Alþýðublaðið - 20.07.1950, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 20.07.1950, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 20. júlí 1950 ALÞÝöUBLAÐgö 3 FRÁ MORGNITIL KVÖLDS í DAG er íimmtudagurinn 20. júlí, Þorláksmessa á sumri. Þennan dag árið 1944 var gert hið frœga banatilræði við Adolf Hifler. Sólarupprás var kl. 3.54. Sól- arlag verður kl. 23.11. Árdegis- háflæður verður kl. 9.40, síð- degisháflæður verður kl. 22. Sól er hæst á lfoti í Reykjavík kl. 13.34. Næturvarzla: Reykjavíkur- apótek, sími 1760. Flugferðir FLUGFÉLAG ÍSLANDS: Inn- anlandsflug: í dag fyrir há- degi er ráðgert að fljúga til Vestmannaeyja, Blönduóss, Sauðárkróks, Kópaskers, Reyðarfjarðar og Fáskrúðs- fjarðar, og' auk þess tvívegis til Akureyrar, fyrir og eftir hádegi. Á morgun verður, ef veður leyfir, flogið fyrir há- degi til Vestmannaeyja, Kirkjubæjarklausturs, Fag- urhólsmýrar, Hornafjarðar og Siglufjarðar, og tvær ferðir til Akureyrar. Utanlandsflug: Gullfaxi fer á laugardags- morgun ti Osló og Kaup- mannahafnar, kemur til baka á sunnudag. LOFTLEIÐIR H.F. Innanlands- fíug: f dag er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja kl. 13.30, til Akureyrar kl. 15.30. Þá er áætlað að fljúga til ísafjarðar og Patreksfjarðar. Á morgun er áætlað að fljúga til Vést- mannaeyja, Akureyrar, ísa- fjarðar og Siglufjarðar. — Utanlandsflug: Geysir fór til London á miðnætti í nótt. Skipafréttir Laxfoss fer frá Reykjavík kl. j 8, frá Borgarnesi kl. 13 og frá , Akranesi kl. 15. Frá Reykjavík aftur kl. 18 og' frá Altranesi kl. 20. M.s. Katla er á leið frá Rvík j til London. M.s. Arnarfell er í Kotka. Fer þaðan sennilega á morgun áleið is til Reykiavíkur. M.s. Hvassa- j fell fór sennilega frá Bremen í gær áleiðis til Flekkefjord í Noregi. Hekla fór frá Reykjavík kl. 21 í gærkveldi til Glasgow. Esja fór frá Reykjavík kl. 20.30 í gærkveldi austúr um land til Sigufjaroar. Herðubreið var væntanlegt til ísafjarðar í gær- kveldi. Skjaldbreið er á Skaga- fiðri á norðurleið. Þyrill er í ÚTVáPPÍB 20.30 Einsöngur: Maggie Tey- te syngur (plötur). 20.45 Dagskrá Kvenréttindafé- lags íslands. — Ferða- saga frá Englándi (frú Ástríður Eggertjfióttir). 21.10 Tónleikar (plötur). 21.15 fþróttaþáttur (Sig. Sig- urðsson). 21.30 Sinfónískir .tónleikar (plötur): a) „ILebrides- eyja-forleikurirm“ efíir Mend'elssohn. b) Píanó'- konsert nr. 1 í g-moll eftir Mendelssohn. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Framhald sinfónísku tón leikanna e) Sinfónía í-B- dúr eftir Johan $vend- sen. Reykjavík. Ármann var í Vest- mannaeyjum í gær. Brúarfoss fór frá Cork í ír- landi í gær til Rotterdam og Kiel. Dettifoss fór frá Antwerp- en 18/7 til Reykjavíkur. Fjall- foss fór frá Húsavík í gær til Ólafsfjarðar. Goðafoss fór frá Lysekil 18/7 til Siglufjarðar. Gullfoss fór frá Leith 18/7 til Kaupmannahafnar. Lagarofss kom til New York 7/7 frá Rvík. Selfoss kom til Reykjavíkur í gær frá ísafirði. Tröllafoss fór frá