Tíminn - 19.01.1964, Page 8

Tíminn - 19.01.1964, Page 8
— Ojá, það hefur teygzt úr þræðinum, sagði séra Jakob Jónsson, prestur Hallgrímssafn- aðar í Roykjavík, þegar ég hitti hann fyrir nokkrum dög- um og spurði, hvort ekki væri rétt hermt, að hann væri að ná sextugu. — En mér hefur verið sagt, að ekki hafi sá talizt lík- legur til langlífis, sem fæddist í baðstofunni á Hofi í Álfta- firði þenna janúardag fyrir sextíu árum, bætti séra Jakob við. — Mér var víst dýft til skiptis í heitt og kalt vatn, og svo Skírði faðir minn mig skemmri skírn, upp úr baðinu. — Gæti þetta ekki orðið sæmilegt upphaf að afmælis- viðtali, ef við héldum svo á- fram að rekja ævina? — Nei, þá sting ég við fót- um. Mér er heldur lítið gefið um afmælisviðtöl, felli mig ekki alls kostar við þau — og um mig og mína ævi vil ég ekkert segja — og hef ekkert að segja. — En ef við snerum talinu þá fremur að öðru en þér sjálf- um? — Það er betra tilhugsunar — og talið berst að Djúpavogi, þessu merkilega menningar- kauptúni eftir aldamótin síð- ustu, og ég sé ekki betur en séra Jakob lifni allur við, þar skilyrði en þarna voru. Við höfðum góðar bækur og.áttum kost á að ræða við víðsýna og vel mennta menn, sem höfðu farið víða. Ég varð þessu kaup- túni mjög fast tengdur og hlaut þar mikinn kjarna í veganesti. Foreldrar mínir beittu okkur ekki hörðu. Ég man til dæmis ekki eftir því, að mamma skammaði mig nokkum tíma, en hún kunni lag á því að nefna mér dæmi og láta orð falla á þá lund, að þau festust í minni. Mér er það t.d. minnis- stætt enn í dag, að ég, strák- pattinn, kom inn með fyrir- gangi og hljóp forugur yfir blautan blettinn hjá vinnukon- unni, sem var að skúra gólfið. Mamma var ekki harðorð, en hún kallaði mig fram og sagði rólega: Það er ekki það versta, að þú óhreinkaðir gólfið fyrir stúlkunni og spilltir verki henn- ar, heldur hitt, að þú óvirtir hana, sem vinnur allan dag- inn að velferð okkar og þinni og verðskuldar heiður engu síður en við foreldrar þínir. Þetta gleymdist ekki. Það er ekki aðeins, að þetta yrði í sfð- asta sinn, sem ég hljóp yfir blautan blett þegar verið var að þvo gólf eða óhreinkaði það T í hvert sinn, sem ég hef séð konu við gólfþvott síðan, hrekk ég við og þetta kemur í hugann. Einu sinni var staddur hjá okkur aðkomumaður, sem gekk ekki heill til skógar, en hann var þó allra manna mildastur og glaðastur. Mamma vakti at- hygli mína á þessum manni: Taktu eftir honum, sagði hún. Hann gethr aldrei á heilujm sér tekið, en hann leggur ekki JAKOB JÓNSSON manna væri í nokkrum tengsi- um við stjórnmálasko'ðahir þeirra, þó að ýmsir telji stjórn- málastefnur meta guðstrú á mismunandi hátt, og það er heldur ekki munur á kyns'ióð- unum í þessu efni, gömlum eða ungum. En miðaldra fólk er dulara og fálátara í trúmálum, gamalt fólk og ungt opnara og frjálsara. í guðfræðideiidinni voru kennarar hver öðrum ágætari — Haraldur Níelsson, Magnús Jónsson og Sigurður P. Sívert- sen. Þarna ríkti mjög frjáls- lyndur andi og frjálst viðhorf til verkefnisins. Mér féll það afar vel. Biblíugagnrýnin færði mig aðeins nær kjarnanum en sundraði ekki, og því meira sem krufið var, því betur sá maður Krist í hans eigin sam- tíð. Þetta viðhorf gerir menn frjálsa og veitir svigrúm. Þó að aliir guðfræðingar séu ekki sammála um túlkun og gildi, veldur þetta viðhorf því, að menn eiga ótrúlega mikla sam- leið. En þessu sjónarmiði fylgir raunar sú skylda að vera alltaf að nema, og jafnan eru á ferð- inni margvíslegar nýjungar, sem eru mikils virði. — Hvernig líkaði þér að þjóna í Vesturheimi? —Mjög vel að mörgu leyti. Kirkjustarfið er mikið og mjög jákvætt. Viðhorf fólksins var mjög frjálslegt, og var byggt á því, að menn geti ætíð grætt mikið á því, að kynnast vel skoðunum annarra, þó að menn séu ekki sammála í öllu. Inn- byrðis hjálpsemi fólksins var sterkur þáttur í safnaðarstarfi, og var það afleiðing af „land- námsandanum". Menn leggja HVER PRESTUR A TVEUH SÖFNUDUM AÐ ÞJÓNA... sem hann situr handan við skrifborðið með bókavegginn að baki sér. — Ég held, að Djúpivogur hafi verið einstakt þorp. Þar var svo margt vel menntað og samvalið fólk. Þarna mættist góð, dönsk kaup- mannamenning og íslenzk sveitamenning og gerðu með sér gott félag. Sumir halda enn í dag, að íslenzkt bændafólk áður fyrr, hafi verið óhefluð rustamenni, helzt í líkingu við Jón Hreggviðsson, en sannleik- urinn er sá, að gamla sveita- fólkið var oftast svo háttvíst og kurteist að af bar. Háttprýðin bjó því í hug og hjarta. Og á Djúpavogi