Alþýðublaðið - 06.10.1950, Qupperneq 7
föstudagur 6. október 1950
ALÞÝÐUBLAÐÍÖ
i
FELAGSL3F
ARMENNINGAB!
í íþróttahúsinu
í kvöld:
kvöld:
, Minni salurinn:
Kl. 7—8 Frjálsar íþróttir, '
yngri fl.
Kl; 8—9 Skíðaleikfimi.
iStóri salurinn.
Ki: 7—8 Öldungar, fimleik-
-«ni' -ár. ■ -■■' r
Kl. 8—9 I. fl. karla, fiml.
Kl. 9—10 Frjálsar íþróttir,
fullorðnir.
Skrifstofan er opin frá kl
8—10. Sími 3356. ^
Stjórn Ármanns.
Guðspekífélagið.
Reykjavíkurstúkan heldur
fund í kvöld (6. okt.) kl. 8,30
síðdegis. Gretar Fells rithöf-
undur flytur erindi: Guð og
menn. — Gestir velkomnir.
SKiPAUTfieBÐ
RIKISINS
til Vestmannaeyja í kvöld.
Tekið á móti flutningi í dag.
oss
71
Eer frá Reykjavík laugaraag-
inn 7. október, kl. 12 á hádegi
til Leith og Kaupmannahafn-
ar. Tollskoðun farangurs og
vegabréfaeftirlit byrjar í toll-
skýlinu vestast á hafnarbakk
anum kl. 10,30 f. h. og skulu
allir farþegar vera komnir í
tollskýlið eigi síðar en kl. 11
f.h.
H.f. Eimskipafélag íslands.
talæfingar, stíla, les dönsku
og ensku með skólafólki.
HÚLDA RITCHIE
Víðimel 23.
Sími 80647.
Samkvæmlskjólar
Saumastofan
UPPSOLUM.
Sími 2744.
Oháði fríkirkjusöfnuðinum gefin
óð vestur í bæ.
Lesli
Alþýðublaðlðl
Ræður séra Emils Biörnssonar gefnaif
út til styrktar kirkjubyggingarsjóði.
íhfih mu f'- 6iri VVTfoT- ■■ .Vö '-j: : i ,. ú
ÓHÁÐA FRÍKIRKJUSÖFNUÐINUM í Reykjavík hefur
nýlega' verið gefin lóð fyrir kirkjubyggingu á mótum Hring-
brautar og Kaplaskjólsvegar. Hefur nú verið stofnaður kirkju-
byggingarsjóður innan safnaðarins, og hafa sjóðnum þegar bor-
izt nokkur þúsund krónur í gjöfum, en aulc þess hefur söfnuð-
urinn ákveðið að gefa út ræður þær, sem séra Emil Björnsson
hefur flutt í Stjörnubíói, og verður ágóðanum varið til eflingar
sjóðnum. Ráðgert er, að ræðurnar komi út fyrir jólin.
------------------••----—♦- Stjórn safnaðarins átti í gær
tal við blaðamenn og skrýði
þeim frá helztu starfsemi sam-
aðarins. Hafði Andrés Andrés
son orð fyrir stjórninni og
sagði meðal annars að meðlim-
ir safnaðarins væru nú orðnir
hátt á annað þúsund.
Eins og að undanförnu munu
guðsþjónustur- safnaðarins
verða í Stjörnubíói annan
hvern sunnudag í vetur, og
hefur söfnuðurinn nú fengið
sinn eigin kirkjukór^ undir
stjórn Jóns ísleifssonar. Félags
líf safnaðarins er blómlegt.
Kvenfélag var stofnað í fyrra-
vetur og eru í því 130—140
konur, og í undirbúningi er
stofnun unglingafélags. Hús-
næði fyrir félagsstarfið hefur
formaður safnaðarins lánað í
bakhúsinu á Laugaveg 3, en
þar er fundarsalur, sem rúmsr
um 60 rnanns. Þar er og skrif-
stofa safnaðarins.