Reykjavík í gær til New York. Vatnajökull kom til New York 17/7 frá Reykjavík. Afmæli Þorsteinn Finnbogason, bóndi Fossvogi er sjötugur í dag. Söfn og sýningar Landsbókasafnið er opið yfir sumarmánuðina sem hér ssgir: Alla virka daga frá kl. 10—12, 1—7-og 8—10; á laugardögum þó aðeins frá kl. 10—12. Náttúrugripasafnið ■ er opið frá kl. 13,30 til 15, þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga. Safn Einars Jónssonar mynd- höggvara er opið á su'nnudögum frá kl. 13.30—15.30. Úr öSIum áttum VEGFARENDUR: Gáleysi í umferð getur kostað yður aevilöng örkuml, jafnvel lífið sjálfL. Farseðlar að Borgarvirki um helgina eru seldir í Bifröst, Hverfisgötu 6, sími 1508. Farið verður frá Reykjavík kl. 2 e. h. á laugardag og til baka á sunnu dag. Síðasta ferð kl. 23. —--------*---------- 30 leiðanoursmenn komu með Geysi í gær GEYSIR, millilandaflugvél Loftleiða kom í gær kl. 20 frá ■laupmannahöfn og Stokk- hólmi. Meðal farþega eru um 30 leiðangursmenn dr. Lauge ííoch. Munu Loftleiðir flytja menn þessa áfram til Ellaeyj- nr, svo sem áður hefur verið skýrt frá í blöðum. Á miðnætti í gærkvöldi fór Geysir til London. Sækir hann bangað ,,stríðsbrúður“ þær, er hann flutti til London i byrj- un júní. Verða þær fluttar til Chicago. Geysir er væntanlegur hing n.ð á vesturleið um miðjan dag á morgun. Flugfreyjá á Geysi þessari ferð frá London er Margrét Guðmundsdóttir, sem nýlega var kjörin „flugfreyja ársins 1950“, svo sem áður hef ur verið frá skýrt. Hekla, önnur millilandaflug vél Loftleiða lagði af stað íi gærmorgun kl. 9 til New York. Fer vélin þangað til viðgerðar og er ráðgert að hú» verði leið vestra, ef til vill um eins árs bil. TUTTUGU OG TVEIR Téldc ar hafa verið handteknir fyrir að undirbúa uppreisn. Er sagt, að þeir hafi haft útvarpsstöð, sem nota átti til að hvetja þjóðina til uppreisnar gegn kommúnistum. 27/1950. Innflutnings- og gjaldeyrisdéild fjárhagsráðs hefur ákveoið, að öll verðlagsákvæði á öli og gosdrykkjum, bæði að því er snertir framleiðslu og verzlun, skuli úr gildi fallin. Reykjavík, 13. júlí 1950. VerSIagsstjórinn. ALLTAF kemur eitthvað nýtt til þess að miskunna sig yfir þennan heim, sem jafnan 'iykist þjázt af tilbreytingar- ieysi, þótt allt sé á hveríanda iiveli og upphafslaus og enda- ;aus hringiða tilbreytinga. Græna matstofan! Hvað er nú það? hugsaði ég, er ég hlust aði á tilkynningu frá henni 1 útvarpi. En viti menn, svo kemur allt í einu elskulegt boðskort frá Grænu matstof-- unni. Ég’. hef víst aldrei áður ekið um 100 kílómetra til þess að snæða eina máltíð (hér er útt við báðar leiðir). Á leiðinni austur fékk ég að sitja við hlið ina á vígslubiskup, séra Bjarna Jónssyni, og Gísla Guðmunds- syni bókbindara, svo að ekki ásóttu leiðindin þar. í gangi nýja barnaskólans í Hveragerði blasti við gestum langborð eitt mikið, búið hin- um dýrustu réttum og borð- hkrauti, sem sæmt hefði hverj um þjóðhöfðingja. Áttatíu rnanns var ætlað þar sæti. Ekki mættu