ríkti mikil innbyrðis hjálpsemi og persónuleg tillits- semi. Og félagslifið — það var fjöl- skrúðugt, fjörugt og menning- arlegt. Við stofnuðum ung- mennafélag, og þarna mættist eldri og yngri kynslóðin. Þar komum við einmitt að merki- legu atriði — hvernig kynslóð- irnar sameinuðust, urðu eitt, engin skil, engin togstreita gamals og nýs, engin átök. Kaupmannskonan beitti sér fyr- ir leikstarfsemi, og á því lærð- um við mikið Sveitin og kaup- túnið urðu ein heild. Við unglingarnir nutum mik- ils frjálsræðis. Ég á erfitt með að hugsa mér betri uppeldis- þá byrði á aðra. Hann dreifir alltaf glaðværð og góðvild um- hverfis sig. Mér varð þetta mikið umhugsunarefni. — Barnaskólinn þarna eystra var líka góð stofnun, skal ég segja þér. Kennarinn hét Bjarni Eiríksson. Hann hafði auðvitað alla aldursflokka í ein- um hópi, en kunni undravert lag á því að, láta hvem og einn vera að fást við verkefni við sitt hæfi. Þrennt er mér minnistæðast úr kennslu hans: Nákvæmni hans og alúð við framburð móðurmálsins og bar- átta hans gegn málgöllum, til dæmis flámæli, skemmtileg reikningskennsla hans og hvað hann var mikill félagi okkar 4 leik og starfi en hafði þó fast- an aga. Slíkur barnaskóli skilur ákaflega mikið eftir, og mér hefur alltaf fundizt, að ég ætti þessum skóla meira að þakka en öðrum, og tel ég mig þó víða í skólum hafa góðs notið — Skaut hugmyndin um að verða prestur, snemma upp kolli? — Maður hugði til margs i þá daga. Ég var ekkert í gagn- fræðaskóla og mentaskólafög- in las ég utan skóla og var að- eins einn vetur í skóla fyrir stúdentsprófið. Þar varð ég aldrei rótfastur skólasveinn, en tók stúdentsprófið tvítugur að aldri. En það hefur einmitt að líkindum ráðið úrslitum. Hefði ég tekið stúdentsprófið svo sem tveimur árum fyrr, býst ég við, að ég hefði lagt á aðrar brautir, til dæmis í stærðfræði. Ég hef alltaf verið mjög hneigður fyrir stærðfræði, og Bjarni mun hafa glætt þann áhuga. Ég hef meira að segja gaman af því enn í dag að leika mér að stærð fræði. En á þessum tveim árum mótaðist trúarviðhorf mitt mjög, og við stúdentsprófið var svo komið, að mér fannst ein- boðið að læra til prests. Dvölin í Háskólanum varð mér afar mikils virði, og mér urðu það engin vandræði, sem ungir menn kvarta stundum um, að Biblíuskýringarnar og gagn- rýni raski trúartilfinningunni Ég var kominn yfir umbrota tímabil mitt í þeim efnum, og mér fannst Biblíuskýringarnar auðga og dýpka mjög skilning minn en ekki hreyfa við guðs hugmynd minni enda var guð mér þá þegar veruleiki, sem ég taldi mig skynja með þeim hætti, að ekki kæmist þar neinn efi að. Það mætti ef til vill telja mér trú um, að það væri missýning, að þú værir til, — en það eina, sem ég veit, að er til, er Guð. Og hvað sem segja skal um prestsstarf mitt, þá hefur mér ætíð fundizt síðan, að ég væri að fást við hið rétta viðfangs- efni mitt í lífinu, hvert sem gagnið af því er. En ég held ég mundi ekki skipta um, þótt ég ætti að byrja aftur. — Finnst þér trúarþörf og trúarhneigð fólks minni nú á dögum en í ungdæmi þínu. _ — Nei, það er síður en svo Ég held jafnvel að trúarþörfin og trúarhugðin sé sterkari. enda finnst mér reynslan hafa sannað mér það með árunum. að trúarhugðin sé miklu gild- ari þáttur í lífi fólks og gerð en margir telja Og þessi þörf sækir alltaf á, þó að hún breyti um form og leiðir til fullnæg- ingar. Ég hef heldur aldrei getað fundið, að trúarhugð þar mikið á sig fyrir kirkju- starfið og greiða há gjöld. Ég kynokaði mér við að segja þeim, hve lítið við íslendingar heima gyldum til kirkju, þegar þeir voru að spyrja. Hélt að það yrði hlegið að því. En heimþráin togaði, og við ákváðum að fara heim. Ég er þó elfki viss um, að við hefðum horfið að því ráði að fara aftur til íslands, ef við hefðum vitað hvað kveðjustund- in reyndi á okkur. Það hrærði mann meira en lítið, þegar svo að segja hvert einasta safnaðar- barn kom á járnbrautarstöðina til þess að kveðja, þegar við fórum. —En preststarfið hér heima? — Nóg er starfið. Mönnum finnst ef til vill, að presturinn eigi náðuga daga, þegar aðeins er litið á kirkjulegu þjónust- una, sem við almenningi blasir, en ef menn vissu um alla þá, sem koma til að ræða við prestinn einslega, vissu um þá, sem ef til vill bíða þess að ná tali af prestinum, þá breytist myndin. Sálgæzlan er Rætt við séra Jakob Jónsson, prest Hallgrimssafn^r í Reykjavík, sem verður sextugur á morgir 8 TÍMINN, sunnudagl: i 19. janúar 1964

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.