Alþýðublaðið - 13.08.1947, Blaðsíða 4
A ílRL AB
Miðvikudapur 13. áci;st J:347>
Úígefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Framkvæmdastjórasími: 6467.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Af tilefni slyssins af vöidnm rafmagnsstraums-
ins. — Hvað olli slysinu? — Vanræksla þeirra,
sem lögðu leiðslurnar? — Ábyrgðin á einstakling-
imum. — Hætta, sem bjóðféiaginu og almenningi
stafar a£ kæruleysinu. — Aimenningur bíður
eftir úrslitum rannsóknarinnar.
í FORUSTUGREIN VÍS-
-IS í fyrradag er því spáð, að
„fellibylur sé í aðsigi í ís-
lenzku. atvinnulífi, engu síð-
ur en á Englandi.“ Er í því
sambandi sérstáklega vitnað
1 gjaldeyrisskortinn og tóm-
ar verzlanir annars vegar, en
ógreiddar vörubirgðir hins
vegar, sem hrúgast hafi upp
hér við höfnina.
En Vísir er ekki úrræða-
laus í vandræðunum- Það á
bara að ,,fá bráðabirgðalán
erlendis til að fleyta okkur
yfir erfiðasta hjallann“, seg-
ir hann; hitt telur hann óráð,
að innflutningur verði tak-
markaður til þess að spara
gjaldeyri, því að það myndi
máske draga eitthvað úr
gróða heildsalanna!
Töluvert öðrum augum en
Vísir virðast Bretar líta á þau
vandamál, sem nú steðja að
flestum Evrópuþjóðum vegna
gjaldeyrisskorts. Sjálfir eru
þeir búnir að fá beiska
reynslu fyrir því, að erlent
lán, og það jafnvel þótt stór-
lán sé, eins og dollaralánið,
sem þeir tóku í Ameríku fyr-
ir ári síðan, til ,,að fleyja
sér yfir erfiðasta hjallann,"
nægir hvergi nærri til þess
að vinna bug á hinum efna-
hagslegu erfiðleikum. Til
þess þarf annað og meira á-
tak innanlands. Það verður
að draga úr gjaldeyriseyðsl-
unni og auka útflutninginn;
það eitt telja Bretar að geti
varanlega tryggt þeim þann
gjaldeyri, sem þeir þarfnast.
Bretar eru því ekkert að
hugsa um að taka nýtt lán er-
lendiis; í stað þess eru þeir
undir forustu jafnaðarmanna
stjórnarinnar að hefja mikið
átak til þess að korna atvinnu
lífi sínu og fjárhag af eigin
rammleik á réttan kjöl. Til
þess verða allar stéttir
brezku þjóðarinnar að færa
fórnir, ekki aðeins með meiri
vinnu við óbreytt laun, held-
ur og með sparnaði á öllu
því, sem ekki fæst nema fyr-
ir erlendan gjaldeyri. Þar er
ekki verið að hugsa um það,
hvort slíkar sparnaðarráð-
stafanir og hömlur á innflutn
ing fnuni draga eitthvað úr
gróða heilsalanna; þar eru
ráðstafanirnar til þess að sigr
ast á gjaldeyrisskortinum og
erfðleikunum miðaðar við
alþjóðarheill.
En það er annað, sem Vís-
ir ber fyrir brjósti, þegar
hann ræðir gjaldeyrisskort
okkar og aðra erfiðleika- Ár-
BARN HEFUR Iátið lífið af
völclum rafmagnsstraums. FuII
yrt er, að þarna sé um að kenna
vanrækslu rafmagnsmanna, þar
sem Ieiðslan hafi ekki verið
einangruð eins og skylt sé og
lögnin auk þess ekki höfð í
| þeirri hæð yfir braggaþakinu,
sem ákveðið sé. Mál þetta er
nú í rannsókn og munu menn
bíða úrslita þeirrar rannsókn-
ar. En ef um vanrækslu er að
ræða, þá er hún ekki eins dæmi.
