Alþýðublaðið - 01.07.1950, Qupperneq 4
4
ALÞYöUBLAÐIÐ
Laugardagur I. júíí 1950.
Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Gröndal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson.
Ritstjórnarsímar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilia Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Alpýöuhúsið.
Alþýðuprentsmiffjan h.f.
ALLAR LÍKUR benda til
þess, að þetta sumar ætli að
verða mikið ferðasumar. Veður
hefur verið með ágætum, það
sem af er, og ferðaþrá lands-
manna virðist meiri en nokkru
sinni. Þá virðist gjaldeyris-
ástandið hafa valdið því, að
meira er nú ferðazt innanlands,
og það getur varla endurtekið
sig í sumar, sem komið hefur
fyrir undanfarin ár, að islenzk
sumargistihús standi auð meðan
flugvélar og skip fara fullskip-
uð til annarra landa viku eftir
viku. Þó er þáð svo, að það er
næsta ótrúlegt, hversu mikinn
gjaldeyri ferðamenn komast
yfir á sama tíma og nauðsynjar
fást ekki inn í landið Að vísu
má ekki leggja utanferðir nið-
ur, eða neitt nálægt því, en þær
mega ekki sitja fyrir lífsnauð-
synjum, þegar lítið er um er-
lendan gjaldeyri.
Gjaldeyrisflóðið undanfarin
ár hefur skapað það ástand með
al efnaðri stétta landsins, að
ekki þykir í frásögur færandi,
að sumarleyfi sé eytt innan-
lands. Þetta verður að breytast
og komast í eðlilegt horf. Að
sjálfsögðu er æskilegt, að sem
flestum gefist kostur á utan-
ferðum, en það er ekki heilbrigt
éstand, þegar þúsundir manna
í landinu tala af meiri áhuga
og meiri þekkingu um Ráðhús-
torg, Piccadilly og Champs
Elysée heldur en Þórsmörk,
Mývatn eða Hallormsstað. Það
þarf að endurvekja áhuga á
landinu sjálfu, náttúru þess og
fegurð, atvinnuháttum og auð-j
æfum. Það má ekki koma fyrir
að stórir hópar landsmanna
verði of fínir til þess að hafa
áhuga á sínu eigin landi.
i Aðstæður tií ferðalaga inn-
anlands hafa aldrei verið betri
en nú. Vegir eru lengri og betri
en nokkru sinni, bifreiðakostur
með ágætum, flugvélar rnargar
og góðar, og gististaðir fleiri og
betri en áður. Ekki er þó hægt
að segja, að hér þurfi ekki enn
Umbóta við. Gistihúsin eiga
eftir að batna stórum, og lands-
menn eiga eftir að læra að um-
J gangast þau betur. Hvort
tveggja er frumskilyrði, ef
hingað á að lokka erlenda
ferðamenn. Vegírnir eru enn ó-
fullkomnari cn í flestum siðuð-
um löndum, en það á sér 'eðli-
legar orsakir og stendur til
bóta. Langferðabílarnir stand-
ast heldur ekki samanburð við
ferðamannavagna erlendis,
hvað þægindi snertir, og þann-
ig mætti lengi telja.
Allar þessar umbætur hljóta
að koma. En landsmenn geta
ekkert betra gert til þess að
flýta þeim en að auka ferðalög
sín um landið. Með auknum á-
huga á samgöngutækjunum,
Vegum, gististöðum og framar
öllu þeim stöðum í landinu,
sem skemmtilegast er að heim-
sækja.
!/•// / þ/ fjl/fil
Hið opinbera hefur gert
margt til þess að örva ferðalög
iandsmanna og veita sem flest-
um tækifæri til að fara um
landið. Orlofslögin voru eitt
stærsta skrefið í þá átt, og var
það Alþýðuflokkurinn, sem
barðist fyrir því máli og fékk
lögin samþykkt. Með þeim var
öllum launþegum tryggt sum-
arfrí og verkamönhum.sérstak-
lega gert kleift að taka sér slík
leyfi, enda þótt þeir ekki vinni
hjá sama vinnuveitanda allt ár-
ið, eins og fastlaunamenn gera.
