Alþýðublaðið - 20.07.1950, Síða 4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Finimtudagur 20. júlí 1950
Útgefandi: AIþýðuflo,Í£kurinn.
Ritstjóri: Stefán Pjetursson.
Fréttastjóri: Benedikt Grönðal.
Þingfréttir: Helgi Sæmundsson,
Ritstjórnarsimar: 4901, 4902.
Auglýsingar: Emilía Möller.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Aðsetur: Aiþýðuhúsið.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
Sapr sem ekkS
verður fölsuð
ÞJÓÐVILJINN gerir sér það
bersýnilega ekki nægilega
ljóst, að þýðingarlaust er fyrir
kommúnista, að ætla sér að
falsa sögu alþýðuhreyfingar-
innar í lýoræðislandi; því að
þar er jafnharðan hægt að
fletta ofan' af ósannindum
þeirra. í einræðislöndum kom-
múnismans er hins vegar allt
öðru máli að gegna. Þar ráða
kommúnistar yfir öllum blöð-
um og bókum, og ekkert fær
að koma á prent annað en á-
róður þeirra. Þar þarf ekki ann.
að en taka allar eldri heimild-
ir í bókum og blöðum úr um-
ferð og Ijúga síðan að almenn-
ingi, hvað áður hafi gerzt. Þá
er á tiltölulega stuttum tíma
hægt að falsa söguna þannig í
vitund fólksins, að það hafi
ekki hugmynd um hið sanna
og rétta.
Þetta er það, sem þeir gera
austur á Rússlandi. En hér þýð-
ir kommúnistum ekkert, að
reyna slíkt. Það er því ekki
nema broslegt, þegar þeir segja
Eögu alþýðuhreyfingarinnar
hér á Iandi í Þjóðviljanum í
gær þannig, að Kommúnista-
flokkurinn hafi verið stofnaður
„vegna svika Alþýðuflokksins
við alþýðuna og sósíalismann.“
Þjóðviljinn reynir að vísu, að
bregða einhverjum sanninda-
þlæ yfir þessa lygi með því að
viðurkenna, að Alþýðuflokkur-
inn hafi unnið „marga sigra á
fyrstu árum sínum“ eða áður
en Kommúnistaflokkurinn var
stofnaður. En í sannleika gerir
kommúnistablaðið sig aðeins
enn þá, hlægilegra með slíkri
sýndarsanngirni; því aö allir
vita, að alla stærstu sigra sína
í baráttunni fyrir bættum kjör
um og auknum réttindum al-
þýðunnar hefur Alþýðuflokk-
urinn unnið s í ð a n Komm-
únistaflokkurin var stofnaður
og þrátt fyrir klofnings-
iðju hans og skemmdarverk í
alþýðuhreyfingunni.
*
Stofnun Kommúnistaflokks-
ins var heldur ekki fram köll-
uð af neinni alþýðuhreyfingu
hér á landi. Hún var f y r i r -
s k i p u ð austur í Moskvu og
framkvæmd af nokkrum stúd-
entum, sem tekið höfðu hina
nýju rússnesku trú, en höfðu
utið eða ekkert samband við
íslenzka alþýðuhreyfingu;
enda hefur saga Kommúnista-
flokksins verið öll eftir því.
Því lengur, sem hefur liðið,
þvj þrælbundnari hefur hann
orðið rússneskum stórveldis-
hagsmunum. Fyrir íslenzka
alþýðu hefur hann ekkert gert
nema .til bölvunar. Ekki ein
einasta varanleg umbót á
kjörum hennar er við nafn
Kommúnistaflokksins bundin.
Hann hefur með „baráttu“
sinni, sem eingöngu hefur ver-
ið falin í því að kljúfa alþýðu-
hreyfinguna og reyna að eitra
hana með rússneskum kenni-
setningum, aðeins verið drag-
bítur á þau mörgu góðu mál,
sem hún hefur barizt fyrir og
hægt og hægt verið að bera
fram til sigurs undir merki
Alþýðuflokksins.