Það er mjög algengt að illa sé
unnið og af sviksemi, höndum
kastað til verka og algert kæru
Ieysi sé ráðandi.
m
ÞETXA STAFAR af slæmu
vinnuuppeldi á tiltölulega fá-
um árum, algerum sljóleika
manna gagnvart ábyrgð sem á
hverjum starfsmanni á að hvíla
— og síðast en ekki sízt, að jafn-
vel þó að slys eða stórtjón verði
af vanrækslusyndunum, er ekk-
ert sagt við því, ábyrgð ekki
komið fram á hendur hinum
seku og þeir látnir flagga sjálf-
um sér eins og þeir séu jafn
gjaldgengir í stöðum sínum og
áður. Það er alveg víst, að þetta
framferði okkar verður hættu-
legt því lengur, sem það er lát-
ið viðgangast. Algert agaleysi, á
hvaða sviði sem það er, skapar
kæruleysi og ábyrgðarleysi, sem
fer sífelt vaxandi, því að slíkt
er eins og snjóbolti, sem veltur
niður skafl, hann hleður utan á
sig.
FYRIR NOKKRUM ÁRUM
kom það fyrir ungan efnilegan
flugmann hér, að hann gleymdi
að taka upp hjól flugvélar sinn-
ar áður en hann settist á sjó.
Þetta olli slysi. Ég benti þá á
það, að slíkt mætti aldrei henda
neinn og þá allra sízt flugmann.
Hann hefði líf fjölda manna í
höndum sínum og gleymska af
hans hendi væri sama og afbrot,
sem ekki væri hægt að fyrir-
gefa. Ég taldi rétt að þessi flug
maður fengi ekki framar að
stýra flugvél, en í stað þess
fengin önnur störf við flug-
gæzlu.
| MÉR VAR LJÓST, að meiri-
| hluta manna rnyndi þykja þetta
| of harðar kröfur. Það var vitað,
að þessi flugmaður hafði ætíð
reynst prýðilega, og ekki fund-
ist ávirðingar í fari hans. En ég
er enn á sömu skoðun og ég var
þá. Það á ekki að fyrirgefa slíkt
og hvílíkt. Það á að koma fram
refsing fyrir slíka gleymsku:
Refsingin á ekki að vera hugs-
uð, sem hegning á viðkomandi
mann, þó að hún hljóti hins
vegar að verða það, heldur sem
yarnaöur fyrir aðra.
SLYSIÐ NÚNA, þegar litla
telpan bíður bana, vegna van-
rækslu, tvennskonar vanrækslu
eftir því sem fullyrt er, er enn
verra en gleymska flugmanns-
ins. Maður skilur að menn geti
gleymt, þó að maður vilji ekki
fyrirgefa hættulega gleymsu, en
hér er ekki um gleymsku að
að ræða, heldur um vanrækslu
vitandi vits. Gleymzt hefur að
einangra rafleiðslur með 220
volta straum. Maður getur ekki
heldur kent gleymsku um að
leggja leiðslurnar ekki í löglega
hæð.
ÞESS VEGNA vil ég ekki láta
draga fjöður yfir það afbrot,
sem hér er talið að hafi verið
framið, hver sem í hlut á. Slíkt
,má aldrei koma fyrir. Þjóðfé-
lagið getur ekki falið mönnum
störf, sem þannig hegða sér. Ef
það gerir það er það komið í
istórkostlega hættu. Þá er það
að ala upp sviksemi, sem ríður
:því sjálfu að fullu.
ALMENNINGUR væntir þess,
lað rannsókn slyssins leiði hið
(sanna í Ijós, að rannsókninni
íverði hraðað, að hún verði birt
almenningi, og að þeir seku
hljóti þá refsingu, sem þeim ber
samkvæmt lögum og að allir fái
að vita hvað í húfi er. Við vit
um öll hvað í húfi er þegar
kæruleysi er látið ráða gjörð-
um sínum, en það virðist vera
svo að mönnum sé ekki alveg
eins vel ljóst, að ábyrgð, þung
ábyrgð, hvílir á hverjum þeim
sem falið er starf.
um saman hefur bans höfuð-
krafa . verið launalækkun.
V'erkamann eiga að fórna;
kaupgjaldið á að skera niður.
