Alþýðublaðið - 24.08.1947, Qupperneq 7
Sunnudagur 24. ágúst 1947.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Helgidagslæknir er Berg-
sveinn Ólafsson Ránargötu 20.
jSími 4985.
í
Næturvörður er í Iðunnar
apóteki, sími 1911.
Næturakstur annast á sunnu-
dagsnótt B.S.R. sími 1720, á
mánudags nótt Litla bílstöðin,
sími 1380.
Ljósatími ökutækja
er frá kl. 21.25 til 3,40.
Mánudagur
19.30 Tónleikar: Lög úr óperett
um og tónfilmum (plöt-
ur).
20.30 Erindi: Gömlu og ný við-
horf í atvinnumálum
kvenna (frú Ragnheiður
Möller).
20.55 Létt lög (plötur).
21.00 Um daginn ög veginn
(Benedikt Gíslason frá
Hofteigi).
21.20 Útvarpshljómsveitin:. ís-
lenzk alþýðulög.
— Einsöngur (Jón Kjart
ansson).
21.50 Lög leikin á ýmis hljóð-
færi (plötur).
22.05. Síldyeiðiskýrsla Fiskifé-
lags íslands.
ífsh Council
(Frh. af 3. síðu.)
riði lýðræðis og jafnaðar-
stefnu.
- Þótt kynnin af brezkum
háskólum og brezka Alþýðu
flokknum hafi vissulega ver
ið góð, var það þó ekki hvað
sízt lærdómsríkt að vera um
mánaðarskeið gestur stofn-
-unar, sem ver um. sjö tugum
milljóna árlega til þess að
kynna Bretland og þrezka
menningu, en verða þó
aldrei, bókstaflega aldrei
var nokkurrar viðleitni af
hálfu hennar til þess að hafa
áhrif á skoðun gestsins á
þvi, sem hann sér og heyr-
ir, — að fá m. ö. o. að vera
algj.örloga í frdði með hugs-
anir sínar og skoðanir. Það
eru e. t. v. athyglisverðustu
kynnin.
Töframeistari tónlistarinnar
Framhald af 5. síðu.
Aldrei hefur fyndnin ver-
ið betur birt í tómrni- En Don
Giovanni er einnig sorgarleik
ur, og hann sannar hæfileika
Mozarts á sviðum hins í-
skyggilega og leikræna. Með
lófataki og beiðnum um end-
urtekningar lauk sýningunni
og aðgöngumiðasalan bjarg-
aði leikhúseigandanum frá
gjaldþroti, en tónskáldið fékk
mjög smávægilega upphæð
að launum.
Ljóminn um .Mozart jókst
því meir sem aldurinn færð-
ist yfir hann. 9 síðustu hljóm
kviður hans standast saman-
burð við hljómkviður Beet-
hovens, en Mozart sjálfum
entist ekki aldur til að heyra
þær allar. Margir telja verk
Mozarts vera einuingis snot-
ur og lagleg, einkum þeir, sem
aðeins þekkja menuetta hans
og smærri sónötur, en enginn,
sem heyrir síðari verk hans
kemst hjá að skynja dýpt
þeirra.
Þegar hann var 35 ára að
aldri, lá hann þungt haldinn
í Vínarborg, en þrátt fyrir
það samdi hann „Töfraflaut-
una“ ævintýra söngleikinn
fræga, en í honum er mikill
fjöldi yndislegra laga. Leik-
hússtjóri nokkur setti söng-
leikinn á svið, og svo góður
rómur var gerður að sýn-
ingunni, að nærri allir Vínar-
búar þyrptust þangað. Moz-
art stjórnaði sjálfur frum-
sýningunni, en þar á eftir
veiktist hann af taugaveki og
gat ekki verið viðstaddur hin
ar- Liggjandi í rúmi sínu
horfði hann á klukkuna og
sagði: „Nú er taldið dregið
frá“.-----„Nú fara þeir ó-
skemmdir gegn um tónabrim
töfraflautunnar.“
Nokkrum mánuðum áður
heimsótti dularfullur ókunn-
ur maður Mozart. Bað hann
Mozart að semja sálumessu
fyrir blandaðar raddir vegna
húsbónda síns og til heiðurs
eikinkonu húsbóndans, er lát
in var. Boðberinn vildi ekki
segja nafn herra síns. En 'nú
vita menn, að það var Wal-
segg greifi. Fékk hann stund-
um tónverk hjá tónskáldum
og lét leika þau, sem þau
væru eftir hann sjálfan.
