Tíminn - 17.01.1964, Blaðsíða 8

Tíminn - 17.01.1964, Blaðsíða 8
FORUSTUMENN FÉLAGA ATHUGIÐ! Félagsstörf og mælska eftir Hannes Jónsson félagsfræíing, er úrvals handbók fyrir alla þá, sem taka vilja ábyrgan þátt í féiagsstarfi og ná ár- angri í fundarstörfum og mælsku. Bók þessi er algjörlega hlutlaus og fjallar um mælsku og allar tegundir félags- og fundarstarfa. f henni er líka rökfræðiágrip, fróðlegur kafli um áróður og margar tekn- ingar af fyrirkomulagi í fundarsal. Ætla má, að bók þessi geti orð ð félagi yðar, stjórn þess, fastanefndum og áhugasömum félagsmönnum að miklu gagni. Ef keypt eru minnst 5 eintök gegn sta'ógreiðslu fá félög bókina með afslætti. Munið, að leikni í félagsstörtum og mælsku getur ráðið miklu um þjóðfélagslegan frama einstak- lingsins og framvindu þjóðfélagsmála. Einstaklingar, sem eignast vilji þessa hagnýtu bók, geta pantað hana beint frá útgefanda eða fengið hana hjá flestum bóksölum. Notið þetta tækifæri FÉLAGSMÁLASTOFNUNIN Pósthólf 31 — Reykjavík — Simi 40624 PÖNTUNARSEÐILL: (Póstsent um land allt) Sendi hér með 150 kr. fyrir emtak af Félagsstörf og mælska sem óskast póstJagt strax. (Sendíð greiðsluna i póstávisun eða ábyrgðarbréfi). Nafn: .......................................... Heimili: .. Börn Unglingar, etSa MlortSit? fóllt óskast til atJ bera blaiSitS út í eftirtalin hverf’ ■ • UNDARGATA AfgreitSsIs Bankastræti 7 — Símar: ÍZJZ3—18300 Frúarleikfimi í Austurbæjarskólanum á mánudögum og fimmtu- dögum kl. 8—9 e.h. í Miðbæwskóianum kl 9.30 —10,15 e.h. Kennari: GumvÖr Bjnrnsdóttir. Upplýsingar i síma 14215 k1. 1—4 daglega. Fimleikadeild KR HINAR stórstígu framfarir, sem orðið hafa hér á landi á síðustu mannsöldrum, eru ó- mótmælanlega samtvinnaðar sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar og ávöxtur hennar. Vöxtur sá og þróun á öllum sviðum, sem hér er um að ræða, væri alger- lega óhugsandi, ef þjóðin hefði ekki öðlazt smám saman fullt sjálfsforræði í sínum eigin mál- um. Eftir að alþingi fær löggjaf arvald og fjárforræði árið 1874, færist nýtt fjör í allt athafna- líf þjóðarinnar. Þá hefst tíma- bil framfaranna, hraðfara að vísu ekki fyrst í stað, en ör- uggra og óslitinna. Byrjað er að leggja akfæra vegi um land- ið, stórárnar eru brúaðar, og tekið er að reisa vita með ströndum fram. Það er tekið að rækta landið meir en áður, styrkja samtök landbúnaðarins og veita bændum hagkvæma menntun. Sjómennirnir hætta að láta sér nægja að sækja á grunnmið á opnum árabátum; í stað þess taka þeir að sækja á djúpmið á þilskipum og færa þannig margfalda björg í búið. Og þeir fá einnig sinn skóla, til þess að geta staðið jafnfætis stéttarbræðrum sínum í öðruim löndum. Bankar eru settir á stofn, verzlun og viðskipti auk- ast og komast æ meir og meir í hendur landsmanna sjálfra. — EMIL NIELSEN — fyrstl framkvæmdastjórinn Hraðstígari verða þó framfar- irnar, eftir að stjórnin flyzt heim árið 1904. ísland kemst í símasamband við önnur lönd og sími er lagður um landið- Togararnir leysa þilskipin af hólmi og ýensar verklegar fram- kvæmdir, sem hér verða ekki taldar, sigla í kjölfarið. Skólar rísa upp í ýmsum sérgrein- um, fyrir iðnaðarmenn, verzlun- armenn, vélstjóra, o, s. frv., að ógleymdum Háskóla íslands, merki menningarlegs sjálfstæð is þjóðarinnar. Jafnframt þessu heimta íslendingar smám sam- an sjálfsforræði sitt aftur. Þeir fá sérstakan fána til notkunar innan