Tíminn - 20.03.1964, Page 3

Tíminn - 20.03.1964, Page 3
 m TIMANS ■ 1 Frank Seamon, slökkviliðs- stjóri í bænum West Hamp stead á Long Island í Banda- ríkjunum, lét af störfum fyrir nokkrum dögum fyrir elli sak- ir. Starfsfélagar hans í slökkvi liðinu héldu honum heljar- mikla kveðjuveizlu — og fjórir slökkviliðsmannanna töldu að hann ætti skilið að fá að sjá sæmilegan bruna á þessum tímamótum í lífi sínu. Þeir læddust því út frá steikinni og kveiktu í tómu húsi í nágrenn- inu. Þeir komu síðan hinir róleg- ustu til baka, húsið logaði glatt og veizlan varð sann- kölluð brunahátíð. En Edward Curran lögreglu stjóri var ekki alveg á sama máli og fjórmenningarnir og þeir fóru því úr veizlunni og beinustu leið í steininn. Þegar hraðritunin hófst til vegs að nýju, var hún einkum notuð til þess að enginn gæti lesið það, sem skrifað var, nema höfundurinn sjálfur, og má í því sambandi nefna enska dagbókarhöfundinn Pepys. Dag bækur hans hafa nýlega verið þýddar af enskum og banda- rískum sérfræðingum í sam- einingu, og hefur það tekið þá 13 ár. Þessi nýja útgáfa mun koma út mjög bráðlega í 13 stórum og veglegum bindum, og munu Pepys-aðdáendur um allan heim gera hvað þeir geta til þess að ná sér í eitt ein- tak. Eins og kunnugt er, ætla Bretar nú að breyta peninga kerfi sínu og taka upp tuga- kerfið, bæði vegna þess, að núverandi kerfi er mjög erfitt fytrir erlenda ferðamenn, og svo hafa Bretar ennþá hug á að ganga í Efnahagsbandalag Evr ópu. Hingað til hafa margir vilj- að skipta pundinu niður í 100 cent, en hinum rótgrónari Bret um finnst það alltof bandarískt og vilja hafa 100 pence í stað- inn. Og það er heldur ekki svo undarlegt. Pennyið er nefnilega ein elzta mynteining á vestur- helmingi jarðar. Það var fyrst sett í umferð af Offa konungi af Mercia árið 784 og leysti þá af hólmi rómversku myntina Denarius, sem margir kannast við. Næstu 50 árin var ipennyið ráðandi mynt í Bretllandi og minni mynteiningar fengu Bret ar með því að skipta pennyinu í tvent (halfpennies) eða í fjóra hluta (four things, sem nú kallast farthings). Allar aðrar mynteiningar komu seinna. T.d. var fyrsti Shill- ingurinn settur í umferð 1544. ' ☆ f París glíma menn nú við eftirfarandi gátu, og gætu ís- lendingar líka reynt að spreyta sig á henni: Hver er munur iap á Napoleon og fjármála- iVðuneytinu okkar í dag? Hið rétta svair er: Mismunurinn er einungis mállfræðilegur. Napoleon tók peningana okkar en fjármála- ráðuneytið tekur þá. ☆ Leikhúslífið er ekki bara gleði og glaumiw, eins og marg ir halda. Eða svo segir Gitta Hænning hin danska. Hún hef ur orðið að borga fyrir þær góðu móttökur, sem hún fékk í leikritinu „Fantasticks.“ Hún hefur verið á leiksviðinu marga tíma á hverju kvöJdi í heilan mánuð — og árangurinn vair gleraugu! Hin sterku sviðs Ijós hafa nefnilega skemmt sjón hennar verulega. Flestum kemur þó saman um, að Gitta sé jafnlagleg, hvort sem hún er með gler- augu eða ekki Bandaríkjamaður nokkur, Harold Jeffries frá New York, varð gjaldþrota fyrir nokkru í þriðja sinn. Hann er bóka- útgefandi og hefur m.a. gefið Hryllingsk.vikmyndir eru mjög vinsælar í Bretlandi um þessar mundir og nýjasta myndin á því’sviði kallast „The Gorgon“. Á MYNDINNI sjáum við eína leikkonuna með nokk uð óvenjulegan höfuðútbúnað, sem efalaust mun skjóta mörg um skelk í bringu á hvíta tjald inu. Leikstjóri „The Gorgon' heitir Terence Fisher, en hann hefur m.a. gert hinar frægu kvikmyndir „Dracula" og „Bölvun Frankensteins-'. Hann segir þó, að „The Gorgon“ sé óvenjuleg hryllingsmynd, því að í stað þess að bíta menn á barkann, eins og t.d. Dracula gerði, þá er hinum og þessum umsvifalaust breytt í stein í „The Gorgon!“ út bækurnar: „Leiðin til frama,“ „Milljóneri á hálfu ári“ og „Listin að græða pen- inga.“ Hann mun nú keppast við að lesa þessar bækur, áður en hann ieggur út á viðskipta- brautina á ný. ★ Stjornmálamenn hafa oftast mikla trú á eigin skoðunum, en líklega á ítalski þingmaður- inn Storti metið, því að hann sagði í jómfrúrræðu sinni fyr ir nokkru: „Eg veit ósköp vel, að það eru tvær hliðar á hverju máli — skoðun flokks míns — og hin ranga!