Alþýðublaðið - 20.07.1950, Síða 1
yeðurhorfur:
Austan gola eða kaldi. Rign-
ing með köflum.
Forustugrein:
Saga, sem ekki verður
B fölsuð.
EI
XXXI. árg.
Fimmtudagur 20. júlí 1950
153. tbl.
MALAFERLI kommún-
istastjórnarinnar í Austur-
Þýzkalandi gegn fjármála-
ráðherra Túringen og öðr-
um „efnaliagslegum skemd-
arvörgum“ hafa tafizt um ó-
fyrirsjáanlegan tíma. Stafar
þetta af því,' að hinn opin-
beri ákærandi í málinu hef-
ur sjálfur flúið til Vestur-
Berlínar c? hafðj með sér
mikið af málsskjölunum!
Furðulegar aðgerðir ríkisstjórnarinnar:
A vígstöðvimum í Kóreu
lí ¥10S
VAXANDI viðsjár eru nú
með ríkjunum á Balkanskaga.
Kefur Grikklandsnefnd samein
uðu þjóðanna sent Trygve Lie
skýrslu, þar sem talin er alvar-
leg hætta á að nágrannaríki
Grikkja geri á þá árás. Hafa
rússnesku leppríkin ákært
Grikki um vígbúnað og árásar-
fyrirætlanir, en nefndin segir,
nð Grikkir hafi einmitt verið að
afvopna sig.
Þá skiptast Júgóslavar enn á
orðsendingum við nágranna-
ríki sín, Búlgaríu og Albaníu,
þar sem klögumálin ganga á
víxl um árásarfyrirætlanir og
landamærabrot.
Mynd þessi sýnir ameríska og suður-kóreisks herrnenn á víg-
stöðvunum í Kóreu.
Tvö herfylk! gengu
á Sand f gær.
TVÖ amerísk herfylki hafa
nú gengið á land í Kóreu og
hefur herstyrkur sameinuðu
þjóðanna þar með þrefaldazt.
Gekk önnur deildin á land í
Fusan, en hin allmiklu norðar
ú austurströndinni, fyrir aftan
framlínur kommúnista á þeim
slóðum. Gekk landgangan mjög
vel, og var gerð undir vernd
herskipa. Fyrstu herflokkar
þessara deilda voru þegar í gær
komnar til vígstöðvanna. Eru
þessar herdeildir sagðar búnar
skriðdrekum og öðrum full-
komnum vopnum. í gærkveldi
var frá því skýrt í Tokio, að
kommúnistar á austurströnd
Kóreu létu undan síga fyrir
amerískum hersveitum.
Á aðalvígstöðvunum halad
Bandaríkjamenn enn stöðvum
sínum, en kommúnistar eru
Framhald á 7. síðu.
íoðskapur Trumans forseía fi!
fingsins um naliðsynlegar aðgerðir
TRUMAN FORSETI sendi í gær þjóðþinginu boðskap, þar
sem hann fór fram á 10 milljarða fjárveitingu til hernaðarað-
gerða í Kóreu, aukins vígbúnaðar og stuðnings við vinveittar
þjóðir. Jafnframt fór forsetinn fram á leyfi til að kalla út
varalið og auka her-og flota, hefja nauðsynlega framleiðslu til
hernaðarþarfa. Þá fer hann og fram á heimild til ýmissa ráð-
stafana innanlands, meðal annars til þess að hindra verð-
bólgu, ef þörf reynist.
Truman bendir á í boðskap
sínum, að stuðningur samein-
uðu þjóðanna við Suður-Kóreu
hafi þegar hindrað það, að
kommúnistar legðu landið und-
ir sig. Hann minnti á, að kom-
múnistar hefðu þarna stóran
her, sem væri rækilega þjálf-
aður og undir öruggri stjórn,
og mundu sameinuðu þjóðirn-
ar eiga fyrir höndum harða bar
áttu þar. Truman taldi nú auð-
sætt, svo að ekki verði um
deilt, að kommúnisminn svífst
einskis til að koma áætlunum
sínum fram.
eigu
sfiaum!
Forsetinn óskaði eftir 10
milljarða fjárveitingu til þess
að standa straum af herkostn-
aði í Kóreu, og gera nauðsyn-
legar ráðstafanir innanlands,
en einnig til þess að styrkja
varnir vinsamlegra þjóða og
gera þeim kleift að verjast
gegn frekari árásum, ef gerðar
verða.
Skömmu eftir að Truman
forseti sendi boðskap sinn til
þingsins, voru lögð fram á
þinginu frumvörp um margs
konar ráðstafanir, svo sem for
Framhald á 7. síðu.
