Alþýðublaðið - 15.05.1948, Qupperneq 6
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Laugardagur 15. maí 1943.
tJtgefandí: Alþýðuflokkurinn,
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan L'.f.
Fjjöipn lyfjabúða
LYFSÖLUMÁL REYK-
VÍKINGA hefur mjög borið
á góma í opinberum umræð-
um og manna á milli á und-
anförnum árum, og hér í
blaðinu hafajnú fyrir skömmu
átt sér stað mjög ýtarlegar
rökræður um þessi efni. Mál
þessi hafa og verið tekin til
meðferðar í bæjarstjórn
Reykjavíkur öðru hvoru. Á
fundi bæjarstjórnarinnar í
fyrradag bar þau á eóma í til-
efni af því, að eigendaskipti
hafa orðið á Ingólfs apóteki,
en leyfi hins nýja eiganda til
að reka lvfiabúðina er bund-
ið því skilyrði, að hann reki
hana á þeim stað í bænum,
sem bæjarstjórn ákveður og
heilbrigðismálaráðuneytið
staðfestir. Þá upplýsti borg-
arstjóri og, að ný lyfjabúð
verði stofnuð hér í bænum
innan skamms, og mun henni
verða ætlað að sjá fyrir lyfja
þörf íbúanna í Kleppsholti og
nærliggjandi bæjarhyerfum.
fbúar úthverfanna hafa
mjög sótt á um fiölgun lyfja-
búða í bænum, og bæjaryfir-
völdin hafa verið óspör á að
taka undir þær óskir og
kröfur. Hins vegar hefur bæj-
aryfirvöldunum láðst að gera
nauðsynlegar ráðstafanir í
þessu sambandi með tilliti til
útþenslu bæjarins. Þessir
erfiðleikar valda því, að tví-
sýnt er, að bærinn telji mögu-
legt, að hin nýja lyfjabúð rísi
upp í sjálfu Kleppsholtinu,
enda þótt henni muni verða
ætlað að sjá sér í lagi fyrir
lyfjaþörf íbúanna í þessum
bæjarhluta. Og það, sem at-
hyglisverðast er: Nú virðast
litlar eða engar líkur á því,
í"ð onótek verði flutt
burt úr miðbænum, enda þótt
bæjarstjórnm hafi aðstöðu
til að segja til um, hvar því
skuli ætlaður staður í fram-
tíðinni.
Um það verður ekki deilt,
að staðsetning lyfjabúðanna
í Reykjavík eins og hún er,
getur ekki gengið í framtíð-
inni. Hér starfa fjórar lyfja-
búðir, og þeir mega heita Ál
ar í hnapp í miðbænum. En
á sama tíma eru íbúar út-
hverfanna mjög illa settir um
lyfjaöflun, og af hálfu þeirra
eru uppi háværar, og mjög
svo skiljanliegar, kröfur um
nýjar lyfjabúðir. Bæjaryfir-
völdin taka undir þessar
kröfur. meðan þeim er bsint
að heilbrigðisstiórninni. En
þegar þau eiga þess kost að
hafa úrslitaáhrif á það, að
ein lyfjabúðin sé flutt úr
hnapþi miðbæiarins út í út-
hverfin, sjá þau engin úr-
ræði íil athafna.
Það er vel farið, að ný
B B B
Rabbað við Víkverja mn Chiírchiil, stræíisvagna
og fleira. — Rabbað við Bæiarnóstinn um sósíal-
isma og fleira.
ÞA£> VAR HELÐUR en ekki
„fuss og svei“ á honum Vík-
verja okkar í fyrradag, enda
var hann að ræða eftirlætis um-
ræðuefni íslenzkra kjaftadálka,
strætisvagnana. Hann kemst að
þeirri niðurstöðu, að það sé
hinum opinbera rekstri að
kenna, hvernig hrúgað er í
strætisvagnana, og að þetta
clæmi sanni Ijóslega, eins og
vinur þeirra íhaldsmanna
Churchill hafi sagt, „að ríkis-
valdið eigi fólkið, en ekki fólkið
ríkisvaldið“.
