Alþýðublaðið - 25.07.1948, Qupperneq 1
yeðurhorfur:
Allhvöss austan. eða suð-
austanátt. Rigning öðru
hverju.
XXVIII. árg.
Sunnudagur 25. júlí 1948.
166. tbl.
Forustugremi
Þriðji atvinnuvegurinn.
&
Síid veður vestan við
Grímsey, en er mjög
siygg.
ENGIN SÍLD hefur komið
til Siglufjarðar undanfarna
daga, en síldveiðiskipin eru
öll úti á miðunum. Ekki hafði
frétzt af neinum afla hjá
þeim í gærdag, en fregnir
komu af því að Fanney hefði
orðið vör allmikillar síldar-
ftorfu vestur af Grímsey. Var
torfan á um fjögurra metra
dýpi, og virtist vera allstór.
Reynt var- að kasta fyrir síid
ina en hún var ljónstygg og
veiddist ekki.
Veður er nú orðið gott á
Norðurlandi, og eru bátarnir
dreifðir um miðin, en hafa
ekkert aflað undanfarna
daga.
Telja sjómenn þó heldur
síldarlegra en verið hefur,
þar eð fuglalíf er meira en
áður, og 'sömuleiðis benda
fréttirnar frá Fannev til þess,
að um síldargöngu kur.ni að
vera að ræða vestan við
Grímsey.
Bálstofan tekur til
starfa um mánaðamót
ágúst-september.
KAFELLAN OG BÁL-
STOFAN við Fossvogskirkju
garð eru nú að verða full-
búnar. Talið er fullvíst að
bálstofan verði tekin í notk
un ekki síðar en um mánaða-
mótin ágúsit—september.
Öll tæki eru komin til bál-
stofunnar. og búið er að
ganga frá niðursetningu
brennsluofnanna og verið er
að leggja síðustu hönd á verk
ið að öðru leyti.
Enn fremur hefur verið
nær lokið við alla vinnu ut-
anhúss. svo isem lagfæringu
á reitnum við bálstofuna.
Vatnsflóð í Miðbæn-
um.
MIKIÐ VATNSFLÓÐ var
niður Fishersundið og Aðal-
strætið í gærmorgun. Flóði
vatnið í stríðum straumum
frá vatnshana, sem er á móts
við Fishersund 3, og var mik-
ill flaumur í Aðalstræti.
Ástæðan til þessa var sú,
að ekið mun hafa verið á
vatnshanann, svo að hann
brotnaði. Vatnsveitan sendi
brátt menn til þess að koma
í veg fyrir vatnsrennslið og
luku þeir því skömmu fyrir
hádegið.
BR.EZKA FLUGFÉLAGIÐ
BAOC hefur nýlega verið end
iurskipul:agt og mun auka starf
eemi sína.
-♦
Mikill jarðskjálfii í Fukui í Japan
Fyrir nokkru varð geysilegur landsskjálfti í borginni Fukui í Japan. Hrundu hús og mikill eld-
ur kom upp í borginni, en þúsundir manna fórusí og særðust. Borgarbúar kváðu jarðskjálftann
vera verri en aíómsprengjan var á sínum tíma.
Pófverjar kaaipa sífd, lýsi, Siesta, ©g gær-
ur, seSJa ©kkur kol, Járn, stál ©g fleira.
------------♦_----------
HINN 14. JUNÍ s.l. var undin-itað'ur í Warszawa viðskiptá-
samniugui’ milli íslands og Póliands. Gekk s'amninguTinn í
gildi 15. sama mánaðar og gildir til ársloka 1949. Rikisstjórnir
Póllands og íslands þurfa þó formlega að isamþykkja samning-
mn með nótuskiptum og hefur ríkisstjóm Islands' fyrir sitt
leyti nú staðfest hann.
Samkvæmt samningnum
sdlja Islendingar Pólverjum
efth-farandi vörur:
10 þúsund tunnur saltsiid,
500 fhesta, 650 .smálestir saltað-
ar ígærur, og auk þess smáveg-
is af síldai- O’g þorskalýsi tii af-
greiðsilu á næsta ári.
Af Pólverjum Ikaupa íslend-
ingar e'ftirfarandi vörur: Kol,
járn og stál, raflagnaetfni,
jarðstrengi, rafmagnsmæla,
zirikhvítu og vitissóda.
Afgreiðsla á pólsku vörun-
um getur fai-ið fram á þessu
ári, nema á jái-n- og stálvörum,
sem afgreiðast á árinu 1949.
