Tíminn - 17.03.1964, Blaðsíða 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Tómas Ámason. — Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriöi
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson. Frétta-
stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson,
Ritstjómarskrifstofur i Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif
stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar
skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 80,00 á mán. innan-
lands. í lausasölu kr. 4.00 eint — Prentsmiðjan EDDA h.f —
Ræktun landsins
í ályktun aðalfundar miSstjórnar Framsóknarflokks-
ins var lögS megináherzla á fernt í landbúnaðarmálum:
Að breyta framleiðsluráðslögunum svo að þau tryggi
bændum réttmætan hlut í þjóðartekjunum.
Að stórauka framlög og bæta lánskjör til ræktunar.
Að auðvelda mönnum að reyna nýja búskaparhætti
t. d. samvinnubúskap, nýja véltækni og aukna
vinnuhagr æðingu.
Að stórauka vísindalegar rannsóknir og tilraunir, svo
sem jarðvegsrannsóknir, gróðurrannsóknir, áburð
ar- og fóðurtilraunir og byggingarannsóknir.
Nýlegar athuganir hafa leitt í ljós, svo sem kunnugum
kom tæplega á óvart, að bændastéttin er lægst launaða
stétt þjóðfélagsins. Þess vegna var eðlilegt, að fundurinn
ályktaði um úrbætur til þess að veita bændum réttmæt-
an hlut í þjóðartekjunum. Fundurinn gerði sér þó ljóst,
að það mark næst ekki með hækkun verðlags einni, held-
ur verður að hafa sama hátt á og flestar aðrar þjóðir, að
auka tekjur bænda án mikillar hækkunar afurðaverðs,
létta álögum af landbúnaði og auka þjóðfélagsstuðning
við hann.
Nú eru opinber framlög til ræktunar og uppbygging-
ar í sveitum sáralítill hluti af kostnaði við þessar fram-
kvæmdir. Er það sanngjarnt, að láta það vera hlutverk
þeirra 30 þús. íbúa einna, sem í sveitum eru, að rækta
landið, eða ber að líta svo á, að það sé þjóðfélagslegt
verkefni, sem hin 150 þús. íbúanna eigi að taka þátt í?
Við hljótum að líta svo á, að þetta sé þjóðfélagsverkefni,
því að ef við ekki ræktum landið og nýtum það, er vafa-
samt, hve lengi við getum haldið rétti okkar til landsins.
Þess vegna er ræktunin líka sjálfstæðismál.
En jafnframt ræktun og uppbyggingu verður að leit-
ast við að auka afrakstur búanna, og til þess verður að
leita nýrra leiða í búskap og búskaparformi, svo að rekst-
ur verði hagkvæmari og léttari. En þekkingin er grund-
völlur framfaranna í landbúnaðinum sem annars staðar
og því þarf að veita stórauknu fjármagni til vísindalegra
rannsókna í þágu fians, eins og bent er á í ályktuninni.
Árangurinn, sem þegar er orðinn af þeirri viðleitni, bend-
ir eindregið til þess, að þar sé að vænta mikils ávinnings.
Sjónvarpsmálið
Áskorun sextíu landsþekktra manna til Alþingis um
að einangra sjónvarpsstöðina á Keflavíkurflugvelli við
dvalarstöð hermannanna hefur að vonum vakið mikla
athygli. í hópi þessara manpa eru margir, sem ógjarnan
hafa afskipti af deilumálum. Slíkir menn láta ekki til sín
heyra, nema þeir telji ríka ástæðu fyrir hendi.
Áskorunin sýnir glöggt, að það var mikil skyssa, að
ekki skyldi fylgt áfram hinu upphaflega leyfi, þ. e. að
binda hermannasjónvarpið við herstöðina. Fátt getur
fremur misboðið frjálshuga þjóð en að veita erlendum
aðila eins konar einkaleyfi í landi hennar á helzta áróð-
urstæki nútímans.