ÞETTA ER dásamlegasta lýs-
ing á bæjarstjórn Reykjavíkur,
sem hið ágæta málgagn hennar,
Morgunblaðið, hefur nokkru
sinni sett á prent. Er nú Vík-
verji blessaður búinn að gleyma
því, að einkaframtakið átti einu
sinni strætisvagnana hér og
Reykvíkingar óku þá um í
vögnum eins og þeim, sem
jeppakrílið setti á hliðina uppi
í Hlíðum um daginn? Er Vík-
verji búinn að gleyma því, að
þegar einkaframtakið fékk nóg
af því að reka strætisvagnana
og gat ekki grætt nóg á þeim,
þá var bæjarstjórnin nógu góð
til að kaupa fyrirtækið? Er Vík-
verji búinn áð gleyma því, að
meirihluti Sjálfstæðisflokksins í
bæjarstjórn samþykkti bæjar-
rekstur á strætisvögnunum? Og
er Víkverji búinn að gleyma
því, að það er heildsali og gall-
harður íhaldsmaður, sem stjórn
ar þessu fyrirtæki bæjarvalds-
ins?
OG SVO VAR ÞAÐ hann
Churchill. Er það ekki dásam-
legt, að sjálft Morgunblaðið
skuli skýra okkur frá því, að
bæjarstjórn Reykjavíkur „eigi“
fólkið, en ekki fólkið bæjar-
stjórnina?! Það er erfitt að
skilja grein Víkverja á annan
hátt, og er nú vonandi, að Gunn
ar Thoroddsen og þeir aðrir,
sem stjórna höfuðborg lýðveld-
isins íslands, láti hendur standa
fram úr ermunum og verji sig
gegn þessari óvæntu árás. Væri
ekki rétt, að meirihluti bæjar-
stjórnar samþykkti, að senda
Churchill skeyti og spyrjast
fyrir um það, hvort hann hafi
átt við bæjarstjórn Reykjavík-
ur, er hann fordæmdi stjórnir,
sem „eiga félkið“?
AÐ LOKUM NOKKUR ORÐ
um bæjarrekstur og einka-
rökstur. Það er gamla sagan hjá
Það er víðar þröngt í almenn-
ingsvögnunum en í Reykjavík.
Þessi teikning er frá neðan-
jarðarbrautunum í New York.
íhaldsmönnum, að einkafram-
takið f ær að halda í , öll fyrir-
tæki, sem gefa arð, en bæjar-
valdið og ríkisvaldið mega
hirða allt, sem eklri ber sig. Það
er ekki gróðavaenlegt fyrir ein-
staklinga að reka náðhús í
Bankastræti, svo að bærinn er
nógu góður til að gera það. Bú-
kolla var í vandræðum, og þá
rauk íhaldið til og vildi selja
bænum. Rafveitur eru reknar
með gróða í löndum einkafram-
taksins, en hér eru þær dýr og
vafasöm gróðafyrirtæki, svo að
bærinn getur hirt þær. Og eins
er það, ef bæjarvaldið kæmist
yfir einhver atvinnutæki, sem
hægt er að hafa arð af, þá er
sjálfsagt að selja þau. Nýsköp-
unartogararnir eru taldir góð
fyrirtæki, svo að bærinn má til
með að eiga sem fæsta og selja
einstaklingum þá togara, sem
harm á rétt til. Þannig gengur
það, Víkverji minnr hér og víða
annars staðar.
MANNFLUTNINGAR í borg
um eru víða erfið fyrirtæki að
reka og hefur oftast farið svo,
meira að segja í himnaríki
einkaframtaksins, Ameríku, að
borgaryfirvöld hafa orðið að
taka við þeim og borga hallann.
Og það eru víðar til þrengsli en
í Reykjavik (þó ég vilji sízt
vera að afsaka þrengslin í
strætisvögnunum hér) — eins
og meðfylgjandi mynd sýnir.
ÚB ÞVÍ AÐ þessi laugardags
dálkur er byrjaður á því guð-
lasti að skammast við starfs-
bræðurna við kjaftadálka hinna
blaðanna, er bezt að snúa sér
frá Víkverja og að Jónasi bæj-
arpósti. Hann hefur nú skrifað
Framh. á 5. síðu.
1.—3. hefti þessa árs er komið út. Hefir blaðið nú
stækkað um fjórðung og myndum fjölgað. — Fæst í
flestum bókaverzlunum.
Undirrit ........ gerist hér með áskrifandi að Íþrótía-
blaSinu
Nafn .............................................
Heimili .......................................
Póststöð ......................................
Áskriftir sendist til Jch. Bernhard, Barónsstíg 43.
Sími 6665.
æoraieiag KeyKjav
heldur fund þriðjudaginn 18. maí í Tjarnarcafé
kl. 8,30. Fundarefni: 1. Rætt um mjólkurmálin og
heimsending mjólkurinnar. Framkvæmdarstjóri
Mjólkurstöðvarinnar mætir á fundinum, 2. Rætt
verður um innflutning nauðsynja til heimilanna,
3. Sýnikennslunámskeið í matreiðslu.
Stjórnin.
