Tíminn - 16.01.1964, Síða 7

Tíminn - 16.01.1964, Síða 7
-- SSfMimt — Utgeféndl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjórl: Tómas Amason. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). AncLrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriíii G. Þorsteinsson. Fuiltrúi ritatjómar: Tómas Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Anglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjóroarskrifstofur í Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 80,00 á mán. innan- lands. 1 iausasölu kr. 4.00 einL — Prentsmiðjan EDDA h.f. — Stjórnin og dýrtíðin Stjórnarblöðin hafa gumað mjög af því, að afkoma ríkisins hafi verið mjög góð á undanförnum árum og telja þetta eitt af ágætum „viðreisnarinnar". Það er rétt, að miklir greiðsluafgangar hafa orðið hjá ríkissjóði á árunum 1962 og 1963. En greiðsluafgangarnir einir segja ekkert til um það, hvort fjárstjórn ríkisins er góð eða léleg. Aðalatriðið er, hvernig þeir eru fengnir. Greiðsluafgangar ríkisins á undanförnum árum hafa ekki verið fengnir með sparnaði. Það ér erfitt að benda á eitt einasta dæmi um sparnað hjá ríkinu á þessum tveimur árum. Hins vegar hafa margir útgjaldaliðir auk izt úr hófi fram. Greiðsluafgangarnir rekja eingöngu rætur til þess, að tollar og söluskattar, sem ríkið hefur lagt á, hafa verið langt úr hófi fram. Á árinu 1962 urðu umframtekj- ur hvorki meira né minna en 300 millj. kr. Á síðastliðnu ári hafa þær sennilega orðið enn meiri. Það er ekki mikill vandi að hafa greiðsluafgang hjá ríkis- sjóði, þegar skattaálögum er hagað á þennan hátt. En hvaða afleiðingar hefur þetta fyrir þjóðina? Hafa menn athugað það? Sumarið 1961 reiknuðu sérfræðingar ríkisstjórnarinn ar út, að 1% almenn kauphækkur í landinu jafngilti samanlegt 30 millj. kr. M. ö. o. 300 milii. kr. álögur þá jafngiltu 10% kauphækkun. S’ðan hefur kaupgjald hækkað. Miðað við kaupgjald nú, munu 300 millj. kr. þá sennilega alltaf nema 7—8% alnumnri kaupgjaldshækli un. Á þessum samanburði geta menn bezt séð, hve mikil áhrif þessar opinberu álögur umt'ram þarfir ríkisins hafa haft í þá átt að auka dýrtíðina í landinu. Það er þessi stefna ríkisstjórr.arinnar að hafa opin- beru álögurnar miklu hærri en nokkur þörf hefur ver'ð fyrir, sem hefur aukið dýrtíðina í landinu meira en nokkuð annað. Það er þessi stefna rikisstjórnarinnar, sem hefur ýtt undir kaupkröfur eða kallað þær fram meira en flest annað. En samt virðist ríkisstjórninni ekki þvkja nóg að gert. Gunnar Thoroddsen og Bjarni Benediktsson hafa und- anfarið verið að boða nýjar aukrar álögur, án þess að hægt sé að finna þeim réttlætanlegai forsendur, þar sem fjárlögin fyrir 1964 eru raunveruleaa afgreidd með mikl- um tekjuafgangi og ráðstafað er ríflegum greiðsluaf göngum ríkisins frá 1962 og 1963 Það, sem nú þarf að gera umíram allt. er að reyna að draga úr aukinni dýrtíð. Það er hms vegar ekki stefna stjórnarinnar Hún ætlar nú eins og fyrri daginn að auka hana úr hófi fram með nýjr.m, óþörfum álögum. Stjórnarblöðin hafa rokið upp vegna þess, að nýlega var bent á það hér í blaðinu að laí'naðarmenn á Norð urlöndum hafa miklu minni verðlagshöft en hér eru. Álit þeirra er það, að þegar vöruframboð sé nóg, tryggi frjáls samkeppni kaupmanna og kaupfélaga neytendum hagstæðast verðlag. íslenzka ríkisstjórnin er annarrar skoðunar. Hún játar sig fylgjandi viðskiptafrelsi í orð’ en er á móti því á oorði. Hún vantreystir íslenzku Kaupmannastéttinni og telur hana muni misnota frelsið. Öðru visi er ekki að jkilja þessa afstöðu Bjarna Benpaiktssonar og Gunnars Thoroddsen. Panamaskurðurinn og Bandaríkin Mál sem getur reynzt Bandaríkjunum örlagankt í Suður-Ameríku UPPDRÁTTURINN sýnlr Panamaskurðinn oq yfirráðasvaeði Banda- ríkjanna meðfram honum. BANDARÍKJAMENN hafa nýlega verið minntir alvarlega á það, að vinsældir þeirra eru harla litlar í Suður-Ameríku, en hér er átt við átök þau, sem áttu sér stað við Panamaskurð- inn um seinustu helgi. Þessir atburöir benáa til þess, að það sé ekki fjarri lagi, er John Danstrup, einn fróðasti danski blaðamaðurinn á sviði utan- ríkismála, segir í „Politiken“ á l'augardaginn, að Bandaríkja- menn virðist tortryggðir jafnt af vinstri mönnum sem hægri mönnum í Suður-Ameríku. Vinstri menn tortryggja Banda- ríkin vegna þess, að þau muni reyna að viðhalda réttindum og gróðamöguleikum bandarískra auðhringa í Suður-Ameríku, en hægri menn tortryggja þau vegna þess, að Kennedy og fleiri