Tíminn - 19.01.1964, Qupperneq 6

Tíminn - 19.01.1964, Qupperneq 6
Sex ferðir á ári Árið 1778 er að því leyti merkisár í sögu íslands, að þá hófust reglulegar áætlunar- ferðlir til landsins í fyirsta sinn. Dönsku stjórninni þótti illt að fá póst frá íslandi með kaupskipum, er höguðu ferð- um sínum óreglulega, og á- kvað hún því að hefja reglu- legar póstferðir til íslands.. Ekki var þó markið sett hærra en það, að fyrst um sinn var ekki ákveðin nema ein ferð á átri. Seinna fjölgaði þessum ferðum, og voru þær orðnar þrjár á ári þegar kom fram á 19. öldina. Fram til 1857 voru eingöngu notuð segl- skip til þessara ferða. Árið 1858 er annað merkis- ár í sögu íslenzkra samgöngu- mála. Árið áður, hafði danska stjórnin borið undir Alþingi, tilboð frá dönskum skipaeig- anda, C. P. A. Koch, um að hann tæki að sér áætlunar- ferðir til íslands með gufu- skipum. Alþingi mælti með þvl að þessu tilboði yrði tekið og gerði stjórnin það. Ferðir urðu nú sex í stað þriggja áður, og var oftast viðkoma i Skot- landi, en endahafnirnar voru sem áður, Reykjavík og Kaup- mannahöfn. Gufuskip voru notuð til ferðanna og hét það, sem fór fyrstu ferðina, „Arc- turus“ og var 472 brúttósmál. Koma þess til Reykjavíkur þótti mikill atburður. Þessí skipan helzt svo næstu árin. Fyrir 100 árum voru því ekki nema sex áætlunarferðir á ári milli íslands og útlanda. Það var annað en nú, þegar sllkar ferðir eru daglega flug- leiðis. Strandsigling Á næstu árum fór áætlun- arferðunum aðeins fjölgandi, þannig að þær voru orðnar 11 árið 1881, og j afnframt höfðu verið teknar upp nokkr- ar strandferðir. Alþingi hafði fylgt því máli mjög eftir við dönsku stjórnina. Danir önn- uðust þessar siglingar alveg og þóttu sýna mikinn herra- þjóðarsvip á því sviði. Glöggt vitni um það, er hið kunna kvæði Einars Benediktssonar: Strandsigling Þar segir m.a.: — Þessa síðast ársins för þeir fóru — fólkið hana rækir bezt. Drukknir menn og krankar konur voru kvíuð skrans í lest. Allt var fullt af frónska þarfagripnum. Fyrirlitning skein af danska svipnum. Farþegn stóð við borð með breiðum herðum, bönd í rælni höndum lék; yfirmaður fasmikill í ferð- um fram að honum vék, ýtti úr vegi hart og hrakorð lagði, hinn fór undan, beygði sig og þagði. Beggja í öllu þekktust þjóð- armerki'i, þeirra ólík kjörin tvenn; hroki á aðra hönd með orku í verki, á hina bljúgir menn, þeir, er öðrum gjalda, á leppum grasa, gróðaferð í sína eigin vasa. Inn á sömu stöðvar stefnið horfði, stýrði hönd af sömu þjóð, sem þá fyrr hjá búðarherr- ans borði bamamaður stóð og dauðableikur brauðskuld ranga leysti, blóðpeninginn síðsta í höndum kreisti. Samningar Björns Jónssonar Óánægja þjóðarinnar með siglingarnar var sízt minni en kvæði Einars vitnar um. Fá mál voru rædd meira á Al- þingi á þessum árum en sigl- ingamálin, einkum þó strand- ferðirnar. Árið 1895 réðst Al- þingi í það að láta ríkissjóð taka skip á leigu, Vestu, til þess að reyna að bæta eitt- hváð úr því vandræðaástandi, sem þá var. Þessari útgerð var haldið uppi í tvö ár, en þá gafst þingið upp vegna rekstr- arhalla, sem hafði orðið á þess ari útgerð. Þó er augljóst, að hún var mikill ávinningur fyrir landið .Enn varð að semja við