Er hér lum að ræða vöru-
skipti rnilU 'landanna, sem nálg
ast tíu milljónir islenzkra
króna á hvora hlið.
fslenzka samninganefndin
gekk frá sölusammintgunum á
saltsíld, hestium og gærum, og
auk þess verðsamningum tun
nokki-ai- hinna pólsku vara.
Þegar hefur verið afskipað
til Póllands ca. 140 smál’. af
söltuðum gærum, sem samdð
var uim að seija þangað af
fyrra árs framiieiðslu.
(U tanrikisráð un eytið.)
Eldur í M.s. Esju.
ELDUR kom upp í m/s
Esju í gærmorgun um klukk
an 9. Eldurinn mun hafa
komið upp í eldhúsinu eða
messanum og fylltist þar
brátt af reyk.
Var slökkviliðið þegar
kvatt á staðinn og tókst því
brátt að ráða niðurlögum
eldsins. Skemmdir munu
•ekki hafa orðið miklar. og
mun Esja fara td Glasgow
eins og til stóð á mánudags-
kvöldið kl. 12 á miðnætti.
Sfórfelld herferð
gegn kommnntsium
á Malakkaskaga
LÖGREGLA OG HERLIÐ í
Malayalöndum 'gerðu í gær
húsranrusóknir í aðalstöðvum
kommúnista, ie£tir að flokkur
þeh-ra var bannaSur. A fl'est-
um stöðum, til dæmis í Singa-
pore og Kuail'a Lurnpur, voru
ra'uðliða'rnir fluttir úr skrif-
stofum sínum.-
Nú er herinn um þ að bil að
hefja stói-fellda hreinsun til að
binda enda á óeirðir, morð og
brennur kommúnista á land-
inu.
Framsókn býður
fram í Banda-
ríkjunum
HENRY WALLACE hefur
nú gefið hinum nýja flokki
sín'um nafn og kallasit hann
Framsóknarflokkur. Ráðstefna
flokksins tfer um þessar mund-
ir fram í Philadeiphiu, og
i staðtfeistir framboð þeh-ra Wal-
laoe og Taylors. Hefui- Wailace
lýst yfir, að hann fagni stuðn-
! irngi kommúnista, 'enida þótt
| thann sé sjálfur idkki kommún-
I isti.
Segist hafa stuðning
traustra og
reyndra manna
Talaði i þinginu í
gærmorgun.
AJNIDRÉ MARIE áviarp-
aði í mor'gun franska þing
ið og lýs-ti fyrir því stefnu
þeirri, sem hann og stjóm
hans mundu fylgja, ef
hann fær traust þingsms.
Hann kvaðst hafa tryggt
sér ráð og samvinnu
merkra manna, sem þjóð-
in öll virti fyrir langt
starf og mik'la reynslu.
Hann gat þó ekki skýrt frá
nöfnum þeirra fyrr en -
hann hefur fengið trausts
yfiriýsingu frá þingiimí.
Marie byrjaði á því að iýsa
því, hversu alvarlegt ástand-
ið væri nú í heiminum, ekki
sízt fyrir Frakkland. Kvað
hann lanainu vera fulla þörf
á sterkri stjóm með ákveðna
stefnu.
Um utanríkismál sagði
Marie, að Frakkar ættu að!
fylgja staðfastri stefnu, en
gerasit þó ekki áleitnir við:
aðrar þjóðir. Hann kvaðst
samþykkur ákvörðunum
Lundúnaráðstefnunnar um
Þýzkaland, og sameinuðu
þjóðirnar kvaðst hann vilja
styðja sem mest og bezt.
Loks hét hann endurreisn
Evrópu og Marshall áætlun-
inni fullum stuðningi.
Um innanríkismál Frakka
sagði hinn tilvonandi forsæt
isráðherra. að þjóðin hefði
aðeins getað keypt matvæli
og hráefni vegna örlætis
Bandaríkjanna. Hjálp þeirra
mund' þó ekki verða að eilífu
og þyrfti að gera mjög róttæk
ar ráðstafanir til að kippa
efnahagsástandi landslns í
gott lag. Marie kvaðst mundu
biðja þingið um mikið vald
í atvin numálum, þótt þingið
yrði að setja því valdi sínu:
talonörk.
Eftir ræðuna klappaði þing
heimur ákaft og fagnaði ræð
unni. Einn flokkur var þó
þögull og voru það kommún
istar, sem sjá hag sinn lítt
bættan, þegar líkur eru á
isterkari stjórn allra flokka,
nema öfgaflokkanna, en áður
var.