*
Menn gera sér það aldrei
nægilega vel Ijóst, hvílíkan
hnekki alþýðuhreyfingin hér
á landi beið við það, að Al-
þýðuflokkurinn var klofinn af
kommúnistum meðan flokkur-
inn var enn í bernsku og ó-
harðnaður. Alþýðuflokkarnir
annars staðar á Norðurlöndum
voru orðnir gamlir og rót-
gronir flokkar, þegar komm-
únistar hófu klofningsiðju
sína, og því miklu betur færir
ur það, að standa hana af sér,
svo .sem reynslan hefur líka
síðan sýnt. En Alþýðuflokk-
urinn hér varð alveg frá byrj-
un að berjast við sundrungar-
starf kommúnista og hafði ekki
starfað nema í rúman áratug,
þegar Kommúnistaflokkurinn
var formlega stofnaður og tók
upp hina skipulögðu rógsiðju
um Alþýðuflokkinn með rúss-
nesku gulli. Þegar þe.tta er
aðgætt, ætti mörgum að verða
ýmislegt skiljanlegra, sem ís-
lenzk alþýðuhreyfing hefur
síðan átt við að stríða.
í hel baráttu Alþýðuflokksins
fyrir árlegu orlofi alls vinn-
andi fólks í landinu, með full-
um launum. Þjóðviljinn minnt
ist ekki einu einasta orði á það
mál fyrr en það hafði náð fram
y.ð ganga á alþingi eftir langa
og þrautseiga baráttu Al-
uýðuflokksins.
*
Og svo heldur Þjóðviljinn,
að hann geti talið fólki trú
um, að Alþýðuflokkurinn, sem
öllu þessu og óteljandi öðrum
hagsbótum hefur komið fram
á kjörum alþýðunnar síðan
Kommúnistaflokkurinn var
stofnaður, hafi svikið hana og
sósíalismann! Vill Þjóðviljinn
þá ekki einu sinni að minnsta
kosti sýna mönnum fram á,
hvað eftir Kommúnista-
f 1 o k k i n n liggur, sem til
varanlegra hagsbóta og auk-
innar menningar horfir fyrir
alþýðu þessa lands?
ðóð veiði hjá
dragnÓfabáium
í Ólafsvík í
Sólrikf
Engu að síður hafa sigrar
hennar verið stórir undir for-
ustu Alþýðuflokksins, og flest-
ir unnizt eftir stofnun Komm-
únistaflokksins og í berhöggi
við lúalegt baknag hans. Þann
ig rægðu kommúnistar verka-
mannabústaðina sem „okur-
Etofnanir“, þegar verið var að
byrja að byggja þá fyrir frum-
kvæði Alþýðuflokksins Þann-
ig kölluðu þeir iðgjöldin til al-
þýðutrygginganna „dráps-
klyfjar" á alþýðuna og söfn-
uðu undirskriftum til þess að
mótmæla tryggingunum, —
einhverri þeirri mestu framr
för, sem hér á landi hefur
orðið á kjörum og réttindum
alþýðunnar; einnig fyrir frum
kvæði Alþýðuflokksins. Og
þannig reyndu þeir að þegja
OLAFSVIK.
SEX BÁTAR hafa stundað
hér dragnótaveiði frá 1. júní í
vor, og auk þess einn opinn
bátur. Afli hefur verið fremur
góður. Aflahæsti báturinn,
Björn Jörundsson, hefur selt
afla sinn á þessu tímabili fyrir
G0 þúsund krónur.
Bátarnir hafa allir lagt upp
hjá frystihúsinu, og auk þess
tveir bátar af Hellissandi öðru
hvoru.
Nú er svo komið að frysti-
húsið er orðið fullt og hætti það
að taka á móti 17. þessa mán-
aðar. Bátarnir munu þó halda
áfram dragnótaveiðum og
leggja upp í frystihúsin í
Grundarfirði og Stykkishólmi
að minnsta kosti fyrst um sinn.
