Tíminn - 03.05.1964, Qupperneq 13
Skrifað og skrafað
Framíiald af 6. síðu.
er víð hækkanir á verðlagi og
tekjum síðan hann var seinast
ákveðinn. Við þetta bætist svo,
að skattstiganum er breytt
þannig, að tekjuskattur, sem
legst á meðalháar og lágar skatt
skyldar tekjur hækka veru-
lega eða þannig, atj hann
hækkar úr 5.500 kr. 1 7000 kr.
á 50 þús. kr. skattskyldar tekj
ur, úr 9.500 kr. í 13.000 kr? á
70 þús. kr. skattskyldar tekjur,
og úr 14.500 kr. í 19.000 kr. á
90 þús. kr. skattskyldar tekjur.
Menn með miðlungstekjur
verða þannig að greiða frá
1500—4.500 kr. hærri tekju-
skatt en áður.
Hækkun tekjuskattsins verð-
tir hins vegar lítil hjá þeim,
sem hæstar tekjur hafa. Þann-
ig hækkar tekjuskatturinn, sem
maður með 250 þús. skattskyld
ar tekjur greiðir, aðeins um
7%, en á þeim, sem hafa 30—
70 þús. kr. skattskyldar tekjur,
TIL SÖLU
2ja herb. íbúð við Langholts-
veg. 1. veðréttur laus.
2ja herb. ný og glæsileg íbúð
við Ásbraut.
2ja herb. kjallaraíbúð í Norð-
urmýri. Sér inngangur. Sér
hitaveita.
3ja herb. rishæð í austurborg-
inni meo sér hitaveitu
geymslu á hæðinni, þvotta-
krók og baði.
3ja herb. efri hæð i steinhúsi
við Bragagötu. Góð kjör. 1.
veðréttur laus.
Sja herb. hæð í timburhúsi við
Shellveg. Eignarlóð. Bílskúr.
Útborgun kr. 120 þús.
)Sja herb. risfbúð við Lindar-
tgötu.
3ja herb. rishæð við Sigtun
3ja herb. nýstandsett kjallara-
íbúð við Þverveg. AUt sér.
3ja herb. vönduð fbúð við Suð
uriandsbraut. Steyptur bíl-
skúr. Útborgun. kr. 150 þús.
4ra herb. ný og glæsileg íbúð
í austurborginni, næstum
fullgerð. Mögulefkar á hag-
kvæmu láni.
5 herb. nýleg jarðhæð í Kópa-
vogi. 2 eldhús. Allt sér. Út-
borgun kr. 350 þús.
5 herb. nýleg og glæsileg hæð
við Rauðalæk.
5 herb. hæð í nýju timburhúsi
múrhúðað innan með vönd-
uðum innréttingum.
5 herb. nýleg íbúð við Hlíðar-
veg. Sér hiti, þvottahús á
hæðinni. Bílskúr.
Húseignir í Kópavogi
Luxns hæð, 4—5 herb. ásamt
stóru vinnuplássi í kjallara,
sem má breyta í 2ja—3ja
herb. íbúð. Selst með hæð-
inni, eða sér.
Steinhús við Langholtsveg, 4
herb. íbúð í risi. 3 herb. á
hæðinni. 800 ferm. ræktuð
og girt lóð. 1. veðréttur laus
í báðum íbúðunum, sem selj
ast saman eða sfn í hvoru
lagi.
Glæsilegt einbýlishús við Mel-
gerði í Kópavogi. Fokhelt
með bflskúr.
6 herb. endaíbúðir, 130 ferm.
í smíðum i Kópavogi. Sér
þvottahús á hæðinni. Sam-
eign utanhúss og innan full
frágengin. Hitalögr. með sér
hita. Tvennar svalir.
AIMENNA
FASTEIGNASAIAN
UNDARGATAJ^SÍMI^IIBO
H3ALMTYR PETURSSON
hækkar skatturian úr 20—37%.
Mest verður hækkunin á allra
lægstu tekjunum. Á 10 þús. kr.
skattskyldar tekjur, hækkar
skatturinn hvorki meira né
minna en um 100% (úr 500 kr.
í 1000 kr.)
Þannig lítur þessi „skatta-
lækkun“ ríkisstjórnarinnar út
í reynd. Til viðbótar ðllum
heyzlusköttununi, hækkar tekju
skat.turinn á_ miðgtéttum og
Jágtekjufólki, en ’ þeir tekju-
hæstu látnir sleppa bezt.