Gegn slíku hlaut alltaf að rísa sterk andstaða, óháð
flokkum, eins og komið er á daginn.
Áskorun þessi sýnir enn betur en áður, hvílík höfuð-
nauðsyn það er að hraða íslenzku sjónvarpi. Með því á
að geta skapazt grundvöllur til þeirrar lausnar, sem allir
geti unað við. Þúsundir manna hafa þegar keypt sjón-
varpstæki og finnst það vitanlega hart, ef þau verða
gagnslaus. Sjónvarpið er líka menningartæki, sem þjóð-
in öll á að njóta, en ekki aðeins þéttbýlið við Faxaflóa.
Veröur það Nixon eða Scranton?
Sennilegt aö annarhvor þeirra verði forsetaefni republikana
ÚRSLIT prófkjörsins í New
Hampshire síðastliðinn þriðju-
dag hafa að sjálfsögðu verið
mikið rædd undanfarna daga,
bæði ínnan og utan Bandaríkj-
anna. Eins og kunnugt er, urðu
þau þann veg, að Lodge sendi
herra fékk flest atkvæði, en
síðan komu þeir Goldwater
og Rockefeller og Nixon og var
ekki mikill munur á þeim þre-
menningum.
Yfirleitt er talið, að þessi úr
slit séu svo mikill hnekkir fyr-
ir þá Goldwater og Rockefeller,
að þeir megi teljast úr leik.
Þeir tveir voru opinberlega í
framboði og lögðu á sig mikil
ferðalög og fundahöld í sam-
bandi við framboðið. Þó vilja
sumir amerískir blaðamenn
telja, að Rockefeller sé ekki
alveg úr leik, ef honum tekst
að sigra glæsilega í prófkjör-
unum í Kaliforníu og Oregon,
en þar reynir hann næst. Það
myndi styrkja hann talsvert að
nýju. Allir virðast hins vegar
sammála um, að Goldwater sé
úr leik. Þó bendir margt til, að
hann muni í byrjun flokks-
þingsins hafa fleiri yfirlýsta
stuðningsmenn en einn fram-
bjóðandi annar. Þetta stafar
af því, að nær allir full-
trúarnir úr suðurríkjunum
munu styðja hann. Goldwater
getur því komið til með að
hafa aðstöðu til að ráða því
hvert forsetaefni republikana
verður.
ÞAÐ þykir yfirleitt ekki lík-
legt, að Lodge verði forseta-
efni republikana, þótt hann
sigraði í New Hampshire, án
þeess að gefa nokkurn kost á
sér. Sigur hans þar er talin
stafa af því, að hann sé vin-
sæll i Nýja-Englandi, en öllu
lengra nái persónulegar vin-
sældir hans ekki. Þá hafi marg
ir kosið hann til að lýsa and-
stöðu við Goldwater og Rocke
feller. Sjálfur hefur Lodge
enn ekki sagt neitt um það,
hvort hann gefi kost á sér.
Það þykir m.a. mæla gegn
Lodge, að hann þótti standa
sig slælega í kosningabarátt-
unni 1960, en þá var hann vara
forsetaefni republikana. Eink-
N IX O N
SCHRANTON
um þótti það að honum, að
hann væri latur og legði því
ekki á sig eins mikil ferðalög
og krafizt var af honum. T.d.
er sagt, að hann hafi alltaf
krafizt að mega leggja sig eft
ir hádegismatinn! Hins vegar
þótti hann góður ræðumaður
og hafa virðulega persónu, þó
náði hann aldrei verulegri
hylli áheyrenda.
EFTIR prófkjörið í New
Hampshire eru tveir menn
nefndir miklu meira eftir en
áður sem hugsanleg forsetaefni
republikana, það eru þeir Nix-
on og Scranton, Nixon fékk
öllu meira fylgi í New Hamps
hire en búizt var við, þar sem
hann var ekki í framboði og
miklu minna var unnið fyrir
hann en aðra þá, sem kosið
var um. Það mun líka frekar
hafa spillt fyrir honum, að
hann var studdur af fyrrv.
ríkisstjóra, sem var fallin í
ónáð hjá republikönum, og
hefði það verið talið óbeinn
sigur hans, ef Nixon hefði feng
ið mjög mikið fylgi, Yfirleitt
telja amerísku blöðin, að Nix-
on hafi fengið öllu meira fylgi
en búizt var við.