Þá hefur ríkið sett á stofn
ferðaskrifstofu, sem hefur hlot-
ið lof allra réttsýnna manna
fyrir starf sitt, þótt skrifstofan
sé ýmsum afturhaldssinnum
þyrnir í augum. Hefur skrif-
stofan haldið uppi margþættri
starfsemi, sem ekki verður rak-
in hér, og á fyrir sér fjölþætt
og vaxandi hlutverk á komandi
árum.
Erfiðleikar þjóðarbúsins hafa
að sjálfsögðu komið hart niður
á þeim, sem að ferðástarfsemi
vinna, ekki síður en öðrum.
Bifreiðar og flugvélar eiga
erfitt um að fá varahluti og
gistihúsin þurfa að vera án
margs, er þau vildu gjarna
veita gestum sínum. Hjá þessu
verður vart komizt. Þá hafa
erfiðleikarnir orðið til þess, að
lítið liefur orðið úr byggingu
nýrra gistihúsa, þótt þeirra sé
brýn þörf. Þessi þörf er hvað
mest í Reykjavík, sem jafn-
framt er mesti ferðamannastað-
ur landsins. Vonandi sýna yfir-
völdin þessu máli skilning,
þegar eitthvað birtir til, enda
eru gistihúsin víðast hvar talin
nauðsyrúegar menningarstofn-
anir, og þjóðir eins og Norð-
menn hafa leyft byggingu
nýrra gistihúsa jafnhliða ný-
sköpun atvinnuveganna árin
eftir stríðið.
ísland hefur margt að bjóða
sem ferðamannaland og það á
eftir að hljóta viðurkenningu á
því sviði. Þegar að því kemur,
mun ferðamannastraumurinn
reynast drjúg tekjulind, og það
í erlendum gjaldeyri. En ís-
íendingar geta ekki ætlazt til
þess, að útlendingar sæki hing-
að í stríðum straumum, meðan
áhugi landsmanna sjálfra á
ferðalögum um landið er ekki
óskiptur. Þess vegna verður
bjóðin sjálf að sýna landi sínu
fulla ræktarsemi á þessu sviði
og með áhuga sínum að byggja
upp það samgöngu- og þjón-
ustukerfi, sem ferðamannaland
verður að hafa. Þá munu er-
lendir gestir koma fljótlega á
eftir.
\
Tónlisfarskólinn
fulfugu ára.
TÓNLISTARSKÓLANUM
var slitið 3. júní, og hefur hann
þá starfað í 20 ár. Nemendur
voru í vetur 240, en kennarar
20, að skólastjóra, Páli ísólfs-
cyni, meðtöldum.
Fimm nemendur voru braut-
skráðir í vor: þrír píanóleikar-
ar: Inga Heiða Loftsdóttir,
Ragnar Björnsson og Gunnar
Axelsson, einn fiðluleikari,
Ingvar Jónsson, og einn flautu-
leikari, Gísli Fiðriksson.
Tvennir nemendahljómleikar
voru haldnir fyrir skólaslit.
Skólástjórinn, Páll ísólfsson,
og Ólafur Þorgrímsson formað-
ur skólans héldu ræður við
skólaslitin. Skólastjóri rakti í
ræðu sinni sögu skólans. 44
nemendur hafa verið braut-
skráðir úr honum samtals og
starfsemi hans aukið tónlistar-
þekkingu og áhuga þjóðarinn-
ar.
Brautskráðir nemendur til-
kynntu, að þeir myndu gefa
skólanum málverk af skóla-
stjóranum í þakklætisskyni fyr
ir giftudrjúgt starf hans við
skólann og tónlist á fslandi.
Þegar ungíingarnir losna úr skólunum.
Athyglisvert bréf frá verkamanni.
MINNI ÞÁTTTAKA verður
sennilega af hálfu hinna Norð-
urlandanna í síldveiðunum hér
við land í sumar en undanfarin
ár hefur verið, samkvæmt frá-
sögn fiskimálastjóra, en hann
er nýkominn heim af fiskimála
ráðstefnunni í Lysekil.
VERKAMAÐUR SKRIFAR:
„Nú eru skólarnir hættir og vor
prófum Iokið. Unglingarnir eru
(5VO glaðir, að þeir kunna sér
ekki læti. Það mætti segja
mér, að kennararnir væru líka
fegnir. Það eru 20 ár síðan ég
var í skóla, en ég er líka glaður
og það er af því, að í vetur var
ég að reyna til að hjálpa strák
í gagnfræðaskólanum.