ALLIR KOMU AFTUR
Framhald af 9. síðu.
urðu þama til góðar sögur, ýmsar
lagaðar,\ svo þær fengju rétta
hnykki á réttum stöðum, og er
mér minnisstætt að þarna sat
Sigurður Matthíasson í öndvegi
og veitti umgang af bjór. Og þessi
kvöldstund var svo stórkostleg og
íslenzk, að það var ekki fyrr en
maður kom upp í herbergið sitt
og heyrði Lundúnahjartað slá fyr-
ir utan gluggann, að maður átt-
aði sig á því að við vorum ekki
stödd í einhverjum skíðaskála í
dalverpi uppi á Íslandí, heldur í
einni af mestu borgum veraldar.
Nú fer að styttast í þessari
sögu og eiginlega ekki annað eft-
ir en þakka Flugfélagi íslands fyr
ir sig. Mér þótti gott að koma tfl
Englands í fyrsta sinn með þessu
FASTEIGNASALAN
TJARNARGÖTU 14
Tjamargötu 14
auglýsir í dag eftirtaldar
ÍBÚÐIR:
2ja herb. góð kjallaraíbúð við
Drápuhlíð.
2ja herb. kjallaraíbúð við Njáls
götu.
2ja herb. fbúð á 2. hæð við
Ásbraut.
3ja herb. íbúð á hæð við Holts
götu.
3ja herb. fbúð á hæð við Stóra-
gerði.
3ja herb. fbúð á hæð við Ljós-
heima.
3ja herb. fbúð á hæð við Löngu
hlíð.
3ja herb. fbúð á hæð við Þver
veg.,
3ja herb. fbúð í risi fið Sörla-
skjól
3ja herb. mjög góð fbúð á 2.
hæð við Mávahlíð. Teppi |
fylgja.
irra herb. íbúð á hæð í stein-
húsi við Kársnesbraut.
4ra herb. íbúð á jarðhæð við
Bugðulæk Sér hiti. Teppi
fylgir
4ra herb. íbúð nær tilbúin,
á 1. hæð við Háaleitisbraut.
4ra herb. íbúð á 2. hæð við
Hjarðarhaga.
4ra herb. íbúð á hæð við Stóra-
gerði.
4ra herb. íbúð á hæð við Vall-
argerði.
4ra herb. fbúð í risi við Drápu-
hlíð.
4ra herb. íbúð á hæð við
Njörvasund.
5 herb. íbúo á hæð við Klepps
veg.
5 herb. íbúð á hæð við Rauða-
læk.
5 herb. fbúð á hæð við Guð-
rúnargötu.
5 herb. fbúð á hæð við Grænu
hlíð.
5 herb. íbúð á rishæð við Tóm-
asarhaga.
Lítið hús utan við bæinn —
Hentugt fyrir sumarbústað.
fbúðir í smíðum við Fells-
múla, Þinghólsbraut, og
víðar.
Einbýlishús og tvíbýlishús í
Reykjavík og Kópavogi.
Fasteipasalan
Tjarnargöfu 14
Sími 20625 og 23987
móti, í boði islenzks stórveldis.
Raunar var mér orðið það nokk-
urt feimnismál að liafa ekki kom-
ið í þetta land, en liafa hins veg-
ar komið að Kýrrahafinu bæði að
austan og vestan, og allt suður í
Afríku. Og hafi ég sagt fyrr í
þessari frásögn að Bretar >væru
geðfelldir vil ég endurtaka það
nú, undir lokin. Þeir hafa oft orð-
ið að loka augunum og hugsa um
England, eins og mærin góða á
brúðkaupsnótt sinni forðum, og
þótt spekingar tali nú um þá sem
þriðja flokks veldi, hvað sem það
nú þýðir, er aldrei að vita nema
að þeir eigi eftir að reisa þær
sperrur við Evrópu, að við Evropu
búar eigum eftir að snúa okkur
til þeirra enn einu sinni fullir
virðingar á þessari eyþjóð, sem
hefur svo margt ágætlega sagt og
gert.
En sem sagt, nú var ekkert eft-
ir annað en koma sér heim með
viðkomu í Oxford Street, Dolds
og Glasgow. Ég hallaði mér að
gömlurri Lundúnaref og gerði góð
kaup á mánudagsmorguninn, þótt
ég hefði litlu meira fé með hönd-
um en þær tuttugu danskar krón-
ur, sem var látið duga í Kínareisu
hér á árum áður. Þótt komið væri
að leiðarlokum var veizlu Flug-
félagsins hvergi nærri lokið. Hún
stóð alla leiðina heim. Mátti raun-
ar sjá það við komu vélarinnar
til Glasgow, að eitthvað stóð til,
því þeir höfðu tvöfaldað flug-
freyjuliðið. Nú voru þær fjórar í
stað tveggja á útleið. Hrafnhildur
Schram var önnur flugfreyjan á
útleiðínni. Hún hét því þá að hún
mundi sækja okkur og stóð við
það, en hinir sem tóku á móti okk-
ur í Glasgow voru þær Margrét
Lárusdóttir, Þórhildur Þorsteins-
dóttir, og Unnur Gunnarsdóttir.