Það styrkir mjög aðstöðu
Nixons, að hann er þekktasti
leiðtogi republikana í Banda-
ríkjunum næst eftir Eisen-
bower Hann er jafnframt við-
kenndur sem snjallastur bar-
áttumaður þeirra. Sjálfur sagði
Nixon nýlega á blaðamanna-
fundi, að hann væri sá af leið
togum republikana, er hefði
mesta reynslu í kosningabar-
áttu og myndi reynast reynast
demokrötum harðastur and-
stæðingur. Eftir að hafa sagt
þptta tók hann svo fram, að
hann væri ekki að sækjast eft-
ir því að vera í framboði, en
myndi þó gefa kost á sér,
ef flokksþingið skoraði á hann.
GEGN Nixon mælir það, að
nann hefur fallið í forseta-
kosningum og síðan fallið við
ríkisstjórakjör í Kaliforníu,
Af þeim ástæðum er ekki óeðli
legt, þótt flokkurinn leiti fyrst
eftir nýjum manni. Af þeim-
sem taldir hafa verið koma til
greina, stendur nú vart nema
einn eftir af nýliðunum, en
það er Scranton ríkisstjóri í
Pennsylvaníu. Hann er tiltölu
lega ungur maður, hefur reynzt
vel sem frambjóðandi í kosn
ingum og staðið sig óaðfinnan
lega sem ríkisstjóri. Honum
hefur jafnframt tekizt að
þræða þannig milli hægri og
vinstri í flokknum, að hann
hefur ekki aflað sér neinna
andstæðinga og því ætti betra
samkomulag að geta tekizt um
framboð hans en flestra ann
arra. Það mælir hins vegar á
móti honum, að hann er lítið
þekktur og það hefur að sjálf—
sögðu mikið að segja.
Scranton lýsir stöðugt yfir því
að hann vilji ekki vera í fram
boði. Fylgismenn hans gæta
þess mjög að tefla honum
hvergi fram í prófkjöri og er
það gert til að angra ekki
neinn hinna keppinautanna.
Scranton stefnir þannig að því
að bíða til seinustu stundar og
koma þá sem hinn frelsandi
engill, er allir sameinist um!
EINS og áður segir, getur
Goldwater ráðið miklu á flokks
þingi republikana, þótt sjálfur
verði hann úr leik. Hann hef
ur ekki sagt neitt endanlega
um álit sitt á Scranton og
Nixon, en fleiri telja þó, að
hann muni heldur styðja Nix
on, ef hann ætti' að velja á
milli hans og Scrantons. Slík
afstaða Goldwaters gæti vel
ráðið úrslitum, því að þótt
vinstri armur repiiblikana kysi
Scranton heldur, myndi hann
sennilega sætta sig við Nixon,
ef það tryggði betra samkonra-
lag í flokknum.
Það er haft eftir Goldwater,
að Nixon hafi að vísu tapað
seinustu kosningum, en þó sé
kannske rétt að gefa þeim
manni tækifæri að nýju, er
hafi ekki tapað með nema um
100 þús. atkvæða mun á móti
jafnsnjöllum keppinaut og
Kennedy. — Þannig munu á-
reiðanlega margir hugsa. Nix-
on getur því haft sterka að-
stöðu á flokksþinginu og fylgis
menn Scrantons þurfa því að
halda vel á málum, ef þeir
ætla að tryggja framboð hans.
En sennilegt er, að lokaátökin
standi á milli þeirra tveggja.
Sú virðist a. m. k. spá manna
vestra í dag. Þ.í».
T í M I 'N N, þriðiudaginn 17. marz 1964. i—