Alþýðublaðið - 10.08.1947, Síða 8
Laugavegi 33. Sími 2236.
'*v
<* v>
Laugavegi 4. Sími 5781.
Sunnudagur 10. ágúst 1947
Spennandi kappleikur
Meisfaramót Islands í frjálsum
íþróffurn hefsf klukkan 2 í dag
---------------->------
Mótið sker úr um þaö, hverjir verða
sendir til keppnj í Stokkhólmi
í september.
Fyrir nokkru síðan fór fram spennandi landsliðskeppni í knattspyrnu með Dönum' og Sví-
um í Kaupmannanöfn. og unnu Svíar hana. Á myndinni sést eitt æsilegasta atriði leiksins.
Saia á amerískum
kvikmyndum til
Bretlands stöðvuð.
SAMBAND kvikmynda-
framleiðenda í Bandaríkjun-
um hefur nú þegar svarað
hinum nýja tolli Breta á er-
lendum kvikmyndum með
því að hætta með öllu að
selja kvikmyndir til Bret-
lands.
Telur forseti sambandsins,
Eric Johnston, tollinn vera
brot á lánssamningi Breta við
Bandaríkin og mikið áfall
fyrir kvikmyndaframleiðsl-
una þar.
Af hálfu Breta er tollurinn
sparnaðarráðstöfun, — á að
draga úr innflutningi kvik-
mjmda og spara gjaldeyri.
áskólans reisir flólf íbúðarhús
Húsin eru reist soðvestur af háskólan-
um, og hófust foyggingaframkvæmdir
s maí í vor.
-------«------
BY GGINGARSAMVINNUFÉLAG starfsmanna Há-
skóla íslands heíur nú í byggingu 12 íbúðarhús, sem reist
eru sunnan við háskólann, eða á svæðinu sunnan við Tívolí
og suður að Fálkagötunni. Framkvæmdir við byggingar
þessar hófust í maí í vor, og er áætlað að byggingu hús-
anna verði lokið á næsta ári.
100 tunnur af síld
komnar til Hafnar-
fjarðar.
í VIKUNNI, sem leið öfl-
iuðu tveir reknetabátar frá
Keflavík, þeir Gunnar Há-
mundarson og Guðfinna,
nokkurrar síldar á Faxaflóa
og lögðu þeir afla sinn upp í
Hafnarfirði til frystingai’.
Afii beggja bátanna var
um 100 tunnur.
Ekki hefur frézt um aðra
síldarveiði í Faxaflóa enn,
sem komið er.
Teikningar að húsunurn hef
ur Bárður ísleifsson húsa-
meistari gert.
Hús þessi, sem hvert urn
sig er einbj/lis hús, eru um
145 fermetrar. Húsin eru ein
lyft en undir þeim er 50 ferm.
kjallari. Á hæðinni eru 6 her
bergi, eldhús og snyrtiher-
bergi auk rúmgóðs anddyris,
en í kjallaranum, sem er ekki
undir nema nokkrum hluta
húsanna, verða geymslur,
þvottahús og miðstöðvarher
bergi og eitt lítið herbergi,
sem nota má til íbúðar.
Verða öll húsin byggð upp
svo að segja samtímis, og eru
nú kjallararnir undir fimm
þeirra nær fullgerðir, en lok
ið er að grafa fyrir grunni
allra húsanna, og búið er að
steypa þá flesta.
Bygrgingarfélagr verkamanna
heldur aðalfund sinn í dag kl.
1,30 í Alþýðuhúsinu við Hverf-
isgötu.
Brezkir hermenn
á Ítalíu og Grikklandi
verða fluítir heim
hið allra fyrsta
Howard Marion Crawford.
BREZKA STJÓPvNIN hef-
ur tilkynnt Bandaríkjunum,
að hún muni flytja alla
brezka hermenn hurt frá
Grikklandi og Ítalí'u svo
fljótt sem auðið sé til þess að
fá . aukinn vinnukraft til
framleiðslunnar heima fyrir.
Sem kunnugt er á allt
setulið á Ítalíu, en það er
brezkt og arnerískt, að vera
farið frá Ítalíu þremur mán-
uðum eftir að friðarsamn-
ingarnir milli bandamanna
og Ítalíu hafa verið staðfest-
ir.
