Tíminn - 03.05.1964, Blaðsíða 5
Þáttur kirkjunnar
OG ÞOKK
Þau eru ekki löng þessi orð,
sem eiga að vera sérkennj dags
ins, bænadagsins þessu sinni.
Það virðist raunar einkenrli
þeirra orða á íslenzku, sem
hafa stærsta þýðingu, að þau
eru stytzt. Þannig er trú, ást,
von aðeins eitt atkvæði.
Og í dag ættum við að íhuga
hvort og hvernig við notum
það sem í bæn og þökk felst.
Bæn er ekki fyrst og fremst
orð. heldur heit þrá hjartans
eftir Cullkomnun friði og frelsi,
sælu og krafti og um leið inn-
stilling hugans, já, persónuleik
ans alls á bylgjulengd guðdóms
ins, ef svo mætti segja. Takist
þessi innstilling getur bænin,
jafnvel þótt hún væri ekki ann-
að en hljóður hjartsláttur, veitt
hina mestu sælu og hinn
stærsta kraft, en takist það
ekki verður vitundin líkt og
illa stillt útvarpstæki, það fram
leiðist ekki annað en brak og
brestir, öskur og phljóð, það
sem kalla mætti sérkennin á
eirðarleysi og glamri nútíma-
lífs í fjölmenninu. En samt
gæti verið, að bænin væri ekki
þökk. Þar væri ekkert, sem
viðurkennir gjafir og gæzku
annarra, Guðs eða manna okkur
til handa.
Og satt að segja erum við
ekki vön að þakka svo mjög
stærstu gjafir lífsins eða fyll-
ast anaði og sælukennd yfir
þeim, miklu fremur teljum við
allt slikt sjálfsagt eins og sól
og regn og þökk kemur hvorki
í huga né finnst í orðum.
Hver þakkar fyrir heilsu
fyrr en hún er horfin eða dvín
andi, hver þakkar fyrir atgervi
líkama og sálar? Er þetta ekki
allt talið sjálfsagt? Og þó sýn-
ir oft reynsla og samanburður,
að svo er ekki. Allt er gefið
af hinum mikla lífskrafti, sem
við nefnum stundum forsjón
eða Guð, náttúruna og almætt-
ið.
Þegar árgæska veðurfars og
náttúrugæða gengur yfir, þykir
flestum sjálfsagt að svo sé. Og
þökkin gleymist, þangað til
þeir dagar koma, sem sagt er
um: ,Mér þóknast þeir ekki“
En skiptir þá nokkru máli
með þökk, fremur en flestir
telja bæn einnig úrelt og fjar-
lægt menningarfyrirbrigði?
Hvers vegna að hafa þakkar-
og bænardag?
Hafið ekki tekið eftir því, að
þakklætissnautt hjarta og van
þakklát manneskja er eitthvað
í ætt við eyðimörk og norðan-
storm? Umhverfis slíkt fólk er
alltaf blmmt og kalt, dvínandi
áhugi, dvínandi líf.
Aftur á móti verkar þakk-
læti sem hlýr varmi og kraft-
ur, hvatning til þroska og fram
taks bæði þeim, sem þakkar og
þeim, sem þakkað er. Þakklæt-
ið verður þannig eins og leiðsla
sem ber kærleikann milli
manna og milli Guðs og manna
Þökkin hvetur til að vera gjaf-
arinnar verður, og veitir henni
þannig margfalda blessun, á-
byrgð og gildi.
Vanþakklætið skapar hins
vegar sundrung, kulda, kæru-
leysi og misskilning.
Að þessu athuguðu þarf
naumast að spyrja hvers vegna
ætti að þakka, hvers vegna á
að hafa þakkarhátíð eða bæna-
dag.
Vanþakklæti, tómlæti og
hugsunarleysi gagnvart gjöfum
og gæðum lífsins, skapar hroka
og hatur, úlfúð, misskilning og
verkar sem hömlur á allt fram-
tak, framfarir og þroska.
Þess vegna gæti heil þjóð
orðið örbirg og aum mitt í alls-.
nægtum og velgengni, gengið
ef svo mætti segja móður sína
og Guð sinn ofan í jörðina,
gengið aftur á bak í menningu^
og þroska, ef hún gleymir að
þakka. Auk þess má nú minna
á, að þakklæti tilheyrir ennþá
að minnsta kosti einföldustu
mannasiðum og umgengnis-
menningu. En auðvitað breytizt
það viðhorf, þegar svo er kom-
ið, að börnin læra ekki einu
sinni að þakka foreldrum, sem
allt hafa fyrir þau gjört, ein
stéttin heimtar og krefst alls
af annari, án þess að meta og
virða, og allar framfarir og öll
lífsþægindi er lítilsmetið, þeg-
ar kröfum er fullnægt, en að-
eins heimtað meira, krafist
fleira.
