Alþýðublaðið - 10.08.1947, Qupperneq 2
2
ALÞÝÐUBLAÐBÐ
Sunmidagur 10. ágúst 1947
Heljarstökk
Fyrir skömmu henti geðbilaður
og þar að auki ölóður maður
sé fram af fimm hæða húsi í
Málmey í Svíþjóð, svo sem
myndirnar sýna. En svo lengi
hafði hann verið að undirbúa
heljarstökkið uppi á þaki húss-
ins, að lögreglan var komin á
vettvang með segl, og féll mað-
urinn á það. Hlaut hann ekki
nema minni háttar meiðsli. Á
efri myndinni sést m.aðurinn
uppi á þakbrúninni, áður en
hann henti sér fram af henni;
en á þeirri neðri sést hann í
fallinu.
Um 1700 manns hafa
skoðað Akureyrar
kirkju á tæpum
mánuði. 7
Frá fréttaritara Alþýðublaðs-
ins á AKUREYRI
Á SEYTJÁNDAHUNDR
AÐ gestir hafa skoðað Akur
eyrakirkju á tæpum mánuði,
sem kirkjan hefur verið opin
fyrir ferðamenn, og gestabók
hefur legið þar frammi.
Eins og áður hefur vefið get
ið, hefur óvenju mikill fjöldi
ferðafólks heimsótt Akureyri
í sumar. Hefur ferðafólkið
flest lagt leið sína upp í hina
fögru kirkju bæjarins og er
kirkjan opin ferðamönnum
alla daga en organisti kirkj-
unnar, Björgvin -Guðmunds-
son, tónskáld leikur á kirkju
orgelið einn klukkutíma á
degi hverjum.
Sóknarnefndin hefur tekið
,upp þann nýja hátt, að hafa
(gestabók liggjandi frammi í
forkirkjunni, og er til þess
ætlazt, að þeir, sem heim-
sækja kirkjuna, riti nöfn sín
í bókina. Þótt langt sé frá
því, að allir geri það, hafa á
seytjánda hundrað manns
ritað nöfn sín í gestabókina
þann tæpa mánuð, sem
gestabókin hefur legið
frammi.
Þá hefur sóknarnefndin
enn fremur látið prenta
leiðarvísi, ókunnugum til
fræðslu og til minnngar um
heimsóknina í kirkjuna, og
eru í leiðarvísinum myndir
af kirkjunni bæði að utan og
innan.
Yfirleitt gengur ferðafólk-
ið um kirkjuna með prýði,
en þó eru undantekningár
frá því.
Danakonungur sæmir
Ágnar Kl. Jónsson
FRIÐRIK IX. Danakon-
ungur hefur sæmt Agnar KI.
Jónsson, skrifstofustjóra í ut-
Kaupdeilan á
Bíidudal leyst
í GÆR var undirritaður
samningur um kaup og kjör
milli verkalýðsfélagsins
Vörn annarsvegar og Suður-
fjarðahrepps, hraðfrystihúss
ins, niðursuðuverksmiðjunn-
ar og fiskimjölsverksmiðjunn
ar hins vegar.
Breytingar frá eldri samn-
ingi eru: Grunnkaup karla í
almennri vinnu hækki úr
2.40 kr. á klukkustund í
2.56; skipavinna hækki úr
2.75 í 2.85 kr. Nýr liður; út
og uppskipun á kolum, salti
og sementi 3.24 og kaup
drengja 15 til 16 ára kr. 2.10.
Grunnkaup kvenna hækki úr
1.75 í 1.92 á klukkustund,
mánaðarkaup karla og
kvenna hækki hlutfallslega.
Smningurinn gildir í 6 mán-
uði. Einn atvinnurekandinn,
h.f. Maron, hefur ekki enn
undirritað samninginn. Eft-
irvinna greiðist með 50%
og nætur og helgidagavinna
100% uppbót á dagvinnu-
kaup í öllum liðum.
RÚM VIKA er nú liðin síð
an Trípólíbíó tók til starfa,
en það hóf sýningar á ensku
kvikmyndinni „Jerico“ með
Paul Rohinson, negra söng-
varanum fræga, síðastliðinn
laugardag.
Aðsókn að þessari mynd hef
ur verið mjög mikil var hún
sýnd á öllum sýningum til
föstudags, og síðan hefur hún
verið sýnd á einni sýningu á
dag og hefur jafnan verið hús
fyllir.
