Tíminn - 28.04.1964, Blaðsíða 2

Tíminn - 28.04.1964, Blaðsíða 2
Vilja Kínverjar klofning? MÁNUDAGUR, 27. apríl. NTB-Nicosiu. — KýpurGrikk ir hófu í kvöld enn á ný hörku- árásir á Hilarion-kastalann, sem er á váldi tyrkneskra manna. — Barizt var einnig umhverfis þorpið Ayitos Theodoros á suð vesturströndinni og í Kyrenía- fjöllum. NTB-Djakarta. — Subandrio, utanríkisráðherra Indónesíu, sagði í dag, að landið verði að borga yfirráðin yfir Nýju-Gui- neu (Vestur-Irian) með mikilii verðbólgu. NTB-Vientiane. — Sendiráð Breta, Frakka og Bandaríkja- manna undirbúa nú flutning brezkra, franskra og banda- rískra kvenna og barna frá La- os vegna ástandsins í landinu. NTB-Moskvu. — Nikita Krúst joff forsætisráðherra var í ljómandi skapi í dag, þegar hann kom í veizlu í alsírska sendiráðinu í Moskvu í sarnp. við heimsókn Ben Bella, for- seta Alsírs. NTB-Stokkhólmi. — Gui- seppe Saragat, utanríkisráð- herra ítah'u, hefur verið boðið f heimsókn til Svíþjóðar. NTB-Róm. — Irene Hollands prinsessa og Hugo prins af Bur- bon og Parma munu setjast að í Madrid eftir hjónavígsluna sem fer fram í Róm á miðviku- daginn. NTB-Basel. — Lögreglan Sviss — sem leitað hefur ákaft að þýzka stríðsglæpamanninum Hans Zech-Nenntwich — telur, að hann sé kominn til Suður- Ameríku. NTB-Stuttgart. — Kristilegi demókrataflokkurinn vann imik inn sigur í þingkosningunum í þriðja stærsta ríki Vestur- Þýzkalands, Baden-Wurttem- berg, og jók atkvæðamagn sit.t um 8%. Flokkur sósíaldemó- krata jók fylgi sitt um 2%. NTB-Kuala Lumpur. — Flokk ur Abdul Rahman, forsætisráð-. herra Malaysíu, vann greinileg an sigur í þingkosningunum í gær. NTB-París. — Lucién Payc-, fyrrum kennslumálaráðherra Frakka, hefur verið skipaður sendiherra Frakklands í Kín- verska Alþýðulýðveldinu. NTB-Peking og Moskvu, 27. apr. STJÓRNMÁLA-fréttaritarar í Peking telja, að síðustu árááir kín- verskra kommúnista á Nikita Krú- SURTSEY Framhald al 16. síðu. eyjuna. Það er margt, sem þarf að flytja.- Fyrir utan matarbirgðirnar, sem eiga að duga í viku, ef ske kynni að gerði vont veður, þá erum við með hjálma, myndavélar og sjúkrakassa, tvö tjöld og fleira. — Hvernig ætlið þið svo að eyða tímanum á eynni? — Við erum með transistor-út- vörp með okkur, svo munum við fara í gönguferðir, tína steina til að sýna heima sem minjagripi, og reýna að komast eins nálægt gígn- um og hægt er, ef hann gýs þá ekki alltaf. — Hvers lenzkir eru svo leið- angursmennirnir? — Ég er bandarískur, bý á Keflavíkurflugvelli. Þar að auki fara þrír Englendingar, einn Mar- okkóbúi, einn frá fsrael, Skot- landi, írlandi og tveir frá Austur- ríki. Flestir erum við í kringum 25 ára gamlir. — Jæja, mr. Bird, ég vona að þetta gangi vel hjá ykkur, og ykk- ur hlekkist ekki á. — Nei, það er engin hætta á því, þetta er vel skipulagt, og þar að auki munu tveir af okkur allt- af standa vörð á meðan hinir sofa. KJ-Reykjavík, 27. apríl Aðfaranótt sunnudagsins var framin líkamsárás á mann hér í Reykjavík. Kom maður þar að í bifreið sem tveir menn stóðu yfir honum, en hurfu svo út í nátt- myrkrið, er þeir höfðu aðstoðað við að koma honum í bílinn. GÆSARANNSÓKNIR