Flugstjóri á heimleiðinni var
Gunnar Fredriksen, en Bjami
Jónsson var flugmaður. Nú var
ekkí farið frammí til þeirra sem
stýrðu, og þeir látnir einir um
■að plægja myrkrið norður eftir.
Það er heldur ekki gott um
hreyfingar fyrir menn sem sitja
með fangið fullt af veitingum.
Við sungum eins og fólk í rútu-
bílum fyrir stríð og heyrðum
varla í hreyflum fyrir „Kátir
voru karlar“, og öðrum bílsöngv-
um. Og það mátti til sanns vegar
færa, að „allir komu þeir aftur og
enginn þeirra dó“, þökk sé Flug-
félaginu.
FOSTER
Framhald af 8. síðu.
einu sinni til að fara að heim-
an og leita sér vinnu sem síma
mær til að sjá sér og dóttur
þeirra farborða.
Fjárhagskröggumar, og heim
ilisvandræðin urðu til þess, að
Foster hallaði sér æ meira að
flöskunni. Hann hafði komizt
allvel á kjöl um það leyti, sem
foreldrar hans og einn bréðir-
inn dóu með stuttu millibili.
En eftir það fór allt í handa
skolum fyrir honuen.
Elnn af ævisagnaritumm Fost
ers, Harold V. Mulligan, haíði
fyrir heimildarmann George
Cooper, sem þá var orðinn gam
all maður, var nánasti samstarís
maður og vinur skáldsins síð-
ustu æviár þess í New York
þótt aldursmunur væri mikiU
með þeim. Cooper orti ljóð,
en Foster lögin. Annars samdi
Foster tíðum sjálfur bæði ljóð
og lag, sem kunugt er, en kveð-
skapur hans var ekki á marga
fiska. f ævisögu Milligans stend
ur:
George Cooper kveðst hafa
hitt Foster fyrst í bakkompu
sóðalegrar matvörubúðar neðar
lega á Manhattan. f þann tíð
var það algengt, að matvöru-
búðir sneru út að götunni, en
á bak við þær drykkjustofa, og
einmitt á einum slíkum bar
eyddi Foster flestum stundum
síðustu árin. Cooper , lýsir hon-
um svo, að hann hafi þá verið
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
AKUREYRI
heildsotu
verzldnum, matsSlum og matarfélög-.i n
alls konar
matarpylsur og bjágu,
kjöt- og fiskbúðinga,
hangikjöt, vöðva — nýja og reykta,
skinnku, rúllupylsu — reykta, saltaða,
bacon, grísa- og sviðasultu,
kæfu- og blóðmör — tólg o. f
Pylsugerð KEA
Akureyri, sími 1700.
orðinn algerlega hirðulaus um
klæðnað sinn og útlit og virtist
hafa glatað sjálfsvirðingu.
Hann bjó í fátækrahverfinu
Bowery, þar sem hann hafði
herbergi í hrörlegum leigu-
hjalli og borgaði 25 cent fyrir
gistinguna. Fyrsta söngljóð
þeirra félaga var gefið út 1833,
og það ár sömdu þeir átján
söngva, sem gefnir voru út
sama ár. Ekki þoldi bið að
koma þeim í peninga, en oft.-
ast neyddust þeir til að selja
þá á smánarverði. Eitt söng-
lag, „Willie Has Gone to the
War“ settu þeir saman eina
morgimstund. Er því var lokið,
vafði Stephen laginu upp og
sagði: „Jæja, hvar eigum við
að bera niður með þetta?“
Cooper kveðst muna greinilega
þennan hráslagalega vetrar-
morgun, með snjóslyddu og
krapi á götunum. Stephen hafði
verið á götóttum skóm og
frakkalaus, en það sýndist ekki
bfta á hann. Skáldið og
tónskáldið skálmuðu upp eftir
Broadway og fóru fram hjá
Wood's-hljómleikahúsi, oS
um leið og eigandinn kom auga
á skáldin, kallaði hann. „Hvað
hefurðu undir handleggnum
núna, Stebbi?“ Og þetta var
eins og við manninn mælt, lag
! ið selt þarna á stundinni gegn
tíu dölum út í hönd og 15 í
viðbót í miðasölunni þá utn
kvöldið, þegar átti að kynna
lagið. Þannig varð allur kaup
skapur þeirra félaga, þeir urðu
að gera sér að góðu einungis
smávægilega staðgreiðslu án
tilkalls til þóknunar af flutn-
ingi, og var það einkum nöpur
og smánarleg framkoma við
Foster. Þrátt fyrir fátækt hans,
telur Cooper, að hann hafi ætíð
reynt að senda einhverja pen-
inga til konn sinnar og dóttur,
þótt hann væri ekki maður til
að vinna fyrir þeim síðustu ár
in og þau þá ekki búið saman.