S.G.T.
hefst kl. 8.
Gömlu dansarnir að Röðli annan
í hvítasunnu kl. 9. — Aðgöngu-
miðapaníanir í síma 5327. — Sala
Húsinu lokað kl. 1014
Frá Tékkóslóvakíu
útvegum við allar gúmmívörur, t. d. gúmmí
gólfdúk, gúmmíslöngur, gúmmíhanzka o. fl.
Sýnishorn og verð fyrirliggjandi.
Fljót afgreiðsla.
Krisfján G. GísEason & Co. fi.f.
lyfjabúð verði stofnuð hér í
bænum, og henni á að fá það
hlutverk að sjá fyrir börf út-
hverfanna, eins eða fleiri, en
þó að sjálfsögðu með tilliti til
sómasamlegra afkomuskil-
yrða fyrirtækisins. Það virð-
ist tilvalið, að hin nýja lyfja-
búð sjái fyrir þörfum íbúa
úthverfanna í austasta hluta
bæjarins. En jafnframt virð-
ist sjálfsagt, að miðbærinn
verði látinn una við þrjár
lyfjabúðir og að Ingólfs apó-
tek verði flutt í bæjarhluta,
þar sem engin lyfjabúð er
fyrir en slíks fyrirtækis
augljós þörf. Sýnist liggja
beinit við, að Ingólfs apótek
verði flutt í vesturbæinn og
þar með séð fyKri lyfjaþörf
íbúa hans á sama hátt og
beirra, er byggia austurbæ-
inn og koma til með að njóta
hinnar væntanlegu nýju
lyfjabúðar.
Borgarstjóri upplýsti á
bæjarstjórnarfundinum í
fyrradag. að af hinum fjór-
| um lyf jabúðum, sem nú
starfa hér í bænum, séu við-
skipti Reykjavíkur apóteks
langsamlega mest. eða um
40% af lyfjasölunni. Við-
skipti hinna lyfjabúðanna
brifgja eru því um 60% af
íyfjasölunni, og deilast þau
nokkurn veginn jafnt milli
þeirra allra. Þetta eru í
meira lagi athyglisverðar
upplýsingar. Sókn úthverfa-
búanna til lyfjabúða beinist
samkvæmt þessu ekki fyrst
og fremst til þeirrar lyfjabúð
ar, sem næst er dvalarstöð-
um Jilutaðeigenda, heldur til
stærstu lyfjabúðar bæjarins,
sem er staðsett í verzlunar-
hverfi borgarinnar. Virðist af
þessu mega ráða, að ekki sé
einhlítt að hverfa að því ráði
að fjölga lyfjabúðunum von
úr viti, heldur sá ráðlegra
að þreifa sig áfram og leggja
megináherzlu á að dreifa
lyfjabúðunum, sem nú eru
fyrir, meðan undirbúið er
framtíðarskipulag þessara
mála. Reykjavík ætti, mið-
að við aðr?rr borgir, að kom-
ast sæmilega af með fimm
lvfjabúðir á næstu árum.
En séu fjórar þeirra í hnapp
í miðbænum, eins og nú er,
gefur að skilja, að illa sé séð
fyrir þörfum úthverfanna á
beim tímum, begar sækja
barf lyf á næturþeli og á
hehndögum, ekki hvað sízt
með tilliti til þess, að sam-
göngumál íslenzka höfuðstað
arihs munu naumast geta tal
izt til fyrirmyndar. Og í
bessu sambandi er væntan-
lega ekki ótímabært að inna
eftir bví, hvort ekki sé hægt
á einhvern hátt að auðvelda
lyfjaöflun þeir.ra, sem kalla
þurfa lækni á veittvang að
nóttu rtil eða á helgidögum.
Slík tilraun mun hafa verið
gerð annars staðar. og væri
ekki illa til fundið, að hún
yrði einnig gerð hér, virðist
hún á annað borð ætla að
gefa góða raun.
Allt þetta er tímabært að
taka til aiíhugunar. Úrbætur
á sviði lyfsölumála Reykvík
inga eru ótvírætt nauðsynja
mál. En þeir aðilar, sem eiga
hlut að Bessu máli. verða að
leggja þálð á sip að gera kröf
ur til sjálfra sín samhliða
því, er þeir bera fram kröfur
á hendur öðrum. Heilbrigðis
stjórnin, bæjaryfirvöldin og
borgararnir verða að ganga
samhuga og samtaka að
þessu verki.