Alþýðublaðið - 19.12.1950, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 19.12.1950, Blaðsíða 10
V 10 ALÞYÐUBLAÐIÐ Þrið<judagur 19. desembcr 1950 er komið út. Komið og seljið jólablaðið. Áfgreiðsla Alþýðublaðsins, Kaupið jólahangikjöíið strax. Birgðir senn á þrotum. Samband ísl. samvinnufélaga V-2. Þriðjudaginn þ. 19. þ. m. verða seldir gegn 'vörujöfnunarreit V—2 . kvenskór og nokkur pör af barnalakkskóm, einnig kápuefni og flauel. CRO Saumavélamótorar Saumavélalampar. Straujárn. Vöfflujárn. Véla- og raftækjasalan. Tryggvagötu 12. Sími 81279 Kaupum fuskur Baídursgöiu 30. Frank Yerby „Þú ert hygginn maður,“ varð Laird að orði. „Og ég held heim til mín, að Plalsance; vermi mig við heimilisarininn og dey að lokum úr leiðindum og fásinni. En ég geri þó von- andi engum manni mein fram- ar svo nokkru nemi.“ Það þóttist Inch vita. að þá meinti Laird Denísu Lascals, og hann gætti þess að segja ekki neitt. ísak horfði á þá þögull um hríð. „Ég mun gera það eitt, sem ég veit og get bezt,“ mælti hann. „Ég vil efla réttlætið meðal okkar, stuðla að því, að góðir og hæfir menn aí'li sér menntunar og reynslu, svo þeir megi kenna börnum okkar, uppfræða þau og beina þeim á rétta braut. Og svo kann að fará, að éinhvern tíma beri það fræ, sem hér verður sáð, gófian ávöxt og fleirum til blessunar en okkur og niðjum okkar!“ Dimma tók af nótt. Nimrod stóð við gluggann frammi á ganginum, starði lit í myrkrið og hugur hans brann af hefndar þrá. Enn voru þe’.r ofanjarðar, sem myrt höfðu f jölskyldu hans. Og dísir þær, er ráða örlög- um manna og atburðum, svifu hljöðlega yfir húmdimmri jörð inni. Jim Dempster sat í her- bergi sínu að Plaisance og las skilaboð þau, er Denisa hafði skrifað með bréfinu, sem Hugh Duncan braut upp og las, en afréð síðan að senda viðtak- anda. Jim Dempster reiddist við, er hann las þessi orð; hann varð þungbrýnn mjög og tók að stara upp í gluggann á svefn herberginu, þar sem Sabrína sat öllum stundum, hrevfingar- laus eins og hún væri mótuð í stein og horfði tómum aug- um út x bláinn. „Fjandinn hafi það“, tuldr- aði Jim, „ef ég fer að koma ’slíku bréfi til skila, Það getur vel verið, að Sabrínu veslingn- um sé ekki viðbjargandi úr þessu, en fyrr skal ég fara sjálfviljugur nórður og niður í það heitasta, en ég veiti Laird og- þessari stelpugálu hans lið til þess að leika sinn svívirði- lega leik á bak vig hana“. Að svo mæltu reis hann á fætur og varpaði báðum bréfunum á arineldinn. í litla húsinu í svertingja- þorpinu lá Laird og svaf. Har.n bylti sér til á hörðu fleiinu og hafði erfiða drauma ... xxi..k!\fli. „2. marz, 1872“ reit Jean Paul í dagbók sína. “Lognmolla og hlýtt í veðri. Ekkert minn- isvert“. Hann lokaði bókinni, sem var allþykk og í leður- bandi, gekk síðan út að glugg- anum og horfði út. Ég hefði get að skrifað, hugsaði hann, að stjöi’nurnar séu óvenjulega stórar og bjartar, og svo nálæg ar, að glóð þeirra brennur í huga mér. Að froskarnir haldi hljómleika á tjarnarbökkunum milli sýprustrjánna og vafn- ingsviðurinn glitri eins og silf urþræðir í skógarlundinum. Að vísu get ég ekki séð héðan út á fljótið, en ég veit, að yfir- borð þess