allir boðsgestir, fremur en í dæmisögunni, en beir, sem komu settust glaðir og eftirvæntingarfullir að borði. Hvað skyldi það nú vera, sém maður ætti að láta ofan í sig? Sumt var auð- bekkt, svo sem tómatar, agúrk ur, salat, ostar, radísur, lauk- ur, þrenns konar ágætt brauð, nýrhjólk og súrmjólk og glæ- nýtt smjör, saltlaust og ljúf- fengt. En svo voru það aðal-" réttirnir? Ég hafði við ofur- litla varkárni, tók lítið fyrst, on kjarkleysið hvarf þegar 'iragðað var á réttunum. Þetta barf svo ekki að orðlengja, maturinn var allur sérlega 'iúffengur, bragðgóður og in- i.læll. í honum var þvorki sal.t, sykur r.é' neins kdnar krydd. en ekki fékk ég að vita að bessu sinni, hvernig allt var gert bragðgott og sumt sætt. Sg óttaðist nú það eitt, að fyr- ir mér kynni að fara eir.s og norsku kerlingunni, sem át sig of sadda af hálfsoðnum hrís- grjónum, komst svo ekki.nema á vallargarðinn og lá þar vein- andi og sagði: „Det er ont at vera sulten, sa’an, men tusend a boð- Daglega stólum \ tíL' kaldir ) U l'C, < »- i 't T !• Í. T« l og heitir fisk- og kjöfréttir yange verra at vera met“. ■— Illt er að vera svangur, en :>úsund sinnum verra að vera caddur. Eftirmaturinn var skyr og r.jómi. Ekki sást þó að þetta væri skyr. Það var ofurlítið brúnt á lit og hefur senni- 'ega verið blandað einhverjum iiráum korntegyndum, og sætt var það einnig, ekki af sykri, en ekki veit ég af hverju, sennilega einhverjum ávaxta- cafa. En það var herramanns- matur. Sigurjón Pétursson var glað ur og reifur að vanda, bauð gesti velkomna og kynnti fyr- rtækið. Borðræður voru fáar, og er slíkt vel þegið, en skemmtilegustu ræðuna flutti vígslubiskup. Hann kom okk- tir til að hlæja, og er það gott með góðum mat. Hann sagði, meðal annars, að frúin hefði spurt sig, hvort hann væri ekki of þreyttur til þess að fara? „Það er einmitt þess vegna ég fer“, svaraði séra Bjarni. Nú átti að fá fjörefn- ;n og lækningu við þreytunni. Inni í setustofunni var gest- um svo borinn rjómaís í hon- um voru bæði vínber og rús- ínur, og með fylgdi lagkaka, ræt og góð, en þó ekki sykruð með venjulegum sykri, en meira veit ég ekki um það. Sigurjón lofaði fræðslu um allt þetta síðar. Nú stóð upp ágætis kona, sem ég hef þekkt tim áratugi, níu barna móðir frá góðu heimili. Hún hafði farið fyrir þrem vikum og vist- að sig í Grænu matstofunni, var þá sjúldingur og svo þjáð af eksemi og útsteypt, að hún gat ekki látið sjá sig í kjól með ■tuttum ermum. Nú stóð hún i'arna m.eð bera handleggi og uýndi sig, og talaði um þann bata, sem hún hafði fengið. Engin lyf voru notuð, aðeins i'æðan úr hráu grænmeti og svo sundlaugin. Önnur kona stóð einnig upp og talaði um bata sinn. Hún var hæglát og ekki líkleg til að boða neinar öfgar. Hún bafði þjáðst lengi af gigt og leitað lækna árangurslaust. Aúðvitað var hún ekki orðin alheil, en batinn var henni þó augljós og mikils virði. Ég veitti því eftirtekt, að bekkir og allú' stólar voru með grænu áklæði. Og