Hvernig mundi verða, ef við
færum nú allt í einu að þakka
þingi og stjórn fyrir allar þær
ósegjanlegu umbætur og fram-
farir sem orðið hafa þrátt fyrir
allt í íslenzku þjóðlífi á síð-
ustu áratugum, þakka hverfandi
kynslóð fyrir allt sem hún
vann til að skilja eftir, hallir
í stað moldarkofa, brosandi
ræktarlönd í stað karga og móa
ljós í stað myrkurs, gull í stað
grjóts?
Já, hvernig færi, ef van-
þakklætið breyttist þótt ekki
væri nema nokkra daga, allur
þessi óánægjusöngur og kröf-
ur og nöldur í viðurkenningu
og þakklæti?
Sjálfsagt mundi mörgum
finnast það rugl, öðrum smjað-
ur. En eitt er vist, viðurkenn-
ing og þökk jafnvel á sviði
stjórnmála og atvinnulífs
mundi verka sem vorblær og
sólskin á þjóðlífið.
Og þakklátt hjarta verkar-
eins og viti, sem lýsir og skín,
bendir framhjá hættum, gefur
vonir og nýjan kraft þeim sem
eru að villast og gefast upp í
öllu öngþveiti taumlausrar
kröfu og blindrar gagnrýni. Og
þetta ljós vísar veg úr ógöng-
um og gegíium brim og voða-
sker eigingirni og sjálfselsku
og inn í höfn viðurkenningar
friðar og elsku.
Eða ættum við heldur að
líkja þakklæti mannshjartans
við kirkjuturn, sem ber hæst
yfir hús borgarinnar, en reynd
ar hefur ekki enn verið reist-
ur í Reykjavík. En þaðan berast
svo mildir og mjúkir hljómar
klukknanna, sem boða hreina
gleði og heilaga sorg, en um-
fram allt boðskap himinsins,
engilk-'eðju Drottins, er hann
segir: „Friður sé með yður“,
og þá eki síður kjarna fagnað-
arboðskapsins. „Allt, sem þér
viljið að aðrir menn gjöri yður,
það skuluð þér og þeim gjöra“
En fátt gleður meira en verð-
skuldað þakklæti í fögrum orð-
um frá hreinu hjarta.
Árelíus Níelsson.
Skrifstofumaður óskast
Ungur maður meS verzlunarskóla- eða miðskóla-
prófi getur kömið til greina
halloCr kristinsson
gullsmiður — Sími 16979
Skipaútgerð ríkisins.
Tii söiu:
íbúðarhæð í Vesturbænum
ca. 100 ferm., 2 svefnherbergi, samliggjandi stof-
ur, eldhús, stórt baðherbergi m. m. íbúðin er í
ágætu lagi. Teppi fylgja. Hitaveita.
Sólríkar svalir og mjög fallegt útsýni.
Upplýsingar á morgun (mánudag) í síma 22790.
Málflutnlngsskrlfstofa:
Þorvarður K. Þorsteinssofl
Mlklubraut 74.
'Fastalgnavlísklptl:, 1
Guðmundur Tryggvason
Slml 52790.
Mörg
SAMTIÐINA
heimilisblaðið, sem flytur yður
★ Fyndnar skopsögur ★ Spennandisögur
★ Kvennaþættir ★ Skák- og bridgeþætti
★ Stjörnuspár ★ Greinar um menn
og málefni o- m. fl.
10 blöð á ári fyrir aðeins 95 kr.
NÝIR KAUPENDUR FÁ 3 ÁRGANGA FYRIR 150 kr.
Póstsendið í dag eftirfarandi pöntun
Eg undirrit .... óska að gerast áskrifandi að
SAMTÍÐINNI og sendi hér með 150 kr. fyrir ár
gangana 1962, 1963 og 1964.
(Vinsamlegast sendið þetta i _ ábyrgðarbréfi eða
póstávísun).
Nafn: ..............................
Heimili: ............................
Utanáskrift okkar er SAMTÍÐIN — Pósthólf 472. Rvk.
<§t MELAVÖLLUS
REYKJAVÍKURMðTID
í kvöld kl. 20 leika
Valur — Fram
Á morgun (mánudag) kl. 20 leika
K. R. — Víkingur
Mótanefnd
Jörðin Sigmundarstaðir
Þverárhlíðarhreppi, Mýrasýslu, fæst til kaups og
ábúðar í næstu fardögum. — Semja ber fyrir 15.
maí við undirritaðan eiganda og ábúanda jarðar-
innar, sem gefur nánari upplýsingar.
Sigmundarstöðum, 29. apríl 1964.
Jón B. Magnússon.
Byggingafélag verkamanna í Reykjavík
TIL SÖLU
3ja herb. íbúð í 6. byggingaflokki. Þeir félags-
menn, sem neyta vilja forkaupsréttar síns, sendi
umsóknir fyrir kl. 12 þann 7 b. m. á skrifstofu
félagsins, Stórholti 16.
Stjórnin.
Lesendisr lÍMANS
eru vinsamlegast beðnir að láta afgreiðsluna vita
STRAX, ef vanskil eru á blaðinu.
Afgreiðslusíminn er 1-23-23.t
T í M I N N, sunnudagur 3. maí 1964.
Ö