Alþýðublaðið - 10.08.1947, Síða 4
ALbÝBUBUIHíi
Sunnudagnr JO. ágúst 1947
Útgefandi: Alþýáuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Fr.kv.stj.: Þorvarður Ólafsson.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Framkvæmdastjórasími: 6467.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Þar, sem gríman er
fallin.
För erlendu útvarpsmannanna um landið. —
Hvergi eins vel tekið í Evrópu og hér. — Þor-
steinn skrifar um flakk og kemur með fyrir-
spurnir. Nauðsyniegt að aðvara fólk, sem ytra er.
MENN eru í seinni tíð
orðnir vanir því að heyra sitt
af hverju um bardagaaðferð-
ir og vinnubrögð ofstækis-
flokka og löngu hættir að
kippa sér upp við flest af
því. En engu að síður mun
mörgum hafa blöskrað, er sú
frétt barst frá útlöndum í vik
unni, sem leið, að kommún-
istablöð suður á Grikklandi
hefðu birt hreina og beina á-
skorun til lesenda sinna um
að m y r ð a þrjá af ráðherr-
um grísku stjórnarinnar, sem
kommúnistar telja sér
þyngsta í skauti.
í öllu siðleysi stjórnmála-
baráttunnar á hinum síðustu
og verstu tímum póltískrar
ofsatrúar og ofbeldishneigðar
er með slíkri áskorun að
minnsta kosti sett nýtt met,
sem til þess er fallið, að vekja
til alvarlegrar umhugsunar
og framkalla þá spurningu,
ekki aðeins hjá andstæðing-
um kommúnista, heldur og
hjá fylgismönnum þeirra,
hvort hér sé lengur um stjórn
málaflokk að ræða, — hvort
blöð og flokkar, sem siík
vinnubrögð boða og verja séu
ekki komin út á braut hreinna
og beinna glæpa og hermdar-
verka.
*
íslenzkir blaðalesendur
munu máske hugsa sem svo,
að Grikkland og ísland séu
sitt hvað, og hér geti slíkir
hlutir ekki skeð. En það eru
þó ekki nema tveir dagar síð
an Þjóðviljinn birti án
nokkurrar sýnilegrar van-
þóknunar fréttina af áskorun
hinna grísku bræðrablaða
sinna um að „fjarlægja“, eins
og hann orðaði það svo hátt-
víslega, þrjá af ráðherrum
grísku stjórnarinnar; og þó
að íslenzkir kommúnistar séu
af mörgum álitnir vera fínir
menn, þá er þó heldur ekki
liðið nema tæpt ár síðan þeir
gerðu nokkra .tilraun til þess,
að „fjarlægja" með aðför og
grjótkasti einn af þáverandi
ráðharrum íslenzku stjórnar-
innar og ganga svo frá öðrum
áhrifamanni í flokki hans, að
við hann þyrfti ekki að fást í
framtíðinni.
Það er því ekki alveg, víst,
að það hugarfar, sem lýsir sér
í áskorun grísku kommúnista
blaðanna sé með öllu óþekkt
hér, þó að gætilegar sé hag-
að orðum; enda er það kunn-
ara en frá þurfi að segja, að
kommúnistar allra landa eru
aldir upp í sömu trú og sama
ERLENDU útvarpsmennirnir,
sém hér hafa dvalið í þrjár
vikur, eru nú farnir heimleið-
is. Þeir ferðuðust víða um
Suðurland, 'dálítið um Suð-
Vesturland og allmikið um
Norðuj-land. Þeir heimsóttu
orkuver, verksmiðjur, fagra
staði. Þeir áttu viðtöl við hænd
ur og bændahúsfreyjur, for-
ystumenn á ýmsum sviðum í
atvinnumálum, stjórnmálum,
bókmenntum og vísindum. Fóru
og til Sigluf jarðar og töluðu þar
við síldveiðisjómenn.
ÞRÍR útvarpsmanna, Svíi,
Finni og Norðmaður, sem allir
eru úr fyrsta flokki útvarps-
starfsmánna á Norðurlöndum,
fóru allar þessar ferðir. Einn,
Daninn, kom síðar en þeir, og
fór fyrr en þeir. Hann starf-
aði ekki mikið, enda má segja,
að forstöðamaður fréttastofu
danska útvarpsins, Niels Grunn-
et, sem var hér í fyrrasumar,
hafi tekið það helzta, sem hægt
var að fá, enda var mikið í
danska útvarpinu fyrir hans
atbeina í fyrrahaust og jafnvel
fram á vetur.
ÚTVARPSMENNIRNIR létu
ákaflega vel yfir förinni hing-
að, og geta ekki nógsamlega
þakkað alla þá hjálpfýsi, sem
þeir urðu aðnjótandi, jafnt hjá
háum sem lágum. Það er víst,
að í þeim höfum við eignast á-
gæta vini. Þeir hafa allir farið
viða um Evrópu með upptöku-
tæki sín, en livergi sögðust þeir
hafa^notið eins mikillar hjálp-
fýsi og skilnings og hér á ís-
landi.
