Tíminn - 20.03.1964, Qupperneq 12

Tíminn - 20.03.1964, Qupperneq 12
Frá Félagi guðfræðinema: Athugasemd við áramóta útgáfu Stúdentablaðs i. Eftir síðastliðin áramót kom _út Stúdentablað, l.tbl. 41. árg. Út- gefandi þessa blaðs er Stúdenta- ráð Háskóla íslands, en ritstjórar og ábyrgðarmenn þeir Garðar Gíslason, stud. jur. og Jón Odds- son, stud. jur. — Efni blaðsins hefur vakið nokkra athygli, þó tæpast í þeim mæli, sem ritstjórn óskar eftir í forspjalli sínu. Er í blaðinu að finna gagnrýni í garð kirkjubyggingar þeirrar á Skóla- vörðuhæð, sem kennd er við Hall- grím Pétursson, en auk þess ýms- ar athugasemdir um íslenzku kirkjuna almennt. Stúdentaráð Háskóla íslands er fulltrúi stúdenta allra og þeir því ábyrgir fyrir efni þess blaðs, er ráðið gefur út á hverjum tíma. Taki Stúdentablað jafn eindregna afstöðu til mála og fram kemur í inngangsgrðum ritstjómar, llgg- ur beinast við að ætla, að þar sé á borð borið álit alls þorra Há- skólastúdenta. Enn fremur má ætla, að það sé að vilja stúdenta almennt, er blað þeirra tekur að sér að koma á framfæri ýmsum þeim skoðunum, sem á lofti er haldið af þeim er í blaðið rita. MéB því að Félag Guðfræðinema fær með engum hætti goldið megmefni blaðsins jákvæði, telur það sÓr skylt að láta frá sér fara efÖrfarandi athugasemdir, að UÖst megi verða, að meðal stud eru skiptar skoðanir um efni. II. Um þau vinnubrögð, sem höfð voru í frgmmi við útgáfu nefnds blaðs, er þetta að segja. Á Stúd- entaráðsfundi, sem haldinn var þann 6. janúar s.l., var samþykkt að fela framangreindum tvímenn- ingum útgáfu Stúdentablaðs, en þeir höfðu lýst sig fúsa til verk- sins. Efnl blaðsins var ekki rætt á þeim fundi, og kom síðar í Ijós, að ýmsum af fulltrúum í Stúd- entaráði kom algjörlega á óvart sú stefna, sem blaðið tók. - Nú mun ekki venja, að Stúdentaráð hafi eftirlit með störfum rit- stjórnar. f þetta sinn virðist þó allt mæla með því, að efni blað- sins hefði verið borið undlr Stúd- entaráðsfund, svo mjög sem það er frábrugðið efni því, sem Stúd- entablað að jafnaði hefur að geyma, auk þess sem tæpast var við því að búast, að menn yrðu á einu máli um afstöðu blaðsins. þess ber að gæta að venjulega eru í Stúdentablaði greinar af ýmsu tagi, en blaðið ekki helgað einu máli, svo sem hér er gert. Þegar af þessum sökum er vafa- samt að gefa blaðlð út án sam- ráðs við Stúdentaráð um efni þess. - f annan stað er hyggi- legast, að Stúdentaráði sé að öllu jöfnu ekki gjörsamlega ókunnugt um efni Stúdentablaðs. Þess eru dæmi, að blaðið hafi tekið þá stefnu, er stúdentum öllum var* til takmarkaðs sóma. Er ásxæðu- laust að nefna þau dæmi hér, enda ýmsum í fersku minni. III. Stúdentablað það, sem gefið var út um áramótin fjallaði um byggingu Hallgrímsklrkju á Skóla vörðuhæð. Segist ritstjórn með blaðinu vilja „vekja athygli borgar búa á máli þessu og mótmæla frekari framkvæmd verksins". Nú væri vel, ef Stúdentablað hæfi umræður um byggingarstíl Hall- grímskirkju og annarra kirkna og gæfi mönnum kost á að láta í ljós skoðanir sínar á þeim efnum, ef