Komið hefur til mála að
leggja afla bátanna upp í salt,
en engin endanleg ákvörðun
hefur verið tekin um það enn-
þá. OTTÓ.
sem með litlum breytingum mætti starfrækja sem
sjúkrahús, óskast til kaups. Mikil útborgun. Menn
semji við undirritaðan í síðasta lagi 22. þ. m. á
hádegi.
EGGERT CLAESSEN hrl.
Gjafir Norðmanna. — Framferði okkar
gagnvarf eigin fornminjum. — Grátbroslegir
þessa stundina. — Fyrirspurn um vogir í búðum.
MUNIRNIR, sem Norðmenn
rendu hingað á herskipi og voru
afhentir okkur á þriðjudaginn
eru okkur kærkomnir. í fyrsta
algi eru munirnir sjálfir dýrmæt
sr og sýna okkur þætti úr sögu
þessarar frændþjóðar okkax, en
um leið fögnum við því, að taka
við gjöf frá Norðmönnum. Væri
vel ef aðrar þjóðir, sem við eig-
um muni hjá, sem eru dýrmæt-
ari en flest annað, en geta ekki
veriff þeim dýrmætir, sendu
hingaff herskip meff þá.
MEÐAL ÞESSARA MUNA
frá Noregi eru sweðal annars
myndir af byggingum frá síð-
ustu tveimur öldum, en auk
þess margir aðrir munir, sem
lýsa menningu og þjóðlífi
Norðmanna. Það er gott að
geta nú farið í Þjóðminjasafnið
og kynnst sögu þeirra á síðari
öldum á þennan hátt.
EN ÉG GET FKKI látið hjá
Líða að benda á það, hvað það
cr táknrænt fyrir okkur Islend-
inga, að næstum því á sömu
Norska forngripagjöfin.
s
s
s
s
ENDA ÞÓTT íslendingar séu
söguþjóð mikil og hafi fyr-
ir 1000 árum lifað menning-
arlífi og skapað menningar-
leg verðmæti, sem þá áttu
enga sína líka og enn eru víð
fræg, eiga þeir fátt verald-
legra muna eða mannvirkja
til að minna á þessa tíð. —
Frægð íslenzkrar menningar
hvílir fyrst og fremst á and-
legum verðmætum, sem varð
veitt voru mann fram af
manni og loks færð í letur.
En menning þessa tíma vík-
ingaaldarinnar átti ' engin
stórkostleg mannvirki, hvorki
hallir né pýramída.
ÞÆR MINJAR, sem til eru frá
þessum tímum, eru því
hvorki miklar né mikilfeng-
legar, miðað við það, sem
mörg önnur menningartíma-
bil hafa getað skilið eftir.
Samt hefur fundizt í jörðu
eða varðveitzt á annan hátt
allmargt muna frá víkinga-
tímunum og hefur fræði-
mönnum tekizt að draga upp
allskýrar myndir af lifnað-
arháttum manna, með því að
nota þæði fornminjarnar og
frásagnir, sem til eru. Þessar
fornminjar hafa því mikla
þýðingu í menningarsögu
þjóðarinnar.
HÉR Á LANDI hefur forn-
minjasafnið órum saman bú-
ið við erfiðar aðstæður. Það
var því eðlilegt, að hugur
manna beindist að því; irm
það bil sem lýðveldi var end-
urreist hér á landi, að hafizt
væri handa um að reisa veg-
lega byggingu fyrir safnið.
Þessi bygging er nú komin
upp, þótt enn sé margt ógert
innan húss, og er þess að
vænta, að hægt verði að Ijúka
,við hana, þrátt fyrir alla erf-
iðleika.
ÞAÐ VARÐ ÓVÆNT fyrir
alla alþýðu manna, að fyrstu
stofurnar, sem teknar eru í
notkun í hinni nýju safn-
byggingu, skyldu hafa að
geyma gripi, sem gefnir hafa
verið hingað frá Noregi.
