischutz“ eftir
Weber.
b) Canzonetta eftir d’Am-
brosio.
c) Guitari-e eftir Moszkow-
sky.
d) Rússneskur dans eftir
Mussorgs.ky.
20.45 Kvöld Skógi'æktarfélags
íslands: Ávörp og í’æður.
Upplestur. Tónleikar.
22.05 Kirkjutónlist (plötur).
22.00 Fréttir.
22.30 Dagskrárlok.
Alúðar þakkir fyrir sýnda samúð við fráfall og
jarðarför
Skarphéðins Hinriks Elíassonar.
Vandamenn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við frá-
fail og jarðarför mannsins míns,
Fyrir mína hönd, barna minna og annarra vanda-
manna.
Eyjólfs Kristjánssonar.
Guðlín Jóhannesdóttir.
Röskur seudisveinn
éskasf.
Upplýsingar eftir hádegi á föstudag.
Getum bætt við okkur nokkrum bifreiða-
stjórum með meiraprófi til aksturs og til
næturvörzlu.
Eeglusemi áskilin.
Umsóknir sendist til eftirlitsmanna fé-
lagsins, er einnig gefa nánari upplýsingar.
Sfrætisvagnar Reykjavíkur
Uppstigning
margs konar dásemdum.
Hann hefur vakið upp og
vökvað paradísargróður í
iálum mannanna. Og það er
misskilningur, ef menn
tialda, að það sé aðeins á
sviði kirkjumálanna, sem
ECrists hefur gætt. Þú.kemst
akki framhjá honum, hvorki
i vísindum né listum, hvorki
i atvinnumálum né stjórn-
málum. Öllu þessu gat hann
komið til leiðar, einmitt af
því að hann er uppstiginn til
himna. En alls staðar þar
sem áhrif Krists koma til,
þar tjr himininn kominn ofan
á jörðina. Þar verður friður
og farsæld, jöfnuður og
bræðralag. Þar verður jörð-
in að paradís. — Uppstign-
ingardagurinn bendir oss að
horfa til himins, — og ekki
aðeins að horfa þangað,
heldur að fara þangað,
stefna þangað í lifi og dauða.
En Jesús ætlaðist ekki að-
eins til þess að menn stefndu
af jörðinni til himins, heldur
að jörðin sjálf stefndi til
himins og allt, sem á henni
er.
Með því sýnir þú elsku
þína til jarðarinnar, að þú
látir þér annt um allt það,
sem færir jarðlífið nær himn
inum — og nær konungi
himnanna.
Amen.
Fyrsta maí-nefnd
verkalýðsfélaganna: Loka-
fund nefndarinnar verður laug
ardaginn 17. þ. m. kl. 2 e. h. í
skrifstofu fulltrúaráðsins,
Hverfisgötu 21.