hófseml stjórnaði vinnubrögð- um og orðavali ritstjórnar, svo og ef fyrir því væri séð, að greinar þær, sem í blaðinu birtust, ræddu viðfangsefnið málefnalega og án þeirra stóryrða, er um of einkenna ýmsar þeirra. Hvað viðkemur hinu fyrrnefnda, verður ekki betur séð en að rit- stjórn hafi gengið fetl framar en æskilega getur talizt. í forspjalli hennar er því nær ekkert rætt um byggingarlag; kirkjunnar al- mennt, þaðan af síður, að einstök atriði séu tekin til meðferðar. Látið er nægja að segja, að „arkitektar landsins" hafi harð- lega mótmælt því, að bygging sú, er líkan HallgrímskirMu sýndl, yrði reist, svo og að er þetta mál mest var rætt, hafi „flest rök“ hnigið í þá átt, að framkvæmd verksins yrði stöðvuð. Ástæður þær, sem arkitektar færðu fram, eru ekki greindar, né heldur þau rök, sem um er rætt. Þess eins er getið, að „síðustu rökin með byggingunni" séu einkum þau, að i-irkjan verði fyrirtaks tónlistai- salur. Telur ritstjórn sérfræðinga ekki geta sagt fyrir um hljómburð í kirkjunni. Kemur hér raunar fram athyglisverður misskilning- ur á tilgangi kirkjubyggingar. Bygging kirkju verður tæpast rökstudd með því, að hún verði góður tónliStarsalur. Aðrar orsakir liggja til grundvallar kirkjubygg- ingum, og skuli þær nánar ræddar síðar. Þó að ritstjórn þannig láti því nær ógert að ræða þetta mál, veitist hún í niðurlagi Inngang- sins harkalega að kirkjubygging- unni, telur hana „smekkleysu", krefst þess, að hún verði stöðvuð þegar í stað og heitir á borgar- búa að láta til sín taka. Lokaorð- in eru allt að því brosleg ögrun: „Þeir, sem ekki mótmæla, verða að teljast ábyrgir". Orðavalið er með þeim hættl, að ætla mætti, að þjóðarvoði steðji að. Ekki fer hjá því, að skoðanir verði skiptar, þegar ráðist er í byggingu svo veglegrar kirkju, sem hér um ræðir. Hljóta að koma fram mismunandi sjónarmið um staðsetningu hennar og byggingar lag hið ytra, en ekki síður um Innri gerð. Mikils er um vert, að hver kirkja fái valdið því hlut- verki, sem henni er falið. Til þess verður að gæta fyllstu nákvæmni, til dæmis að því er tekur til inn- byrðis afstöðu altaris, skírnarlaug ar, predikunarstóls, sönglofts og kirkjubekkja, en ekki síður kirkjuskrúðs og allrar áferðar. — Vllji menn ræða þessi efni, er rétt, að hver og einn geri grein fyrir áliti sinu með þeim hætti, að ljóst verði, hvað fyrir viðkom- andi vakir. Sjái stúdentar ástæðu til að hafa afskipti af kirkju- byggingu þessari, svo betur megi fara það, sem þeim virðist illa munu takast til um, er heillavæn- legra, að þeir beri fram röksemd- ir viðvíkjandi því, sem þeim þykir ábótavant en síðan tillögur til úrbóta. Gagnrýni af því tagi, sem fram kemur í inngangsorðum ritstjórnar, er fullkomlega nei- kvæð. Verður ekki séð, að rit- stjórn sé málinu til muna kunnug, né heldur, að hún hafi haft mikinn áhuga fyrir að afla sér þekkingar á því, en sízt, að fyrir henni vaki að snúa því, sem hún telur miður fara um bygginguna til betri vegar. Það eina, sem fyrir ritstjóminni virðist vaka, er að ráðast að nefndri byggingu og gera