Þessi bygging ætlar að því
leyti að verða eins og lánd-
ið sjálft: Norskir koma þar
fyrstir og nema iandið, en
síðar mun ur verða íslenzkt
safn, eftir því sem meira af
gripum frá söguöldinni og j
síðari árum verður flutt í
safnið, unz alíslenzk stofnun |
verður eftir, er safnið verð-
ur fullbúið.
ÞESSI SAMANBURÐUR hlýt-
ur að falla öllum íslending-
um í geð. Það er óneitanlega
drengskapur mikill og glögg
merki hreinnar vináttu, er
Norðmenn taka gripi frá
fornöld úr sínum eigin söfn-
um og gefa hingað til lands.
Og íslendingum verður það
vissulega menningarlegur
fengur, að geta af gripum
þessum fengið einhverja hug-
mynd um það land og þá
lifnaðarhæiti, sem landnáms
menn yfirgáfu, og geta borið
bessa hluti saman við sams i
konar gripi íslenzka frá
næstu árum eftir landnámið.
HAFI NORÐMENN þakkir fyr-
ir gjöf þessa, ekki sízt sendi-
herra þeirra hér, Andersen-
Rysst, sem mikinn þátt hef-
ur átt í gjöfinni, og Per Fett
magister, sem hingað hefur
komið til að setja gripina
upp og skýra þá.
dögunum, sem verið er að koma
hinni norsku gjöf fyrir í Þjóð-
minjasafni okkar, erum við að
eyðileggja fornminjar af líkum
aldri og líkri gerð. Það eru ekki
nema fáar vikur síðan mörg
hundruð ára görnul hús austur
á Eyrarbakka voru tætt í sund-
ur og timbrið í tætlum flutt á
burt úr plássinu.
SVO VEL var frá öllu gengið,
r.ð ekki voru einu sinni skildar
rftir tröppuranr og ekki lieldur
liestasteinarnir, heldur var jarð
ýtunni beitt á rústirnar og allt
jafnað við jörðu. Norðmenn
hefðu ekki leyft slíkan vandal-
isma, en við höfum ráð á því,
við eigum svo mikið af sögu-
legum minjum, eða hitt þó held
ur. Og ég get ekki annað en
Ekammast mín fyrir hönd þjóð-
ar minnar þessa dagaria, þegar
við erum að taka við forn mun-
um úr vinarhönd bræðraþjóð-
arinnar með annarri hendinni
en erum um leið önnum kafnir
með hinni að rífa sundur okkar
eigin fornminjar heima ' fyrir.
Við erum grátbroslegir þessa
stundina. í
HÚSMÓÐIR SKRIFAR, úr
Kleppsholtinu. Hún spyr ao því
hvort það sé ekki skylda kaup-
manna að hafa vogir á búðar-
borðinu til að vega vörurnar að
kaupendum ásjáandi. Hún seg-
ist spyrja að gsfnu tilefni, því
að í verzluninni Rangá í Skipa-
rundi sé engin vog á búðar-
imrðinu, en hins vegar sé farið
með vörurnar inn í kompu bak
við og þær vegnar þar.
EG VEIT EKKI BETUR en
að kaupmenn séu skyldugir að
hafa vogir á búðarborðinu og
vega vörurnar fyrir augum
kaupenda. Vogirnar eru ékki að
eins fyrir kaupmanninn, heldur
einnig fyrir viðskiptamann hans.
Mekla fór í gærkveldi
HEKLA lagði af stað frá
Reykjavík í gærkveldi í fjórðu
Skotlandsferð sína fullskipuð
farþegum. Um helmingur far-
þeganna, eða um 70 manns, eru
útlendingar.
KOSNINGAR eiga nú að
fara fram á þeim svæðum Suð-
ur-Kóreu, sem kommúnistar
hafa á sínu valdi, og verða
greidd atkvæði með því að
rétta upp hendurnar!