Alþýðublaðið - 01.06.1947, Qupperneq 8
dLi v m W'&
Símar: 1135 og 4201.
BÚSÁHÖLD
Hér sjáið þið mynd
af Afríkuöpunum,
eem verða á dýrasýn-
ingunni í Örfirisey,
«em væntanlega verð
ur opnuð næstkom-
aridi sunnudag.
B@rn lanp befur m filfeg
og fullkomin skólahús —
----------------♦-------
segir Arugrímur Kristjánsson eftir
fyrsta starfsár nýja ^lelaskólans.
-------♦-------
MELASKÓLA var sagt upp í gærmorgun — eftir
fyrsta starfsárið í hinni nýju en hálfgerðu byggingu á
Melunum. 824 börn stunduðu þar nám í vetur, jafnframt
því sem urinið var að því að fullgera skólann, en næsta
haust ætti byggingin öll að vera tilbúin, svo að skólinn
geti þá tekið við rúmlega 100 börnum úr skólahverfi hans,
'sem í vetur voru í Mðbæjarskólanum.
,,Mér finnst það hafi sann
azt hjá okkur í velur“, sagði
Arngrímur Kristjánsson
skólastjóri í viðtali við blað-
ið eftir uppsögnina, „að börn
in ganga mun betur um fal-
leg og fullkomin skólahús en
önnur.“
Skólinn hafði í vetur 14
stofur til afnota auk nokk-
Ólafur ríkisarfi, 6er-
hardsen og Hauge
koma hingað.
NORSKI SENDIHERR-
ANN hefur nú tilkynnt ut-
anríkisráðuneytinu, að Ólaf-
ur, ríkisarfi Noregs, sem er
heiðursformaður norsku
Snorranefndarinnar, ■ muni
koma til íslands og afhjúpa
Snorralíkneskið í Reykholi.
Ennfremur verða í norsku
sendinefndinni Ejnar Ger-
hardsen, forsætisráðherra
Noregs, og Kristian Hauge,
landvarnaráðherra Norð-
manna. Sendinefndin kemur
hingað á norsku herskipi.
u (Utanríkisráðuneytið)
urra sérstofa og kennara-
stofa. Ófullgerður er enn
kjallari, þar sem smíðastof-
ur og skólaeldhús verða,
leikfimisalurinn og efsta hæð
in, þar sem elztu bekkirnir
verða, svo og hátíðarsalur,
sem einnig verður leikfimi-
salur fyrir yngstu börnin.
Þegar byggingu skólans
lýkur, verður alveg skilið á
milli yngstu barnanna og
hinna eldri, svo að hvor um
sig hafa sinn inngang og
sinn leikvöll. Er þetta gert
að nokkru leyti eftir enskri
fyrirmynd, og mun þetta fyr
irbyggja þær hættur, sem
gætu verið samfara stórum
skólum.
Fastakennarar voru við
skólann 19, stundakennarar
7. Kennararnir munu fá
stofu í „kringlunni“ við
bygginguna, sem margir hafa
furðað sig á, en auk þess
verður þar fatageymsla fyr-
ir eldri börnin. Meðal nýj-
unga, sem reyndar hafa ver-
ið í skólanum, er lesstofa
fyrir börnin, sern gafst mjög
vel.
Meðal þeirra, sem voru
viðstaddir skólauppsögnina
í gær, voru borgarstjóri og
séra Jón Thorarensen, yfir-
prófdómari skólans.
7164 bifreiðar á öllu landinu —
þar af 4010 í Reykjavík
-------+-------- .
Fdlksbifreiðar eru 3479, en vöru>
bifreiðar atis 3993.
-------4--------
SAMKVÆMT nýútkomnum Hagtíðindum var tala bif-
reiða á öllu landinu í árslok 1946 samtals 7164; þar af voru
4010 skrásettar í Reykjavík. Auk bifreiðanna voru skrásett
546 mótorhjól á öllu landinu, bar af 228 í Reykjavík. Af
öllum þessum bifreiðakosti voru 3479 fólksbifreiðar og
3685 vörubifreiðar.
Nefnd fil að af-
huga þurr-
fiskverkun
NÝBYGGINGARRÁÐ hef
ur í samráði við sjávarút-
vegsmálaráðherra skipað
nefnd til athugunar á bætt-
um aðferðum til þurrfisk-
verkunar.
Nefndarmenn eru: Davíð
Ólafsson fiskimálastjóri, sem
er formaður nefndarinnar,
Guðmundur Eiríksson verk-
stjóri, Ásgeir Þorsteinsson
verkfræðingur, Gísli Hall-
dórsson verkfræðingur og
Sveinn Árnason fiskimats-
stjóri.