Önnur myndin, sem Trí-
pólibíó sýnir nefnist ,,Vér
syngjum og dönsum og hóf-
ust sýningar á henni síðast-
liðinn föstudag. Þessar tvær
myndir verða sýndar í bíóinu
nú um helgina.
anríkismálaráðuneytinu Kom
mandörnafnbót Dannebrogs
orðunnar af fyrstu gráðu,
fyrir gott starf hans í þágu
dansk-íslenzkrar samvinnu.
Brun, sendiherra Dana af-
henti Agnari Kl. Jónssyni
heiðursmerki þetta í kvöld-
boði er haldið var í danska
sendiráðinu hér til heiðurs
Kauffmann, sendherra, en
Agnar starfaði með honum
um skeið við sendisveit Dana
í Washington.
Pétur Sigurðsson:
Kveðja til Víkverja.
Eftirfarandi hefur blaðið
verið beðið fyrir til birting-
ar:
HR. VÍKVERJI! Mikinn
greiða gerðuð þér sjálfum yð-
ur, ef þér hættuð algjörlega
að minnan á áfengismál í dálk-
um yðar í Morgunblaðinu, ’því
að þótt slík fáránleg skrif
kunni stundum að ergja okkur
bindindismenn, þá hlj.óta þau
þó að skaða sjálfan yður
meira.
Hver einasti óvitlaus maður
hlýtur jafnan að sjá, hve at-
hugasemdir yðar um þessi mál
-eru oft fáránleg og yður til
minnkunar. Tökum t. d. þá
síðu'stu, sem ég hef séð.
Þér eruð að minnast á bréf-
merki þau, sem við Samvinnu
nefnd bindindismanna höfum
gefið út, án þess þó að hafa
nokkru sinni séð orð um slíkt
frá yður. Að þessu sinni lítur
út fyrir, að þér ætlið nú að
segja einhver viðurkenningar-
orð um 'tiltæki okkar, en allt
af skal vitleysan kóróna það.
Hugsið nú vel þessa athuga-
semd yðar:
„Það gæti nú verið, að gár-
ungarnir hentu þessu á milli
sín og reyndu að teygja það
eitthvað. T. d. mætti spyrja, i
hvort skemmdarverkafélags-
skapurinn Irgun Zwai Leumi
sé óvitafélag. En hugmyndin
er sem sagt alveg óvit-laus.“
Þetta er sagt, sem athuga-
semd við það sem á merki
okkar stóð: „Áfengið veldur
óviti, en óvitið skemmdar-
ver'kum og slysum.“
Haldið þér nú, að nokkur
gárungi sé svo vitlaus, að
hann baldi að öll skemmdar-
verk séu áfengisóvitinu að
kenna? Hefur nokkrunr manni
dottið slíkt í hug? Hvers
vegna svo þessa fráibæru at-
hugasemd yðar? Veit ekki
allur heimurinn, að á öllum
öldum hafa alls konar skemmd
arverk verið framin af ráðnum
hug og með fullu viti, eíftir
því, sem mönnum er vit gefið.
En slíkt haggar ekki við
þeirri staðreynd, að áfengið
sviptir menn ráði og rænu, svo
að þær fremja oft skemmdar-
verk í óviti sínu. Eg held ekki
að gárungar séu svo vitlausir,
að þeir skilji þetta ekki. En
það er athugasemd yðar, sem
er óskilj anleg, nema frá einu
sjónarmiði. Það er betra ekki
að tala, en tala þannig.
Pétur Sigurðsson.
JVýju sundfötin
Þa5 er ameríska kvikmynda-
stjarnan Patricia Alphin, sem
hér sýnir sig í nýju sundfötun-
um sínum.
Munið livoli.
Kaupum tuskur
Baldursgötu 30.
Ný lúða
á morgun.
FISKBÚÐIN.
Hafliði Bakh'msson.
Hverfisgötu 123. Sími 1456.
Kominn heim
Lögíræðinpr
eru- beðnir að koma á fund í 1. kennslu-
stofu háskólans þriðjudagínn 12. ágúst kl.
8,30 e. h.. til að kveða á um þátttöku ís-
lendinga í norrænu lögfræðingamóti í
Kaupmannahöín 1948.