íslenzkrar landhelgi, og loks verður ísland frjálst og fullvalda ríki þann 1. desember 1918. Það er því eðlilegur þáttur í rás viðburðanna, að einmitt á þessu tímaþili skyldi rætast draumur íslendinga um það, að þjóðin eignaðist sín eigin skip og þyrfti ekki að vera upp á aðra komin um alla flutninga til landsins og frá því, og meira að segja á milli hafna í landinu sjálfu. Þann 17. janúar 1914 varð þessi draumur þjóðarinn- SVEINN BJÖRNSSON — fyrsti formaðurinn ar að veruleika við stofnun Eim skipafélags íslands. Tæplega verður bent á nokk- urn einstakan viðburð á öllu þessu glæsilega athafna- og framfaratímabili, sem sametnar GUÐMUNDUR VILHJÁLMSSON — fyrrv. framkvæmdastjóri á jafn fagurlegan hátt fram- takssemi og stórhug kynslóð- arinnar, nauðsyn þjóðarinnar og sigur í sjálfstæðisbaráttunni Eins og það er vafalaust, að rýmkun frelsis og sjálfstæðis undirbjó jarðveginn fyrir Eim- skipafélagið, svo er það og nokkurn veginn víst, að án Eim skipafélagsins hefði fullveldið orðið torsótt í hendur Dönum árið 1918. Hvernig hefði skipa- laus þjóð á fjarlægu eylandi, sem varð að eiga alla fiutninga til landsins og frá því undir náð annarra, getað krafizt þess að verða frjálst og full valda ríki. Þáttur landsmanna í stofnun félagsins varð almennari en dæmi eru tii fyrr eða síðar — Hluthafarnir urðu milli 14 og 15 þúsundir að tölu og því nær helmingur þeirra keypti T í M 1 N N, minnsta hlutinn, sem var 25 . krónur, en það var þó mikið fé fyrir marga á þessum árum. Eigi aðeins hér á landi varð þátttaka svo almenn í stofnun félagsins, heldur einnig meðai íslendinga í Vesturheimi, sem lögðu fram um 200 þúsund krón ur í hlutafé, mest í smáhlutum eins og hér heima. Fjárfram- lög þeirra til stuðnings félags- hugmyndinni voru ekki fremur en í heimalandinu látin af hendi vegna arðsvonar eða gróðahugmyndar. Aðstoð þeirra við stofnun félagsins var runn- in af rótum þess vinarþels, sem þeir báru í brjósti til ættjarð- ar sinnar. í Árbókum Reykjavíkur árið 1914 segir svo um stofnun Eim skipafélagsins: ,,Merkasti atburður þessa árs, ekki aðeins fyrir höfuðstaðinn, heldur fyrir landið allt, var end anlega stofnun Eimskipafél. ís- lands 17. janúar, samkvæmt auglýsingu, sem gefin var út af bráðabirgðastjórn væntan- legs félags 26. september árið áður. Á þessum stofnfundi var í einu hljóði samþykkt svohljóð- andi tillaga: Fundurinn ákveð- ur að stofna hlutafélag er nefn ist Eimskipafélag íslands. — Á framhaldsfundi, sem haldinn var 22. janúar, voru lög sam- þykkt fyrir hið nýja félag og ÓTTARR MÖLLER — núverandi framkvæmdastjóri gengið til stjórnarkosninga. — Þessir hlutu kosningu: a) Af hluthöfum á íslandi kosnir: Sveinn Björnsson, Ólafur John son, Eggert Claessen, Garðar Gíslason og Jón Björnsson. b) Af hluthöfum meðai V.-íslend- ínga voru kosnir: Jón Gunnars son og Halldór Daníelsson, Jón Björnsson vék nokkru síðar úr sæti í stjórn félagsins fyrir 01- geir Friðgeirssyni, sem tilnefnd ur af Iandsstjórninni skyldi taka sæti í stjórninni" Útgerðarstjóri félagsins var ráðinn Emil Nielsen og tók hann við því starfi hinn 1, apr- íl 1914 og gegndi því til 1 júní 1930 Emil Nielsen hafði áður verið skipstjóri á Sterling. en bráðabirgðastjórnin hafði þegar í hyrjun tryggt sér að hafa hann í ráðum með sér á ýmsan hátt við undirbúning félags- föstudaglnn 17. janúar 1964 — 8

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.