það af svo miklum ofsa, sem framast er unnt. Þessi að- ferð er með öllu ómálefnaleg. Úr því að Stúdentablað vildi hefja timræður um byggingu Hall- grímskirkju, en var þess ekki um komið að reifa þetta mál svo nokkru næmi, hefði farið betur á því, að blaðið leitaði álits manna um bygginguna, án þess sjálft að taka afstöðu. Hefði sú aðferð orð- ið aðstandendum blaðsins til meiri sæmdar en þeir nú hafa orðið aðnjótandi. ÍV. Ýmsar þær skoðanir, sem fram koma í blaðinu, eru þess efnis, að vægast sagt verður að teljast Upphaflega var áformað, að athugasemdir þær, sem hér eru ritaðar, blrtust í næsta tölublaði Stúdentablaðs. Þar eð enn hefur ekki orðið af útgáfu þess, en mál það, sem áramótaútgáfa Stúdenta- blaðs vakti, hefur allmjög borið á góma í ræðu og riti, fór stjórn Félags Guðfræðinema þess á leit við Morgunblaðið, að það birti athuganir félagsins um þetta efni. En Morgunblaðið varð eigl við þeirri málaleitan og synjaði guð- fræðistúdentum um birtingu þess- arar greinar í þeirri mynd, er hún hér birtist og var afgreidd á fundi í félagi þeirra. hæpið, að Stúdentablað gerist vettvangur slíkra skrifa. Nokkrir greinarhöfunda láta ekki við það sitja að ræða þær spurningar, sem fyrir þá eru lagðar af ritstjórn, heldur nota tækifærið til að veit- ast að kirkjunni með miður þekki legum munnsöfnuði, enn fremur að kirkjubyggingum almennt. Nú má færa fram þau rök þessu til réttlætingar, að í Stúdentablað sé mönnnum heimilt að tala svo berlega, sem hver og einn óskar. Um það efni er skylt að taka það fram, að við val greina í Stúdenta- blað verður að gera ákveðnar kröfur um málefnalega meðferð viðfangsefna, eigi blaðið að geta talist verðugur vettvangur aka- demiskra borgara. Verður nánar vikið að því síðar. í annan stað er þessa að geta: Innan Háskóla íslands starfar Guðfræðideild. Sú starfsemi á rætur að rekja til tilvistar evangelisk lútherskrar þjóðkirkju á íslandi. Grundvallar- kenningar kirkjunnar og allar at- hafnir hennar eru í beinum tengsl um við Guðfræðideildina. Án, þeirra væri Guðfræðideildin ekki með því sniði, sem hún nú er. Stúdentablað er gefið út af Stúd- entaráði. í ráðinu á setu einn fulltrúi úr Guðfræðideild. Berist nú Stúdentablaði greinar, sem hafa að geyma árásir á kirkjuna, er vart til of mikils mælst, að fulltrúa Guðfræðideildar i ráðinu sé gert viðvart. — Jafnframt liggur í augum uppi, að með því að beina skeytum að grundvelli Guðfræðideildarinnar er um leið veitzt að Háskóla íslands, er deild ina rekur. Slíkar greinar hlýtur Stúdentaráð að taka til umræðu áður en þær birtast í blaði þess. Vera má, að Stúdentaráð fallist á birtingu greinanna. En því að- eins, að til komi samþykki þess, er rétt að farið. Þá gefst og þeim, sem mótfallnir eru efni grein- anna, kostur á að halda uppi vörn- um fyrir málstað sínn bæði á Stúdentaráðsfundi og í blaðinu sjálfu, en útgáfan fær ekki þann svip einróma álits, sem hún hefur. V. Nú skal lítillega vikið að nokk- rum þeirra greina, er í blaðinu birtust. Ritstjórn leggur tvær spurningar fyrir greinarhöfunda. Beinist