Lóðin, sem söfnuðinurn var
gefin er minningargjöf um Jón
Magnússon yfirfiskmatsmann,
en gefendurnir eru frú Helga
ísaksdóttir, ekkja hans og dæt-
ur þeirra hjóna, Guðrún og
Manqrét, svo og Ingimundur
Jónsson verkstjóri, Holtsgötu
1 og -Helga Jónsdóttir kona
hans.
Þegar eru farnar að berast
gjafir í . kirkjubyggingarsjóð-
inn frá safnaðarfólki og einn-
ig fólki utan hans, t. d. má geta
þess að kona utan safnaðarins
gaf stjóðnum 1000 krónur sem
þakklætisvott fyrir að vera við
messur í Stjörnubíó. Eins og
áður segir, verða ræður séra
Emils Björnssonar gefnar út
til styrktar kirkjubyggingar-
stióðnum og tók hann það fram
að ef prédikanir sínar, semhann
hefði orðið að flytja í óvígðu
húsi, geti stuðlað að því að
koma upp guðshúsi, þá sæti
sízt á sér að neita um leyfi til
útgáfunnar, þótt hann hefði
hins vegar síður kosið að gefa
út fyrstu ræður sínar.
Safnaðargjöld óháða fríkiskju
safnaðarins eru 18 krónur eins
og safnaðargjöld annarra safn-
aða. en margir meðlimir safnað
arins hafa greitt miklu m.eira í
fríálsum framlös'um.
ATHYGLI margra þjóða hefir
beinzt að fulltrúum söguevj-
unnar í nýafstöðnu Evrópu-
meistaramóti í Brussel. Er ein-
sætt af skrifum blaða um
þenna merkasta viðburð á sviði
íþróttanna, að Ólympíuleikun-
urn einum undanskildum, að
svo mikil afrek, sem íþrótta-
menn okkar h.afa unnið, mælt
í sekúndum og sentímetrum,
hefur framkoma þeirra á ieik-
vangi þó ekki síður verið þeim
og landi þeirra til sóma. Hvort
tveggja þetta ber að þakka,
ekki síður hið síðarnefnda. Því
þegar allt kemur til alls, eru
það ekki stigin og metin, þótt
mikilsverð séu, sem máli
skipta, heldur fáguð framkoma
og drengskapur þeirra, í og ut-
an keppni, sem til þess veljast
af okkar hálfu að koma fram i
augsýn og áheyrn hinna stóru
þjóða. Eftir því verðum við
dæmdir, fyrst og fremst.
Mælikvarðinn á íþróttagetu
hinna einstöku þjóða, sern þátt
taka í alþjóðlegum mótuni,
verður þó væntanlega lengst af
metinn í stigum. Því er það að
ýmsir hafa haft af því nokk-
urn beyg, að hinir færustu með
al íþróttamanna okkar bafi
þegar náð það langt, að ^rfitt
muni reynast að fylla í skörð-
in, þegar þar að kemur. Því er
ekki að leyna, og mikið má til,
ef duga skal. En þeir, sem bezt
fylgjast með í þessum efnum,
hafa ástæðu til þess að vera
bj artsýnir. Og óneitanlega eru
áþreifanleg rök þeirra fyrir
þeirri bjartsýni, þegar litið er
til þess, hver árangur náðist
hér í sumar í keppni milli
drengja undir 16 ára aldrþ á
svokölluðu B-júníormóti. —
Hvers má ekki vænta af
drengjum á þeim aldri, sem
hlaupa 60 metra á 7,3—7,5
sek., stökkva 1,65 metra í há-
stökki, varpa kúlu (að vísu
mikið léttari en fullorðinna)
15—16 metra, hlaupa 600
metra á einni og hálfri mínútu,
stökkva nær 6 metra í lang-
stökki, kasta kringlu (léttri
kringlu) yfir 45 metra og
hlaupa 5X80 metra boðhlaup
á -um 40 sek.? Allt þetta skeði
á móti þessu. Og þátttakan var
þar að auki gífurlega mikil, 12
—20 keppendur í einstökum
greinum, en það er meira en
gerist að öllum jafnaði meðal
hinna fullorðnu, þó stundum
sé vel. Þessu er vert að gefa
gaum. Því eru helztu afrek
þessara drengja birt. Enginn
vafi er á því, að leggi þeir
rækt við íþróttirnar af alhug,
og endist þeim aldur heilsa,
munu nöfn þeirra eiga eftir að
skreyta síður fundargerðabóka
Þökkum innilega samúð við andlát og jarðarför
Sesselju Sigríðar Þorkelsdóttur
Einnig þökkum vii' sérstaklega læknum og hjúkrunarkonum
IV:ífilstaðahælis fyrir góða og: fórnfúsa umönnun í veikindum
hennar.