OLAV FORSÉN, sænski út-
varpsmaðurinn sagði við mig í
gær. „Það gjörbreytir allri út-
varpsstarfsemi að fara með upp
tökutæki út til alþýðunnar og
leyfa henni að segja það, sem
henni býs í brjósti. Um leið
verða ekki neinir útvaldir spek-
míkrófóninn, heldur talar alþýð-
ingar eins og lærimeistarar við
an til alþýðunnar. Þið verðið að
eignast upptökutæki, bifreið til
að fara með þau um landið og
menn til þess að ferðast með
þau.“
„JÁ, ÉG BÝST við því, að
útvarpshlustendur séu á sama
máli og Olav Forsén — og eft-
ir því, sem ég hef heyrt, mun
Ríkisútvarpið hafa fullan hug á
að kaupa svona bíl, en upptöku
tækin mun þáð eiga, hinn ágæta
stálþráð frá Ameríku, sem tal-
inn er af'mörgum jafnvel betri
en plötuupptakan, sem nor-
rænu útvarpsmennirnir notuðu.
Eg tel, að engan geti órað fyrir
því, hvað miklum breytingum
til bóta útvarpið mundi taka í
dagskránni, ef þessi starfsemi
væri hafin. En það er • með
þetta eins og annað, að valið á
manni til að framkvæma þetta
— veldur mestu um árangur-
inn. Starfið er vandasamt, en
ekki erfitt.
ÞORSTEINN SKRIFAR mér
á þessa leið: „Eg er sammála
því, sem þú skrifaðir í fyrra-
dag um horfurnar í gjaldeyris-
málunum, sparnað og lækkaðar
kröfur um lúxuslíf. Hins vegar
má vel vera, að það sé ekki
vinsælt að skrifa um svona mál,
því að hér virðast menn ætíð
gera kröfur til annarra en
sjálfra sín. — En sleppum því.
í þessu sambandi vildi ég
gjarna mega minnast á eitt mál
efni, sem almenningur furðar
sig á og skilur ekki, í þeim
vandræðum, sem eru og hafa
verið og verða, út af gjaldeyr-
isskortinum.
HVERNIG STENDUR á því,
að menn, jafnvel í þúsundatali,
farið til útlanda? Er öllum
þeim mörgu, sem fara til út-
landa, skaffaður gjaldeyrir tak-
markalaust. Er þetta flakk látið
ganga fyrir greiðslum á nauð-
synjum til landsins sem ekki er
hægt að fá? Hvernig geta um 80
skátar farið til Frakklands á
þessum gjaldeyrisvandræða-
tímum? Hvernig geta þrír og
jefnvel fjórir menn farið á sömu
ráðstefnuna? Hvað þýðir að
senda tvo eða þrjá menn til út-
landa til þess að líta á sýningu,
sem þar er haldin? Og hvað
græðir þjóðin á slíkum íerða-
lögum?
Framhald á 7. síðu.
móral: Fyrir þá helgar til-
gangurinn maðalio; og í dálk-
um Þjóðviljans hefur hingað
til ekki orðið vart við
annað, en að allt væri það
gott, sem gerðu kommúnist-
ar erlendis, einnig þá er and-
stæðingar þeirra hafa verið
,,fjarlægðir“ á þann hátt,
sem hin grísku kommúnista-
blöð boða nú alveg opinber-
lega, að gert skuli.
Það er svo annað mál,
hvort þær þúsundir heið-
virðra manna, sem hingað
til hafa fylgt kommúnistum
bæði hér og annarsstaðar í
góðri trú, kæra sig um að
fylla lengur slíkan flokk, er
gríma hans hefur þannig ver
ið látin falla. Þeirra er að
húgsa sinn gang og gera það
upp við sig, hvort glæpaöld-
in, sem hinir grísku kommún
istar boða nú, sé það, sem
koma skal og þær vilja
stuðlá að. Gæti þá svo farið,
að áður en langt liði, yrði lít-
ið eftir af því fylgi, sem
kommúnistar hafa safnað,
meðan þeir héldu það heppi-
legra, að hafa á sér yfirvarp
siðaðra manna.
Byggingarfélag verkamanna
félagsins verður haldinn í Alþýðuhúsinu
við Hverfisg. í dag 10. þ. m. kl. 1.30 e. h.
kl. 1.30 e. h.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Sýnið skírteini við innganginn.
STJÓRNÍN.
Happdrætfi
BreiMingafé
•- * *
I -r'MÍ
Dregið verður í Happdrætti húsbyggingarsjóðs félags-
ins 12. þ. m. Vinningarnir verða til sýnis í búðarglugga
Kristjáns Siggeirssonar. Sölunefndir, herðið söluna og
gerið skil til skrilfstofu félagsins, Skólavörðustíg 6 B,
sem verður opin frá klukkan 2.30 til 22.30 daglega.
Reykjavik - Osló
Flugferð til Osló sunnudaginn 10. ág-
úst. Nokkur sæti laus. Væntanlegir
farþegar tali við skrifstofu vora í dag.
Hafnarstræti 23. — Sími 1483.
Frá og með 10. ágúst 1947, þar til öðru-
vísi verður ákveðið, verður leigugjald
fyrir vélsturtubíla, sem taka 2 til 2x/2
tonn, í innanbæjarakstri sem hér segir;
Dagvinna kr. 23,32. Eftirvinna kr. 28,36.
Nætur- og helgidagavinna 33,40. Þegar
ekið er meira en 100 km. hjá sama vinnu-
veitanda, miðað við 8 stunda vinnu,
greiðist viðbótargjald, kr. 1,25, fyrir ek-
inn km., sem fram yfir er eftir 100 km.
Ódýrir KJÓLAR
fyrirliggjandi.