forustumenn Bandaríkj- anna hafa lýst yfir opinskátt, að ýmsar félagslegar umbætur, eins og skipting stórjarða, séu óhjákvæmilegar. Við þetta bæt- ist svo, að þeir Bandaríkja- menn, sem hafa setzt að í Suð- ur-Ameríku, hafa yfirleitt reynzt heldur slæmir fulltrúar lands síns. Árekstrar þeir, sem urðu við Panamaskurðurinn á dögunum, verða hvorki fremur raktir til vinstri manna en hægri manna og erfitt mun að dæma um, hvorir hafi þar látíð meira til sín taka. Andúðin gegn Banda ríkjamönnum virðist hafin yfir flokkadeilur í Panama. H ÞAÐ má teljast kaldhæðni örlaganna, að átök þau, sem urðu við Panamaskurðinn á dögunum, rekja rætur til þess, að Kennedy íorseti reyndi að koma til móts við vissar óskir Panamamanna á síðastl. sumri, er Chiari, forseti Panama heim- sótti hann. Panamamenn hafa lengi óskað þess, að fáni þeirra væri hafður uppi við hlið Bandaríkjafánans á svæði því, sem Bandaríkjamenn ráða yfir við Panamaskurðinn, en það er 15 km. breið ræma hvorum megin við skurðinn. Kennedy féllst á þetta og ýmis fleiri atriði, er áréttuðu það, að hér væri um land Panama að ræða. þótt Bandaríkin hefðu það á leigu, t.d. að þar yrðu ein- göngu seld Panamafrímerki Jafnframt lofaði Kennedy að hlutast til um, að Panamamenn, er vinna við skurðinn, fengju sama kaup og Bandaríkjamenn, en mjög hefur skort á að svo væri. Jafnframt var svo ákveð- ið að ræða nánar um önnur deiluefni síðar, eins og hækk- ''un á því gjaldi, sem Banda- ríkin greiða Panama fyrir skurð inn, en Panamastjórn hefur lengi haldið fram, að hann væri Bandaríkjamönnum mikil tekju lind. Þessir samningar, er Kenn- edy gerði við Chiari, hafa verið misjafnlega haldnir af Banda- ríkjamönum á skurðsvæðinu, t.d. hafa margir þeirra vanrækt að draga upp Panamafána við opinberar byggingar, ekki sízt skólabyggingar. Þetta hef-ir vak ið mikla gremju í Panama og varð þess valdandi, að Síðastl. föstudag fóru stúdentar og fleiri frá Panama inn á svæði Bandaríkjamanna og reyndu að draga upp fána við skólahús þar, en aðeins Bandaríkjafáni blakti þar á stöng. Nemend- urnir, sem voru bandarískir, reyndu að hindra þetta, og kom til áfloga og síðar til afskipta lögreglu og herliðs. Þessi at- burður leiddi svo til miklu meiri átaka og skipta þeir, sem féllu eða særðust í þessum á- tökum, mörgum tugum. í fram- haldi af því, rauf forseti Pan- ama stjórnmálasambandið við Bandaríkin, en það hefur nú verið tekið upp að nýju eftir að bandalag Ameríkuríkjánna hefur komið á bráðabirgðasætt Sú sætt mun hins vegar ekki verða varanleg, nema komið verði á ástandi á skurðsvæðinu, er Panamarnenn sætta sig bet- ur við. RÍKIÐ PANAMA rekur ræt- ur sínar til 1903. Þá höfðu Bandaríkin lengi átt í samning- um við Columbia um að mega byggja skipaskurð í Panama, en Panama var þá fylki í Col- umbia. Sjórnin í Colombia var erfið í þessum samningum. Bandaríkjastjórn gerði sér þá g lítið fyrir. Hún fékk sér hlið- i holla menn í Panama til að gera í| uppreisn gegn Columbia, og 1 veitti þeim hernaðarlegan § stuðning, er Columbia ætlaði H að bæla þessa uppreisn niður. h Uppreisnarmenn lýstu Panama w síðar sjálfstætt ríki, er strax I hlaut viðurkenningu Bandaríkj- M anna Rétt á eftir gerðu Banda- i ríkin samninga við Panama um M skurðinn, en hann var tekinn ffl til notkunar 1915 Eins og áður segir, fengu 'n Bandaríkin til umráða 15 km. a breitt svæði hvorum megin B við skurðinn. Þeir komu sér þar a rækilega fyrir og minnir þetta * rvæði á flestan hátt á bandar. f| land. Það hefur sært metnað W Panamabúa, að land þeirra hef- ja ur þannig verið klofið, og þeir i orðið fyrir ýmiss konar óvirð- |! ingu að þeirra dómi á banda- H rísku svæðunum, t.d. haft lægra « kaup en Bandaríkjamenn, ekki ffl fengið aðgang að skólum þeii-ra i| o. s.frv. Þá hefur þeim vcrið það vaxandi þyrnir í augum, að E tekjur af skurðinum hafa stöð- i ugt farið vaxandi. án þéss að i leigugjaldið, sem þeir hafa f fengið, hafi hækkað nokkuð til- |j svarandi. í seinni tíð hefur sú ® krafa hlotið vaxandi byr, að S Panama taki við rekstri skurð- arins. Bandaríkjamenn hafa haldið því fram, að Panama hafi grætt á skurðinum og byggi tilveru sína á honum. Sannleikurinn er sá, að hann hefur verið of stór þáttur í atvinnulífi lands- manna og þeir vanrækt aðrar 1 atvinnugreinar vegna hans, m | Framhald á 13 síðu H w Bandarískir hermenn á verSi vlð Panamaskurðlnn. fÍMINN, fimmtudaglnn 16. ianúar 1964 — 7

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.