önnur þeirra að byggingar lagi Hallgrímskirkju, en hin að því, hvort nauðsyn beri til, að kirkjan verði svo stór sem fyrir- hugað er. Sigtryggur Klemenzson og Þór- ir Kr. Þórðarson svara spurning- unum eins og þær eru lagðar fyrir. Er í orðum þeirra stuttlega fjallað um einstök átriði þessa máls, og stingur sú aðferð mjög í stúf við annað efni blaðsins. Munu greinar þessar ekki ræddar hér, en höfundum þakkað fram- lagþeirra. A hinn bóginn verður ekki hjá því komist að fara nokkrum al- mennum orðum um ritsmíðar þeirra Hannesar Kr. Daviðssonar, E.J.S., Thors Vilhjálmssonar og Arnar Ólafssonar, stud. mag. í orðum greinarhöfunda þessara andar köldu ekki aðeins til Hall- grúnskirkju, heldur einnig til hinnar íslenzku þjóðkirkju í heild. Látin er í ljósi vanþóknun á ýmsum efnum, er höfundum þykja miður fara í starfsemi kirkj unnar og hátterni kirkjunnar þjóna. Jafnframt er hafinn upp gamalkunnur óður um þau ókjör fjár, sem ausið sé í kirkjubygging ar hér á landi, og gefið í skyn, að sú meðferð verðmæta leggi stein í götu baráttunnar fyrir mannsæmandi lífskjörum almenn ings. Hér skulu ekki hin ýmsu um- mæli greinarhöfunda rædd, hvorki efni þeirra í einstökum atriðum né heldur sá dáfríði búnaður, sem þeim sumum er valinn. Yrði það of langt mál, enda hæpið, að deiluaðilar yrðu nokkru nær um eðli málsins með þeim hætti. Á hinn bóginn er rétt að gera stutta grein fyrir meginveilunni í afstöðu þeirra, þar eð hún er sameiginleg ýmsum þeim, er á- kafast veitast að kristinni kirkju á vorum dögum. I máli höfunda kemur fram mjög takmarkaður skilningur á eðli og innihaldi kristinnar kirkj- u. Af þeim sökum verða árásir þeirra raunar ótrúlega afllitlar í augum þeirra, sem leitast við að kryfja til mergjar þá rót, sem kirkjan er vaxin af. Sú óvild í garð kirkjunnar. sem látin er í l.’ós í greinum þessum virðist sprottin af óánægju vegna ýmissa þátta í ytri gerð hennar. Á hinn bóginn er ekki leitast við að brjóta niður bjargið, sem hún stendur á, hvort sem það á rætur að rekja til ókunnugleika greinarhöfunda eða hins, að þeir telja slíkt ekki skipta ýkja miklu máli. — Hvor sem ástæðan er, liggur í augum uppi, að hér er gengið fram hjá kjarna málsins. Öll raunsæ gagn- rýni á kristinni kirkju verður að hafa undirstöðu hennar að við- miðun. Hlýtur gagnrýnin þá ann- að tveggja að miða að því að sýna fram á, að kirkjan hafi yfir- gefið grundvöll sinn, og getur þá verið jákvæð, — ellegar hún leitast við að hrinda grundvelli- num og verður því sinni að teljast neikvæð. Hnígi gagnrýnin ekki í annan hvorn þessara far- vega, missir hún marks. Hún kann að vera fram borin af mikl- T~í M I um skaphita, er kyndir undir stórum höggum og ófyrirleitnu orðavali. En' þrátt fyrir það, svíf- ur hún í lausu lofti, verður lík aðförum manna, sem berjast í náttmyrkri og vita því ógjörla, hvar höggva skal. VI. „Annan grundvöll getur enginn lagt en þann, sem lagður er, sem er Jesús Kristur“, segir Páll post- uli í fyrra bréfi sínu til Korintu- manna. í þessum orðum er grip- ið á kjarna kristinnar