“ Margir ráðast harðlega á nútíma málaralist, og brezki rithöfundurinn Laurence Irv- ing lét ekki sinn hlut eftir liggja þegar hann sagði: „Tækni málaralistarinnar er nú gleymd öllum öðrum en skiltamálurum og peningaföls- urum.“ ★ í Wall Street-hverfinu í New York er bar nokkur, sem svo að segja eingöngu er sóttur af karlmönnum. Það gaf hinum ágæta veitingamanni Johnny hugmyndina um að hengja upp skilti á milli vínflaskanna, sem á stendur: „Konan yðar er þegar orðin öskuvond. Fáðu þér heldur einn tfl svo að þú hafir hug- rekki tiJ þess að hitta hana.“ ★ Mairgir halda að hraðritun sé tiltölulega ný upipfinning, en þar skjátlast þeim heldur betur. Sjálfur Júlíus Cesar not aði hraðritunarkerfi, og Titus keisari stærði sig af því, að geta skrifað niður ræðu miklu hraðar en „atvinnuhiraðritar ar.“ Síðan gleymdist listin, — og al'lar miðaldirnar höfðu fræðimenn engan áhuga á hraðritun, heldur lögðu sig alla fram við að gera skriftina svo shrautlega, sem þeir gátu. J „Skemmtilegf” Morgunblaðið segir frá fundi Varðar um húsnæðismál í gær og birtir ræðu Þorvalds Garð- ars. En um umræðurnar segir Moggi lítið, og raunar ekkert annað en þessa merkilegu nið- urlagssetningu: „Var fundur- inn hinn fróðlegasti og kom þar ýmislegt upplýsandi og skemmtilegt fram“. Hefði verið fróðlegt og upp- lífgandi fyrir húsbyggjendur að fá svolítið nánari vitneskju um það, hvað þetta „skemmtilega", sem fram kom á fundinum, hef ur verið. Húsbyggjendmn, sem eiga við æma erfiðleika að etja af völdum óðadýrtíðar ríkisstjórn- . arinnar og lánakreppu, veitir sannarlega ekki af „skemmti. legum“ fregnum af þessum málum, og þeir munu spyrja, hvað það hafi verið. Var það ef til vill sú „skemmtiiega“ staðreynd, að opinhert lán til íbúðarbyggingar dugar nú hvergi nærri í heild fyrir þeirri hækkun á byggingarkostnaði einni, sem orðið hefur í tíð stjórnarinnar? Var það ef til vill vaxtaokrið á byggingalán- unum? Var það nýi söluskatt- urinn, sem hækkar byggingar- efnið enn? Til þess að lýsa þessu öllu og ýmsum gjöfum stjórnarinnar öðrum á Moggi aðeins til eitt Iýsingarorð: „Skemmtilegt“. Svarlaus spurning Framsöguræða Þorvaldar hét: „Hvað til úrlausnar í húsnæð- ismálunum?" En ræðan veitir harla lítil svör við spurning- unni og úrræðin eru fá. Hún er mestmegnis upptalning á leið- um, sem ekki er hægt að fara og endar því í sama vandræða- fálmi og í upphafi. Spurning- unni er ósvarað vcgna þess, að ræðumaður forðast eins og heit an eldinn að koma við kýli þess ara mála — afskipti og öfug- gerðir ríkisstjórnarinnar sjálfr- ar. Hann snertir ekki við dýr- tíðarskrúfu stjórnarinnar, lána kreppunni og vanmætti stjórn- arinnar i þeim efnum. Hann minnist ekki á afnám okur. vaxla, eflingu samvinnubygg- ingafélaga eða jákvæðar úr- lausnir á útvegun fjármagns. Hann aðhyllist heldur ekki leið ir norska húsbankastjórans, en tillögur hans voru mjög athygl isverðar að flestra dómi, en á þeim er vitanlega sá galli, að þær samræmast ekki á nokk- urn hátt efnahagsmálastefnu ríkisstjórnarinnar, og sé farið eftir þeim, verður að breyta sjálfri íhalds-stjórnarstefnunni. Af þessum sökum gat ræðu- maður ekki svarað sinni eigin spurningu, Það, setn helzt hann varast vann ... Þó er eins og nú loksins eft- ir 4ra ára stjórn á þcssum mál. um, að Sjálfstæðisflokkurinn sé örlítið að átta sig — að vísu aðeins örlítið, en þvi ber vissu lega að fagna og meta. Þegar vinstri stjórnin lögleiddi 6% skyldusparnað ungmenna , á aldrinum 16—35 ára með vöxt- um og verðtryggingu og veitti þeim, sem kæmust yfir ákveðið' lágmark forgangsrétt til lána og það hærri lána úr bygginga. sjóði, snerist Sjálfstæðisflokk- urinn öndverður gegn skyldu- sparnaðinum og barðist á þingi og í blöðum með oddi og egg gegn honum og kallaði hinum Framh. á bls. 5 T í M I N N, föstudagur 20. marz 1964. — i

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.