Alþýðusambandssfjórn mun hvetja verka-
r JPj* S r S ri n g s
RÍKISSTJÓRNIN hefur nú látið falsa vísitöluna, svo að
hún er aðeins 109 stig 1. júlí, en hefði með venjulegum út-
reikningum orðið 117 stig. Jafnframt hefur stjórnin gefið út
bráðabirgðalög þess efnis, að kaup skuli til áramóta ekki greitt
eftir hinni fölsuðu vísitölu, heldur eftir vísitölunni 112 stig!
Stjórnin hefur nú látið taka tillit til húsaleigulaganna,
sem samþykkt voru á síðasta alþingi, í reikningi vísitölunnar.
Samkvæmt lögum þessum ætti liúsaleiga að LÆKKA; og er
gert ráð fyrir slíkri HÚSALEIGULÆKKUN í vísitolunni, þótt
rannsókn hafi leitt í ljós, að húsaleiga hefur hvergi lækkað
vegna laga bessara.
Vegna þessara aðgerða ríkisstjórnarinnar mun miðstjórn
Alþýðusambands íslands leggja fyrir sambandsfélögin að segja
upp samningum og hefja kaupgjaldsbaráttu til a'ð fá bætta þá
kjaraskerðingu, sem orðið hefur vegna gengislækkunarinnar.
Bráðabirgðaiög
gefin úf í gær
.Opinber tilkynning var gef-
in út um þetta í gær og er hún
á þessa leið:
„Forseti íslands gerir kunn-
ugt:
Viðskiptamálaráðherra hef-
ur tjáð mér, að nauðsynlegt sé
að setja bráðabirgðalög um
greiðslu launauppbótar. Með
lögum nr. 56 1950 um breyt-
ingu á lögum nr. 37 1943 um
húsaleigu, er sett hámark
húsaleigu, að viðbættri vísi-
töluuppbót, sem ákveða má
fyrir íbúðarhúsnæði. Hámarks
ákvæði laganna hafa áhrif til
lækkunar yfirleitt á húsaleigu
íbúðarhúsnæðis og varð því
ekki h^á því komizt fyrir kaup
lagsnefnd að taka fullt tillit
til nefndra laga og þeirrar
lækkunar á framfærslukostn-
aði, sem af þeim leiðir.
Vísitalan fyrir júlí hefur
með tilliti til þessa verið á-
kveðin 109 stig og mundi þá
að óbreyttum lögum aðeins
5% launahækkun verða grei’dd
til ársloka. En þar sem áður
greind lög um lækkun húsa-
leigu eru nýlega set't og því
ekki komin til framkvæmda
nema að litlu leyti, þykir ekki
sanngjarnt að sú vísitölulækk-
un, sem af þeim stafar, komi
til framkvæmda nú nema að
litlu leyti. Þess vegna þykir
rétt að ákveða, að 12% upp-
bót skuli greiða á öll laun frá
Framhald á 7. síðu.
Viðtal vlð Helga
Hannesson
Alþýðublaðið sneri sér í gær
kvöldi til Helga Hannessonar,
forseta Alþýðusambands ís-
lands, og spurði hann um mál
þetta. Hann skýrði svo frá, að
evo óvenjulega hefði brugðið
við, að ríkisstjórnin hefði kall-
að kaupgjaldsnefnd á sinn
fund til að ræða við hana út-
reikning vísitölunnar. Áður
virtist samkomulag um það í
nefndinni að reikna vísitöluna
á sama hátt og fyrr, en eftir
afskipti ríkisstjórnarinnar
vildi meirihlutinn taka upp
nýjar aðferðir við útreikning-
inn.
Gegn tillögum fulltrúa
Alþýðusambandsins í nefnd
inni, Torfa Ásgeirssonar
hagfræðings, var brugðið út
af 11 ára venju um að taka
tillit til húsaleiguvísitölunn
ar í framfærsluvísitölunni.
Nú var þetta ekki gert, en
húsaleiguvísitalan hefur ný-
lega hækka'ð um 18 stig og
mundi þetta eitt liækka vísi
töluna um rösklega 2 stig.
Þá ákvað meirihluti nefnd-
arinnar nú, að því er virðist
samkvæmt fyrirskipunum rík-
isstjórnarinnar, að taka tillit
til húsaleigulaganna, sem al-
þingi samþykkti í þinglok í
vor. Ef þessi lög væru fram-
kvæmd, myndu þau lækka
húsaleiguna í landinu, en rann
sókn, sem nefndin gerði, sýndi
Framhald á 7. síðu.