Tíminn - 27.02.1964, Side 4

Tíminn - 27.02.1964, Side 4
T í M I N N, fimmtudaginn 27. febrúar 1964 — RITSTJÓRI HALLUR SÍMONARSON FurSulegt. Casslus þegir! Liston beztur — ha, ha Ég er beztur . og Liston verSur búinn lAtlll Orðhákurinn Cassius stóð við loforð sitt! Alf-Reykjavík, 26. febrúar. „I 'm the king', — ég er kóngurinn hrópaði Cassius Clay og dansaði stríðsdans í hringn- um í fyrrinótt, þegar hann yngstur manna vann heimsmeistaratitilinn í þungavigt, aðeins 22 ára gamall. Sonny Liston hætti keppni eftir sex lotur, þá með blóðugt andlit og meiðsli í öxl. Það ótrúlega hafði skeð, að Liston hafði verið yfirbugaður. Hinir átta þúsund áhorf- endur í Miami Beach vissu varla hvaðan á þá stóð veðrið, er Liston sat sem fastast í horni sinu þegar sjöunda lotan atti að hefjast — alít fór á ringulreið í heila minútu, enginn botn- aði neitt í neinu nema kjaftaskurinn Cassius Clay og það var eiginlega hann, sem tilkynnti fyrstur úrslitin. Langt út fyrir hringinn í Miami Beach hljómuðu öskur hans með öldum Ijósvakans til milljóna manna út um víða veröld. — „I 'm the King. I 'm the King." Og eftir þetta bætti hann við — „enginn getur sigrað mig“ og sigri hrósandi sagði hann svo í sífellu, — „ég stóð við loforð mitt“. Fyr- ir leikinn hafði Cassius spáð því, að hann myndi sigra Liston í sjö- undu lotu — og þótt fæstir tryðu því að svo myndi fara, stóð orð- hákurinn Cassius Clay við lof- orð sitt. Hnefaleikakeppnin í Miami Beach í fyrrinótt var ein stór- kostlegasta sem um getur í hnefa leikasögunni. Fréttaritarar lýsa keppninni svo, að Liston hafi þeg- ar á fyrstu sekúndunum í 1. lotu ráðizt eins og ljón að Cassiusi og virtist ætla að gera út um ieikinn strax. En Cassius var við- búinn þessu og hann vék sér und- an liðugt eins og balletdansari. Tempóið var ekki mikið í 1. lot- unni og það var Liston sem sótti nær allan tímann, en hann varð fyrir því óláni að meiðast í öxl í þessari 1. lotu — og það átti eftir að verða afdrifaríkt. Enn þá er ekki vitað með vissu, hvort meiðslin stöfuðu af höggi frá Cassiusi, eða hvort þau voru af- leiðing feiknarlegs vindhöggs Listons. í 2. lotu var tetmpóið meira og enn var það Liston sem sótti, en Cassius varðist mjög taktiskt og stóð sig nú betur en í 1. lotunni. Lriðja lota var mjög jöfn, en ná var Cassius farinn að sækja. Og Cassius sótti enn þá meira í næstu lotu, kom m. a. góðu höggi á aðra augnabrún Listons. í 5. og 6. lotu urðu högg Cassiusar þyngri og hnitmiðaðri, eitthvað virtist vera að hjá heimsmeistaranum. Bjall- an hringdi, sjöunda lota átti að hefjast. Cassius spratt úr sæti sínu eldsnöggt, þótt þreyta væri farin að segja til sín. En hvað var að gerast í horninu á móti? List- on með blóðugt andlit gerði sig líklegan til að rísa upp, en þjálf- ari hans hindraði hann í því. — Leiknum var Iokíð!! Þetta var nokkuð, sem menn á'.t uðu sig ekki á. í hinum sex lot- um hafði viðureignin verið nokk- uð jöfn að áliti dómara — Liston bafði betur í þremur fyrstu — en Cassius í þremur næstu. En lík lega hefur þjálfari Listons vitað hvað hann söng. Meiðslin í öxl- inni voru meiri en það, að Liston gæti staðizt gortaranum frá Louis Framhalo á 13. sí8u. FYRIR ALLA MUNIENOAN FÉLAGARÍG Á DAGSKRÁ! Eftir fjóra daga leggur is- lenzka landsliðið í handknatt- leik land undir fót, og heldur til Tékkóslóvakíu í heimsmeist- arakeppni. Margt hefur verið skrifað og skrafað um hina væntanlegu för og um helgina síðustu var landsiiðið okkair eðlilega mikið á dagskrá vegna landsleikjanna við ‘Bandaríkja menn’. Flestum þótti vel ganga í viðurcigninni við þá — og þótt sumt mætti fara betur, voru góðu hliðarnar á lands- liðinu okkar miklu fleiri en