Verkefni nefndarinnar er
eftirfarandi:
Að rannsaka og gera til-
lögur um saltfiskverkun eins
og nefndinni lízt bezt á að
verkuninni verði fyrir kom-
ið í framtíðinni. Sérstaklega
verði þá athugað hversu
nota megi nútíma tækni til
þessara hluta og yfirleitt all-
ar þær leiðir, sem geta gert
framkvæmdirnar auðveldari
og ódýrari en verið hefur.
* Bifreiðafjöldinn skiptist
þannig í hinum einstöku
kaupstöðum og sýslum: í
Reykjavík 2395 fólksbifreið-
ar og 1615 vörubifreiðar;
samtals 4010. í Gullbringu-
og Kjósarsýslu og Hafnar-
firði 307 fólksbifreiðar og
427 vörubifreiðar; samtals
734. Á Akranesi 52 fólksbif-
reiðar og 74^ vörubifreiðar;
samtals 126. í Borgarfjarðar
og Mýrasýslu 53 fólksbifreið
,ar og 109 yörubifreiðar; sam
tals 161. í Snæfellsnessýslu
27 fólksbifreiðar og 71 vöru
bifreið; samtals 98. í Dala-
sýslu 17 fólksbifreiðar og 30
vörubifreiðar; samtals 47. í
Barðastrandasýslu 6 fólksbif
reiðar og 27 vörubifreiðar;
samtals 33. í ísafjarðarsýslu
og á ísafirði 57 fólksbifreið-
ar og 57 vörubifreiðar; sam-
tals 114. í Strandasýslu 10
fólksbifreiðar og 33 vörubif
reiðar; samtals 43. í Húna-
vatnssýslu 37 fólksbiíreiðar
og 84 vörubifreiðar; sam-
tals 121. Á Siglufirði 11 fóiks
bifreiðar og 64 vörubifreið-
ar; samtals 75. í Eyjafjarðar
sýsiiu og á Akureyri 232 fólks
bifreiðar og 234 vörubifreið
ar; samtals 466. í Þingeyjar
sýslu 44 fólksbifreiðar og
107 vörubifreiðar; samtals
151. Norður-Múlasýsla og
Seyðisfjörður 16 fólksbifreið
ar og 53 vörubifreiðar; sam-
tals 69. Neskaupstaður 5
fólksbifreiðar og 18 vörubif
reiðar; samtals 23. Suður-
Háfíðahöld sjé-
manna selja svip
á bæinn í dag
HÁTÍÐAHÖLD sjómanna
dagsins munu setja svip sinn
á bæinn í dag. Kl. 8 verða
fánar dregnir að hún á skip-
um við höfnina, en kl. 10,30
fer fram reipdráttur milli
skipshafna fyrir framan há-
skólann. Klukkan 12,45 í
dag safnast sjómenn saman
til hópgöngu við Miðbæjar-
skólann og hópgangan legg-
ur af stað kl. 13,15. Minning
arathöfnin við Austurvöll
hefst klukkan 2.
Hefst athöfnin með því,
að Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur og Guðmundur Jóns-
son syrigur einsöng. Þá minn
ist biskupinn látinna sjó-
manna og lagður verður
blómsveigur á leiði óþekkta
sjómannsins í Fossvogs-
kirkjugarði.
Eftir minningarathöfnina
flytur forsætisráðherrann,
Stefán Jóh. Stefánsson, á-
vap, ennfremur flytja ávarp
fulltrúi f rá útgerðarmönn-
um og fulltrúi starfandi sjó-
manna.
í kvöld verða dansleikir í
flestum samkomuhúsum bæj
arins og verður útvarpað frá
hófi sjómanna að Hótel
Borg, en þar á eftir verður
útvarpað ræðum, ávörpum,
tónleikum og upplestri úr
útvarpssal.
Sjómannadagsblaðið og
merki sjómannadagsins
verða selda á götum bæjar-
ins allan daginn, og verða
bæði blaðið og merkin af-
hent þeim sem vilja selja
þau, í Verkamannaskýlinu
frá klukkan 9 árdegis.
Herbergisgjöf lil
Hallveigarciaða
í GÆRMORGUN barst
frú Steinunni H. Bjarnason
10 þúsund króna herbergis-
gjöf til Hallveigarstaða. Er
gjöf þessi gefin til minning-
ar um frú Magdalenu Jónas-
dóttur, Sauðlauksdal, og
dóttur hennar, Jórunni Þor-
valdsdóttur. Gefandinn hef-
ur óskað þess að nafns síns
væri ekki getið.
Múlasýsla 27 fólksbifreiðar
og 80 vörubifreiðar; samtals
107. Skaftafellssýslur 24
fólksbifreiðar og 104 vöru-
bifreiðar; samtals 128. Vest-
mannaeyjar 11 fólksbifreið-
ar og 55 vörubifreiðar; sam-
tals 66. Rangárvallasýsla 30
fólksbifreiðar og 88 vörubif-
reiðar, samtals 118. Árnes-
sýsla 91 fólksbifreið og 252
vörubifreiðar; samtals 343
bifreiðar.