SKÓLATÍMINN'er of langur
og það á að troða langsámlega
of miklu í börniri, svo miklu, að
etundum virðist svo sem
kennslubókahöfundarnir viti
naumast sjálfir hvað þeir eru að
fara.
EIN KENNSLUBÓKIN er í
eðlisfræði og er eftir Jón A.
Bjarnason. Við skulum taka of-
urlítið af „bullufræði“ þeirrar
bókar. ,,Bullufræði“ er dálítið
tvírætt orð, en við getum' haft
báðar merkingarnar í huga.
Á BLS. 58 er talað um vatns-
fergju. Vatnsfergjan hefur 2
bullur, bullu F og dælubullu og
opna pípu á milli. Svo segir: „Sé
þvermál bullunnar F t. d. 100
sinnum meira en þvermál dælu-
bullunnar, þrýstist F upp á við
með krafti sem er 100 sinnum
meiri eri sá kraftur, sem dælu-
bullunni er þrýst niður með.“
Til. frekari áréttingar er svo
sagt, að með litlum krafti á
dælubulluna megi fá mikinn
þrýsting á F og að sama skajji
meiri sem þvermál F sé meira
en þvermál dælubullunnar.
EG IIF.LI) að höfundur ætti
að teikna upp tvo hringi, annan
100 sinnum meiri í þvermál og
Kommmiistaklœkí r á kennaraþingi
SAMÞYKKT sú, sem" komm-
únistar fengu — með sínum
alkunnu brögðum — gerða á
nýafstöðnu fulltrúaþingi
barnakennara, þess efnis, að
það lýsti yfir eindregnum
stuðningi sínum við hið svo
kallaða ,,friðarávarp“, sem
nokkrir áróðursmenn og
ginningarfífl komúnista settu
saman á fundi í Síokkhólmi í
fyrrahaust, hefur að vonum
vakið töluvert umtal, og þá
ekki sízt vegna þess, hvenær
hún er gerð, — þ. e. samtím-
is því, að kommúnistar eru
að hefja blóðuga árásarstyrj-
öid austur í Asíu. En upp-
lýst er nú fullkomlega, að
barnakennararnir yfirleit eru
algerlega saklausir af þessari
hneykslanlegu samþykkt.
Hún var gerð af aðeins 15
kommúnistum og fylgifiskum
þeirra, þegar dagskrá þings-
ins var á enda og flestir
hinna 50 fulltrúa farnir!
ÞEGAR TILLAGAN um þessa
samþykkt var borin fram,
voru, að því er Ármann Hall-
dórsson skólastjóri hefur
skýrt Alþýðublaðinu frá, að-
eins um 30 fulltrúar eftir á
fundi. Forseti þingsins,
Snorri Sigfússon, fyrrver-
andi skólastjóri, lagði þá til,
að tillögunni væri vísað frá;
en það var fellt með 15 at-
kvæðum kommúnista gegn
12. Síðan var tillagan sjálf
samþykkt með sama at-
kvæðamun, og daginn eftir
auglýsti Þjóðviljinn það, að
„samband íslenzkra barna-
kennara hefði lýst yfir ein-
dregnum stuðningi“ sínum
við „friðarávarp“ kommún-
ista! En yfir og við hliðina
á þeirri frétt gat að líta
frásagnir af vopnaðri og
blóðugri innrás „friðarpost-
ulanna“ í Suður-Kóreu!
ÞAÐ ÞARF MEIRA EN Ó-
SVÍFNI til þess að leyfa- sér
slík vinnubrögð á fulltrúa-
þingi íslenzkra barnakennara
og slíka misnotkun á góðu
nafni sambands þeirra. Því
að vita mega komúnistar þó
það, að yfirgnæfandi meiri-
hluti íslenzkra barnakennara
mun með öllu afþakka þann
heiður, að vera dreginn í dilk
meÖ þeim hræsnurum, sem
þykjast vera að vir.na að
friði í heiminum á sama tíma,
sem þeir eru að hefja tilefn-
islausa og blóðuga styrjöld
austur í Asíu, styrjöld, sem
um það, er lýkur, getur vel
breiðzt út um allan heim og
leitt meiri hörmungar yfir
mannkynið en dæmi eru til.