Dani um sigling- arnar, Sameinaða gufuskipa- félagið og náðust nú samn- ingar um 18 millilandaferðir á ári, og reglulegar strandferð- ir með tveimur skipum á tíma bilinu 15. apríl—31. október. Árlð 1903 voru þessir samn- ingar endurnýaðir, og var þá samið um 20 millilandaferðir og 6 strandferðir. Árið 1905 fjölgaði Sameinaða millilanda ferðum sínum upp í 30, en Thorefélagið, sem Þórarinn E. Tulinius stjórnaði, hafði boð ið 36 ferðir. Þetta stóð óbreytt til 1909, en þá var Björn Jónsson orð- inn ráðherra. Hann fékk heim ild til að semja bæði við Thore félagið og Sameinaða. Við þetta fjölgaði ekki aðeins milli landaferðunum, heldur ukust og strandferðirnar verulega. Samkeppni félaganna varð og til þess að bæta þjónustuna. Stjórnað frá Kaupmannahöfn Fjarri fór samt því, að lands menn yrðu ánægðir með þessi mál. Þau komu fyrir Alþingi að nýju 1912, er Thorefélagið gafst upp við samning sinn. í þeim umræðum benti Bjarni frá Vogi á það úrræði, að stofna íslenzkt hlutafélag með GULLFOSS þátttöku ríkisins til að annast siglingarnar. Ekkert varð þó úr framkvæmdum annað en að endurnýja samninginn við Sameinaða, en þetta þýddi afturför, þar sem Thorefélagið var úr leik. í hlutaútboði, sem bráða- birgðastjórn Eimskipafélags- ins sendi út á sínum tíma, kem ur glöggt fram, hvað menn töldu þá milIilandaferSunum og strandferðunum helzt, á- fátt: ’ Eiissli ásð j| it M 1. Ferðimar óheppilegar. 2. Áhafnir skipanna útlendar. 3. Skipafélagið á varnarþing í öðru landi og því erfitt að sækja mál gegn því. 4. „Ferðunum stjórnað frá Kaupmannahöfn, frá fjar- lægu landi af mönnum.sem ókunnir eru íslenzkum stað háttum og íslenzku við- skiptalífi, og eiga því erfitt með að fullnægja viðskipta kröfum vorum“. Eimskipafélagið Sá forustumaður íslend- inga, sem hafði gert sér það einna ljósast á þessum árum, að íslendingar ættu að eignast sinn eiginn skipastól, var Björn Jónsson. í afmælisriti, sem Eimskipafélagið gaf út 1939, segir svo: „Vegna af- skipta sinna af samgöngumál unum hafði Björn Jónsson komizt á þá skoðun, að íslend- ingum væri það hin mesta nauðsyn að eignast skip sjálf- ir, enda þótt honum auðnaðist ekki að taka þar um forust- una“. Þetta hlutverk færðist á herðar Sveins sonar hans. Hann gerðist aðalforustumað- urinn að stofnun Eimskipafé- lags fslands, en meðal þeirra, sem einna djarflegast hvöttu til stofnunar þess voru þeir Benedikt Sveinsson og Bjarni frá Vogi. En framkvæmd máls ins hvíldi þó á Sveini Björns- syni öllum öðrum mönnum fremur. Hér hefur lauslega verið rakin saga isl siglingamála seánustu öldina áðuir en Eimskipafélag íslands var stofnað. Þetta yfirlit gefur þó raunar litla hugmynd um, hvernig ástandið var í þessum efnum. Óhætt, er að segja, að með stofnun Eimskipafélags- ins hefur hafizt nýr, merkur jaáttiirí sjálfstæðissögu þjóð- arirínár! Það, sem síðar hefur g’erzt1' héfúr ótvírætt sýnt, að íslendingar geta ekki að- eins annazt þessi mál sjálfir, heldur er þeim farsælast að gera það. Öfgamenn Það er kappsmál Vísis að halda hvergi óskeleggara á málum en Mbl. Helzti ritdóm- ari Mbl. hefur 1 tilefni af skáldverki Kristjáns Alberts- sonar um Hannes Hafstein, gefið þeim mönnum, sem börð ust gegn uppkastinu 