Framhald af 16. stðu. Dr. Kear ferðaðist um mestan hluta landsins í fyrrasumar, og ræddi við bændur um tjónið, sem gæsirnar hafa valdið. Nú ætlar hún sér að fara um Suðurlands- undirlendið og austur að Kirkju- bæjarklaustri og síðan norður og austur um land alla leið til Egils- staða. í bakaleiðinnni mun hún koma við á Húsavík og Blönduósi og ef til vill Stykkishólmi líka, en alls staðar sem.hún kemur hef ur hún í hyggju að kynna bænd- um notkun rafmagnsgirðinga, en þær tíðkast mikið í Skotlandi til varnar gegn ágangi gæsanna. Þegar skozka gæsafólkið hefur lokið athugunum sínum í sumar, mun það gera skýrslu um málið, en það er ekki hægt fyrr, þar eð nauðsynlegt er að fá yfirlit yfir ágang gæsanna og hegðan bæði vor og haust, en í fyrra kom fólk ið ekki fyrr en upp úr miðju sumri. stjoff, forsætisráðherra Sovétríkj- anna, bendi til þess, að kínversku leiðtogarnir bíði eftir tækifæri til pess að rjúfa algjörlega samband ið við Moskvu, og að þeir telji, að þeir muni sigra í hugsjónabaráttu kommúnista. Síðustu árásir Kínverja birtust í málgagni flokksins, „Dagblaði þjóð arinnar" í Peking í dag. Réðust Kínverjar þar harkalega á Krústj- off forsætisráðherra og aðra lerð- toga Sovétríkjanna og sögðu, að þeir færu með hreinar lygar. — „Leiðtogar Sovétríkjanna hafa ít- kveðið að kasta frá sér öllum bylt- ingarkenningum Marxs og Lenins og í stað þess hefja saimstarf við endurskoðunarsinnana og þá, sem berjast gegn byltingunni. Þeir ætla nú að standa við hlið banda- rísku heimsvaldasinnana, sameig- inlega óvini allra þjóða heimsins", segir í tilkynningu kínverskra kommúnista. „Dagblað þjóðarinnar“ birtir einnig skýrslu Mihail Suslovs, rit- ara sovézka kommúnistaflokksins, til miðstjórnarinnar 14. febrúar, yfirlýsingu miðstjórnarinnar dag- MEÐ 1146 LESTIR Framhald af 16. síðu. Pálsson, en þetta er aflahæsta skipið í Eyjum. í gær var hann búinn að fá um 1150 lestir og um miðjan dag í .dag hafði hann feng- ið a. m. k. 30\lestir til viðbótar. Bílstjórinn flutti þann sem fyr- ir árásinni hafði orðið á Slysavarð stofuna, en hann var með sár á höfði, glóðarauga og meiddur á hendi. Er maðurinn rankaði við sér í gærmorgun, taldi hann sig hafa tapað 1500—2000 krónum, og er sennilegt að árásarmennirnir tveir er hurfr. út í myrkrið á Flug- vallarveginum hafi hirt pening- ana úr veski mannsiris, eftir að hafa barið hann niður. Lögreglan vann að rannsókn árásarmáls þessa í' dag. ýnoga HLÍF MUN SEGJA UPP EJ-Reykjavík, 27. apríl Verkamannafélagið Hlíf í Hafn arfirði hélt fund í gær og var þar einróma samþykkt að segja upp samningum við atvinnurekendur, en þeir renna út 21. júní n.k. Einnig voru kjörnir fulltrúar á stofnfund Verkamannasambands- ins, sem halda á í Reykjavík eða Hafnarfirði 9—10. maí. Sendir Hlíf í Hafnarfirði þrjá fulltrúa, þá Hermann Guðmundsson, for- mann félagsins, Ragnar Sigurðs- son og Hallgrím Pétursson. inn eftir og álit blaðsins „Pravda" á þeirri yfirlýsingu. Um þessar greinar segir „Dagblað þjóðarinn- ar“: „Skýrsla Suslovs inniheldur ein- vörðungu lygar, orðhengilshátt og útúrsnúninga. Það verður að telj- ast meistaraverk, að geta