trúar og hyrningarsteini kristinnar kirkju. Opinberun almáttugs Guðs, skap- ara allra hluta, sýnilegra og ósýni- legra, í persónu Jesú Krists er upphafsforsenda hvors tveggja. Kristur er kominn til mannanna til að gjöra kunnugt eðli Guðs og vilja hans, til að kalla fallið mannkyn til iðrunar og aftur- hvarfs, til að endurleysa það frá synd og dauða til tímanlegrar betrunar og eilífs. lífs. Með predik un sinni og verkum, með kvöl sinni og krossdauða, með uppris- unni hefur Kristur framkvæmt það áform Guðs að umbreyta sögu mannkyns. Maðurinn, sem fanginn liggur í fjötrum illra afla, heyrir rödd Guðs, sér ljósið, er skin í myrkrinu og gefst kost- ur á að hlýðnast röddinni, ganga á ljósið. Kristur er hin framrétta hönd Guðs, frelsari mannanna. Þessi er í örstuttu máli kjarni fagnaðarerindisins um Jesúm Krist, grundvöllur kristinnar trú- ar og kirkju. Lærisveinar Krists heyrðu boðskap hans, litu verk hans, litu hann sjálfan í lífi, dauða og upprisu. Fyrirheitið um ævarandi návist Krists námu þeir af vörum hans og sannreyndu við upprisu hans og gjöf Guðs heilaga anda. Þessi veruleiki er hinn rauði þráður, er gengur fram um sögu kristinnar trúar og kirkju allt til vorra daga. Kristur er ná- lægur í kirkju sinni, nálægur í orði Guðs og helgum sakrament- um, nálægur þar sem söfnuður trúaðra lýtur honum í tilbeiðslu, nálægur hvar sem tveir eða þrír koma saman í hans nafni. Sífellt kallar hann syndugan mann til iðrunar og afturhvarfs, til hlut- deildar í endurlausninni. Varð- veiti kirkjan boðskap Krists, játi hún Krist í guðsþjónustu sinni, flytji hún fagnaðarerindið um hann hreint cg ómengað, er hún líkami Krists, „samastaður Drott- ins.“ Ef deilt er um starfsaðferðir kristinnar kirkju, hlutverk henn- ar eða tilverurétt, verður umræð- an að hefjast hér. Hafni menn þessum sannindum, hljóta þeir að hafna kirkjunni og afneita hvoru tveggja, hlutverki hennar og tilverurétti. Þá er hin rök- rétta árásaraðferð sú að höggva fyrst í þennan knérunn, í stað þess að beina skeytum að þeim búnaði, sem kjarninn tekur á sig á hverjum tíma. Játi menn aftur á móti grundvallarforsendurnar, hlýtur gagnrýnin að miða að því að komast að niðurstöðu um það, hvern veg kirkjan ræki fagnaðar- erindið, hvort hún sé því trú. Sé þessi afstaða tekin, hlýtur því málsmeðferðin að verða hin sama, fagnaðarerindið sá mælivaður, sem Iagður er á viðfangsefnð hverju sinni. f þeim greinum, sem hér voru gerðar að umtalsefni, er hvorki tekin skýr neikvæð afstaða til þessara sanninda, né heldur hafa þær að geyma jákvæða gagnrýni. Innihald kristinnar trúar og kirkju er yfir höfuð ekki til um- ræðu. Þess í stað er að kirkjunni beint samhengislausum athuga- semdum og sums staðar stráks- legum skætingi, án þess að tilraun sé gerð til að finna tengsl við kjarna málsins. Af þessum sök- um geta greinarnar ekki orðið grundvöllur málefnalegra um- ræðna um kirkjuna. VII. Skoðanir manna á nauðsyn kirkjubygginga eru mótaðar af N- N, föstudagur 20. marz 1964. —> 12

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.