1908, þær einkunnir, að þeir hafi verið loddarar, tækifærissinnar o.s. frv., eins og frægt er orðiS. Ritdómari og fréttastjóri Vísis vill ekki vera neinn eftir- bátur l þessum efnum. Honum farast svo orð í ritdómi í Vísi síðastl. föstudag: „Það voru einmitt öfgamenn irnir, er felldu Uppkastið, sem áttu eftir að erfa landið og síð an hafa æ róttækari öfl tekið við af þeim eins og alda eftir öldu og keppzt um að lofa framgöngu þessara garpa, svo að tilhneigingin hefur orðið sú að líta á öfgamar og æsing- inn sem eins konar þjóðernis- legan helgidóm. Lengst nær þetta í Endurminningum Ara Arnalds, sem eðlilegt er, en á unga aldri var hann fremstur i flokki öfgaseggjanna, sem drápu Uppkastið/ ‘ Hverjar voru öfgar þessara manna? Þeir trúðu því og unnu samkvæmt því, að fs- UM MENN OG MALEFNI lendingar gætu verið sjálf- stæðir, án nokkurs stuðnings frá Dönum. Þeir trúðu því einnig að þetta væri þjóðinni bezt og farsælast — þetta væri lika heppilegast góðri sambúð Dana og íslendinga. Trú þessara manna hefur nú um nokkurt árabil fengið að sýna sig í verki. Hefur hún reynzt öfgar? Hefur íslend- ingum nokkurn tíma vegnað betur? Nei, andstæðingar uppkastsins frá 1908, voru sannarlega ekki öfgamenn. Reynslan sýnir, að þeir voru raunsæismenn — menn, sem létu ekki síður skynsemi en tilfinningar ráða gerðum sín- um. Hinir, sem vildu halda á- fram sambúðinni við Dani, hafa vafalaust ekki síður vilj - að þjóð sinni vel. En þeir voru ekki eins raunsæir. Þeir héldu, að íslendingar þyrftu að styðj ast við Dani. En hvers er að vænta af þeim blöðum, sem nú kalla andstæðinga uppkastsins frá 1908 öfgamenn og sjálfstæðis- stefnu þeirra öfgastefnu? Hvers er að vænta af sliku fólki í sjálfstæðisbaráttunni í dag? Kjör bænda Alþýðublaðið hefur nýlega birt yfirlit, sem Hagstofan er í þann veginn að gefa út um skattafnamtölin árið 1962. Samkvæmt þes^u yfirliti, kem ur það í ljós, að bændur hafa verið tekjulægsta stéttin á því ári. Þetta svarar betur en nokk- uð annað þeim ásökunum Gylfa Þ. Gíslasonar, að landvöruverðið sé óhæfilega hátt og bændur beri þvl of mikið úr býtum. Þetta vitnar líka vel um kjör bænda undir „viðreisnarstj órninni". Vissulega mætti þetta líka verða aukin hvatning til þess, að Alþingi féllist á frumvarp Framsóknarflokksins um auk- inn stuðning við stækkun þeirra búa, sem ekki hafa náð vissri lágmarksstærð, því að stækkun búanna er vitanlega eitt frumskilyrði þess, að kjör bænda geti batnað. Afneitanir Mbl. hefur séð ástæðu til þess að lýsa yfir því, að það hafi hér á árum fyrr verið miklu glöggskyggnara en Hall dór Laxness. Laxness hafi þá hælt ástandinu í Sovétríkjun- um, en tekið það svo allt aftur 1 seinustu bók sinni. Mbl. hafi hins vegar aldrei misséð sig á Stalin og stj órnarháttum hans. Vafalaust er þetta rétt hjá Mbl. Það missá sig ekki á Stalin. En það var uppi annar frægur einveldisherra sam- tímis Stalin, Adolf Hitler hét hann. Sú var tíðin. að Mbl. dáði hann engu minna en Lax ness dáði Stalin. Nazistar hétu þá menn með „hreinar hugsanir“ á máli Mbl. Ráða- menn Sjálfrtæðisflokksins töl Framhald á 13. sí8u. 6 TÍMINN, sunnudaainn 19. ianúar 1964

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.