Foster hafði drukkið að stað-
aldri, en ekki kveðst Cooper
samt hafa séð hann áberandi
drukkinn. Þó hafi hann kært
sig kollóttan um mat langtím-
um saman, látið sér nægja epli
eða gnlrófu og ætíð notað vasa
hníf tíl að afhýða „Rommið“
sem hann drakk, hafi barþjónn
in bruggað honum úr frönsku
brennivíni og púðursykri og
geymt það á kút handa honum
Nærri ótrúlega létt hafi Fost
er veitzt að semja sönglögin og
koma þeim jafnóðum á blað og
þurfti hann ekki á hljóðfæri að
halda. Hefði hann ekki nótna
pappfr, notaðist hann við um-
búðapappír eða hvaðeina, sem
nærhendis var og strikaði og
skrifaði nóturnar eldfljótt og
komu lögin oftast fullskðpuð S
á blaðið svo að Foster gerði
ekld breytingar, áður en hann
lét handritið fra sér fara. Orð-
rétt frásögn Coopers af enda
lokum Fosters er á þessa leið:
Einn vetrarmorgun snemma I
fékk ég skilaboð um að vinur
minn héfði orðið fyrir slysi.
Eg klæddi mig í skyndi og fór
niður nr. 15 Bowery, í gamla
leiguhjallinn, þar sem Stephen
bjó, og kom þar að honum
liggjandi ósjálfbjarga á gólfinu
og blæddi úr skurði á hálsi
hans, líka var hann illa skrám
aður á enni. Hann hafði stór
undurfalleg brún augu og
aldrei gleymi ég því hvemig
þau norfðu á mig í þetta sinn.
Hann sagði hvíslandi lágt. „Nú
er ég búinn að vera,“ og bað
mig svo um drykk af áfengi.
En áðnr en ég færi að útvega
hann, kom læknirinn, sem harð
bannaði, að Foster fengi áféngi
og fór strax að suma saman
skurðinn á hálsi Stephens, en
mér brá heldur í brún við að sj á
að hann notaði svartan tvinna.
,3afið þér ekki hvítan tvinna?'*
spurði ég, en því neitaði hann
og kvaðst hafa tekið það fyreta
sem hann fann. Eg dró þegar
þá ályktun, að þetta væri ein-
hver hrossalæknir, fór út og
sótti Stehpen vænan drykk af
rommi, og það virtist gera hon
um gott. Síðan klæddum vi5
hann og fórum með hann á
spítala. Slysið hafði viijáð til,
er hann fárveikur og í sótthita-
kasti seildist eftir vatnskönnu, í
missti jafnvægið og skárst svo
illa á könnunni í fallinu.
Þegar ég heimsótti hann
næst á spítalann, kvaðst hann j
enga læknishjálp hafa fengið '
þar, og hann kom ekki niður
neinum mat. Eg fór aftur til x
hans daginn eftir en var ekki ,
fyrr kominn inn úr dyrunum >
en sagt var við mig „Vin
ur yðar er dáinn.“ Það var bú- '
ið að senda hann út í líkhúsið
innan um hina nafnlausu. Eg
fór þangað og hitti gamlan i
mann sem sat og reykti pípu
og bar upp erindið. „Farðu og
reyndu að finna hann“ sagði<
sá gamli. Eg gekk inn og gægð-
ist ofan í hverja kistuna af
annarri þangað til ég fann lík -
Stephens. En næsta dag komu
til borgarinnar ekkja Stephens
og Morrison bróðir hans, sem
ég hafði sent skeyti um lát
hans. Þegar ekkjan kom inn í
salinn, þar sem lík manns
hennar lá, kraup hún á kné og
þar hafðist hún við langa lengi
Þau höfðu alltaf elskazt þótt
sífellt sigi á ógæfuhliðina fyr-
ir þeim í lífinu.
T í M I N N, sunnudagur 3. mai 1964.
13