Margs konar óhöpp hindr
uðu Mozart við að ljúka við
verkið, og við og við skaut
sendimaðurinn upp kollinum
og krafðist þess- Þegar Moz-
art lá síðast fárveikur með
ofslegum hita og óráði, taldi
hann sér trú um að hinn dul-
arfulli sendiboði hefði komið
frá öðrum heimi og skyldi
sálumessan vera eigin sálu-
messa hans. Barðist hann þá
af öllum lífs og sálar kröft-
um við að Ijúka við þetta tón
verk, sem kannar með ægi-
krafti leyndustu djúp harms
og angurværðar, varpar
björtu ljósi yfir mannlega
þrá eftir ódauðleika og endar
í hinu hreina háleita. Við
banabeð hans voru nokkrir
vinir hans saman komnir. Þá
heyrðist af vörum hans tón-
ar dómsdagsbásúnunnar, sem
hljóma í tónverkinu.
Vinir hans komu saman til
þess að vera viðstaddir, er
stutt guðsþjónusta væri flutt
yfir líkbörum Mozarts. Óveð-
ur var í aðsigi. Á leiðinni út
í kirkjugarðinn skullu á eld-
ingar og æðandi regn og
stormur. Líkfylgdin sneri
við, en líkvagninn hélt áfram-
Líkami töframeistara tónanna
var lagður í sömu gröf og
strokumenn og vændiskonur.
Constanze vissi ekki einu
sinni nákvæmlega hver
hinnzti hvílustaður hans var.
Mozart vann sigur á rang-
læti, sjúkdómum örbirgð og
jafnvel dauðanum. Svar
hans við öllu illu og geig-
vænlegu, er varð á vegi hans,
titrar af fögnuði yfir lífinu.
Leiðrétting
Prentvilla er í minningar-
greininni á 2 síðu blaðsins í
gær. Stendur þar: „Hún unni
heimili sínu mest“, en á að vera
„Hún vann heimili sínu mest“
- Skemmtanir da^sim
Kvikmyndir:
GAMLA BÍÓ: „Þeir voru fórn-
fúsir“ — Robert Montgomery,
John Wayne, Donna Reed.
Sýnd kl. 3, 6 og 9.
NÝJA BÍÓ: „Ungir leynilög-
reglumenn“ með Lynn Bafi,
Randolph Scott, Pegg Ann
; Garner. Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
TJARNARBÍÓ: „Hvíld í sveit-
inni“, Derek Farr, Frank
Celler, Marjorie Fielding,
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TRIPOLIBÍÓ: ,Músik bönnuð.‘
sýnd kl. 9. „Heldri maður
oinn dag, sýnd kl. 5 og 7. ■
BÆJARBÍÓ: ,,Jeriko“
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Söfn og sýningar:
ÞJÖÐMINJASAFNIÐ: Opið kl.
13—15.
NÁTTÚRUGRIP AS AFNIÐ: —
Opið kl. 13,30—15.
SAFN EINARS JÓNSSONAR:
Opið kl. 13,30—15,30.
Skemmfisfaðir:
TIVOLI: Opnað kl. 2 e. h.
DÝRASÝNINGIN í Örfirisey.
Opnað kl. 8 árdegis.
Dansleikur kl. 10 síðdegis.
Samkomuhúsin:
BREIÐFIRÐIN G ABÚÐ: Dans-
hljómssveit frá kl. 9,30—11,
30 síðd.
HÓTEL BORG: Konserthljóm-
sveit frá kl. 9—11,30 síðd.
TJARNARCAFÉ Dansleikur F.
í. R. kl. 10 síðd.
G. T.HÚSIÐ: Dansleikur kl. 10
síðd.
ALÞÝÐUHÚSIÐ Hafnarfirði:
Dans í lcvöld frá kl. 9—11,30.
SJÁLFSTÆÐISHÚSIÐ: Reykja
víkurkabarettinn H.F.
Skemmtiatriði og dans, kl. 9
síðd.
Úfvarpið:
11.00 Messa í Dómkirkjunni
(séra Sigurjón Árnason).