ég fékk að vita, að það var verk frú Matt- hildar Björnsdóttur. í st-jórn fyrirtækisins eru þau Sigur- ión Pétursson, Macthildur Björnsdóttir og Sigurbjörn Þorkelsson. ílvað sem skoðunum manna Frh. á 7 síðu. Hótnopali var dæmd ur fyrir fiiraun til fésfureyðingar 193? Kvaðst vera a'ð bjorga fóstriou! í BLAÐÍNU í GÆR var frá [jví skýrt, að dómurinn yfir Jónasi Sveinssyni lækni væifi' fyrsti dómisr, sem gengi'J hefði á íslandi fyrir fóstureyð- ingu Iæknis. Þetta var þó ekki alís kostar rétt, bví að árið 1937 var Sigurður Hannesson iiómópati, sem hafði réttindi til smáskammtalæknmga, dæmdur í átta mánaða fang- l!sí og missi réttinda sinna ævilangt fyrir meinta tilraun til fóstureyðingar. Þar sera hann var af Iækni talinn „geð- veikur að vægu stigi“, breytti hæstiréttur dóminum svo, að ræzluvarðhald kom fyrir fang elsið. Stúlka sú ,sem við mál þetta var riðin, kom til Sigurðar og oað hann að eyða fóstri. Tók hann því vel, og sagði henni að koma til sín 14 sinnum. Er hún kom til hans, var með- '’erðin í því fólgin, að hún var látin liggja á legubekk undir sterkum rafljósaperum eina klukkustund á dag. Auk þess fékk hún rafmagn annan hvern dag á þann bátt, að hómópatinn setti inn í fæð- ingarveg hennar rafmagns- tæki og hleypti síðan sterk- um straum á. Stóð tilraun þessi fyrst yfir í 10—15 mín- útur, en síðan hálftíma Fylgdi þéssu ^ársauki, en hómópatinn sagði stúlkunni, að slíkt yrði hún að þola, ef árangur ætti ,?,ð nást. Auk þess kvartaði hún undan því, að hann hefði ver- ;ð klúr í orðum við hana og cinu sinni farið fram á sam- farir við hana. Út af þessu var hafin rann- rókn á lækningum Sigurðar og hann settur í gæzluvarðhald. Hann neitaði því hins vegar ítaðfastlega, að hann hefði fcaft' hugmynd um að stúlkan væri barnshafandi og kvaðst hafa verið að lækna önnur raein. Fleiri konur voru .yf-ir- heyrðar og játaði Siguröur um eina þeirra, p'ö hann heíði fall- izt á að reyna að eyða fóstri hennar raeð ljósum. Þetta kvaðst Sigurður hafa gert í pví skyni að bjarga fóstrinu, fcvað sér hafa skilizt .á barns- föðurnum, að það yrði leitað ’ækna, ef hann vildi ekki lijálpa, en hann bjóst við, að ef hann gæti tafið fyrir því, mundi ekkert verða af því. - Þrátt fyrir þessa vörn var Sigurður sekur fundinn. Hér- aðslæknirinn í Reykjavík talcli bað vafalaust, að aðgerðir Sigurðar hefðu getað komið af rtað fósturláti, þótt hins vegar væri engan veginn víst að þær byrftu að bera þann árangur. Þótti réttinum sannað, að meðferð hómópatans á konun- um hefði verið meint tilraun til að eyða fóstri og var hann því dæmdur í átta mánaða fangelsi og missi réttinda. Réttindum hans var svo varið, að hann hafði stundað smá- skammtalækningar síðan urn. aldamót, og samkvæmt lögum hélt hann þeim réttiadum, er læknalögin voru sett, en missti þau við dóm þennan. Báðar konurnar, sem voru aðallega við mál þetta riðn- ar, fæddu börn sín við góða lieilsu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.