Barnakennarar munu líta
á það sem stórkostlega móðg-
un við barnakennarasamtök-
in, að kommúnistar skuli hafa
leyft sér slíka misnotkun
fulltrúaþings þeirra til fram-
dráttar slíkum hræsnis-
áróðri.
EN ÞANNIG ERU öll vinnu-
brögð kommúnista. Þeir nota
sér til hins ýtrasta andvara-
leysi hrekklausra manna,
reikna svo út flatarmálið og
vita hvort það verður 100 sinn-
um meira á þeim stærri. Því
hér er það fatarmál bullhaus-
Qnna sem máli skiptir og það
vex ekki í sama hlutfalli og þver
mál þeirra.
Á BLS. 81 ER VÉLFRÆÐI.
Þar er verið að lýsa hinum fjór-
um slögum fjórgengisvéla. Þar
segir: ,,f fjórðu göngu útblást-
ursslaginu þeytist bullan aftur
upp á við vegna hreyfingarorku
einnar.“ Og neðar á sömu síðu
er sagt, að það sé aðeins í vinnu-
slaginu, sem hinn knýjandi kraft
ur veiti bullunni hreyfingar-
orku. í. næstu þrem slögum
heldur bullan áfram vegna
„hraða síns“ og nú innan gæsa-
lappa. Það er eins og það
hvarfli að höfundinum, að
þetta sé nú kannske ekki alveg
tæmandi skýring, og ég held, að
það sé alveg rétt. Þessi bulla
sem hér er talað um, er ekki allt
af að snúa við á hreyfingar-
stefnunni, hvorki vegna hreyf-
ingarorku sinnar né vegna
hraða síns. Það væri andstætt
tregðulögmálinu.
EG ÆTLA EKKI aS nefna
fleiri dæmi, enda gramdist mér
mest vegna eðlisfræðinnar, því
að það var mín skemmtilegasta
námsgrein, þegar ég var í
skóla og ég á ennþá litlu eðlis-
vxæðina eftir Valdimar Snævar
og þykir vænt um hana. — í
stærðfræði er þjösnast yfir allt
of mikið. Þar á að sleppa alveg-
bókstafareikningi og ef til vill
meiru, en læra betur það, sem
farið er yfir. Jafnvel í íslenzku
er farið of langt, því er z í
þessu orði en ekki hinu? Hvað-
an er þetta y komið? Og svo er
vitnað í fornmálið, í dönsku,
norsku, sænsku, ensku, þýzku
gotnesku og latínu, alveg eins
og krakkarnir kunni þetta allt
saman eða hafi það að minnsta
kosti í vasanum.
ÍSLENZKUKENNARARNIR
ættu heldur að reyna að kveða
niður eitthvað af málleysunum,
svo að t. d. blaðamenn framtíð-
arinnar skrifuðu ekki t. d.
þrepskjöld, voðaskot og eldur
várð laus, þegar þeir meina
bröskuld, slysaskot og það
kviknaði í, eins og ykkur þessa
gömlu hefur nú stundum hent.
Eg held, að við ættum að
spyrna við fótum og það snar,-
lega og athuga hvar við erurp
staddir. Gagnfræðaskóli á ekki
að ala upp sérfræðinga, það er
ekki hans hlutverk. Hann á að
kenna það, sem kemur að hag-
kvæmum notum í daglegu lífi;
EG VAR NÆRRI ÞVÍ búinn
sem ekki oru við klækjum að skrifa þér skammabréf eftir
þeirra búnir. Þannig fá þeir
oft og tíðum gerðar sam-
þykktir, eftir sínu höfði, um
fylgi eða stuðning við hin eða
þessi vélráð kommúnista
bæði hér og erlendis. Og svo
er saklaust fólk, eins og
barnakennararnir í því til-
felli, sem hér hefur verið á
minnzt, dregið í dilk með
þesum flugumönnum, og gott
nafn samtaka þess misnotað.
að stúdentarnir töluðu um and-
legt frelsi í vetur. Þær umræð-
ur báru menningarástandi
þeirra lélegt vitni. Ekki minnst
á hvað væri andlegt frelsi. ■—
Ekkert talað um hve víðtækt
anllegt frelsi væri mögulegt eða
andlegt frelsi væri mögulegt eða
aðallega um hvort væri bölv-
aðra, Sovétríkin eða Bandarík-
in.“
Hannes á horninu.