En að innflutningurinn verði
takmarkaður, óþarfinn skor-
inn niður, — það má ekki
ske; því að þá er tekinn
spónn úr aski heildsalanna.
Þess vegna er það nú þjóðráð
Vísis að taka gjaldeyrislán
erlendis til þess „að fleyta
okkur yfir erfiðasta hjall-
ann,“ eins og hann segir.
En það gildir áreiðanlega
jafnt fyrir okkur sem fyrir
brezku þjóðina, að slík lán-
taka myndi reynast skamm-
góður vermir. Við verðum
að spara gjaldeyri eins og
þeir og margar aðrar þjóðir,
og sætt-a okkur í því skyni í
bili við margvíslegar tak-
markanir á innflutningi og
eyðslu, sem við höfum van-
izt undanfarin ár, hvoxt sem
heildsölunum líkar betur eða
verr. En samtímis verðum
við að taka dýrtíðarmálin hér
heima fyrir föstum tökum
til þess að tryggja útflutning
inn og vinna á þann hátt var-
anlegan bug á gjaldeyris-
skortinum.
Ríkisstjórnin hefur í dag sett reglugerð um skömrnt-
un á nokkrum byggingarvörum.
Samkvæmt 2. gr. reglugerðarinnar skulu allir þeir,
sem verzla með hvers konar trjávið, krossvið og hvers
konar þilplötur, sement og steypustyrktarjárn, gefa við-
skiptaneínd skýrslu um birgðir sínar eins og þær voru
áður en viðskipti hefjast 12. ágúst 1947. Skýrslu þessari
skal skila fyrir 14. ágúst 1947.
í Reykjavík skal skila skýrsium þessum til viðskipta-
nefndar á Skclavörðustíg 12, en utan Reykjavíkur skal
skila skýrslum til sýslumanns eða bæjaríógeta. Ef ekki
- er* unnt að skila skýrslum fyrir 14. ágúst, skal senda
sýslumanni upplýsingarnar í símskeyti.
Skylt er að gefa sundurliðaða skýrslu, þar sem til-
fært er vöruheiti og magn hverrar einstakrar vöruteg-
undar.
Sement og steypustyrktarjárn skal talið í kílógrömm-
um. Trjáviður alls konar skal talinn í teningsfetum, og
jafngildir einn standard 165 teningsfetum. Krossviðux',
masonit, karlit, tex, asbestplötur og aðrar þilplötur og
einangrunarplötur skulu tilfærðar eftir tegund, þykkt og
ferfetafjölda.
Fyrst um sinn mun öllum fyrirspurnum um bygg-
ingar.efnisskömmtun þessa svarað hjá Fjárhagsráði.
Einnig liggja þar frammi eyðublöð fyrir verzlanir og aðra
til noíkunar við skömmtunina.
Reykjavík, 12. ágúst 1947.
Fjárhagsráð
Ofbreiðið ALÞYÐUBLAÐID
fyrir árið 1946 fer fram daglega í skrifstofu vorri.
íslenzk endurirygging
(áður Stríðstryggingafélag ísl. skipshafna),
Garðastræti 2.
Tilkynning frá Fjárha
Fjárhagsráð vill vekja athygli á því, að í Reykjavík
og nágrenni er frestur til að skila umsóknum um fjár-
festingarleyfi útrunninn föstudaginn 15. ágúst, en annars
staðar á landinu 25. ágúst.
Þeir aðilar, sem eru byrjaðir á framkvæmdum eða
hafa ákveðið að hefja framkvæmdir eru því alvarlega
áminntir að senda umsóknir sínar fyrir tilskilinn tíma,
þar sem fjárfestingarleýfi verða ella ekki veitt.
Sérstök umsóknareyðublöð um fjárfestingarleyíi
liggja frammi hjá Fjárhagsráði og úti á landi hjá írún-
aðarmönnum verðlagsstjóra og bæjarstjórum.
Þá skal og á það bent, að framkvæmdir án fjárfest-
ipgarleyfis eru lögbrot, sem varða refsingu.
Reykjavík, 12. ágúst 1947.