Tíminn - 28.04.1964, Blaðsíða 5
mmm
.....------------------------‘**""*1 ”
SÍ¥ð¥SW>?:ÍS>í
IÞRDTTIR
■ V
' .
: ■ .
Ungverjar unnu
Ungverjar unnu Frakka í
landsleik í knattspyrnu í Par-
ís á laugardag með 3:1. í hálf-
leik var staðan 2:0.
Leikurinn var liður í Evrópu
keppni landsliða — og fer síð-
ari lcikurinn fram í Budapest
innan tíðar. 1
Rangers meisfari
120 þúsund áhorfendur
liorfðu á Glasgow Rangers
vinna Dundee í úrslitaleiknum
í skozku bikarkcppninni á
Hampden Park leikvanginum
í Glasgow á laugardag með
3:1. Þetta er þriðja árið í röð,
sem Rangers verður skozkur
bikarmeistari og hefur Rangers
nú unnið skozku bikarkeppn-
ina 18 sinnum aHs.
Leikurinn á iaugardag var
mjög spennandi og sérstaklega
í síöari hálfleik, en öll mörkin
koniu þá. Jimmy Miílar skor-
aði fyrsta mgrk lciksins fyrir
Rangers á 24. mínútu síðari
hálfleiks, en rétt á eftir jafn-
aði Cameron fyrir Dundee. —
Mikil spenna færðist í leik-
inn við þetta. Það var svo ekki
fyrr en 1 mínúta var til leiks-
mmm
FRÉTTIR
loka, að Millar skoraði annað
mark Rangers og þá var gert
út um lcikinn. Henderson skor
aði þriðja markið nokkrum sek
úndum fyrir leikslok, mjög ó-
vænt.
Heimsmet í
kringlukasti
A1 Oerter bætti eigið heims-
met í kringlukasti á móti í
Kaliforníu á laugardag um 32
sentimetra. Nýja heimsmetið
er 62,94 metrar, en gamla met-
ið var 62,62. Með þessu nýja
heimsmeti sínu hefur Oerter
tryggt sér sæti í Olympíusveit
Bandaríkjanna í Tokíó í haust
— og verður það þá í þriðja
skipti í röð, sem hann keppir
fyrir Bandaríkin á Olympíu-
leikum. Oerter, sem er 27 ára
gamall, átti mjög góðan dag
á Iaugardaginn, því í síðustu
tilraun í keppninni kastaði
hann 62,89, sem einnig cr betra
en gamla metið.
hjá FH-mönnum
Knattspyrna er æfð á vegum
FH í sumar með svipuðu fyrir-
komulagi og s.l. ár. Félaginu hef-
ir verið úthlutað sömu dögum til
æfinga og í fyrra þ. e. a. s. þriðju-
dagar og föstudagar og æfir 5. fl.
kl. 5,30—6,30 e.h., 4. fl. kl. 6,30—
7,30 e.h., 3. fl. kl. 7,30—8,30 e.h.
og sameiginlegar æfingar 2. fl. og
1. fl. kl. 8,30—9,30 e.h. umrædda
daga.
SKRÁNING
KNATTSPYRNUMANNA
Sú nýbreytni mun verða í
knattspyrnumálum Hafnarfjarðar
í sumar að félögin FH og Haukar
munu senda hvert fyrir sig flokka
til þátttöku í landsmótum knatt-
spyrnunnar, en ekki senda sam-
einuð lið eins og áður og hefir
FH þegar tilkynnt þátttöku í alla
aldursflokka landsmótanna.
Á æfingum FH í kvöld mun
fara fram allsherjar skráning
þeirra drengja og pilta, sem ætla
að æfa og keppa með félaginu í
sumar og er því mjög áríðandi
að fjölmennt verði á æfingunum
í kvöld.
Drengjahlaup Ármanns fór fram s. 1. sunnudag og var þátttaka mjög góð. KR-ingar voru mjög sigur-
sæ'Ir í hlaupinu og varð Halldór Guðbjörnsson, KR sigurvegari á 4:53,3 mín. — KR vann einnig 3ja og
5 manna sveitakeppni. — MYNDINA að ofan tók Ijósmyndari Tímans, GE af KR-ingunum eftir keppn-
ina. Þeir eru, Gísli Einarsson, Bjarni Magnússon, Árni Jónsson, Ólafur Guðmundsson og Halldór Guð-
björnsson.
Akranes IBH 1:1
SKAGAMENN með sitt 1. deildarlið fóru enga frægðarför til Hafn-
arfjarðar um helgina, þar sem þeir mættu heimamönnum í fyrsta
leiknum í Litlu bikarkeppninni. Svo fóru leikar að liðin skildu jöfn,
1:1, og verður frammistaða Hafnfirðinga að teljast góð, þar sem liðs-
menn hafa lítið sem ekkcrt æft.
Skagamenn hafa hins vegar áeft
mjög vel í allt vor og eru að sögn í
góðri æfingu. Annars var leikur-
inn heldur þófkenndur og lítil til-
þrif. Skagamenn léku undan vincii
í fyrri hálfleik, en sú hjálp kom
að litlu gagni, þar sem allur leik-
ur þeirra einkenndist af driftar-
leysi og óskipulögðum sóknarleik.
Ríkharður skoraði eina mark
Akraness þegar nokkuð var liðið
á fyrri hálfleikinn, en mark Hafn-
arfjarðar skoraði Bergþór Jóns-
son, skoraði hann úr vítaspymu í
síðari hálfleik.