samið skýrslu, sem fyllir heilar sjö síð- ur í „Pravda" og sem hefur ekki annað að geyma en lygar, en þær tnunu að finna a. m. k. á um 140 —150 stöðum. Suslov-skýrslan og ræður Krúst- joffs í Ungverjalandsferðinni og eftir hana er samtíningur án höf- uðs og hala. í rauninni er þetta spegilmynd af endurskoðunar- stefnu Krústjoffs. Leiðtogar Sovétríkjanna beina árásum sínum á félaga Mao Tse Tung, hinn mikla leiðtoga kín- versku þjóðarinnar. í árangurs- lausum tilraunum sínum í þá átt að sverta félaga Mao og hugsanir hans, hafa leiðtogar kommúnist.a- flokks Sovétríkjanna hagað sér eins og maur, sem reynir að velta stóru tré, — þeir hafa á hlægileg- an hátt ofmetið sjálfa sig. Þeir full yrða að Kínverjar séu ný-trotskí- istar og með því hafa þeir lyft steini, sem þeir verða að láta falla á eigin tær“, — segir „Dagblað þjóðarinnar" og lætur uim leið liggja að því að Krústjoff og stuðningsmenn hans í Sovétríkj- unum séu hinir svokölluðu ný- trotskíistar. ?rá /Ufiingi bólguna. Nema eitthvað sérstakt hafi komið til, og þá eiga ráð- herrar eftir að greina frá því. Þeir segja reyndár stundum, að kaupgjald í landinu hafi hækkað of mikið, en sé það athugað, kemur í ljós, að verðlagið hefur hækkað meira en kaupið og kaup- geta tímakaupsins, sem var 115 1956 var 101 stig 1960. Það er al- ger nýjjung í þróun efnahags- mála á íslandi, að verðlagið hafi hækkað meira en kaupið. Þar við bætist, að þessi stefna hefur kom- ið mjög hart niður á atvinnu- vegunum. Þeir, sem fyrst og fremst þurfa á lánsfé að halda eru framleiðendumir og unga kynslóðin, og erfiðleikar þeirra hafa verið stórlega auknir. Þeir, sem hafa hagnazt á þessum ráð- stöfunum, eru hins vegar þeir, sem meira eigið fé hafa með hönd- um og geta leikið lausum hala í fjárfestingunni og grætt á verð- bólguþróuninni. Með þessari stefnu er því dregin burst úr nefi framleiðslunnar og unga fólkinu gert erfiðar með sína bú- stofnun. Þá koma háu vextirnir inn í efnahagslífið með sívaxandi þunga. Þeir, sem verða að byggja rýju íbúðirnar með háu vöxtun- um verða að krefjast hærra kaups NTB-Kaupm.höfn, 27. apríl Boðið hefur verið allt að 6.500 danskar krónur fyrir upplýsingar, sem leitt geti til þess, að skemmt- arverkamaðurinn, sem tók höfuðið af hafmeyjunni litlu í Kaupmanna höfn finnist. Eru það ýmsir borg- arar, sem safnað hafa saman þess- ari upphæð, m. a. bandarískur verzlunarmaður í New York. Styttan sjálf var þegar á laugar- daginn flutt til viðgerðar hjá bronzsteypu Laurits Rasmussen og telja yfirvöldin, að viðgerðin taki um mánaðartíma. til að geta greitt vextina og haldið húsnæðinu. Þá er það gjaldeyrisstaða lands- ins, sem átti að bæta verulega með þessari nýju stefnu. Það sorg- lega er, að afkoma landsins út á við er ekki sérlega glæsileg miðað við þær aðstæður, sem hér hafa ríkt á þessu tímabili, óhemju uppgrip á öllum sviðum og verð- lag á útflutningi og innflutn- ingi, batnandi. — Ekki hefur ver- ið ráðizt í eitt einasta stórvirki, sem jafna má við raforkuvirkjan- irnar, áburðarverksmiðjuría, sem- entverksmiðjuna og fl„ sem reist var fyrir viðreisn. Aftur á bak hefur miðað í hús- næðismálum