er eirgullið, öldubrot ið eins og brennt silfur. Og ég gæti skrifag ýmislegt um trén, sem teygja sig upp í myrka skýjafaldanna, ég gæti skrifað niður eitt og annað, sem þau hafa hvíslað að mér í þöglu húminu, — en allt slíkt væri aðeins fallegt þvaður, skáldskap ur, sem veröldin hefur engin not fyrir eins og; hún er mi. Hann stóð langa hríð úti við gluggann og starði út í nötí> ina; nótt stjörnuskinsins, nótt töfranna, sem leggjast eins og martröð á hugi negranna, svo að þeir verða að syngja sig und an oki hennar. ,,Á morgun b.yrja ég að lesa síðari hluta lög fræðinnar undir handleiðslu Sompayrac dómstjóra,“ reit hann enn, í dagbók sína. Hann hugðist skrifa þar eitt- hvað meira; en hætti við. Nótt in heillaði hann, hann gekk enn út að glugganum og tók að stara út í húmið. Einhvers stað ar, fjarst úti í húminu, sat a!dr aður og virðulegur froskui’ í döggvotu grasi við myrka tjörn og kvað dulmagnaðar drápur með þróttmikilli bassarödd, en yngri froskarnir endurtóku stefið og svöruðu á hærri og bjartari tónstiga. Langa hríð stóð Jean-Paul úti við glugg- ann og hlýddi á þennan kór- söng froskanna í næturhúminu. Þá heyrði hann allþungt fóta- tak á bak við sig, hann ieit yið í sama bili og Victor hróðir hans lagði höndina á öxl hon- um. „Flýttu þér að búa þig“, mælti Victor hrjúfri röddu. „Við verðum að leggja af stað til New Orleans tafarlaust“. „Hvers vegna“ spurði Jean- Paul. .-.Veit það ekki. Hugh gerir okkur boð um að koma. Okkux: báðum. í bréfi hans stendur, að erindið, sem hann - á vxð okkur, varði einkamál. Hann ráðleggur okkur einnig að taka vopn með“. Jean-Paul fölnaði. Laird jr I kominn aftur til borgarinnar, hugsaði hann. Hanú varð miður sín við þá tilhugsun. Laird er kommn aftur til borgarinoaiy 1 ög Hugh Duncan hygg'st sýna okkur þann einstaka heiður, að | fela okkur að ráða hajin a£ dög um. Heilaga guðs móðir . . . 1 „Vertu snar í snúningum . . “ mælti bróðir hans. j Vietor gekk hrátt út úr her- berginu. fram á ganginn. Jean- Paul fylgdi honum eftir, gekk ! til herbergis síns, opnaði drag- kistuna og tók upp úr. henni litla skammbyssu, silfiu’búna 1 og stakk henni á sig. Annað ] vopn bar hann aldrei. Hann opn aði hana og setti í hana skot- hylki. og hendur bans titruðu við. Ég er veikgeðja, hugsaði hann. allt of veikgeðja. í sömu svipan varð honum það ósjálfrátt að mana fram furculegustu myndir fyrir hug- skotssjónum sínum. Hann sá Denísu liggjcndi allsnakta í örmum elskhugans. Hann sá varir hennar, heitar, þvalar og kossþyrstar, teygja sig "áð munni hans. Hann sá þrýstin, fagurformuð brjóst henanr bif- ast og barm hennar titra eins og hún stæði á öndinni. Og allt eftir WESTERGAAKD segir frá yndislegri telpu, >er' a'ltaf ftutti sólskin mCð sér gegnummargvísleg bágindi. — — — ATLI MÁR gerði myndirnar. IIÍ'N VERÐUR ÓSKABÓK ALLRA TELPNA. BÓKAÚTGÁFAN BIÖRK Afburða fallegt litskreytt ævintýri úr Norður- Ishafinu fyrir börn og unglinga, en jafnframt skemmtileg dæmisaga, sem allir hafa ánægju af. — Só, seni les bókina, finiuir fljótlega hvers vegna Þjóðverjar bönnuðu hana 1941. BÓKAÚTGÁFAN BJÖRK L

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.