Tíminn - 25.01.1964, Side 5
I
FJÖLSKYLDA hússins í skóginum er alltaf í svona góSu skapi: Mamma (Gunnvör Braga), Pabbi (Valgeir ÓIi
Gíslason), Maren (Sigrún Gestsdóttlr), Martin (Haukur Hauksson), Marta (Dóra Hlíf Ingólfsdóttir), Mads (Þór-
haliur Ólafsson), Móna (Rakel GuSmundsdóttir), Milly (RagnheiSur GarSarsdóttir), Mína (Helga SigurSardótt-
Ir), og Morten minnsta ögn (Gunnvör Braga yngri). Á MYNDINA vantar Ömmu og kúna GóSrósu, sem gerSist
líka einn góSan veSurdag fbúi f húsinu.
Þrífasa rafmótorar, allar stærðir, fyrirliggjandi.
Einnig rafmótorsleðar og gangsetjarar.
Hagstætt verð.
== HÉÐINN =
Vélaverzlun — Sími 24260
Leikfélag Kópavogs:
| I r r | / •
Husið i skoginum
eftir Anne Cathy Yestly. - Leikstjóri: Lárus Pálsson.
Jörð til sölu
Jörðin Draflastaðir í Saurbæjarhreppi, Eyjafirði,
er til sölu og laus til ábúðar á komandi vori. —
Mikil lán hvíla á jörðinni- — Upplýsingar veitir
eigandi jarðarinnar, Gunnlaugur Halldórsson,
Draflastöðum, sími um Saurbæ.
Loksins er kominn hinn lang-
þráði tími, að yngsta fólkið get-
ur farið að skreppa í leikhúsið.
Á sunnudaginn var frumsýndi
Leikfélag Kópavogs barnaleikrit-
ið Húsið í skóginum eftir Anne
Cathy Vestley í íslenzkri þýðingu
Gunnars Sveinssonar, leikstjórn
Lárusar Pálssonar og með bráð-
fallegum og skemmtilegum leik-
tjöldum eftir Hafstein Austmann.
Næsta sýning verður á morgun í
Kópavogsbíói.
Meðal leikenda eru nokkrir gaml
ir kunningjar úr fyrri leiksýn-
ingum félagsins. Sveinn minn Hall
dórsson er ekki eftirbátur annarra
þegar til hans kasta kemur, þótt
kominn sé á áttræðisaldurinn,
hvar hefur ekki Sveinn verið með
í leiknum, allt frá Djúpi til Suð-
urnesja, og hér leikur hann Mons
álf. Hinn álfinn, Mogens, leikur
Björn Magnússon, og á meðan
verið er að tilfæra á sviðinu, kem
ur hann fram fyrir tjaldið og fær
öll börnin í salnum til að taka lag-
ið með sér. Það er aldeilis
skemmtileg amma, sem' Auður
Jónsdóttir sýnir, að vísu ekki ýkja
eðlileg amma, en hún er ekkert
blávatn fyrir því og mætti gjarn-
an syngja fleiri lög. Líney Bents-
dóttir gerir Oleu frænku firna
spaugilega, þegar hún kemur ark-
andi framan úr sal, tekur að ræða
við ömmu Óla Alexanders og þær
setjast loks undir borð í húsftfff’
í skóginum, það er kostulegt upp-
litið á frænkunni. Engin leið er
að telja alla leikendur, a. m. k.
tuttugu talsins, helmingur leikinn
af börnum, og gera allir sitt til að
úr verði hin bézta skemmtun fyrir
yngstu leikhúsgestina, sem þakk-
látastir eru allra gesta, en leik-
húsin sinna allt of lítið.
Það er setinn hver bekkur f hús
inu í skóginum, en allir una þar
glaðir við sitt, og ekki þýðir að
úthýsa kúnni, sem kemur eins og
af himnum send, hún er skírð
Góðrósa og fær sitt herbergi í hús-
inu. Þá koma tveir braskarar svo
kallaðir og eru raunar hvorki
meira né minna en herfilegustu
svikarar, koma auðvitað til að gera
illt af sér, en ekki tekst þeim að
pretta húsið í skóginum út ú;
pabba og mömmu, þó að þeim hafi
1 tekizt að selja ömmu íbúðina átta
sinnum í senn, en hér falla þeir á
eigin bragði. Þetta fer sem sagt
allt vel að lokum og leikhúsgesi
irnir ánægðir heim.
Gunnar Bergmann
ALLT Á SAMA STAÐ
Payen
Pakkningar
Pakkningasett
Pakkdósir
í alla bíla
Sendum gegn kröfu
EgilS Vilhjálmsson h.f.
Laugavegi 118, sími 22240
Verkfæri fyrir fagmenn
Skofið sýnishorn af verkfærunum i sýningarglugga okkar
Heildsala og umboð á Islandi fyrir
. EMIARD WILIE, WUPPERTAL-0RONENBERC
K. ÞORSTEINSSON & CO.
Tryggvagöiu 10, Reykjavík, sími 19340
NotuA að meira eða minna leyfi
í flestum verkstæðum og vél-
smiðjum landsins
Smásala
Verzl. Byggingavörur,
Laugaveg 178, R.
Verzl. G- J. Fossberg,
Vesturgötu 3, R.
Verzl. Vald. Poulsen,
Klapparstíg 29, R.
Slippfélagið í Reykjavík
Járnvöruv- J. B. Pétursson,
Ægisgötu 4, R.
Hamarsbúðin, Tryggvagötu, R.
Atlabúðin, Akureyri.
^ÍMINN, laugardaginn 25. janúar 1964 —
s