Aðstandendur.
Jarðarför föður míns
Jóns Brandssonar
fer fram að heimili mínu, Kirkjuvegi 36, laugardaginn 7. þ.
m. kl. 2 e. h.
Fyrir hönd barna hans og annarra ættingja
Helga Jónsdóttir.
alþjóðamóta og varpa ljóma a
nafn íslands og' íslenzka í-
þróttamenningu.
Alþýðublaðið
sr afgreitt til fastra áskrifenda og í lausasölu hjá
þessum mönnum:
Verzlun Gunnar Jónssonar, Olíustöðinni, Hvalfirði.
Sveinbirni Óddssyni, Akranesi.
Daniel Eyjólfssyni, Borgarnesi.
Jóni Gíslasyni, Hellissandi.
Ottó Árnasyni, Ólafsvík.
Steinari Ragnarssyni, Stykkishólmi.
Sæmundi Bjarnasyni, Fjósum, Dalasýslu.
Ebeneser Ebeneserssyni, Bíldudal.
Kolbeini Guðmundssyni, Flateyri.
Verkalýðsfélaginu Súgandi, Súgandafirði.
Páli Sólmundarsyni, Bolungarvík.
Ólafi Guðjónssyni, Hnífsdal.
Jónasi Tómassyni, ísafirði. !
Jóni Gíslasyni, Súðavík, Álftafirði.
Guðm. Þ. Sigurgeirssyni, Drangsnesi, Steingrímsf.
Friðjóni Sigurðssyni, Hólmavík.
Jens P. Eiríkssyni, Sauðárkróki.
Jónasi Hálfdánarsyni, Hofsós.
Jóhanni Möller, Siglufirði.
Lárusi Frímannssyni, Dalvík.
Þorst. Jóussyni, Hafnarstræti 88, Akureyri.
Sigurjóni Ármannssyni, Húsavík.
Guðna Þ. Árnasyni, Raufarhöfn.
Guðm. Einarssyni, Þórshöfn, Langanesi.
Ingólfi Jónssyni, Sevðisfirði.
Ólafi Jónssyni, Norðfirði.
Guðlaugi Sigfússyni, Reyðarfirði.
Jóni Brynjólfssyni, Eskifirði.
Þórði Jónssyni, Fáskrúðsfirði.
Bjarna Guðmundssyni, Hornafirði.
Birni Guðmundssyni, Vestmannaeyjum.
Arnbirni Sigurgeirssyni, Selfossi.
Jósteini Kristjánssyni, Stokkseyri.
Verzl. Reykjafoss, Hveragerði.
Jóni I. Sigurmundssyni, Eyrarbakka.
Árna Helgasyni, Garði, Grindavík.
Ásgeiri Benediktssyni, Garði, Efra-Sandgerði.
Alþýðubrauðgerðinni, Keflavík.
ÞorJáki Benediktssyni, Garði.
Birni Þorjeifssyni, Ytri-Njarðvík.
Sigríði Erlendsdóttur, Kirkjuvegi 10, Hafnarfirði.
Nýir kaupendur fá blaðið ókeypis til næstu mán-
aðamóta. — Snúið yður tii útsölumanna Alþýðu-
blaðsins eða afgreiðslunnar í Alþýðuhúsinu, —
Hverfisgötu 8—10, Reykjavík, og gerist áskrif-
endur að Alþýðublaðinu.
Úlbreiðlð ALÞÝDUBLAÐID