þær siæmu. Það hefur löngum þótt galli á landsliðum, sem við íslend- ingar teflum fram í flokka- íþróttum, að félagarígur situr oft í öndvegi og hindrar góða samvinnu milli leikmanna. Þetta hefur skeð í knattspyrn- unni — og því miður virðist handknattleikurinn ekki vera laus við þetta fyrirbrigði að öllu leyti Félagarígur má ekki undir neinum kringumstæðum sitja í fyrirrúmi — og kannski allra sízt, þegar við teflum fram liði í heimsmeistara- képpni, þar sem möguleikar íslands eru alls ekki svo litlir undir eðlilegum kringumstæð um. Það var því þeim leikmanni landsliðsins, sem gekk til íands liðsþjálfara eftir síðari leikinn við Bandaríkin, ti'l iítillar sæmdar að ásaka hann um hlutdirægni við skiptingu leik- manna, þ c. Iandsliðsþjálf- arinn átti að liafa látið “sína” menn vera of mikið inn á, en aðra leikmenn of Iítið. Allir sem þekkja til lands- liðsþjálfara vita að hann gegn- ir sínu starfi samvizkusamlega — og öllum ásökun eins og þessi því út í hött. En hryggi legt er það að svona mórall skuli finnast innan landsliðs- ins. Það er gersamlega úti- lokað, að við náum nokkurn tímann langt, nema mórall eins og þessi hverfi. — a!f. „I'm the king" ' fyrrinótt. — Myndin er tekin Meistaramót íslands í frjáls- um íþrótlum innanhúss fer fram í íþróttahúsi KR dagana 21. og 22. marz n.k. Frjáls- íþróttadeild KR mun sjá um mótið. Keppnisgreinar verða þess- ar: 21. marz: Stangarstökk, Iangstökk án atrennu, þrístökk án atrennu. 22. marz: Kúluvarp, hástökk með at- rennu, hástökk án atrennu. Þátttökutiikynningar þurfa að hafa borizt í pósthólf 1333, fyr ir 16. marz. • Reykjavíkurmótið í svigi verður haldið í Skálafelli sunnudaginn 1. marz n.k. Nafnakali er kl. 10 f.h. í öllum flokkum (við ræsimark). Skíðadeild KR annast fram- kvæmd mótsins. Keppt verð- ur í öllum flokkum og er bú- ist við góðri þátttöku. Haukur Sigurðsson skíðakennari frá ísa firði annnast brautalagningu. Aldrei liefur verið eins erfitt með snjó á þessum tíma árs, en Haukur fór á sunnudaginn til að athuga snjólagið í Skála felli og er meiningin hjá hon- um að leggja brautina norðan til í Skálafelli. Keppendur og starfsmenn eru beðnir að mæta tímanlega þennan dag. Karólína Guðmundsdóttir, formaður skíðadeildar KR, bið ur cldri skíðamenn og konur að mæta til samstarfs þennan dag, þar scm mót þetta þarfn- ast mikils starfsliðs. — Hitt- umst heil í Skálafelli á sunnu- dag. • 5. :narz n.k. verður síðara sundmót skólanna haldið í Sundhöll Reykjavíkur. Keppt verður í fimm greinum stúlkna en sex greinum pilta. Stigaútreikningur cr sam- kvæmt því, sem hér segir: a) Hver skóli, sem sendir sveit í boðsund, hlýtur 10 stig. (Þó skóli sendi 2 eða fleiri sveitir hlýtur hann eigi hærri þátttökustig). b) Sá einstaklingur eða sveit, sem verður fyrst, fær 7 stig, önnur 5 stig, þriðja 3 stig og fjórða 1 stig. Leikregium um sundkeppni verður stranglega fylgt og í björgunarsundi verða allir að synda með markvaðatökum. Tilkynningar um þátttöku sendist sundkennurum skól- anna i Sundhöll Reykjavíkur fyrir kl. 13, miðvikudaginn 4. marz n.k. Þær tilkynningar, sem síðar berast, verða eigi teknar íil greina. • Knattspyrnusamband ís- Iands mun, svo sem á s.I. ári, gangast fyrir því í samráði við íþróttakennaraskóla fslands að haldin verði knattspyrnuþjálf- aranámskeið á 1. og 2. stigi á komandi vori. Er aðilum knattspyrnusam. bandsins, hvar sern er á land- inu, gefinn kostur á að siík námskeið verði haldin hjá þeim og er þess að vænta, að sem flestir notfæri sér þessa þjónustu, sem er þeim látin í té að kostnaðarlausu. Umsóknir verða að hafa bor- izt til KSÍ fyrir 15. marz n.k.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.