Magnús Gíslason úr Grindavík
dæmdi leikinn heldur illa.
F. H. vann 32:18
Alf-Reykjavík, 27. apríl
Síðasti leikur norska liðs
ins Fredensborg var s.I.
laugardagskvöld og mættu
Norðmenn þá FH. — FH
vann stóran sigur, 32:18,
og sýndi skínandi leik. Sig-
ur FH var aldrei í liættu og
hafði FH yfir í hálfleik
15:8.
Eftir leikinn létu Norðmenn
svo um mælt, að sérhver FH-
maður væri betri en bezti leik
maður þeirra. Þetta norska lið
vann aðeins einn leik 1 förinni,
gegn Reykjavíkurúrvali, tapaði
þremur leikjum og einn varð
jafntefli.
Til gamans má geta þess, að
Fredensborg styrkti lið sitt
með þremur mönnum frá
norsku meisturunum, Adrild,
en það fréttist ekki fyrr en eft
ir síðasta leikinn. Þessir leik-
menn eru í norska landsliðinu
— og má því segja, að nær
allt norska landsliðið hafi ver-
ið hér á ferð.
Sóknarfeikur KR-
s
inga var beittari
UNNU VAL í GÆRKVÖLDI MEÐ 2:0
Alf-Reykjavík
KR-ingar unnu þýðingarmikinn sigur yfir Val í Reykja-
víkurmótinu í knattspyrnu í gærkvöldi. Tvisvar sinnum sigldi
knötturinn í netið hjá Val í síðari hálfleik og það voru einu
mörk leiksins. Valsmenn áttu mörg tækifæri til að skora,
en mistókst alltaf, kannski mest fyrir ranglega uppbyggðan
sóknarleik. í sjálfu sér var leikurinn ekki svo ójafn, en það
eru mörkin sem gilda — og það var fyrst og fremst fyrir
gamla KR-baráttuviljann, að sigurinn var KR-megin.
Mörkin komu bæði í síðari hálf
leik .Fyrra markið kom á 10. mín
Síúdenta-
hátíð
Stúdentar héldu íþróttahátíð að
Hálogalandi í fyrrakvöld. — Þeir
mættu Reykjavíkurúrvali í keppni
í körfuknattleik og unnu 72:42. í
innanlmss knattspyrnu léku þeir
við Þrótt og sigruðu með 6:5. —
Loks fór fram keppni í handknatt-
leik og þar urðu stúdentar að lúta
í lægra haldi fyrir FH, sem vann
með 37:32.
útu fyrir laglegt samspil Gunnars
Felixssonar og Gunnars Guðmans-
sonar. Gunnar Fel. gaf vel fyrir
markið og nafni hans var ekki
seinn á sér og skoraði viðstöðu-
laust. Markið var fallegt og „typ-
ist“ fyrir hinn síunga Gunnar Guð
mannsson, sem enn í dag er ein
styrkasta stoð KR-liðsins og sá
leikmaður, sem skemmtilegasta
knattspyrnu sýnir. Markið hleypti
miklu fjöri í Valsmenn og áður
en mínúta var liðin, myndaðist
stór hætta við KR-markið. Berg-
sveinn Alfonsson náði að skora,
en dómarinn, Haukur Óskarsson,
dæmdi markið af á þeirri for-
sendu, að Bergsveinn hefði stjak-
að við Gísla markverði. Þetta var
strangur dómur og að mínu áliti
ósanngjarn.
Síðara mark KR kom á 25. mín.
Það var Ellert Schram, sem var
að verki. Skaut af 25 metra færi
frekar lausu skoti, sem Björgvin
markvörður misreiknaði alveg ó-
skiljanlega. Með þessu var í raun
og veru gert út um leikinn. Vals-
menn urðu daufari, en KR-ingar
sóttu enn meira. Einu sinni komst
þó KR-markið í verulega hættu,
þegar nýliðinn í Valsliðinu, Reyn
ir Jónsson skaut hörkusfcoti, sem
Gísli markvörður missti af. En
Hreiðar Ársælsson var til staðar
á línu og bjargaði.
Þótt munurinn á liðunum í
leiknum í gærkvöldi hafi ekki
virzt mikill, átti KR sigur skilið.
Sókn KR er mjög árangursrík,
leikið upp kantana og síðan gefið
fyrir. Aðra sögu var að segja um
Val, sem byggði mikið upp á löng
um boltum fram miðjuna, sem
Ingvar Elísson átti síðan að af-
greiða í netið. Eg held, að það sé
ekki rétt hjá Val að nota Ingvar
sem miðherja. Nær væri að tekn-
iskur leikmaður, eins og Hermann
Gunnarsson væri á miðjunni, en
nota hraða Ingvars á kantinum.
Reynir Jónsson er athyglisverður
leikmaður, en heldur knettinum
of mikið.
Hjá KR voru beztu menn Gísli
í markinu, mjög vaxandi leikmað-
ur, Gunnar G., Gunnar Fel. og
Ellert.
Dómari var Haukur Óskarsson
og dæmdi yfirleitt vel.
Knattspyma
Hér ver Gísli markvörður KR skot frá Bergsveini í leiknum í gærkvöldi.
(Ljósm.:TÍMINN-GE).
T í M I N N, þrlðjudagur I). april 1964. —
s
I