og meiri húsnæðis- vandræði nú en þegar stjórnin tók við völdum. Þetta eru sorg- legar staðreyndir, en fram hjá þeim verður ekki komizt. Gjald- eyriseign bankanna hefur raunar aukizt, en þar er mest um bók- haldslega aukningu að ræða, þrátt fyrir uppgripin, eins og verzlun- arskuldirnar og stórfelldar er- lendar lántökur til langs tíma segja til um. — Og hvernig halda menn, að ástandið væri í gjaldeyrismálum þjóðarinnar, ef móti hefði blás- ið, afli ekki aukizt svo stórkost- lega og verðlag á útflutningsvör- um ekki farið hækkandi? FRÉTTIR AF LANDSBYGGÐINNI Líkamsárás NTB-London- — Greville Wynne, brezki verzlunarmaður inn, sem Sovétríkin létu nýlega lausan í skiptum fyrir Gordon Lonsdale, liggur nú á sjúkrn- húsi og mun dvelja þar í hálfan mánuð. NTB-London. — Harold Wi:- son, formaður brezka Verka- mannaflokksins, mun liklega fara í heimsókn til Moskvu bráðlega. NTB-Hannover. — Ludwig Erhard, forsætisráðlierra Vest- ur-Þýzkalands, opnaði iðnsýn- inguna í Hannover f dag. ,!9 Iönd taka þátt í sýningunni. BLAÐAMANNA- KLÚBBURINN BLAÐAMANNAklúbburinn verður opinn í kvöld. Að þessu sinni verður gestur klúbbsins Ingólfur Jónsson samgöngu- málaráðherra og mun hann ræða við blaðamenn um sam- göngu- og landbúnaðarmál. — Klúbburinn verður að vanda í Þjóðleikhúskjallaranum og hefst kl. 9,30, og að vanda verð- ur borinn fram blaðamannarétt- ur. Menn eru hvattir til að fjöl- enenna á þennan klúbbfund. Báfur til Suffureyrar JÞJ-Súgandafirði, 27. apríl Hingað er kominn nýr bátur, Ólafur Friðbertsson, 193 lesta stál skip smíðað : Flekkefjörd í Nor- egi. Þetta er stærsta skip, sem hér er og því sannkallaö flaggskip staðarins. I reynsluferð gekk skip ið 11 mílur, það er ákaflega fallegt og vandað að öllu leyti og búið öllum nýtízku tækjum. Skip- stjóri verður Filip Höskuldsson, en efgendur eru hlutafélagið Von- in, en aðalhluthafar eru Ólafur Friðbertsson og synir hans Einar og Bragi. Sex nýorpin andaregg SJ-Patreksfirði, 27. apríl Hér hefur verið einmuna tíð, eins og annars staðar á landinu, síðan í byrjun febrúar. Tún eru tekin að grænka og tré í görðum að springa út. Um miðjan þenn- an mánuð fann bóndi á Melanesi í Rauðasandi andarhreiður með sex nýorpnum andareggjum, sem mun vera einsdæmi um þetta leyti árs . Ný verzlun á Húsavík ÞJ-Húsavík, 27. apríl Föstudaginn 24. apríl var opn- uð ný verzlun á Húsavík. Hún hefur hlotið nafnið Verzlunin Þingey, en eigandi hennar er Stefán Benediktsson, Húsavík. f verzluninni eru aðallega á boð- stólum dömu-, herra- og barna- fatnaður, svo og snyrti- og sport vörur. Kollan og rifan verpa SA-Borgarfirði Eystra, 27. apríl. f GÆR fór ég héma út í Hafn- arhólma og sá þá, að bæði kollan og ritan eru farnar að verpa. — Fann ég eitt kolluhreiður með 2 eggjum, en fjölda af rituhreiðr- um. Má hafa þetta til marks um veðurblíðuna, sem hér hefur rikt að undanförnu. Byrjað er nú að reisa 100 tonna vatnsveitugeymi á Bakkamel og lögð verður ný vatnslögn um þorp ið. Þessar vatnsveituframkvæmdir eru gerðar á vegum bæjarins. 2 T í M I N N, þriðjudagur 28. apríl 1964.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.