MEISTARAMÓT ÍSLANDS' í frjálsum íþrótfum
hefst á íþróttavellmum í Reykjavík í dag klukkan 2
eftir hádegi. Verði veður hagstætt, má búást við góð-
um árangri á mótinu, því íþróttamennirnir eru nú í
góðri þjálfun, og má því vænta nýrra íslandsmeta.
Eins og áður segir sker *------------------------------
meistaramótið úr um það
hvaða íþróttamenn verða vald
ir í íþróttakeppnina í Stokk
hólmi í september, en þar
keppa Norðurlöndin fjögur;
ísland, Danmörk, Noregur og
Finnland sameiginlega á
móti Svíum. Á norræna í-
þróttamóti þessu keppa að-
eins þrír rnenn frá öllum lönd
unum samanlagt í hverri í-
þróttagrein, og koma því ekki.
til greina aðrir en þeir, sem
ná sérstaklega góðum ár-
angri, í hverju landi fyrir
sig.
Ekki þarf að efast um, að
íþróttamenn okkar leggi kapp
á það í meistaramótinu nú,
að ná sem beztum árangri í
hverri grein, svo þeir stand-
izt samjöfnuð við beztu í-
þróttamenn í hinum löndun-
um, en þeir verða einnig
valdir eftir frammistöðu
sinni í meistaramóturn við-
komandi landa.
Eins og áður hefur verið
getið hér í blaðinu fara aðal-
greinar meistaramótsins
fram í dag og annað kvöld.
Alls eru 57 keppendur frá 10
íþróttafélögum og héraða-
samböndum skráðir til leiks.
I dag verður keppt í þess-
um íþróttagreinum: 200 rn.
hlaupi, hástökki, kúluvarpi,
800 m. hlaupi, spjótkasti,
langstökki-500 m. hlaupi og
400 m. grindahlaupi.
Annað kvöld hefst keppn-
in klukkan 8,15 og verður þá
keppt í eftirtöldum íþrótta-
greinum: 100 mstra hlaupi,
stangarstökki, kringlukasti,
400 m. hlaupi, þrístökki,
1500 m. hlaupi, sleggjukasti
og 110 m. grindahlaupi.
Síðar í vikunni heldur mót
ið áfram og verður þá keppt
í 4x100 m. boðhlaupi, 4x400
m. boðhlaupi, fimmtarþraut,
4x1500 m. boðhlaupi, 10 þús
und metra hlaupi og tugþraut.
Jarðsími lagður um
Akureyri
Á AKUREYRI er nú unnið
að því að 'koma fyrir: jarðsíma
línu um baeinn. Hefur stór
hópur manna unnið að því að
Brezka úfvarp-
ið llyfur
—* i
Greffis sögu
BREZKA útvarpið flutti
fyrra sunnudag og endurtók
á miðvikudag útvarpsþætti
úr. Grettissögu. Hefur Louis
MacNeile samið þessa ensku
útvarpsútgáfu af Grettlu,
sem tekur klukkustund og 15
mínútur í flutningi. Grettir,
var leikinn af kunnum leik-
ara, Howard Marioii-Craw- •
ford.
Brezka útvarpið hefur fyrr
í ár flutt svipaða útvarpsút-
gáfu af Njálu, og var sá þátt-
ur einnig saminn af Mac
Neile. Eru þættir þessir flutt
ir í svonefndri „Þriðju dag-
skrá,“ sem er eingöngu helg-
uð leikritum, klassiskri tón-
list og öðru „þungu“ efni.
Tíu persónur koma fram í
útvarpsútgáfunni af Grettis
sögu og Matys Seiber hefur
samið tónlist með verkinu.
Ásmundur var leikinn af
Bryan Powley, Ásdís af Susan
Rickards og Glámur af Harry
Hutchinson.
grafa skurði um !hin nýrri
hverfi bæjarins og koma jarð-
símalínunum fyrir. Þá er ráð-
gert að sjálfvirka bæjarmið-
stöðin 'taki til starfa á Akur-
■eyri á næsta ári.