18.30 Barnatími (Þorsteinn Ö.
Stephensen o. fl.).
19.30 Tónleikar: Tónverk eftir
Mozart( plötur).
20.20 Einleikur á píanó (Árni
Björnssön): Lög eftir
Grieg.
20.35 Erindi: Hvað getum við
lært af Kínverjum?
(séra Jóhann Hannes-
son).
21.00 Einsöngur og gítarleikur
Ólafur Magnússon og
Briem-kvartettinn).
21.20 Heyrt og séð (Jónas Árna
son).
21.40 Létt klassisk lög (plötur).
22.05 Danslög.
Skrifstofum
landsímans í Reykjavík, verður lokað mánudag-
inn 25. þ. m. frá kl. 12, vegna jarðarfarar Frið-
björns Aðalsteinssonar skrifstofustjóra.
Reykjavík 23. ágúst 1947.
Póst- og símamálastjórnin
’V E R Z ■_ U
B N
omcm
9 aB :S =ttVi rfi’®
Ódýrir KJÓLAR
fyrirliggjandi.
.-JRlffWW
áuglýsing
frá Viðskiptanefnd.
Vegna skýrslugerðar í sambandi við skrá-
setningu og innköllun leyfa og ýmissa anna í
sambandi við það, verður skrifstofa Viðskipta-
nefndar lokuð vikuna 25. ágúst til 1. sept. n.k.
Reykjavík 23. ágúst 1947.
Viðskiptanefndin.
Viðfal við Vesfur-
íslendning.
Framhald af 2. síðu.
og kveður allt vera hér „eins
og hann hafði búizt við“.
Hann hefur starfað mikið að
viðhaldi íslenzkrar menning-
ar og tungu meðal landa í
Vancouver og staðið framar-
lega í félagsstarfsemi þeirra.
Meðal annars hefur hann átt
sæti í íslendingadagsnefnd-
inni umi langt skeið. Þegar ég
hafði lokið viðtalinu, ók hann
mér heim. Ég bý í einu af
úthverfum bæjarins. Á leið-
inni komst ég að raun um,
að hann var furðu kunnug-
ur nýju hverfunum, þótt
hann hefði aldrei þangað
komið. Er við skildum, varð
mér á að hugleiða, hver
mundi munur á íslending og
Vestur-íslendingi. Hvað við
kemur Bjarna Kolbeins, held
ég að sá munur sé ekki mik-
ill, — nema ef vera skyldi
það, að hann væri að ýmsu
leyti íslenzkari mörgum
þeim, sem aldrei hafa að
heiman farið.
L. G.
hins vegar er hægt að beita
neitunarvaldinu í öryggis-
ráðinu einnig gegn samþykkt
um, sem getrðar eru á alls-
herjarþinginu, þannig, að
hægt er að gera bandalag
hinna sameinuðu þjóða ger-
samlega óstarfhæft með því.
Reykjavíkurkabarett
inn h.f.
. NelfunarvaldlS
(Frh. af 1. síðu.)
Argentína einnig láta fella
það niður úr sáttmála hinna
sameinuðu þjóða.
Neitunarvaldinu er, sem
kunnúgt er, ekki hægt að
beita á allsherjarþinginu, og
því ræður meirihluti þar. En
REYKJAVÍKURKABA-
RETTINN H.F. helduh
skemmtun í Sjálfstæðishús-
inu í kvöld.
Undanfarið hefur verið
mikil aðsókn að skemmtun-
um hans og hafa skemmti-
atriðin hlotið hina beztu
dóma. Einkum vekja dans-
fimleikamennirnir og gaman-
leikarinn danski mikla at-
hygli.
HANNES Á HORNINU.
(Frh. af 4. síðu.)
menningur mundi geta fengið
það, en fékk það svar, að það
væri algerlega óákveðið. Það
yrði ekki fyrst um sinn.
ÉG ÁLPAÐIST til þess eitt
lcvöldið að kaupa einn blóð-
mörskepp. Hann kostaði bara 8
krónur. Ég var að reikna það
út, eftir mínu gamla búkonu-
viti, að innan úr lambinu
myndi kosta nieð þessari frum-
legu aðferð um 70 krónur. —■
En sleppum því. Ég vil ekki
þola það, að fólk geti ekki feng
\ið slátur eins og öll undanfarin
ár hér í Reykjavík“.